Dagur - 10.03.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 10.03.1994, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 10. mars 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Stjórnarfrumvaip um aukið misrétti! Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra hefur lagt fram í ríkisstjórninni frumvarp til laga um að fella niður þá flutningsjöfnun á olíu og bensíni, sem verið hefur við lýði hér á landi um langt árabil. Verði frumvarp þetta að lög- um, mun verð á bensíni og olíu hækka verulega víða út um land en hugsanlega lækka lítillega á höfuðborgar- svæðinu. Fram til þessa hefur olíufélögunum verið gert að greiða ákveðið gjald til flutningsjöfnunar bensíns og olíu, þannig að tryggt sé að þau selji vöru sína á sama verði hvar sem er á landinu. Tæplega ein króna af verði hvers bensíns- og olíulítra rennur nú í flutningsjöfnunarsjóð. Þessi skipan mála er nauðsynleg til að tryggja sem jafn- asta aðstöðu landsmanna, óháð búsetu, en kemur alls ekki í veg fyrir að olíufélögin geti stundað raunverulega samkeppni. Samt sem áður vill viðskiptaráðherra nú af- nema ákvæðið um flutningsjöfnunina. Fram hefur komið í fréttum að forstjóri Olíufélagsins telur að verð á olíu og bensíni muni lækka um eina krónu á höfuðborgarsvæð- inu en hækka umtalsvert í sumum tilfellum annars staðar á landinu, nái frumvarp viðskiptaráðherra fram að ganga. Hér er því verið að leggja til að hverfa aftur til fortíðar. Á sama tíma og unnið er að því að jafna húshitunarkostnað og símkostnað landsmanna, vill viðskiptaráðherra ganga í þveröfuga átt á sviði olíuverslunar! Olíuverslunin hér á landi hefur því miður lengst af lot- ið lögmálum fákeppni. Olíufélögin þrjú skipta markaðn- um nokkuð bróðurlega á milli sín, þar sem Olíufélagið er með rúmlega 40% markaðshlutdeild en Skeljungur og Olís með tæp 30% hvort. Á skömmum tíma hafa átt sér stað miklar breytingar á innflutningi olíuvara og verð- myndun þeirra. Innflutningur á olíu er nú frjáls og olíufé- lögin geta því ákveðið hvaðan þau kaupa vörur sínar, á sama hátt og aðrir innflytjendur. Þau hafa sömuleiðis frelsi til að verðleggja bensín og flestrar gerðir olíu. Þrátt fyrir það er nánast eitt bensínverð í gildi á landinu og munar einungis nokkrum aurum á bensínlítranum eftir því hjá hvaða olíufélagi hann er keyptur. Olíufélögin þrjú eru sem sé einkennilega samstiga í verðlagningu sinni. Ef viðskiptaráðherra vill stuðla að aukinni samkeppni þeirra á milli, sem vissulega er þarft verk, getur hann hæglega gert það án þess að hrófla við flutningsjöfnun- inni. Byggðaröskun er eitt stærsta félagslega vandamálið sem þjóðin hefur átt við að stríða á þessari öld. Höfuð- borgarsvæðið hefur eflst og dafnað mun hraðar og meira en skynsamlegt getur talist. Skammsýnir menn sunnan heiða halda því fram að þessi þróun sé góð. Þeir segja að dreifbýlið sé dragbítur á framfarir í landinu og hafa í því sambandi beint spjótum sínum sérstaklega að bændum og landbúnaðarkerfinu í heild sinni. Raddir öfgamanna, sem beinlínis vilja vega að landsbyggðinni, gerast sífellt háværari. Núververandi ríkisstjórn er mynduð af flokk- um, sem sækja mest fylgi til þéttbýlisins á Suðvestur- horni landsins. Frá því hún kom til valda hafa því margir óttast að hún myndi neyta aflsmunar til að bæta hag höf- uðborgarbúa á kostnað annarra landsmanna. Það sýnir sig nú að sá ótti landsbyggðarfólks var ekki ástæðulaus. „Jafnaðarmaðurinn“ Sighvatur Björgvinsson hefur nú skipað sér í hóp þeirra manna sem vilja mismuna fólki eftir búsetu enn frekar en þegar er gert. Hvernig við- skiptaráðherrann fær það út að hann sé að vinna í anda jafnaðarstefnunnar með því að leggja til að álögur á landsbyggðarfólk verði stórauknar, er með öllu óskiljan- legt. Vonandi ber meirihluti Alþingis gæfu til að hrinda þessari ódrengilegu aðför að þeim sem á landsbyggðinni búa. BB. Kaldar kveðjur tíl atvinnulausra í upphafi atvinnuleysistímabilsins, er nú gengur yfir Evrópu, bar tölu- vert á skrifum stjómmálamanna, býrokrata og jafnvel fræðimanna um að orsaka atvinnuleysis væri meðal annars að leita til leti og jafnvel svika fólks. Mátti skilja skrif þessi á þann veg að í raun væri ekki hægt að reka þjóðfélag- ið svo vel færi nema með fólki sem hvorki lætur sér bregða við sár né bana. Á síðustu árum hefur dregið úr þessum skrifum erlendis enda skildu menn fljótlega að vandinn liggur á meira dýpi. Nú hafa þessi skrif hafist hér á landi. Hegðunarbreytingar í kjölfar atvinnumissis Alþekkt er að í kjölfar atvinnu- leysis fylgja oft ýmsar hegðunar- breytingar sem sálfræðingar telja alfarið afieiðingu þess vonleysis er grípur vinnusamt fólk sem missir atvinnuna. I stórum dráttum virðist mega skipta atvinnulausu fólki í tvo hópa. Annar hópurinn missir ekki kjarkinn þó á móti blási en heldur áfram baráttunni og lætur seint bugast. Hinn hópurinn virðist ekki hafa sama þol. Áthyglisvert er að í þessum síðarnefnda hópi er margt mjög duglegt fólk sem er sómi sinnar stéttar. Eftir aó hafa ítrekað sótt um starf án árangurs missa sumir kjarkinn, sjálfsöryggið og sjálfsbjargarncistann sem allflest- um er gefinn og draga sig smám sanian í hlé. Ymsar breytingar koma fram í fari manna, menn hætta jafnvel að heimsækja vini og vandamenn, fara ekki á mannamót, ganga síður um tjölfarnar götur og kaupa inn í matinn þegar fáir eru á ferli. Nokkur hluti þessa fólks hættir aó sækja um vinnu og þiggur jafnvel ekki störf sem því eru boðin. Ólafur Ólafsson. Vissulega cru þaó oft störf sem eru annars eðlis en fólkió er vant. Undantekningarlaust hverfa þessi einkenni um leið og fólkið fær starf að nýju. Niðurstöður þessar eru byggðar á vönduðum samanburðarrann- sóknurn þar sem bornir eru saman tveir hópar karla og kvenna, vió svipaða heilsu í upphall, þar sem annar hópurinn hefur fasta vinnu en hinn hefur misst vinnuna. Heilsufarslegar afleiðingar þessa dofa og mikla kvíða, er tekur margt fólk, eru tíöari hjartaáföll, heilablóðföll, þunglyndi, sjálfs- morð og jafnvel meiri sýkingar- hætta því ónæmiskerfió bilar að cinhverju Ieyti. Ævaforn samkennd lögð fyrir róða Framangrcind skrif leysa ekki at- vinnuleysisvandann en auka að- eins á „niðurlægingu“ fólks. Skril'- in eru aðeins til þess fallin að cfla sjálfshyggju og eigingirni í samfé- laginu og leggja fyrir róöa æva- forna samkennd og samheldni sem hér hefur ríkt. Trúlega þykir 80 „slippurum“ á Akureyri og áhöfnum toppskipa í fiskveiði- flotanum, sem nýlega hafa misst vinnuna, skrifin köld. Ef menn skortir þekkingu á þessum hegðunar- og heilsufars- vanda en telja sig knúna til að skrifa opinberlega um atvinnu- leysið legg ég til að þeir leiti sér upplýsinga um málið. Hjá Land- læknisembættinu er hægt að fá ábendingar um gagnlega lesningu varóandi þetta. Ólafur Ólafsson. Höfundur er lundlæknir. Heimildir: Olafur Ólafsson, Per-Gunnar Svensson. Unemployment-Related Lifestyle Changes and Health Disturbances in Adolescents and Children in Western Countries. Soc. Sci. Med. 1986; Vol. 22, No. 11. pp. 1105-1113. P.J. Franks et.al. Stroke Death and Un- employment in London. J. Epidemiol. & Comm. Health 1991;45:16-18. P.T. Martikanen. Unemployment and Mor- tality among Finnish Men 1981-85. BMJ 1990; 301:407-411. J. Mattiasson et.al. Threat of Unemploy- ment and Cardiovascular Risk Factors. BMJ 1990;301:461-466. Ólafur Ólafsson. Vinna, streita og heilsa í velferóarþjóðfélagi. Heilbrigóisskýrslur, Fylgi- rit nr. 4 1989. Ólafur Ólafsson. Ungir fíkniefnaneytendur. Hvaóan koma þeir og hvert halda þeir. Heil- brigóisskýrslur, Fylgirit nr. 4 1990. B. Starrin, P. -G. Svensson, H. Winters- bcrger (eds). Unemployment, Povcrty and Quality of Working Life. Some Europcan Ex- pericnces. Sten-Olof Brenner and Lennart Levi et.al. Long-Term Unemployment among Women in Sweden. Soc. Sci. Med. Vol. 25, No. 2, pp. 153-161, 1987. B.B. Arnetz, Md, PHD, J. Wusscrmun, MD, PHD, B. Petrini, MD, PHD, S,-0. Brenn- er, PHD, L. Levi, MD, PHD, P, Eneroth, MD, PHD, H. Salovaara, MD, R. Hjelm. BA. L. Salovaara, RN, T. Theorell, MD, PHD, and I. - L. Pettersen, BA. Immune Function in Un- employed Women Psychosomatic Medicine, Vol.49, No. I (Jan./Feb. 1987); KVI KMYNDI R JÓN HJALTASON Flóttamaðurimi Borgarbíó sýnfr: Flóttamanninn (The Fugi- tive). Leikstjóri: Andrew Davis. Aöalhlutverk: Ilarrison Ford og Tommy Lee Curtis. Warner Bros 1993. Flóttamaðurinn, dr. Kimble, var um langan tíma vikulegur gestur á skjánum hjá okkur sem nú erum hætt aó væta brækur. I hvcrjum einasta þætti bjargaði hann mannslífi cða framdi aðra dáð er gerði hann aö hetju í samfélaginu - og alltaf var hann á þeytingi svo aö lokum voru þau orðin ansi mörg bæjarlélögin er hann hafði heiðrað meó nærveru sinni. En eins og ntargir niuna þá var dokt- ornum ekki sjálfrátt um ferðagleð- ina. Hann hafði verið dæmdur fyr- ir að myrða eiginkonu sína og var eftir það á sífelldum flótta undan lögreglunni. Og alltaf var hann að leita einhcnta mannsins er hann sagði sekan um morðið. Bíómynd- in er trú þessu stefi um góða manninn er veróur fyrir barðinu á illum örlögum. Harrison Ford leikur lækninn og gerir það listavcl. Hann er ekki margmáll en svipurinn segir þeim mun meira. Senuþjófurinn er þó Tommy Lee Jones. Eg hef reyndar lengi vitað að maðurinn cr frábær leikari og hann sannar það með eftirminnilegum hætti í Flótta- manninum. Tommy Lee er í hlut- verki alríkislögregluntannsins er fær það verkefni að hafa hendur í hári doktorsins þegar sá síðar- nefndi slcppur úr haldi. Meó fá- einum orðum, handahreyfingum Harrison Ford í klcmmu. Að baki honum stcndur Tommy Lcc og beinir að honum byssu. og svipbrigðum nær Tontmy Lee að koma því meö óvéfengjanleg- um hætti til bíófarans hver það cr sem stjórnar. Hann þarf enga stæla cða upphafningu til að geisla frá sér þcssuni áhrifum. Frábær frammistaða leikaranna er í takt við frábært handritið. Það segir í raun allt það sama og sjón- varpsþættirnir gerðu forðum, að- cins mcð öðrum hætti og að mörgu leyti skemmtilegri. Flótti doktorsins er að sönnu ævintýra- lcgur cn slær engan sem della. Mcð einu litlu atviki á spítala, sem cr nánast ekki annað cn citt andar- tak, tekst aö koma þeini skilaboð- unt áleiðis að nóttamaðurinn cr ekki aóeins góður maður hcldur cinnig bjargvættur. Spenna cr meðal annars mögnuó mcð ómcrkilcgu atviki; Kimble fær far mcð óþckktri konu og við þetta cr spunnin neðanmálsgrein við frá- sögnina er heldur bíófaranum á tánum í nokkur andartök. Ekki hvað síst er þó skemmtilegt að sjá hvernig einhenti maðurinn fær allt annað og meira hlutverk í bíó- myndinni en sjónvarpsþáttunum. Hann verður ekki aðeins morðingi er l'yrir tilviljun villist inn í íbúð Kimblc hjónanna og myróir konu hans hcldur er hann púsl í miklu stærri mynd og flóknari. Enn cin skrauttjörðin í hatt aö- standcnda Flóttamannsins er kvik- myndatakan og klippingarnar. Ör- ar klippingar; úr lbrtíð í nútíó, úr draumi í veruleika og á rnilli at- burðarása, cinkenna þessa mynd. Leikstjórinn þarf að segja tvær meginsögur; þá af dr. Kimble og hina af eftirleitarmönnum hans og tckst þctta listavc! með stórsnjöll- um klippingum scm cinar sér gcra það fyllilega þess vcrt lyrir alla bíóáhugamenn að sjá Flóttamann- inn. Eitt fannst mér þó mistakast hjá kvikmyndagcrðarmönnnum. Um leið og tiltekinn maður birtist á hvíta tjaldinu vissi ég að þar var korninn vondi karlinn. Sá gaur lcikur alltaf slímugar persónur og í Flóttamanninum varð engin und- antckning á. Kannski hafa þcir kært sig kollótta um þetta, sagói annar samferðarmanna minna, þcir eru hvort eö er með frábæra mynd í höndunum. Og aldrei þessu vant hafói hann rétt l'yrir sér.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.