Dagur - 22.07.1993, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 22. júií 1993
Dagdvelja
Stjörnuspa
* eftir Athenu Lee
Fimmtudagur 22. júlí
Vatnsberi
(S0. jan.-18. feb.;
Þetta ætti að ver&a fremur
ánægjulegur dagur þegar þú hef-
ur lagt aö baki minniháttar vand-
ræði. Framundan eru góðir dagar
þegar ástin er annars vegar.
d
Fiskar
(19. feb.-20. mars)
3
Ef þú ert of sjálfsöruggur gætir þú
vanmetið stærð verkefnisins og
þurft á aðstoð að halda að lokum.
Þú þarft líklega að fresta ákveðnu
verki.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Óþægilegt andrúmsloft gerir að
verkum að dagurinn byrjar illa og
þú stendur í deilum vib samstarfs
félagana. Þetta lagast meb kvöld-
inu.
(W
Naut
(20. apríl-20. mai)
)
I dag munt þú bera þig saman
við aðra og reyna að læra eitt-
hvað af þeim. Heppnin mun
sækja þig eða félaga þinn heim í
dag.
(s
Tvíburar
(21. maí-20. júni)
J
Þú finnur fyrir því ab enginn vill
hjálpa þér og ab fólk er jafnvel á
móti þér. Þetta dregur þig niður
en stattu þig og reiddu þig á sjálf-
an þig!
( TfvaWiÍ ^
WNc (21. júni-22. júli) J
Fólk er ekki alltaf þab sem það
sýnist. Gerðu ráð fyrir einhverju
óvenjulegu í dag sem þessu teng-
ist. Þú færb ánægjulega heimsókn
frá gömlum vini.
(<mápi4Ón 'N
\JTVUV (25. júli-22. ágúst) J
Þótt verkefnin virðist kannski erfið
máttu ekki láta það draga þig niö-
ur. Ef þú ert ákveðinn kemur þú
ótrúlega miklu í verk. Happatölur
eru 2, 24 og 33.
(E
Meyja
(23. ágúst-22. sept
D
Nú er rétti tíminn til að fram-
kvæma þab sem þú hefur verib
ab ráðgera. Einhverrar spennu
gætir í samskiptum við ástvini.
Vog
(23. sept.-22. okt.
D
Þetta ætti að verba nokkuð
ánægjulegur dagur þótt hann
virðist í upphafi ætla að veröa
leiðinlegur. Reyndu að gera eitt-
hvað óvenjulegt í kvöld.
(\mC Sporödreki^
(25. okt.-21. nóv.) J
Náið persónulegt samband er þér
efst í huga í dag. Eldra fólk nytur
mestrar ánægju frá félögum sín-
um en yngra fólkið virbist róman-
tískara.
(Bogmaöur 'N
\j^l X (22. nóv.-21. des.) J
Samskipti ganga vel í dag svo ef
þú ert ab bíba eftir boðum eða
aréfum frá einhverjum, ættu þau
að berast í dag. Vandræði koma
upp sem tengjast kynslóbabilinu.
r
Steingeit
(22. des-19. jan.)
Fólk í persónulegum vandræðum
leitar rába hjá þér og þú þarft
sennilega að lána öxl þína til að
gráta á. Happatölur eru 4, 23 og
30.
Viltu fara með hann út áður en það verður
slys hjá honum?
o
■&i
3
-2
.2
£
ea
Ég held að rauðhærða
stelpan í bókhaldinu sé
farin að taka eftir daðrinu í
mér.
\
I lyftunni í gær kom
umst við í augnsam
band.
©KFS/Distr. BULLS
Leit hún tælandi á þig?
I
Nei, hún potaði bíl-
lyklinum sínum í aug-
að á mér.
Á léttu nótunum
Hjólreibamaburinn
Trúboba sem ferðaðist um Amazon hugkvæmdist ab best væri ab reyna að
kenna leiðsögumanninum nokkur orb á siðuðu máli. Hann byrjabi ab lýsa
hinni gubsgrænu náttúru með þeim orðum er hann þekkti til. Þar til þeir
komu að manni og konu í áköfum ástarleik. Þá sagði guðsmaburinn:
„Maður á hjólreiðum."
Sá innfæddi tók upp ör, lagði á streng og skaut manninn sem var vib iðju
sfna. „Maður á mínu reibhjóli."
Á komandi ári muntu ná mun
meiri árangri í starfi en undanfar-
in ár. Láttu ekki rólega byrjun
draga úr þér. Breyting á lífi ein-
hvers þér nákomins mun hafa
gób áhrif á þitt líf. Vinum þínum
fjölgar á árinu.
Orbtakib
Vera lobinn um lófana
Orðtakið merkir að vera vel efn-
aöur.
Að baki orðtakinu virbist liggja
þjóðtrú, sbr. málsháttinn: „Hönd
hins ríka er loðin í lófanum".
Þetta þarftu
ab vita!
Hættulegasta köngulóin
Eremitköngulóin (Loxosceles red-
usa) er sögð hættulegasta,
köngulóin en eitur hennar etur
sig gegnum húð þess sem veröur
fyrir biti. Nú fyrst hefir tekist að
framleiba móteitur í Ameríku og
þab á eftir að bjarga mörgum
mannslífum.
Hjónabandib
Réttur konunnar
„Sérhver kona hefur leyfi til að
skipta um skoðun mannsins
sins." Okunnur höfundur.
STÓRT
Hneggjandi
fálkar og látnir í
strætóþvotti
Prentvilluupúk-
inn hefur oft
leikið blaða-
menn grátt og
ótrúlegustu
villur hafa farið
á prent - jafn-
vel í stórum
fyrirsögnum.
Þannig spurbi Dagur fyrir nokkr-
um árum í fyrirsögn „Hneggja
fálkar....?". Þarna átti auðvitað
að standa „Hneggja fákar....?"
En oft er þab svo ab skondnustu
fyrirsagnir dagblaðanna verða
alveg óvart til, ef svo má að orði
komast. Ein albesta fyrirsögn síb-
ari ára birtist í Degi fyrir nokkr-
um árum og hljóðaði eitthvab á
þessa leib: „Látnir þvo strætis-
vagna á nóttunni". Þarna var
blabamabur ab vísa til ummæla
Sigfúsar Jónssonar, þáverandi
bæjarstjóra á Akureyri, þess efnis
ab til greina kæmi ab vakthaf-
andi slökkvilibsmönnum yrði
fengib þab hlutverk ab næturlagl
ab skrúbba skítinn af strætis-
vögnum bæjarins. Sigmund,
hinn snjalll skopteiknari Mogg-
ans, brást ab sjálfsögbu skjótt
vib og teiknabi beinagrindur vib
strætisvagnaþvott.
• Þvaglát hunda
og framhalds-
skólar
Bæjarfulltrúar
á Akureyri
komust dável á
flug á fundi
bæjarstjórnar
Akureyrar sl.
þribjudag þeg-
ar til umræbu
var umdeild
skipting ríkisstjórnarinnar á ein-
um milljarbi til atvinnuskapandi
verkefna. Björn jósef Arnvibar-
son komst oft skemmtilega ab
orbi í eldmessu sinni. Mebal ann-
ars sagbi hann ab ekki mætti
hundur míga í nýju hverfi í
Reykjavík svo þar væri ekki þegar
í stab byggbur nýr framhalds-
skóli. Þarna var Björn Jósef ab
vitna til þess ab einn af umdeild-
um libum í skiptingu ríkisstjórn-
arinnar er 42,5 milljónir króna til
byggingar nýs framhaldsskóla í
(Srtffarvogi í Reykjavík.
• Atvinnusköpun
bæjarfulltru-
anna syöra?
Björn jósef dró
mjög í efa, eins
og ráðamenn
■hafa óspart
haldib á lofti
að undan-
förnu, ab vega-
gerð úti á
landsbyggb-
innl skapaði mikla vinnu fyrir
landsbyggðarfólk. Benti hann
máll sínu til stubnings á vega-
gerð í Öxnadal. Þar væri Hag-
virki-Klettur frá Hafnarfirbi meb
stórt verkefni (Bakkaselsbrekk-
an) og einn af forsvarsmönnum
þess fýrirtækis væri bæjarfulltrúi
í Hafnarfirbi (Jóhann Bergþórs-
son). Annab stórt verkefni í
Öxnadal væri í höndum verk-
takafyrirtæklsins Klæbningar úr
Garbabæ og þar væri einn af
toppunum bæjarfulltrúi úr Kópa-
vogi (Gunnar Birgisson, formab-
ur bæjarrábs).