Dagur - 04.06.1993, Blaðsíða 8

Dagur - 04.06.1993, Blaðsíða 8
Yfirlit yfir helstu menningarviðburði við utanverðan Eyjafjörð frá vori til vors í júnímánuði 1992 kom Dómkórinn í heimsókn og hélt tónleika í Dalvíkur- kirkju og Hríseyjarkirkju. Skömmu síðar héldu þær Halla Jónasdóttir og Fríður Sigurðardóttir tónleika við undirleik Kára Gestssonar píanóleikara í Dalvíkur- kirkju til minningar um þrjá unga menn sem dóu sviplega í blóma lífsins. I júlí voru tvennir tónleikar í Dalvík- urkirkju á vegum Sumartónleika á Norð- urlandi: Fyrst kom Tónlistarhópur Akur- eyrarkirkju og síðan þeir Egbert Lewark trompetleikari og Wolfgang Portugall orgelleikari. Haustið var fremur tíðindalítið, en í nóvember var efnt til menningarhátíðar í tilefni af stofnun Útlistar - listvinafélags við utanverðan Eyjafjörð. Þar var eftirtal- ið á dagskrá: Rokkhátíð í Arskógi; Björk Jónsdóttir sópran og Svana Víkingsdóttir píanóleikari í Dalvíkurkirkju; Djasskvart- ett Paul Weedens í Tjarnarborg, Olafs- firði; Tjarnarkvartettinn í Dalvíkurkirkju. í lok mars söng Háskólakórinn í Dal- víkurkirkju. Sama dag frumsýndi Leikfé- lag Ólafsfjarðar barnaleikritið Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkcgárd í leikstjóm Þórunnar Magneu Magnúsdóttur. Aprílmánuður hófst á frumsýningu Leikfélags Dalvíkur á Strompleiknum eftir Halldór Laxness í leikstjórn Þráins Karlssonar. í sama mánuði hélt Rökkur- kórinn á Sauðárkróki tónleika í Dalvíkur- kirkju og þar voru einnig haldnir tónleik- ar söngdeildar Tónlistarskólans á Akur- eyri. Segir það sína sögu um það hversu eftirsótt tónleikahús Dalvíkurkirkja er oróin. Það á eflaust eftir aö aukast enn þegar safnaðarheimilið verður komið í fulla notkun en neðri hæó þess var vígð um jólin. í maímánuði komu tveir kórar úr Mosfellsbæ í heimsókn, Mosfellskórinn og Karlakórinn 4K, og héldu söng- skemmtun í Víkurröst á Dalvík. Síðari hluta mánaðarins var haldin mikil söng- hátíð í Dalvíkurkirkju. Þar sungu Kór Dalvíkurkirkju, Kirkjukór Svarfdæla, Karlakór Dalvíkur, kvennakór, karla- kvartett, dúett og einsöngvarar, en gestir voru þau Óskar Pétursson tenór og Guð- rún A. Kristinsdóttir píanóleikari. Þótti hátíðin takast vel og er stefnt að því að gera hana aó árlegum viðburði í svarf- dælsku menningarlífi. Vorkoma Lions- klúbbs Dalvíkur er löngu orðin að föstum lið í menningarlífinu en hún er haldin um hvítasunnu. I ár stóðu Lionsmenn fyrir myndlistarsýningu þar sem líta mátti verk Þórðar Halldórssonar á Dagverðará, Guðrúnar Guðjónsdóttur og Guðmundar Óskarssonar. Einnig hélt Karlakórinn Heimir úr Skagafírði tónleika og bíósýn- ing var fyrir bömin. Þetta eru helstu viðburðir sem sitja í minni skrásetjara (sem búsettur er á Dal- vík), en þá eru ótaldir ýmsir mannfagn- aðir þar sem heimamenn höfðu ofan af fyrir sér og öðrum, svo sem jólaskemmt- Heimar þéttbýlis og strjálbýlis eru að mörgu leyti mjög ólíkir. Þeir sem búa i strjálbýli verða að treysta meira á sig sjálfa - og nágrannann - en borgarbúinn. Þetta á við um flesta hluti. Það kemur til dæmis mjög berlega í ljós á menningar- sviðinu. I fámennum sveitarfélögum er stór hluti íbúanna viðriðinn menningar- starf eða listsköpun af einhverju tagi. Margir eru í kirkjukórnum og jafnvel enn fleiri í venjulegum kór. Mikill meirihluti bamanna á svæðinu stundar nám í tónlistarskólanum. I lúðrasveitinni eru mikill meirihluti nemenda tónlistarskól- ans. Þegar svo tónlistarskólinn heldur sína árlegu vortónleika eru mættir flestir , foreldrar í hreppsfélaginu - afar, ömmur og systkini. Samanlagt getur þetta orðið helmingur íbúanna! í grunnskólanum er nemendafjöldi oft ekki meiri en svo aó allir nemendurnir taka þátt í athöfninni við skólaslitin. Það getur verið upplestur, leikþættir, söngur og hljóðfæraleikur. Allir eru gjaldgengir, einstakir og þýðingarmiklir. í mörgum sveitarfélögum eru starf- andi leikfélög, flest félög áhugamanna. Stundum eru sett upp mannmörg leikrit í litlum sveitarfélögum. Þá verða allir fé- lagar leikfélagsins- og jafnvel fleiri- að taka þátt í sýningunni. Nánast allir íbúar sem fótavist hafa koma auðvitað að sjá sýninguna -og gá um leið að því hvemig nágranninn stendur sig. Farið er í leikferð í næstu sveitir. Leikfélög nágrannasveit- anna koma í heimsóknir og þeim er laun- anir, nemendaskemmtanir skólanna o.s.frv. A Dalvík hefur tónlistarlíf verið í miklum blóma og ber þar hæst söngdeild Tónlistarskóla Dalvíkur og lúðrasveit skipaða bömum og unglingum af Dalvík, Arskógsströnd og úr Svarfaöardal, að ógleymdum Kór Dalvíkurkirkju sem á liðnum vetri hefur m.a. sungið í Dóm- kirkjunni í Reykjavík og tekið þátt í Vín- artónleikum Kammerhljómsveitar Akur- eyrar. Auk þess hafa nokkrir kórar sótt okkur heim og sungið við messur í kirkj- unum á svæðinu. Þröstur Haraldsson. uö góð aðsókn í heimabyggð með enn betri við þeirra heimsókn. Ibúar dreifbýl- isins sjá margir hverjir 3-4 leiksýningar árlega í sínu byggðarlagi og næsta ná- grenni fyrir utan það að sækja mögulega leikhús í höfuðborg sinni, norðan eða sunnan heiða. I dreifbýlinu er áhugamennskan aðal- einkenni á flestri listsköpun. Sumir menningarvitar gefa ekki mikið fyrir list áhugamanna, telja hana lakari - óæðri - en þá sem framin er af atvinnumönnum. Þetta er á stundum dæmi um hrokafulla afstöðu en oftast einfaldlega misskilning- ur. 011 listsköpun sem framin er af metn- aði og einlægni er jafn verðmæt í sjálfu sér og hún nær tilgangi sínum ef þeir sem njóta hennar verða snortnir á einhvern hátt. Að fremja list veitir mörgum mannin- um ómetnalega lífsfyllingu og margir listamenn leggja allt í sölumar, helga líf sitt listinni af takmarkalausri ástríðu. Það er freistandi aö álykta sem svo að því fleiri sem fremji list því meiri lífsfyll- ing og ánægja verði henni samfara. Menningarlíf þéttbýlisins er oftast svo að fáir skapa en margir njóta. Það er senni- lega rökrétt afleiðing af því lífsmynstri sem þar skapast. Menningarlíf dreifbýlis- ins er hins vegar þannig að oft eru það margir sem skapa og nær allir sem njóta. Þetta er meðal þeirra verómæta og for- réttinda í dreifbýli sem seint verða of- metin. Steinar Harðarson Kópaskeri Forréttindin ÁBM.: ANNA HELGADÓTTIR PRENTVINNSLA DAGSPENT HF.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.