Dagur


Dagur - 17.03.1994, Qupperneq 6

Dagur - 17.03.1994, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 17. mars 1994 Sptimíng víkunnar - spurt í „bliðunni“ á Akureyri í gær - Ertu farín/n að skípuleggja sumarfrííð? Sígríður Jóhannsdóttir: ,,Nei, ég er nú ekki búin að því. Ég býst reyndar við taka meira af löngum helgum og ferðast um á húsbílnum." Sigurður Jóhannsson: „Ég tek því nú frekar rólega í þeim efnum eins og ástandið er í dag, allt þetta atvinnuleysi og annað. En ætli maður reyni ekki að gera eitthvað aö gamni sínu.“ María Þorláksdóttír: „Ég er ekki búín að skipuleggja neitt enn sem komið er. Eg reikna með að ferðast eitthvað hér innanlands." Ingimar Skjóldal: „Nei, ég hef ekkí gert neínar áætlanír um það. Það fer svona eftir ýmsu hvað maður gerir." Bergþóra Bergsdóttir: ,Já, ég er reyndar búín að því. Ég ætla að fara tíl Svíss og Austurríkís í sumar ásamt fleira fólki og keyra þar um.“ Kvennabridge Sunnudaginn 20. mars 1994 kl. 10 f.h. verður haldið hið árlega tvímenningsmót kvenna í bridge. Spilað verður í Hamri félagsheimili Þórs. Allar konur velkomnar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Jónínu í síma 25974 eða 30369 í síóasta lagi fimmtudaginn 17. mars. Bridgefélag Akureyrar. AKUREYRARB/€R Stuðningsfjöl skyldur óskast Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir að komast í kynni vió góða fjölskyldu á sveitaheimili sem getur tekið að sér að vera stuðningsfjölskylda fyrir 10 ára gamlan dreng eina helgi í mánuði. Heimilió þarf helst aó vera í nágrenni Akureyrar. Óskum einnig eftir stuðningsfjölskyldu fyrir fjögurra ára gamlan dreng eina helgi í mánuði. Fjölskyldan þarf að vera á Akureyri. Upplýsingar gefa Helga Jóna eða Þuríður í síma 25880. Stjórnarkjör Iðja, félag verksmiðjufólks, á Akureyri, auglýsir hér með eftir listum varóandi kjör stjórnar og trúnaóar- mannaráðs fyrir 1994 að vióhafðri allsherjaratkvæða- greiðslu. Ber samkvæmt því að skila listum skipuð- um fimm aðalmönnum og fjórum til vara í stjórn og varastjórn. Átta aðalmönnum í trúnaðarmannaráð og fimm til vara. Fimm mönnum í samninganefnd. Tveimur endurskoðendum og einum til vara. Allt mið- að viö fullgilda félagsmenn. Hverjum lista skulu fylgja skrifleg meðmæli 80 fullgildra félagsmanna. Listun- um ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, eigi síðar en kl. 17.00, mióvikudaginn 30. mars. Listi stjórnar og trúnaóarmannaráðs liggur frammi á skrifstofu Iðju, Skipagötu 14. Akureyri 15. mars 1994. Kjörstjórn. Höfundur: Anders Palm Þýðandi: Sígurbjöm Kristínsson Hér á eftír veröur dregín upp svipmynd af heimskunnri per- sónu, lífs eöa liðinni, karlí eöa konu. Glöggur lesandi á smám saman aö geta áttað síg á hverjum/hverrí er veríð að lýsa. Til dæmis gæti verið tilvalíð fyrir alla fjölskylduna að spreyta sig á að finna svarið sameiginlega. Ef þið gefist upp, er svaríð að finna á blaðsíðu 14! Okkar maður heitir Maxene. Hún hafðí Iært að fara meö byssur áður en hún byrjaöí í skóla. Til þess sá faöir hennar, Albert. Hann var vörubílstjóri og kenndi henni ýmislegt annað nytsamlegt, t.d. að höggva við og gera við bfla. Albert eyddí miklum tíma með dótturinni og því varð hún sannkölluð pabba- stelpa. Móðir Maxene heitír La Vona. Því miður var samband Maxene við hana ekkí eins gott og við föðurínn. Sagt er að hún hafi barið Maxene reglulega, jafnvel með hárburstum, og einhverju sinni hrinti hún dótt- urinni níður stiga. Æska Maxene var enginn dans á rósum. Fjárhagur tjöl- skyldunnar var frekar bágborinn og þau þurftu oft að flytja. Um tíma bjuggu þau í hjólhýsi. La Vona vann sem þjónustustúlka og frítímanum eyddi hún í að safna dósum og flöskum og þá varð Maxene að hjálpa henni. Ekki skrýtið þótt Maxene lyki aldrei grunnskólanum. Maxene á fjöldann allan af hálfbræðrum, enda var Albert fimmti eiginmaður La Vonu. Að hennar eigin sögn reyndí einn þeirra aö nauðga henni en henni tókst að verja sig með heitu straujámí þar til lögreglan kom. Maxene var aöeíns 15 ára þegar hún hitti mannsefníð, Jeff. Þau giftu sig í mars 1990 en þá var Maxene 19 ára og Jeff 22ja ára. Albert hafði ímigust á tengdasyninum og lá ekki á því. „Mér hefur aldrei fallið við þig, en velkominn í fjölskylduna samt,“ vom skílaboð hans til Jeffs á brúðkaupsdagínn. Hjónabandið varð martröð fyrir Maxene. Jeff barði hana eins og haröfisk og ári eftir brúökaupið sótti hún um skiln- aö. Nokkmm mánuöum eftir að Maxene fór frá Jeff, trúlofaðist hún verkfræöingnum Mike Pliska. Mike var í sjöunda himni yfir „litlu prinsessunni" sem virt- ist svo saklaus og hjálparvana. Hann komst þó fljótlega að því að Maxene fór sínar eigin leiðir og var vel sjálfbjarga á flestum sviðum. Mike vildí ekki aö hún hefði samband við aöra karl- menn, síst af öllu Jeff, en það féllst Maxene alls ekki á. Að lokum gafst Mike upp og sleít trúlofuninni - en Maxene tók aftur saman við Jeff. Það þótti mörgum sérkennilegt, því hann hafði ekkert breyst. Max- ene varð aftur að þolá barsmíð- ar og illindí. Einhverju sínni hót- aðijeff að fótbrjóta hana en það hefði trúlega eyðilagt frama hennar. Listgrein sú sem Max- ene stundar og hefur náð mjög Iangt í, krefst nefnilega að fæt- urnir séu í lagí. Maxene sóttí aftur um skiln- að. í ágúst 1993 vom pappír- amir klárir en þá skipti hún aftur um skoöun og í þriðja skiptið tók hún saman viö Jeff. ... Það er ekki vitað hver átti hugmyndina en margir telja að það hafi veriö Jeff. Alltént sá hann um framkvæmdína. Hug- myndin var að losa Maxene við skæðasta keppinautinn, svo hún gæti trónað ein á toppnum. Jeff setti kunningja sinn og líf- vörö Maxene, Shawn aö nafni, í verkíð. Shawn þessi, sem hefur getiö sér orö fyrir flest annað en greind, réði tvo smáglæpamenn til að misþyrma keppínaut Max- ene. Sem betur fer misheppn- aðíst árásin og stúlkan slapp með mínni háttar meiðsli. Atburðurinn hefur gert Max- ene heimsfræga. Stóm sjón- varpsstöðvarnar hafa boöíð henni milljónir dollara fýrir að gera myrid um Iíf hennar. Loks- ins lítur út fyrir aö okkar kona veröi rík, eins og hana hefur alltaf dreymt um... Hver er maðurínn? Búnaðarsamband Austurlands: Ný útgáfa „Sveita og jarða“ Vinna er nú í fullum gangi við nýja útgáfu Sveita og jarða í Múlaþingi, framhald bókanna sem Búnaðarsamband Austur- lands gaf út á árunum 1974- 1977. Áætlað er að bókin verði eitt bindi, 600-700 blaðsíóur meó u.þ.b. 1000 litljósmyndum og komi út síðsumars eða í haust. Myndir eru af öllum bæjum og ábúendum ásamt jaróalýsingum og sveitalýsingum. Einnig yflr- litskort yfir hvern hrepp. Ákveðió hefur verió að bjóða bókina í áskrift fram til 1. júní nk. Mun hún þannig keypt kosta 9.700 kr. nt/vsk, en kr. 12.000 aó viðbættum sendingarkostnaði eftir 1. júní. Bókin veróur scnd áskrif- endum strax og hún kentur út. Til þess að gerast áskrifandi þarf eitt símtal á skrifstofu Búnaóarsant- bands Austurlands og mun þá gíróseóill verða sendur um hæl og þarf hann að greióast fyrir 1. júní 1994. „Göntlu bækumar um Sveitir og jarðir hafa verið ómissandi á hverju austfirsku heimili og fyrir alla sem tcngsl hafa vió Austur- land. Þessi nýja bók cr nauðsyn- legur tengiliður milli eldri bók- anna og dagsins í dag því margt hefur breyst á 20 árum,“ segir í frétt frá Búnaðarsambandi Austur- lands.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.