Dagur - 24.09.1993, Side 10
10 - DAGUR - Föstudagur 24. september 1993
Íþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Valdimar Grímsson var svo sannarlega betri en enginn í firsta leik sínum
með KA, hann lét sig ekki muna um að skora tíu inörk og hér er eitt þeirra í
uppsiglingu. Mynd: Robyn.
Knattspyrna, Getraunadeildin:
Síðasta iunferðin
- fellur ÍBV eða Fylkir
Á morgun fer fran síðasta um-
ferð 1. deildar karla í knatt-
spyrnu, Getraunadeildarinnar.
tJrslit eru reyndar að mestu
ráðin og aðcins eftir að sjá hvort
það verður Fylkir eða IBV sem
fylgir Víkingi niður í 2. dciid.
Þórsarar lcika við FH í Kapla-
krika og hafa Hafnfirðingar
þegar tryggt sér 2. sæti deildar-
innar mcðan Þórsarar sigla
lygnan sjó.
Athyglisverðasti leikurinn er
leikur IBV og Fylkis í Vstmanna-
eyjum og eftir hami skýrist hvort
liðið fellur. Fyrir umferðina er
Fylkir með 19 stig og ÍBV 16.
Fylki dugir jafntefli en ÍBV þarf
að sigra til að halda sér uppi og
þar nægir sigur með einu marki.
Vestmannaeyingar hafa heima-
völlinn og eru því til alls líklegir.
Annað árið í röð gæti liðið því
bjargað sér frá falli á ævintýraleg-
an hátt. Allir leikirnir hefjast kl.
14.00 og auk þeirra sem hér hafa
verið nefndir leika Fram-KR,
ÍBK- Víkingur og Valur-ÍA.
Um kvöldið verður síðan loka-
hóf Getraunadeildarinnar og 1.
deildar kvenna á Hótel Islandi.
Þar verða ýmsar viðurkenningar
veittar, lið beggja deilda tilkynnt
og útnefning á bestu og efnileg-
ustu leikmönnum fer fram. Davíó
Oddsson, forsætisráðherra, veróur
heiðursgestur og hljómsveitin
Todmobile leikur fyrir dansi fram
á nótt.
Handbolti 1. deild karla, KA-Valur 28:22:
„Nýliðarnir" byijuðu vel
Valdimar skoraði 10 mörk og Sigmar varði 19 skot
KA-menn unnu góðan sigur í
fyrsta leik vetrarins er þeir tóku
á móti IBV. Lokatölur urðu
28:22 sem voru sanngjörn úrslit
miðið við gang Ieiksins. Nýju
mcnnirnir í KA-liðinu, Sigmar
Þröstur Oskarsson og Valdimar
Grímsson byrjuðu vel. Valdi-
mar skoraði 10 mörk fyrir KA
og Sigmar varði 19 skot, auk
þess að opna markareikning
sinn, en hann skoraði 23. mark
KA í leiknum.
Valdimar Grímsson var að
vonum ánægður í leikslok. „Það
er alltaf gaman að spila í húsum
þar sem stemmningi er góð. Auð-
vitað er erfitt að koma og spila
með liði sem maður þekkir ekki
neitt en þetta gekk upp. Nú er bara
snúa sér að því að falla inn í lið-
ið.“
Það var Helgi Arason sem opn-
aði leikinn með því að skora
fyrsta mark hans fyrir KA. Arrnars
var jafnræði með liðunum í byrjun
og nokkur byrjendabragur á leik
þeirra. I síðari hluta fyrri hálfleiks
náði KA undirtökunum og seig
smán saman framúr. Staðan í leik-
héli var 12:8 fyrir KA.
ÍBV skoraði fyrsta markið í
síðari hálfleik en síðan komu 4
mörk í röð hjá KA og staðan því
orðin 16:9. Eftir þetta var rnjög á
brattan aó sækja fyrir Vestmanna-
eyinga sem þó börðust vel allan
leikinn og náðu að núnnka mun-
inn í 4 mörk um miðbik hálfleiks-
ins. En á endasprettinum náði KA
aftur yfirhöndinni og sigraði
28:24.
Gangur leiksins: 1:1, 3:3, 6:6, 11:7,
12:8, 16:10, 18:12, 21:17, 25:19, 28:20
og 28:22.
Mörk KA: Valdimar Grímsson 10/4,
Alfreð Gíslason 4, Jóhann Jóhannsson 3,
Einvarður Jóhannsson 3, Erlingur Krist-
jánsson 2, Helgi Arason 2, Atli Þór
Samúelsson 2, Þorvaldur Þorvaldsson 1
og Sigmar Þröstur Oskarsson 1, auk þess
að verjal9 skot.
Mörk ÍBV: Haraldur Hannesson 5,
Magnús Amgrímsson 4, Daði Pálsson 4,
Zoltán Belanyi 3, Jóhann Pétursson 3,
Guðfinnur Kristmannsson 2 og Arnar
Pétursson 1. Hlynur Jóhannesson varöi
12 skot.
íslandsmótið í handknattleik, UMFA-Þór 29:22:
Hroðalegur fyrri hálfleikur Þórs
- leikmenn báru allt of mikla virðingu fyrir stjörnum Aftureldingar
Þórsarar riðu ekki feitum hesti
frá fyrsta Ieik sínum í Islands-
mótinu í handknattleik karla
gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ
í gærkvöldi. Liðið spilaði
hroðalega í fyrri hálfleik og þeg-
ar flautað var til leikhlés höfðu
heimamenn skorað 14 mörk en
Þórsarar aðeins 5. Þeir réttu
heldur úr kútnum í síðari hálf-
leik og náðu þá að minnka mun-
inn. Lyktir leiksins urðu 29:22.
Leikmenn Þórs báru augljós-
lega mikla viðringu fyrir liói Aft-
ureldingar og héldu aðeins í við
þá fyrstu mínútur leiksins. Alla
áræðni vantaði í leikmenn Þórs
og mikió bráðlæti einkenndi leik
þeirra einmg í fyrri hálfleik. Síð-
ustu 10 mínútur fyrri hálfleiks
breyttu heimamenn stöðumii úr
8:5 í 14:5. Sóknamýting Þórs var
tæp 20% í hálfleiknum og segir
það allt sem segja þarf um gang
mála.
Síðari hálfleikur var snöggt um
skárri hjá Þór. Þá var tekið til þess
ráðs að taka tvo leikmenn Aftur-
eldingar úr umfeFð og við það
leystist leikurinn talsvert upp.
Þórsarar tóku á sig rögg og skor-
uðu þá 17 mörk gegn 15 mörkum
Afturcldingar.
Geir Aðalsteinsson var lang
bestur í liði Þórs, gerði 8 mörk og
má öllum ljóst vera að þar er
gríðarlegt efni á ferð. Verður
gaman að fylgjast með frami-
stöðu piltsins í vetur.
„Við byrjuðum afleitlega og
bárum allt of núkla viðingu fyrir
stjörnum prýddu liði Afturelding-
ar. Það var ágætt að viö skyldum
ná aó rífa okkur upp í síðari hálf-
leik og nú getur leiðin aöeins leg-
ið upp á við,“ sagði Erlendur
Hermannsson þjálfari Þórs eftir
leikinn. SV
Mörk Þórs: Geir Aöalsteinsson 8,
Sævar Amason 4, Atli Már Rúnarsson 3,
Alexandrov 3/2, Jóhann Samúelsson 3,
Samúel Amason 1, Hemtann Karlsson
log varði auk þess 10 skot.
Golf, Jaðarsvöllur:
Mót helgarinnar
Um helgina verða samkvæmt
venju 2 golfmót á vegum Golf-
klúbbs Akureyrar. A morgun hefst
keppni kl. 10.00 og er fyrirkomu-
lag með þeim hætti að tveir keppa
saman með einn bolta og slá til
skiptis. Sömu leiðis era teighögg-
in slegin til skiptis. Á sunnudag
verður hefðbundinn 18 holu högg-
leikur og hefst keppni kl. 10.
Mörk UMFA: Jason Ólafsson 8,
Ingimundur Helgason 5, Páll Þórólfsson
4, Róbert Sighvatsson 4, Þorkell Guð-
brandsson 3, Alexei Trufan 2/2, Siggeir
Magnússon 1, Gunnar Guðjónsson 1 og
Viktor B. Viktorsson 1. Sigurður Jens-
son varði 9 skot.
Dómarar: Lárus Lársusson og Jó-
hannes Felixsson.
íþróttir
helgariraiar
BLAK:
Haustmót BLI í Digrancsi.
GOLF:
Akureyri, mót laugard. og
sutmud.
Dalvík, sunnudag:
Bændaglíma.
Sauðárkrókur, laugardag.
Innanfélagsmót, stableford.
HANDBOLTI:
Opið hús í Hamri á sumiudag.
KNATTSPYRNA:
Laugardagur, Getrauna-
deildin:
FH-Þórkl. 14.00.
Lokahóf yngri flokka Þórs í kanttspyrnu var haldið sl. sunnudag. Lcikmenn flokkana voru
útncfndir og markakóngar krýndir. Markakóngar urðu: 6. fl.: Daði Kristjánsson, en hann
varð jafnframt markahæsti leikmaður Þórs í sumar með 38 mörk. 5. fl.: Pétur Heiðar Krsi-
tjánsson. 4. fl.:Tryggvi Valdimarson. 3. fl.: Örlygur Helgason. 4. fl. kvenna.: Ragnheiður
Daníelsdóttir. 3. fl. kvenna.: Rut Hauksdóttir. Leikinenn flokkana urðu: 7. fl.: Árni Sig-
tryggsson. 6. fl.: Gestur Arason. 5. fl.: Þórður Halldórsson. 4. fl.: Sigurður G. Sigurðsson. 3.
fl.: Heiðmar Felixsson. 4. fl. kvenna: Inga Dís Sigurðardóttir. 3. fl. kvcnna: Katrín Hjartar-
dóttir. Minningarbikar um Jósep Olafsson hlaut Orri Stefánsson. Á myndinni eru verð-
launahafar ásamt þjálfurum, formanni unglingaráðs og Hlyni Birgissyni sem afhenti verð-
launin. Mynd: KK
Lokahóf yngri flokka KA í knattspyrnu var haldið sl. sunnudag. Veittar voru viðurkenning-
ar til leikmanna flokkanna og cinnig þeim sem þótti efnileastur eða sýnt hafði inestar fram-
farir. Auk þess var ýmislegt til gamans gert. Efnilegustu leikmenn voru valdir: 7. fl.: Birkir
Sigurðsson. 6. fl.: Sölvi Ottesen. 5. fl.: Ebnar Dan Sigþórsson. 4. fl. Jónatan Magnússon. 3.
fl.: Þóroddur Ingvarsson. 3. og 4. fl. kvenna: Dagný Kristjánsdóttir. Leikmenn flokkana
voru valdir.: 7. fl.: Viðar Geir Viðarsson. 6. fl.: Skúli Eyjólfsson. 5. fl.: Gylfi Hans Gylfason.
4. fl.: Jóhann Hermansson. 3. fl.: Oskar Bragason. 3. og 4. fl. kvenna: Rósa Sigbjörnsdóttir.
Á myndinni eru verðlaunahafar ásarnt Ormarri Örlygssyni sem hafhenti verðlaunin.
Mynd: Halldór.