Dagur - 24.09.1993, Síða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 24. september 1993
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1368 Á MÁNUÐI
LAUSASÖ LUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 9642285),
JÓHANNÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
UÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENTHF.
SÍMFAX: 96-27639
Ur klóm okurvaxta
Bankar og sparisjóðir hafa skrifað undir vaxtaskipta-
samning við Seðlabankann. Samningur þessi á að stuðla
að því að gera lánastofnunum kleift að ákvarða vexti án
tillits til sveiflna sem verða vegna breytilegs verðbólg-
ustigs á hverjum tíma. Samningi þessum er einnig ætlað
að draga úr áhættu banka og sparisjóða vegna misvægis
milli verðtryggðra inn- og útlána, því eins og kunnugt er
hafa verðtryggðar skuldir bankanna - einkum innlán -
verið mun meiri en verðtryggðar eignir þeirra sem að
mestu felast í útlánum.
Samningur þessi á að taka gildi um næstu áramót og
felur í sér að í lok hvers þriggja mánaða tímabils greiðir
Seðlabankinn bönkum og sparisjóðum nafnvexti ofan á
viðmiðunarfjárhæð ásamt verðbótum. Á móti eiga lána-
stofnanirnar að greiða Seðlabankanum nafnvexti af
sömu upphæð er miðast við fasta verðtryggða vexti og
verðbólguspá. í framhaldi af þessum samningi er að
vænta lækkunar vaxta og hefur íslandsbanki þegar boð-
að 3 til 3,5% vaxtalækkun og aðrir bankar látið að því
liggja að vextir muni lækka á næstunni þótt ákvörðun
um vaxtastig hafi ekki verið tekin enn sem komið er.
Ef litið er til þeirra aðstæðna er ríkt hafa í þjóðfélaginu
að undanförnu er ástæða til að fagna þessum vaxta-
skiptasamningi. Með tilkomu hans er dregið úr þeirri
hættu að viðskiptabankarnir séu sífellt að breyta inn- og
útlánsvöxtum. Reynsla undanfarinna mánaða hefur sýnt
að hinar öru vaxtabreytingar hafa hækkað vaxtastigið í
landinu verulega. Bankarnir hafa ætíð verið fljótir að
færa vextina upp þegar aukinni verðbólgu hefur verið
spáð en hinsvegar sýnt tregðu við að lækka þá þegar
stöðugleiki hefur færst yfir verðlagið á nýjan leik.
Auk misvægis á milli inn- og útlánsvaxta í bankakerf-
inu hafa bankar og sparisjóðir orðið að taka á sig sinn
hluta af gáleysislegri fjárfestingarstefnu í þjóðfélaginu
sem enginn; hvorki ríki, atvinnurekendur eða einstak-
lingar, geta firrt sig ábyrgð af. Þessar ástæður hafa öðru
fremur valdið því að íslendingar hafa búið við vaxtaokur
að undanförnu. Útgjöld atvinnulífs og heimila vegna
óhóflegra vaxta draga óhjákvæmilega úr allri framþróun
í þjóðfélaginu. Þessi útgjöld halda atvinnuvegunum í
dróma og einstaklingar - heimilin í landinu - eru einnig
að kikna undir þessari greiðslubyrði.
Þótt vaxtaokrið eigi sér ákveðnar forsendur og skýr-
ingar á því megi finna í þróun efnahagslífsins á liðnum
árum þá leysir það engan vanda hvað atvinnulífið varð-
ar. Þvert á móti eykur það erfiðleikana og tefur til muna
þá endurskipulagningu og uppbyggingu sem nú er þörf
á að fari fram. íslendingar standa frammi fyrir orðnum
hlut hvað mistök í fjárfestingum varðar. Þau mistök verð-
ur þjóðin að taka á sig sem heild en þau verða ekki
greidd með innheimtu okurvaxta af rekstrarfjármunum
þeirra atvinnufyrirtækja sem starfa og framleiða verð-
mæti. Þau verða heldur ekki greidd af framfærslueyri
heimilanna með þessum hætti.
Því er ánægjulegt að vita til þess að stjórnendur
banka og sparisjóða hafi komið auga á þennan veruleika
og leita nú leiða til að vinna sig frá þessum vanda.
Vaxtaskiptasamningurinn er hluti af leið að þessu mark-
miði. Þótt fleira þurfi að koma til eigi að nást viðundandi
vaxtastig hér á landi þá hefur með þessum samningi
verið stigið ákveðið spor í þá átt að leiða þjóðina úr klóm
okurvaxta. ÞI
Hvaderadgerast
Atskákmót
Skákfélagsins
Skákfélag Akureyrar stendur fyrir
atskákmóti um helgina og má líta
á það sem æfingamót fyrir deilda-
keppnina. Mótið hefst í kvöld,
föstudagskvöld, og verður fram
haldið á sumiudag. Mótið er öllum
opið. A morgun, laugardag, kl.
13.30 hefjast laugardagsæfingar
bama og unglinga. Æfingamar
verða á laugardögum í vetur.
Toyota bflasýning
Um helgina stendur Stórholt á Ak-
ureyri fyrir sýningu á Toyota-bif-
reiðum. Sýndur verður bíll af
gerðimii Toyota Corolla 16 ventla
1300 vél og beinspýtingu.
Reynsluakstur á staðnum. Sýning-
in verður opin á morgun kl. 13- 17
og á sunnudag kl. 13-16 að Oseyri
4.
Kaffisala á
Borgarrétt
Stóðréltir verða í Borgarrétt í
Eyjafjarðarsveit eftir hádegi á
morgun. Þessar réttir hafa jafnan
verið fjölsóttar og að þessu sinni
ætla konumar í samstarfshópnum
Högum höndum í Eyjafjarðarsveit
að selja réttargestum veitingar.
Agóðinn er til styrktar starfsemi
samstarfshópsins.
Sjávarréttadagar
Bautans
Veitingahúsið Bautinn á Akureyri
stendur fyrir sjávarréttadögum um
helgina. Boðið er upp á óteljandi
fjölda sjávarrétta á hlaðborði fyrir
1.190 krónur.
Sunnudagshlaðborð
á Súbiabergi
Súlnaberg verður að vanda með
sunnudagshlaðborð á sunnudag,
bæði í hádeginu og um kvöldmat-
arleytið. Hægt er að velja um ofn-
steikt lambalæri og eða heilsteikt-
an nautahryggvöðva. I forrétt er
kjörsveppasúpa og deserthlaðborð
í eftirmat. Verð kr. 1.050. Frítt
fyrir börn 0-6 ára, hálft gjald fyrir
börn 7-12 ára.
Upplyfting á
Hótel KEA
Hljómsveitin Upþlyfting leikur
fyrir dansi á Hótel KEA annað
kvöld, laugardagskvöld. Sturlaug-
ur Kristjánsson, Fílapensill og
Miðaldamaður, leikur fyrir matar-
gesti.
Todmobile í
Sjallanum
Tregasveitin spilar á Sjallakráimi í
kvöld, föstudag. Aimað kvöld
spilar stórhljómsveitin Todmobile
fyrir dansi í Sjallanum. Bæði
kvöldin verður diskótek á efstu
hæðiimi.
Júragarðurinn í
Borgarbíói
Stórmynd helgarimiar í Borgarbíói
á Akureyri er Júragarðurimi eða
Jurassic Park. Hvorki fleiri né
færri en 13 sýningar verða á
myndimii um helgina. Auk Júra-
garðsins verður barnamyndin
Bambi sýnd kl. 15 á sumiudag.
Sveinn ræðir um
leiklist
Sveirrn Einarsson, leiklistarfræó-
ingur og rithöfundur, flytur opiim
fyrirleslur viö Háskólaim á Akur-
eyri í aðalbyggingu skólans við
Þingvallastræti á morgun, laugar-
dag, kl. 14. Fyrirlestur sinn nefnir
Sveiim „Rætur íslenskrar memi-
ingar“. Sveinn Einarsson er ekki
einungis kuimur fyrir störf sín við
leikhús hérlendis. Haim hefur
eimiig getið sér gott orð erlendis,
bæði sem leikstjóri og leikritahöf-
undur. Haim var um langa hríð
þjóðleikhússtjóri. Fyrirlestur
Sveins er öllum opiim meðan hús-
rúm leyfir.
Stóðréttir í
Eyjafjarðarsveit
Ein af stærri stóðréttum á Norður-
landi, Borgarrétt í Eyjafjarðar-
sveit, veröur á morgun, laugardag.
Réttardansleikur verður í Sólgarði
aimað kvöld. A suimudag verður
réttað í Þverárrétt kl. 10
Haraldur heimsækir
KFUM og K
Um helgina kemur Haraldur OI-
afsson, kristniboöi, í heimsókn til
KFUM og K í Sunnuhlíð á Akur-
eyri. Haraldur hefur lengi starfað í
Afríku fyrir Norska kristniboða-
sambandið. Starf hans þar hefur
einkum beinst að því að snúa
Biblíunni yfir á mál iimfæddra.
Haraldur mun tala á almennum
samkomum í Sunnuhlíð í kvöld,
aimað kvöld og sunnudagskvöld
og hefjast þær allar kl. 20.30.
Samkoman í kvöld er í höndum
ungs fólks, en allir eru velkomnir.
A morgun mun Haraldur stýra
námskeiði kl. 10-17 með stuttu
matar- og kaffihléi. Allir eru vel-
kommr til aó fræðast um iíkveðin
atriði kristinnar trúar. A þriðjudag
kl. 20 mun Haraldur svo sitja fund
með Kristniboðsfélagi kveima og
eru allar konur velkomnar.
Bólumarkaðurinn
Á morgun kl. 11-15 veröur Bólu-
markaður Junior Chamber á sín-
um stað aö Eiðsvallagötu 6. Hlut-
ur handverksfólks er mikill á
markaðnum en einnig er á boð-
stólum ýmislegt ofan í maga s.s.
sælgæti, brauð, sviðalappir o.fl.
Breytt uppröðun salar gefur betri
nýtingu á húsnæðinu og vöruúrval
hefur aukist. Leiga fyrir söluborð-
ið er kr. 1000. Nánari uppl. í síma
26657 (Kristín) eða 27075
(Begga).
Bótin - markaður
Bótin - markaður er nýr markaður
sem starfræktur er að Oseyri 18 á
Akureyri kl. 11-17 á laugardögum
í vetur. Á morgun verður ýmislegt
á boðstólum. Má þar nefna svína-
kjöt, lax, haröfisk, rækjur, lakkrís,
kókosbollur, úlpur, peysur, galla-
buxur, boli, sokka, skó, vélprjón-
aðar vörur, dúkkur og keramik.
Ovænt uppákoma kl. 14 á morg-
un. Borðapantanir í síma 21559
kl. 18-20.
Kynning á
Guðspekifélaginu
Á morgun og sunnudag kl. 14-16
báða dagana verður kynning á
Guðspekifélaginu á Akureyri.
Kynningin er öllum opin og fer
hún fram í húsnæði félagsins að
Glerárgötu 32, 4. hæð (gcngið inn
að sunnan). Forseti Islandsdeildar
Guóspekifélagsins, Einar Aðal-
steinsson, mun kynna markmió og
málefni félagsins og^ halda stutt
námskeió í hugrækt. Á boðstólum
eru bækur um andleg el'ni og tón-
list á hljóðsnældum. Kaffiveiting-
ar báða dagana í lok kyimingar.
Haustlitaferð FA
Ferðafélag Akureyrar stendur l'yrir
haustlitaferð í Skuggabjargaskóg á
morgun, laugardag. Gengió verður
frá Melum í Fnjóskadal að
Fnjóskárbrú í Dalsmymii. Um er
að ræða létta gönguferð. Skrif-
stofa Ferðafélagsins er opin til
skráningar þátttakenda í dag,
föstudag, kl. 18-19. Brottlor frá
skrifstofunni kl. 9 í fyrramálið.
„Ferðahflar og fag-
urtlandl993“
Sýiúngin „Ferðabílar og fagurt
land 1993“ - jeppa- og útivistar-
sýning Ferðaklúbbsins 4x4, verð-
ur haldin um helgina í Laugardals-
höllimii í Reykjavík og á útisvæði.
Ymsar uppákomur scm tengjast
jeppum og tæknibúnaði þeirra.
Atvinnuleysi á landinu í ágústmánuði sl:
Skráðum atviimuleysisdögum
fækkar á milli mánaða
- atvinnuleysi síðustu 12 mánuði mælist nú
í ágústmánuði sl. voru skráðir
rúmlega 93 þúsund atvinnuleys-
isdagar á landinu, tæplega 38
þúsund hjá körlum en tæplega
56 þúsund dagar hjá konum.
Skráðum atvinnuleysisdögum
hefur fækkað um rúmlega tvö
þúsund frá mánuðinum á und-
an en fjölgað um tæp 21 þúsund
frá ágústmánuði í fyrra.
Atvinnuleysisdagar í ágúst sl.
jafngilda því aö 4.310 manns hafi
að meðaltali verið á atvinnuleys-
isskrá í mánuðinum. Þar af eru um
1.750 karlar og 2.560 konur.
Þessar tölur jafngilda 3,2% af
áætluðum mannafla á vinnumark-
aði samkvæmt spá Þjóðhagsstofn-
unar, eóa 2,2% hjá körlum og
4,6% hjá konum.
Síðasta virka dag ágústmánaðar
voru tæplega 4.640 manns á at-
viimuleysisskrá á landinu öllu en
það er um 80 fieiri en í lok júlí-
mánaðar sl. Atvinnuleysi síðustu
12 mánuði mælist nú 4% en var
3% á síðasta ári.
Atvinnuástand hefur batnað
eitthvað alls staðar á landinu nema
á Austurlandi og Norðurandi
4% en var 3% í fyrra
eystra og hel'ur ótíð vafalaust sitt
að segja í þessum landshlutum,
auk þess sem einhverjar sveiflur
eru í aflabrögðum milli Iands-
hluta. Mest bcr þó á staðbundnum
breytingum víðast hvar á landinu.
Átvimiuleysið á landsbyggð-
imú eykst nú í heild um 1,6%
núlli mánaða en hefur niinnkað
um 2,1% frá ágúst í l'yrra. I ágúst-
mánuði fækkar atvinnulausum
konum að meðaltali um sanitals
99 á landinu öllu en körlum fjölg-
ar um einn, samkvæmt yfirliti frá
Vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins. KK