Dagur - 11.02.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 11.02.1994, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 11. febrúar 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (Iþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 í gervi jólasveinsins Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kvaðst ekki koma sem jólasveinn í heimsókn sinni til Ak- ureyrar síðastliðinn mánudag, þar sem hann fór á milli fyr- irtækja og ræddi við forsvarsmenn þeirra og starfsfólk. Þótt iðnaðar- og viðskiptaráðherra teldi sig ekki koma fær- andi gjafapakka er greitt gæti fyrir atvinnuuppbyggingu í bæjarfélagi þar sem atvinnuleysi hefur farið allt upp að 10% að undanförnu þá hrutu honum af munni ýmis um- mæli er eftir hefur verið tekið. Á almennum fundi, er hann hélt á Hótel KEA, rakti hann nokkuð hverju tveggja pró- sentustiga vaxtalækkun muni skila atvinnuvegunum og heimilunum í landinu. Vitað var að lækkun vaxta væri eitt af grundvallaratriðum þess að fá hjól atvinnulífsins til snúnings að nýju en samkvæmt þeim útreikningum er ráðherrann vitnaði til munu allt að fimm milljarðar króna skila sér til opinberra aðila, atvinnulífs og heimila á hverju tólf mánaða tímabili. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra rakti nokkuð sögu hinna afdrifaríku breytinga er orðið hafa í íslensku efnahagslífi. Hann sagði að rekja mætti umbreytinguna aftur til ársins 1987 er tekið hafi að hægja á hagvexti og kakan til skipt- anna farið að minnka. Ráðherrann ræddi um verðfall á áli, verðfall sjávarafurða á erlendum mörkuðum og síðast en ekki síst þann minnkandi sjávarafla - einkum þorskafla - sem þjóðin hefur búið við. Hann ræddi um að hefja ný- sköpun og hann kvaðst einnig vilja sjá að stjórn Fisk- veiðasjóðs lánaði aðeins til verkefna er unnin verði í inn- lendum skipasmíðastöðvum næstu tvö árin á meðan sé verið að byggja skipaiðnaðinn upp að nýju. Ráðherrann viðurkenndi að sofið hafi verið á verðinum hvað atvinnumálin varðar. Hann viðurkenndi einnig að ný- sköpunarstarf þurfi sinn tíma og verkefni er hugað yrði að á þessu ári eða einhvern tímann á næstunni muni ekki skila okkur aukinni atvinnu eða lífsviðurværi á sama degi. Og þá er komið að þeim orðum hans í Akureyrarheim- sókninni er vakið hafa hvað mesta athygli. Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði í sam- tali við Bjarna Hafþór Helgason, fréttamann Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er tekið var í Félagsmiðstöðinni Punktinum á Gleráreyrum, að ef hann ætti að vera alveg hreinskilinn þá þyrftum við að auka þorskkvótann í ár um 35 til 55 þús- und lestir. Með þessum ummælum brá hinn orðhvati ráðherra sér í gerfi jólasveinsins þrátt fyrir yfirlýsingar um að hann kæmi norður sem annar. Hann taldi sig eiga í pokahorni sínu gjafir er létt gætu vanda atvinnuleysis af þjóðinni. Þessi ummæli iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafa vakið hörð viðbrögð. Fiskifræðingar líkja slíkri aðgerð við slátrun mánaðargamalla lamba og nánasti samráðherra hans, Jón Baldvin Hannibalsson, er svo hræddur við að ræða þessi mál að hann fór að tala um veðrið er DV vildi ræða hug- myndir starfsbróður hans í Alþýðuflokknum og stjórnar- ráðinu við hann síðastliðinn miðvikudag. Verði farið að hugmyndum iðnaðar- og viðskiptaráð- herra um auknar þorskveiðar á þessu ári er ákveðin hætta á ferðum. Með því væri snúið frá þeirri verndunarstefnu er við höfum fylgt. Hvað gerist ef þorskstofninn verður eyði- lagður? Myndi það ekki kalla enn meiri þrengingar yfir þjóðin en hún hefur orðið að ganga í gegnum til þessa. Þessu verða menn að eiga svör við áður en farið er að boða auknar þorskveiðar án nokkurs fyrirvara. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra brá sér því í gerfi jólasveinsins til þess að bjóða þjóðinni að pissa í skóinn sinn í Akureyrarheim- sókn sinni á dögunum. ÞI Hættum þessu nöldri - og tökum ofan fyrir framsýni bæjarstjórnar Akureyrar í málefnum Listagilsins Að undanfömu hafa tveir fram- kvæmdastjórar og eirin blaðamaður tjáð sig í akureyrskum blöðum um framlög bæjarins til uppbyggingar Listagilsins. Þeir voru allir sam- mála um að bærinn hefði ýmislegt þarfara við peningana sína að gera núna í kreppunni. Ég bý að vísu ekki á Akureyri og mér kemur þetta svo sem ekkert við. En þar sem blöðin tvö, Dagur og Lífs- niark, hafa ekki séó ástæðu til að kalla á viðbrögð og viðhorf bæjar- fulltrúa til þessara ummæla langar mig að gera þau að umtalsefni. Fyrsta yfirlýsingin um peninga- austurinn í Listagilið kom í Degi í haust. Þá var haft eftir einhverjum súkkulaðiframleiðanda úr Hafnar- firöi að hann væri aldeilis hlessa á þessu bruðli bæjarsjóðs Akureyrar. Nær væri að verja þessu fé til at- vinnumála, þar væri ástandið ekki beysið. Þessi maður var kominn norður þeirra erinda að bæta Lindu við sælgætisveldi sitt. Það var hans framlag til atvinnumála á Akureyri og allir voru þakklátir. Fögnuður- inn var hins vegar eitthvað minni skömmu síðar þegar þessi sami maður gaf út aðra yfirlýsingu þess efnis að það væri engan veginn víst hvort Linda yrði starfrækt áfram á Akureyri. Líklega hefur blaðamaðurinn sem tók viðtalið viö súkkulaði- kónginn hafnfirska gleymt að fræða hann á því að Akureyrarbær hefur vissulega lagt sitt af mörkum til atvinnumála í bænum. Milljarður í atvinnumál I Lífsmarki var upplýst að kostnað- ur bæjarins við Listagilið hefði ver- ið kominn í 117 milljónir króna um síðustu áramót og er þá átt við kaupverð, uppbyggingu og rekstur. Raunar var ekki búið að greiða allt kaupverðiö, sem er rétt rúmur helmingur þessarar upphæðar, svo útlagður kostnaður var eitthvað lægri. Sama dag og Lífsmark kom út var upplýst í Svceðisútvarpinu að Akureyrarbær hefði lagt fram rétt tæpan milljarð króna til atvinnu- mála á síðustu sjö árum. Bærinn hefur semsé lagt fram meira til þeirra mála á hverju ári í sjö ár en samanlagt í Listagilið. Menn geta svo deilt um árangurinn eins og þá lystir. En þegar viðtalið við súkkulaði- kónginn hafói birst tók íþrótta- fréttamaður Dags undir orð hans í þættinum Sniátt & stórt. Hann bætti viö einhverju í þá veru að ef menn vildu stunda menningarlíf ættu þeir að borga það sjálfir en ekki að íþyngja buddu náungans með því. Af því að þessi ummæli komu frá íþróttafréttamanni blaðsins er ekki úr vegi að nefna það að í fjár- hagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir þetta ár er gert ráð fyrir að verja 180 milljónum króna til íþrótta- mála í bænum. Þar er liðlega 50% hærri upphæð en bærinn er búinn að leggja í Listagilið. Og mér skilst að það sé hægt að stunda íþróttir á mörgum stöðum í bænurn. Þau hús eru í það minnsta fleiri en þau þar sem hægt er að flytja tónlist með góóu móti. Ég gæti líka snúið rökum þessa ágæta starfsbróður míns upp á íþróttir: Þeir sem vilja stunda íþróttir ættu að borga fyrir þann áhuga sinn sjálfir. Þröstur Haraldsson. ar, en þær eru áreiðanlega ekki á menningarsviðinu. Guðbjöm þessi viðrar í spjalli sínu allar helstu bábiljur og for- dóma sem á kreiki eru í umræðum um menningarmál og hlutverk hins opinbera. Hann segir ma. að svo virðist sem áhugamenn um þetta (Listagilið) hafi nánast óheftan að- gang að peningum úr bæjarsjóði en ekkert gerist í atvinnumálum bæj- arins. Og það síðamefnda er að „Einhvern veginn get ég ekki að því gert en það liggur við að ég blygðist mín fyrir hönd manna sem stunda slíkt grjótkast úr glerhúsi. Guðbjörn til- heyrir nefnilega þeim hópi manna, athafnamönnun- um, sem fengið hafa í hendur tæpan milljarð úr bæjarsjóði til að reisa við atvinnulífið. Samt eru hann og kollegar hans hundóánægðir og sjá of- sjónum yfír skitnum 117 milljónum sem runnið hafa til Listagilsins.“ sjálfsögðu bæjarstjóminni að kenna, því hugmyndaleysið þar á bæ síðastliðinn áratug hefur verið algert. Einhvern veginn get ég ekki að því gert en það liggur við að ég blygðist mín fyrir hönd manna sem stunda slíkt grjótkast úr glerhúsi. Guðbjöm tilheyrir nefnilega þeim hópi manna, athafnamönnunum, sem fengið hafa í hendur tæpan milljarð úr bæjarsjóói til aö reisa við atvinnulífið. Samt eru hann og kollegar hans hundóánægðir og sjá ofsjónum yfir skitnum 117 milljón- um sem runnið hafa til Listagilsins. 117 milljónir í hvað? Og vel á minnst, í hvað skyldu þessar 117 milljónir hafa farið? Meirihlutinn hefur runnið til KEA sem átti byggingamar og hefur vonandi eytt þeim í að styrkja at- vinnustarfsemi sína í bænum. Stór hluti þess sem þá er eftir hefur farið í að greiða iðnaðarmönnum laun fyrir uppbyggingu svæðisins. Nú, og því er vió að bæta að formaður Gilfélagsins upplýsir í sama tölu- blaði Lífsntarks að í Gilinu starfi nú 25 manns. Að vísu stendur bærinn ekki undir launum þess fólks, það gera þeir fjölmörgu sem eiga við- skipti við fyrirtækin og listafólkið í Gilinu. Og af því Guðbjöm sagði að þessar framkvæmdir væru illa tímasettar þá efast ég um að smið- imir, múraramir, rafvirkjamir og allir hinir sem fengið hafa vinnu við Listagilió séu honum sammála. Auk þess sem Gilið er ekki búið að starfa nógu iengi til að áhrif þess hafi skilað sér til fuils inn í efna- hagslíf Akureyrar. Fordómar og vanmáttar- kennd I lokin á viðtalinu við Guðbjöm kemst upp um strákinn Tuma. Þar segir hann að honum finnist allt í lagi að styöja í einhverjum mæli listamenn sem hafa sýnt að þeir séu þess verðir en að setja upp aðstöðu fyrir Pétur og Pál, sem hrúga sam- an einhverju rusli sem enginn vill eiga né kaupa, er allt annaó mál. Viö höfum ekkert með svoleiðis menn að gera. Þama brýst hún l'ram þessi van- máttarkennd sem er svo sorglega algeng þegar talið berst að menn- ingarmálum. Það er eins og menn geti ekki unnt öðru fólki þess að stunda listir vegna þess að ég hef ekki áhuga á þeim. Þessi tónn heyr- ist aldrei þegar talið berst að íþrótt- um. Heyrist einhvem tíma að það beri aó taka alla styrki af knatt- spymuliði sem lellur í aðra deild og banna því að leika á íþróttavöll- um bæjarins? Eða að það eigi að koma í veg fyrir að fólk geti stund- að íþróttagrein sem einungis örfáir tugir manna hafa áhuga á? Ég held aó flestir séu sammála um að hafa íþróttaflóruna sem fjölbreyttasta og af hverju gildir þá ekki þaó sama um menninguna? Og svo við förum inn á svið sem Guðbjöm ætti að þekkja: Af hverju heyrist aldrci gagnrýni á það að bærinn sé að borga undir rassinn á forstjórum og framkvæmdastjórum sem reka fyrirtæki sín illa og tapa stórum fjárhæðum ár eftir ár? Af hvcrju eru slíkir menn aldrei rckn- ir? Nei, viö eigum að hætta svona nöldri og leggja af þessi músar- holusjónarmið. Það væri nær að taka ofan fyrir bæjarstjóm Akur- eyrar sem hefur sýnt mikla l'ram- sýni í því aö byggja upp Listagilið. Því verki er langt í frá lokið, en sé það skoðað með velvilja þá kemur í ljós að það hefur þegar skilað sér inn í atvinnulíf bæjarins og sá skerfur á cftir að stækka ört á næstu árum. Svo ekki sé minnst á það að Listagilið er og mun verða mikil lyftistöng fyrir menningarlíf á Norðurlandi. Þröstur Haraldsson. Höfundur er blaóamaöur og býr á Dalvík. Akureyrarkirkja: Blásarasveit æskunnar - tónleikar nk. sunnudagskvöld Grjótkast úr glerhúsi Þriðju ummælin í þessa veru birtust svo í Lífsntarki í síðustu viku, en þar er rætt við Guðbjörn nokkurn Garðarsson sem titlaður er fram- kvæmdastjóri. Ekki kemur fram hvaða framkvæmdum hann stjóm- Fyrstu tónleikar Blásarasveitar æskunnar á þessu starfsári verða í Akureyrarkirkju næst- komandi sunnudagskvöld og hefjast þeir kl. 20.30. Aðgöngu- iniðar verða seldir við inngang- inn. Meðal verka á efnisskránni eru syrpa úr Nýjaheimssinfóníunni eftir Dvorac og syrpa negrasálma eftir Eric Ball. Stjórnandi er Roar Kvam. Blásarasveitin veróur skipuð um tuttugu hljóófæraleikurum á tónleikunum og eru þeir á aldrin- um 15-20 ára.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.