Dagur - 24.09.1993, Qupperneq 3
Föstudagur 24. september 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Setning Hólaskóla:
Mikil aðsókn
í skólann í vetur
- þrátt fyrir neikvæða umræðu um landbúnað
Bændaskólinn á Hólum var sett-
ur við hátíðiega athöfn á þriðju-
dagskvöldið. Að sögn Jóns
Bjarnasonar, skólastjóra, eru 44
nemendur við skólann og er góð
aðsókn þrátt fyrir auknar for-
kröfur. Jón segir það sýna að
fólkið í landinu hafi enn heii-
brigða skynsemi þrátt fyrir
áróður stjórnvalda og fjölmiðla
gegn landbúnaði.
Skólinn var settur í Dómkirkj-
unni. Sr. Bolli Gústavsson vígslu-
biskup flutti hugvekju og skóla-
stjórinn flutti setningarræðu. Að
venju kynntu nemendur og kenn-
arar sig. Að lokinni atliöfn var
boðið til kaffiveislu. Hinir 44
nemendur eru á öllum brautum, en
flestir í hrossarækt. Kynjaskipting
cr nokkuó jöfn, þó heldur færri
stúlkur, eöa 20 talsins.
Undirbúningskröfur hafa verið
auknar inn í skólann og með því
er hægt að breyta skipulaginu og
bjóða nemendum upp á styttri
námstíma. Eiginlegur námstími
styttist þó ekki nema um u.þ.b.
ciiui mánuð, en nemendur sem nú
hefja nám ijúka því á einu sam-
felldu ári, í staó tveggja vetra áð-
ur. Þetta fyrirkomulag gefur
mönnum tækifæri á að sinna nýj-
ungum í skólastarfinu, segir Jón
Bjarnason. Þar á hann við t.d.
framhaldsnám í ýmsum greinum.
Jón segir að aðsókn að skólanum
sé alla jafna þreföld m.v. þann
fjölda sem liægt sé að taka inn.
Ekkert lát er á aðsókn þrátt fyrir
barlóm í landbúnaði. „Það sýnir
bara hvað fólk almennt í landinu
er þó með tiltölulega heilbrigða
skynsemi þrátt fyrir þeiman dynj-
andi áróður fjölmiðla og forsvars-
maima í stjórn og atviimulífi þjóð-
arinnar," sagói Jón. sþ
í vctur cru 44 nemendur við Baindaskólann á Hóluni og þar af 20 stúlkur.
Sex samtök atvinnurekenda í löggiltum iðngreinum í eina sæng:
Samtök iðnaðarins stofiiuð
Stofnfundur Samtaka iðnaðar-
ins verður haldinn í dag í fund-
arsal Húss iðnaðarins í Reykja-
vík. Að hinum nýju samtökum
standa Félag íslenskra iðnrek-
enda, Landssamband iðnaðar-
manna, Félag íslenska prcntiðn-
aðarins, Verktakasamband Is-
lands, Meistara- og verktaka-
samband byggingamanna og
Samband málm- og skipa-
smiðja. Innan þessara félaga eru
um 2.500 fyrirtæki. Þegar Sam-
tök iðnaðarins taka formlega til
starfa um næstu áramót munu
áðurnefnd samtök verða lögð
niður.
Fyrsta Iðnþing mun ekki verða
haldið fyrr en árið 1995 meðan
starf samtakanna er í mótun. I
drögum að lögum fyrir hin nýju
samtök er gert ráð fyrir aó fyrir-
tæki sem ganga inn í þau eigi
beina aðild að Vinnuvcitenda-
sambandi Islands. Vægi þeirra
innan VSI verður um 40%. Þau
fyrirtæki sem eru í byggingariðn-
aðinum í dag og ganga í Samtök
iðnaðarins skulu vera í viðkorn-
andi landshlutafélagi. Þairnig mun
Meistarafélag byggingarmaima á
Norðurlandi starfa áfram en fé-
lagsmenn allir í einu félagi, Sam-
tökum iðnaðarins, í stað nokkurra
félaga áður.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstol'u
iðnaðarins á Norðurlandi, sem
eru samtök atvinnurekcnda í lög-
giltum greinum, hvort heldur sem
er hárskurður, gullsmíði, bygging-
ariðnaður, málmiónaður eða ann-
aö, segir að starfsemi skrifstof-
unnar muni vissulega breytast, en
í dag liggi ekki fyrir hveriúg.
Skrifstofan er í dag að hálfu leyti
rekin af Landssambandi iðnaðar-
maima og mun hætta í núverandi
mynd en í drögum að samþykkt-
um fyrir Samtök iðnaðarins er
gert ráð fyrir að vera með upplýs-
ingaskrifstofur út um land, t.d.
eina í hverjum landsfjórðungi og
þar hefur Akureyri sérstaklega
veriö nefnd. Mestar líkur eru tald-
ar á að Haraldur Sumarliðason,
formaður Landssambands iönað-
armanna, verói kjöriim fyrsti for-
maóur Samtaka iónaðarins. GG
Samkeppni nemenda í grunnskólum:
Viðvörunarmerkingar
á tóbaksvörur
- vegleg verðláun í boði og allir
fá viðurkenningarskjal
Hcilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur í samvinnu við
menntamálaráðuneytið, Lands-
lækniscmbættið, Tóbaksvarna-
nefnd og fleiri málsmetandi að-
ila ákveðið að stofna til sam-
keppni í grunnskólum landsins,
sem stendur frá 15. september
til 15. nóvember í haust. Þar
gefst nemendum á aldrinum 6
til 12 ára kostur á að taka þátt í
gerð nýrra viðvörunarmerkinga
á tóbaksvörur.
Þess er skemmst að miimast,
hve áhrifarík forvörn var unnin af
íslenskri æsku fyrir nokkrum ár-
um, þegar átak var gert til að
draga úr tóbaksnotkun lands-
mamia. Það sýndi sig þá, að börn-
in mynduðu þami þrýstihóp scm
dugði til að margir létu af tóbak-
snotkun. Þetta unga fólk býr að
þeirri fræðslu sjálft um alla fram-
tíð. Góðan árangur má þakka
skólurn, sem stóðu einhuga að
baki nemenda sinna meðan á
átakinu stóð, ásamt jákvæðri um-
fjöllun fjölmiðla.
Undirbúningsnefndin reiðir sig
á að skólar og fjölmiðlar láti nú
ekki sitt eftir liggja fremur en þá
og hvetji æsku landsins til þátt-
töku. Vegleg verðlaun veröa veitt
fyrir bestu úrlausnir í hverjum ald-
ursflokki. Allir fá viðurkenningar-
skjal, þannig aö öllum verði umb-
unað.
Gögn hafa verió send í alla
grunnskóla um tilgang keppninnar
ásamt upplýsingum, sem keimar-
ar geta notað til að fræða bömin
um skaðsemi tóbaks og um leið
að efla áhuga á þessu brýna við-
fangsefm innan skólanna.
Málið í ijölbýlishúsinu við Smárahlíð:
Húsvörðurinn gerði upp
Eins og Dagur skýrði frá um
síðustu mánaðamót kom upp
hitamál í fjölbýlishúsi Félags-
málastofnunar við Smárahlíð á
Akureyri, þar sem húsvörður
stóð ekki við greiðslur á reikn-
ingum fyrir íbúa hússins. Yfir
vofði lokun Hitaveitunnar á
húsið en nú hefur húsvörðurinn,
sem látinn var fara, greitt reikn-
ingana.
Húsvörðuriim fékk greiðslur
hjá eigendum fjórtán íbúóa en
gerði ekki upp þá reikiúnga sem
greiðslumar voru ætlaðar til. Hon-
um var vikið úr starfinu og samdi
Hitaveitan um mánaðarlegar
greiðslur af skuldiimi en þar sem
ekki var staðið við þáð vofði yfir
lokun veituimar fyrir vatn inn í
blokkina.
Að sögn íbúa í húsinu er málið
nú úr sögunni og skuldin við Hita-
veituna upp gerð. Hann reiknaði
ekki með að frekari eftirmálar
yrðu af þessu máli. JOH
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 23599.