Dagur - 24.09.1993, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 24. september 1993
Fréttir
Ekki-innflutningur Matvörumarkaðarins á kengúrukjöti:
Mér krossbrá þegar ég sá DV
- segir Hrafn Hrafnsson, kaupmaður
Óhætt er að segja að frétt DV sl.
miðvikudag um innfiutning
Hrafns Hrafnssonar, kaup-
manns í Matvörumarkaðnum á
Akureyri, á kengúrukjöti frá
Ástralíu hafi vakið mikia at-
hygli. Fréttin er höfð eftir
Hrafni, en engu að síður er
málið hreinn tilbúningur.
Hrafn sagði í samtali við Dag í
gær að blaðamaður DV hafi haft
samband við hann á þriðjudag og
spurt hann hvort rétt væri að hann
hefói til skoðunar aó flytja inn
kengúrukjöt frá Ástralíu. „Ég taldi
að þarna væri verið að gera grín
að mér og svaraði blaðamanni út
í hött. Mér fannst málið svo frá-
leitt og því datt mér ekki annaó til
hugar en að spauga með það. En
út úr samtalinu við blaðmann DV
kom þessi frétt í blaðinu og í
henni er rétt eftir mér haft. Mig
grunaði ekki að þetta samtal
myndi birtast sem frétt í blaðinu
og því krossbrá mér þegar ég sá
DV í gær. Hefði mig grunaó aó
DV væri alvara, þá hefði ég
aldrei svarað spumingum blaða-
manns á þessum nótum.
Ég hef ekki hugmynd um tilurð
Hrafn Hrafnsson.
fréttarinnar. Ég hef verið aö reyna
að grafast fyrir um það, en er enn
sem komið er engu nær.“
Hrafn sagöist helst álíta að ein-
hver spaugsamur kunningi hans
hafi hringt kengúrufréttina í
fréttaskot DV, einungis til þess að
hrekkja hann. DV hafi lagt trúnað
á málið og þannig hafi boltinn far-
ið að rúlla. „Því mióur hefur mér
Reykjahverfí:
Háliðagras nær 2,44 m
hæð við Bláhvamm
- „sæmileg spretta,“ segir Jón Frímann
Strá af háliðagrasi sem óx við
Bláhvamm í Reykjahverfi
mældist 2,44 m, að sögn Jóns
Frímanns bónda þar. Jón hirti
stráið en lét það ekki fylgja strá-
unum í hlöðuna heldur tyllti því
upp á stofuvegg, láréttu, þar
sem lofthæð leyfði ekki lóðrétta
stöðu.
Jón Frímaiui segir að hann telji
þetta sæmilega sprettu, en ekkert
mjög sérstakt tilfelli. Haiui hefur
Frystikistur frá kr. 29.830
ST -
\ * ' 0~ • • ! J
□ I KAUPLAND 1 Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
oröið var við umræðu um löng
strá í fjölmiðlum og fór því að
mæla löng strá í garði sínum. Jón
sagði að svona strá yxu auðvitað
ekki nema í óræktargörðum og
væru vitnisburður um trassaskap
eigenda sinna, því ætti hann í
rauniiuii ekki að segja nokkrum
mamú frá fundi sínum. IM
plrafn Hrafiisson, kaupmaður á Akureyri, í viðræðum við Ástrali um kjötlv
^Etlar að flytja keng
úrukjöt til Islands,
■^iðsla á sliku lrfw hér, segú^
Frétt DV sl. iniðvikudag um inntlutning Hrafns á kcngúrukjöti var aðal-
frcttin á blaðsíðu 2.
ekki tekist að einangra þennan
spaugsama kunningja út úr mínum
kuiuringjahópi. Það koma svo
margir til greina," sagði Hrafn og
hló.
Þess má geta að á miðvikudag-
inn rann DV út eins og heitar
lummur í Matvörumarkaðnum og
raunar seldist blaðið þar upp, sem
mun vera fremur sjaldgæft. óþh
Blönduós:
Fjögur ný þjónustu-
hús tekin í notkun
Um helgina verður Iokið við frá-
gang fjögurra nýrra þjónustu-
húsa á tjaldsvæðinu á Blöndu-
ósi. Hlutafélagið Glaðheimar
stendur fyrir byggingu húsanna,
sem eru ætluð til útleigu árið
um kring.
Að hlutafélaginu Glaðheimum
standa norskir aóilar, Stígandi hf.,
Blönduósbær, Hótel Blönduós og
Pípulagnaverktakar hf.
Áóur höfðu verið byggð tvö
hús á tjaldsvæðunum og nú eru
þau sem sagt orðin sex.
Hilmar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Stíganda, segir að
fullbúin kosti þessi sex hús um 24
milljónir króna.
Húsin eru hugsuð til útleigu ár-
ið um kring. Þau eru vönduð í alla
staði og í þeim er öll nútíma
þjónusta, þ.m.t. sjónvarp og
sauna. Húsin eru mismunandi
stór. Það miimsta er gefið upp fyr-
ir þrjá en þaö stærsta fyrir átta.
Hilmar sagði að þessi hús hafi
enn sem kornið er ekki verið
markaðssett hér heima sem neinu
næmi, en ekki væri síður horft til
samstarfs við norsku samstarfsað-
ilana. „Þaö kemur norskur hópur
um mánaðamótin og dvelur hér í
fimm daga,“ sagði Hilmar.
Hilmar sagði að leiguverð fyrir
húsin yrði núsmunandi, þaö færi
eftir stærð þeirra. Gróft séð væri
verðið á bilinu 3-8 þúsund krónur
fyrir nóttina og leigan fyrir vik-
una 12-35 þúsund krónur. Frá
þessum verðum er gefnm 30-40%
vetrarafsláttur. óþh
Júragarðurinn „opnaður“
á Akureyri í kvöld
í kvöld hefjast sýningar á stór-
myndinni Júragarðinum (Jur-
assic Park) í Borgarbíói á Akur-
eyri og er þar um að ræða
frumsýningu á myndinni norð-
an heiða. Hún hefur hlotið met-
aðsókn hvarvetna sem hún hcf-
ur verið sýnd og er á góðri leið
með að skipa sér í efsta sætið yf-
ir vinsælustu myndir allra
tíma.
Gamla aðsóknarmetiö hér á
landi er þegar fallið því rúmlega
60 þúsund Islendingar hafa séó
Júragarðinn til þessa. Aðsóknar-
metið norðan heiða er hins vegar
komið til ára sinna. Það var sett
um miðjan sjöunda áratuginn þeg-
Hrossasmölun
Réttaö veröur í Borgarrétt laugardaginn 25.
september kl. 13.00.
Fjallskilastjóri.
ATH! Réttardansleikur
í Sólgarði um kvöldið.
ar um 10.500 manns sáu hina
margrómuðu söngvamynd Tóna-
llóð (Sound of Music) í Borgar-
bíói á Akureyri. Þá var öldin önn-
ur eins og þar stendur, ckkert
sjónvarp, engin myndbandstæki
o.s.frv., og því líklegt aö þetta að-
sóknarmet standi óhaggað um ald-
ur og ævi. Forsvarsmemt Borgar-
bíós gera sér hins vegar vonir um
að yngra aðsóknarmetið verði
slegið en það er frá því í fyrra er
4.000 manns sáu myndina Ógnar-
eðli (Basic Instinct).
Vinsældir Júragarðsins má m.a.
rekja til þess að í myndinni eru
hinar útdauðu risaeölur vaktar til
lífsins að nýju með hjálp nýjustu
tækni og vísinda. Myndin hefur
hlotið lof fyrir ótrúlegar tækni-
brellur og magnaða spennu. Nú er
að sjá hvort Norðlendingar fjöl-
meiuta til aö sjá hinar útdauðu
eölur í essinu sínu.
Þrír gesta Júragarðsins virða fyrir sér eina af þeim furðuskepnum, seni
koma til með að leika lausum hala á sýningartjaldinu í Borgarbíói á næst-
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
■ Safnahúsið á Húsavík hyggst
gefa út bókina „Húsavíkurland,
ömefni og söguminjar." Safna-
húsið hefur óskað eftir að bærinn
vcrði eins konai' bakhjail varð-
andi útgáfu bókarinnar og láni
kr. 300 þúsund til næsta árs,
þegar bókin kemur út. Bæjarráö
hefur samþykkt erindið. Safna-
húsið hefur ennfremur óskaö eft-
ir samstarfi við bæinn um ýmsa
atburói til að minnast 50 ára af-
mælis lýðveldisins á næsta ári.
■ Byggingamannafélagið Ár-
vakur hefur beint tilmælum til
Bæjarstjómar um aö fundið
verði svæði fyrir orlofshúsa-
byggð á Húsavík. Félagið lýsir
áhuga á að reisa orlofshús í landi
Húsavíkur, til að nota í skiptum
fyrir afnot af orlofshúsum ann-
arsstaðar á landinu. Erindinu var
vísaó til skipulags- og bygginga-
nefndar.
■ Bæjarráó hefur samþykkt að
heimila Völsungi að setja upp
sandblakvöll sunnan við sund-
laugina, með því skilyrði að
völlurinn verði lálimi víkja, ef
og þegar Sundlaugin þyrfti á
lóðinni að halda til eigin nota.
Samþykkt er einnig að leggja
fram vélavimiu og fyllingu í
völlimi.
■ Bæjarráð hefur tiluefnt í
staifshóp til skipulagningar
menningarviðburða á árinu
1994, í tilefni af 50 ára afmæli
Lýðveldisins. Eftirtalin voru til-
nefnd: Valgerður Gunnarsdóttir,
Guðni Halldórsson og Einar
Njálsson.
■ Bæjarráð hefur samþykkt aó
veita Björgunarsveitinni Garðari
500 þúsund króna styik til kaupa
á Vísishúsinu.
■ Bæjarráð hefur oróið viö er-
indi útvarpsklúbbs Framhalds-
skólans á Húsavík um 100 þús-
und króna styrk til kaupa á tæki
sem gerir kleift aö senda beint út
frá ýmsum viðburðum, s.s.
íþróttaviðburðum, atburðum á
vegum skólans og bæjarstjómar-
fuudum.
■ Bæjarráð hefur samþykkt að
veita Kirkjukór Húsavíkur 150
þúsund króua styrk, en kirkju-
kórinn á 50 ára afmæli á árinu.
■ Bæjairáð hefur samþykkt aó
leggja til viö bæjaistjóm að
framvegis verði greidd niöur
dagvistargjöld hjá dagmæðrum
fyrir böm námsmanna 0-6 ára.
Sama regla mun þá gilda fyrh'
böm námsmanna og böm ein-
stæðra foreldra, sem ekki eiga
kost á leikskólavist.
■ Svæöisskrifstofa málefna fatl-
aðra Norðurlandi eystra óskar
eftir lóð í miðbæ Húsavíkur til
að byggja sambýli fyrir 5 ein-
staklinga sem nú búa flestir á
Vistheinúlinu Sólborg á Akur-
eyri. Bygginganefnd leggur til
að boðin verði fram lóð að suun-
anverðu við Pálsgarð, milli lóö-
aima Ketilsbrautar 5 og smáhýs-
anna við Litla Hvamm.
■ Veitunefnd samþykkti tillögu
vcitustjóra um 3,2% hækkun
gjaldskrár Rafveitu frá 1. ágúst,
til að mæta hækkun um 5,3% á
heildsöluverði frá Rarik.
■ Atvinnumálauefud Húsavíkur
fékk Stefán Jónsson, fram-
kvæmdastjóra Atvinnuþróunar-
félagsins, á fund þar sem hann
greindi frá því að fyrirtækið Glit
í Reykjavík væri lil sölu. Or-
yikjabandalag Islands á fyrirtæk-
ið en hyggst hætta rekstri og
selja það. Nefndin telur hug-
myndina um kaup fyrirtækisins
best komna hjá hópi einstak-
linga, félagi cða fyrirtæki, en
stuðning af hálfu bæjarins vel
koma til greina.