Dagur - 11.11.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 11. nóvember 1993
Líf og fjör
Dansleikur
verður í Fiðlaranum á fjórðu hæð
Alþýðuhússins á Akureyri,
laugardaginn 13. nóv. og hefst kl. 22.00.
Dansfélagar leika fyrir dansi.
Félagar munið spilakvöldið
sunnudaginn 14. nóvember.
Stjórnin.
- m.AMS KÍ Nö -
Iþróttafélagib Akur
heldur námskeiö í
Namskeibin hefjast um mibjan nóvember n.k.
Nánari upplýsingar og skráning er á Bjargi í
síma 26888 - Námskeibin eru öllum opin,
(bogfimi þó abeins 16 ára og eldri).
Stangveiðifélög
Laxveiðimenn
Tilboó óskast í veiðirétt í Fljótaá, Fljótahreppi, Skaga-
firði, næsta veiðitímabil eða allt til 20. september
1996.
Veiðifélagið getur útvegað húsnæði til afnota.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Steingrímsson í síma 96-
71071.
Tilboðsfrestur er til 25. nóvember 1993, en tilboð verða opn-
uð kl. 21.30 sama dag. Veiðifélagió áskilur sér rétt til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum skal skila til Veiðifélags Miklavatns og Fljótaár,
Gunnars Steingrímssonar, Stóraholti, 570 Fljótum.
Föstudagur
S i a I I a k r á i n
Namm
Hlynur Guðmundsson frá Hársnyrtistofunni Passion
verður með hárgreiðslusýningu kl. 23.00
Snyrtilegur klæðnaður - MiSaverð kr. 500 - Diskótek á efstu hæð
Laugardagur
Stjórnin
Aldurstakmark 18 ár- Nafnskírteini
K j a I I a r i n n
Fimmtudagur - Föstudagur
Karalcter
Fimmtudagur
Karaokekeppni
Aldurstakmark 18 ár - Nafnskírteini
SJALLINN
■
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Skipt um axlarlið í fyrsta sinn
Fyrir skömmu var í fyrsta sinn
skipt um axlarlið í manni á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Slíkar aðgerðir hafa verið
framkvæmdar í Reykjavík en
ekki úti á landi fyrr en nú. Á
undanförnum árum hefur tækn-
inni fleygt fram í þróun gervi-
liða og eðlilega eru það þeir liðir
sem mest á reynir sem komnir
eru lengst í þróuninni, þ.e.
mjaðmarliður og hnjáliður.
Ekki er annað að heyra en að-
gerðin á Stefáni Hallgrímssyni,
eiganda verslunarinnar Hljóm-
vers á Akureyri, hafi tekist vel
þó framundan séu miklar æf-
ingar til að byggja handlegginn
og öxlina upp eftir aðgerðina.
Stefán fékk að fara heim í gær
og segist mjög ánægður með
hvernig til tókst.
Jón Ingvar Ragnarsson, sér-
fræðingur á bæklunardeild FSA,
tclur aó þörfin fyrir axlarliðsskipti
hér á landi sé nokkur tilfelli á ári.
Mun fleiri þurfi á mjaðmarliðs-
skiptum að halda. „Algengast er
að sjálfsögðu skipti á mjaðmarlið,
síðan kemur hnjálióur og líkast til
axlarlióur þar á eftir,“ segir Jón
ingvar.
„Það reynir meira á þá liði sem
eru undir meira álagi eins og hné
og mjöðm en öxlin er ekki undir
sama álagi þó hreyfiálagió sé mik-
ið,“ bætir hann við.
Aðspurður segir Jón Ingvar að
sjúkdómsgreining segi til um
hvort ástand liða sé það slæmt að
setja þurfi gervilió í öxl. „Þaó er
hægt að hafa lióagigt eóa vera
með brot þess eðlis aó setja veröi
gervilið þess vegna. Síóan getur
slit í lióum komið fram sem síð-
búnar afleiðingar brots, þ.e. slit-
gigt, sem leiðir til gervilióaað-
gcrða á öxl. Ábendingarnar cru
mjög mismunandi,“ sagði Jón Ing-
var. Hann segir nokkuð stóran
hluta þjóöarinnar þjást af ýmis
konar kvillum í liðum sem meó-
höndlaðir séu án þess aö til komi
skipti á liðum. En getur maður
sem verið hefur þjáöur af sjúk-
dómum í axlarlið vænst þess að ná
fullri starfsorku eftir liósskipti,
líkt og þau sem Stefán gekkst á I
Jón Ingvar Ragnarsson, sérfræðingur á bæklunardcild FSA, og Stcfán Hall-
grímsson huga að öxlinni sem skipt var um lið í. Myndir: Robyn ^
dögunum undir?
„Það eru vissar skorður. Þetta
er ekki gert á einstaklingum nema
þeir séu komnir með verulega
mikla verki og oftast líka verulcga
hreyfiskerðingu. Markmiöið cr að
gera viókomandi verkjalausan og
að hann nái um það bil sömu
hreyfingu og hann var meó fyrir
aógerð. Ef viðkomandi hefur ver-
ið með mikla hrcyfingu fyrir aó-
gerð þá er ekki við því að búast að
hann nái slíkri hreyfingu,“ segir
Jón Ingvar.
Þeir kostir sem áóur voru fyrir
þá sem illa voru haldnir í axlarlið
voru að liðurinn yröi hreinlega
festur. Aðspuröur hvort gerviliða-
framleiðendur hafi þróaó eftirlík-
ingar af mörgum liðum mannslík-
amans segir Jón Ingvar að auk áð-
urnefndra liða megi nefna smáliði
í fingrum og einnig ökklaliði og
olnboga þó þessir liöir hafi enn
sem komið er ekki gefist nægjan-
lega vel. Hann segir þróunina til-
tölulega skammt á veg komna.
JÓH
„Ekki lengur stöðugir verkir“
- segir Stefán Hallgrímsson, sem er nú í þjálfun
eftir axlarliðsskipti
Stefán Hallgrímsson er mjög
ánægður með að hann hafi feng-
ið möguleika á axlarliðsskiptum
á Akureyri í stað þess að þurfa
að sækja lengra eftir slíkri að-
gerð. Hann segir að möguleikar
á gerviliðum séu gleðilegir fyrir
þá sem hrjáist af kvillum í lið-
um, slíkt sé ólíkt betri kostur en
að festa liði eins og gert var áð-
ur fyrr. Stefán segist reikna með
að geta byrjað fljótlega að fikra
sig áfram í vinnu.
„Eg er búinn að vera slæmur í
öxlinni í fjöldamörg ár. Það gæti
veriö að ég hefði einhvern tímann
sem barn orðiö fyrir einhverju
mcð öxlina en það er ekki hægt að
rekja eymslin til þess hcldur er
þetta fyrst og fremst vinnuslit,“
sagði Stefán.
Hann segist hafa verið orðinn
þjakaóur af verkjum í öxlinni og
átt æ erfiðara með að sinna vinn-
unni, en hann er eigandi verslun-
innar Hljómvers á Akurcyri.
Vegna verkjanna segist hann hafa
hlíft hendinni mikið og sjúkraæf-
ingar núna gangi því út á að þjálfa
upp vöðva sem lítið hafi reynt á
lengi. Til gamans nefnir hann að í
Stefán Hallgrímsson segir framund-
an æfingar til að þjálfa upp hægri
hendina sem hann hefur ekki getað
notað að fullu í taisvert iangan tíma.
fyrradag hafi honum tekist að
borða egg með hægri hendinni en
það var honum ekki áður mögu-
legt. Æfingarnar eru mikils virði
og segist Stefán reikna meó að
verða í þjálfun næsta hálfa árið.
„Nú er ég ekki lengur með þennan
stöóuga verk sem ég losnaói aldrei
við,“ segir hann.
Stefán segir aö hann hafi aldrei
getað sætt sig við þá lausn að axl-
arliöurinn verói festur. „Eg var
alltaf ósáttur við aó láta negla lió-
inn því ég trúði ekki öðru en
mögulegt væri aó skipta um. Síð-
an var konan að hlusta á sjónvarp-
ið síðastliðinn vetur þar sem var
viðtal við Brynjólf Mogensen sem
hefur skipt um liói í Reykjavík og
í framhaldi af því fór ég til heimil-
islæknisins míns og hann réð mér
að snúa mér beint til Brynjólfs,“
segir Stefán. Eftir þetta fóru hjólin
að snúast og Stefán fékk inni í
bióröðinni eftir liðsskiptum í
Reykjavík. Þá buðu sérfræóingar
bæklunardeildar FSA Stefáni uppá
að gangast undir aðgerðina fyrir
norðan sem hann var fljótur að
samþykkja og aðgerðin er að baki.
„Eg veit ekki annað en útkoman
sé ágæt en þetta tekur allt sinn
tíma. Ef öxlin hefði verið negld þá
hefði hreyfigetan orðið minni en
ég þó verið vinnufær. Þetta er
samt mun betri kostur. Eg fer að
skoða hvað ég get þegar ég losna
af sjúkrahúsinu.“ JÓH