Dagur - 10.11.1993, Blaðsíða 11
IÞROTTIR
Mióvikudagur 10. nóvember 1993 - DAGUR - 11
HALLDÓR ARINBJARNARSON
Blak, Trimmmót KA:
Mikil gróska í öldungablaki
Handbolti, 6. flokkur:
Frábær árangur
Um helgina fór fram blakmót í
KA-húsinu, svokallað Trimm-
mót KA. Til leiks mættu 20 lið
af Norðurlandi, 13 kvennalið og
7 karlalið. Mest eru þetta lið
sem gjarnan eru kölluð öld-
ungalið, þó keppendur sé varla
neinir öldungar og áhuga-
mannalið e.t.v. meira réttnefni.
I»etta eru lið sem koma reglu-
lega saman og æfa en kjósa að
taka ekki þátt í Islandsmótinu.
Að auki keppti karlalið KA sem
sem gestir.
Mikil gróska virðist vera í
áhugamannablaki um þessar
mundir, mcðan ýmsum finnst sem
nokkur lægð sé í keppni á íslands-
mótinu. Blak er víða meðal vin-
sælustu íþróttagreina erlendis og
hentar vel hérlcndis m.a. vegna
þcss að ekki þarf jafn stóran völl
og t.d. í handbolta og innanhúss-
fótbolta. Af einhverjum ástæðum
hcfur ekki tekist að skapa blakinu
sama viröingarsess sem keppnis-
íþrótt og t.d. handbolta og körfu-
bolta og umfjöllun llestra fjöl-
miðla um blak cr í algeru lág-
rnarki. Unglingastarf flestra lélaga
virðist frekar bágborió og þar
liggur e.t.v. hundurinn grafinn. Er
þetta mál sem blakforystan ætti að
taka til vandlegrar íhugunar. En
þá að úrslitum á Trimmmóti KA.
Kvennaliðunum var skipt í tvo
riðla. A-lið Eikar sigraði í A-riðli,
Oðinn-a varð í 2. sæti og Völs-
ungur-a í því 3. I B-riðli sigraði
Eik-b, Völsungur-b varð númer 2
og Oðinn-b í 3. sæti. Skautar-a
sigruðu í karlariðlinum, Oðinn
varð í 2. sæti og Rimar þriðju.
Handbolti, bikarleikir
á Akureyri:
Mábnu frestað
Allt er nú í óvissu um hvort
Akureyrarbær kemur til
með að vera styrktaraðili
bikarkeppninnar í handbolta
eins og til stóð og þá hvort
bikarúrslitaleikir verða á
Akureyri. Málið var rætt á
fundi hjá stjórn HSÍ sl.
mánudagskvöld og þar var
ákveöið að slá því á frest um
sinn.
í Ijós kom aö málió er e.t.v.
ekki eins einfalt og sýndist í
fyrstu. í rcglurn segir að lcik-
stað úrslitalciks skuli velja af
mótanefnd í samráði við þau
lið sem í hlut eiga. Enn eru 32
lið eftir og því allt á huldu með
framhaldið. Ólafur Schram
sagði þó citt öruggt. „Það er
ckki grundvöllur fyrir því aó
halda þctta í 3 ár því mönnum
fannst það of iangur tími. Síö-
an eru skoðanir líka skiptar.
Menn vilja gjarnan hafa þenn-
an mögulcika í huga en síðan
sjá mcnn fram á vandamál ef
t.d. FH og Haukar leika til úr-
slita, þannig að málió er á
frestunarstigi.“
Aðalfundur kuatt-
spyrnudeildar Þórs
Aðalfundur knattspymudeildar
Þórs fer fram í Hamri í kvöld
og hefst kl. 20.30. Á dagskrá
eru venjuleg aóalfundarstörf.
Allir Þórsarar eru hvattir til að
mæta á fundinn og hafa þannig
áhrif á stefnu síns eigin félags.
Alls voru spilaóir 57 leikir á mót- að samskonar mót fyrirhugaö í
inu sem tókst mjög vel og er ann- mars á næsta ári.
er betfi..
í
Konurnar lctu ckki sitt cftir liggja á Trimmmóti KA um síðustu helgi og
slógu körlunum við í fjölda og rcyndar cinnig í gctu sögðu sumir.
Mynd: Halldór
KA-stráka
- voru valdir prúðasta liðið í kaupbæti
Fyrsta íjölliðamót vetrarins
hjá 6. flokki fór fram um helg-
ina og var í umsjón Víkinga.
KA sendi í fyrsta skipti lið á
Islandsmót í þessum flokki og
óhætt er að segja að árangur-
inn hafi farið fram úr björt-
ustu vonum. Jóhannes Bjarna-
son þjálfari fór með tvö lið til
keppni, A og B, og bæði léku
þau til úrslita á mótinu. Að
auki var KA valið prúðasta fé-
lagið og hvortvegga er þetta
árangur sem strákarnir geta
verið virkilega stoltir af og er
félaginu til sóma.
A-liðið tapaði í fyrsta leik
fyrir HK, 9:10. Síðan vann KA
Víking 13:5, Rcykjavíkurmeist-
ara Fram 10:7, Val 15:3 og Aft-
ureldingu 14:4. Þar með var lió-
ið kornið í úrslitalcikinn og
mætti Haukum. Sá leikur endaöi
9:8 fyrir Hauka. KA-strákar
voru orðnir ntjög þreyttir eftir að
spila þrjá aðra leiki þennan dag
mcðan þetta var l'yrsti leikur
Hauka. Árangur KA er hreint
frábær. Liðið skoraði lang flest
rnörk á mótinu en að sögn Jó-
hannesar voru KA, Haukar og
Fram með áberandi sterkustu
liðin.
B-lióið fór einnig alla leið í
úrslitaleikinn og það án þess að
tapa leik. Fyrst var Grótta lögð
að velli 10:7, þá Fylkir 7:4,
Stjaman 15:4 og Víkingur 5:1.
Til úrslita léku KA og Haukar
og unnu Haukar 12:10 eftir tví-
framlengdan leik.
Þessi árangur KA vakti að
vonum mikla athygli. Flcst
hinna liðanna höfðu spilað
ntiklu fleiri leiki en það virtist
ekki koma að sök. „Þetta sýnir
bara það sem ég hef áður sagt að
það skiptir ekki öllu ntáli hversu
mikið cr spilaó mcðan vcrið er
að gera rétta hluti í þjálfun. Þeir
spiluðu hreinlega eins og englar
á þessu móti,“ sagði Jóhannes
Bjamason, kampakátur þjálfari
KA og ekki aó ástæðulausu.
Körfubolti, yngri flokka:
Þórsarar stóðu sig vel
Um helgina fór fram keppni í 9.
flokki karla á Islandsmótinu í
körfubolta. Þórsarar sáu um
keppni í A-riðli og fór hún fram
í íþróttahúsi Glerárskóla. Þórs-
arar stóðu sig vel, unnu tvo leiki
en töpuðu þremur, þar af tveim-
ur í framlengingu.
Auk Þórs tóku lið frá Haukum,
Val, KR, ÍBK og ÍR þátt í mótinu.
Haukar voru með sterkasta lióið
og unnu mótið. Urslit leikja urðu
þessi:
Fyrirlestur um íþróttameiðsl
Meiðsl eru einn af fylgifiskum
flestra íþróttagreina. Hins vegar
er hægt að gera ýmislegt til að
koma í veg fyrir þau og þá er
alls ekki sama hvernig á þeim er
tekið. Meiðsl hafa ýmis óæskileg
áhrif í för með sér fyrir viðkom-
andi íþróttamann, bæði andlega
og líkamlega og nauðsynlegt er
fyrir alla þjálfara að hafa inn-
sýn í þessi ntál. Sama gildir að
sjálfsögðu um alla þá sem
stunda íþróttir. Iþróttabandalag
Akureyrar mun nk. iaugardag,
kl. 10-14.30, standa fyrir fyrir-
lestri um íþróttameiðsl í
Iþróttahöllinni og fyrirlesari
verður Stefán Olafsson, sjúkra-
þjálfari, sem einnig hefur
reynslu sem keppnismaður.
Meóal þess scm Stefán fer í er
kynnig á íþróttalæknisfræði, and-
leg áhrif íþróttamciðsla, tíöni, eðli
og orskakir þeirra, munur á
Stcfán Olafsson, sjúkraþjálfari.
meiðslum rnilli greina, íþrótta-
meiðsl unglinga, harðsperrur og
álagsmeiðsl og hclstu tegundir
meiðsla. Einnig ýrnsar fyrirbyggj-
andi aðgeröir. Þá verður farið í
notkun teipinga (bæði vcrkleg og
fræðileg umfjöllun), þrýstivafn-
inga og þrýstisvampa. Stefán mun
cinnig ljalla um hvaö á aö vcra í
sjúkratöskunni og sýna hluta af
því scm cr á markaðinum af
sjúkravörum.
Fyrirlesturinn hefst kl. 10.00
og stcndur til u.þ.b. 14.30. Allir
eru aó sjálfsögðu vclkomnir og
sem flcstir hvattir til að mæta þar
sem hér er á ferðinni mál sem
snertir alla þá scm fást við íþróttir
á cinn eða annan hátt.
KR-Haukar 36:55
ÍR-ÍBK 36:50
ÍBK-Þór 35:38
KR-Valur 29:38
Haukar-Valur 42:36
KR-ÍBK 62:46
ÍR-Haukar 25:57
KR-Þór 59:64
ÍR-Valur 43:60
Þór-Haukar 32:67
ÍR-KR 24:43
Valur-Þór 57:52 (F)
ÍBK-Valur 43:27
Haukar-ÍBK 43:37
Þór-ÍR 47:48 (F)
Bestu nicnn Þórs á mótinu voru
Elvar Valsson og Sigurður Sig-
urðsson. Þórsarar fóru einnig með
lió til kcppni í minnibolta 11 ára í
Stykkishólmi. Mikil veikindi
hrjáðu liðið og konrust aðeins 5
leikntenn nteð. Liðið tapaói öllum
sínunt lcikjum sem segir ekkert
um raunverulegan styrk þess.
Handbolti, Evrópukeppni landsliða:
Leikið tvívegis við Búlgarí
- Þorbergur hefur valið landsliðshópinn
Á morgun fimmtudag og á
föstudaginn leika íslendingar
og Búlgarir tvo leiki í Evrópu-
keppni landsliða. Báðir leikirn-
ir verða í Laugardalshöllinni
en íslendingar sömdu við Búlg-
ari að spila báða leikina hér á
landi. Fyrri leikurinn, þ.e. ann-
að kvöld, telst heimaleikur
Búlgara en sá síðari heimaleik-
ur Islands. Báðir hefjast kl.
20.30 og eru sýndir beint á Stöð
2, sá fyrri í opinni en sá síðari í
læstri dagskrá.
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, valdi í gær 15
manna hóp til æfinga fyrir leik-
ina.
Hópinn skipa eftirtaldir leik-
menn:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val.
Sigmar Þröstur Óskarsson, KA.
Bergsveinn Bergsveinsson, FH.
Gunnar Beinteinsson, FH.
Hálfdán Þóróarson, FH.
Guójón Amason, FH.
Valdimar Grímsson, KA.
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni.
Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni.
Konráð Olavsson, Stjörnunni.
Páll Þórólfsson, UMFA.
Gústaf Bjarnason, Selfossi.
Einar Gunnar Sigurðsson, Selfossi.
Ólafur Stefánsson, Val.
Dagur Sigurðsson, Val.
Dómarar: Peter Brussel og Anton
van Dongen frá Hollandi.
Þetta er 3. leikur íslands í
kcppninni cn áóur höfum við gert
jafntefli við Finna og unnið Kró-
ata. Mikilvægt er að ná sem hag-
stæðustum úrslitum því keppnin
um að komast í úrslitakeppnina í
Portúgal er hörð. Næsti leikur
okkar er útileikur við Króata á
fullveldisdaginn 1. desember og
síóan eru tveir leikir við Hvít-
Rússa á heimavelli, 7. og 9. janú-
ar, en samið var við þá líkt og
Búlgara. Síðasti leikurinn í riólin-
um er síðan heinta við Finna 16.
janúar. Lágmarkið er að ná 2.
sæti rióilsins til að eiga mögu-
lcika á að komast áfram.