Dagur - 17.03.1994, Síða 16
Akureyri, fimmtudagur 17. mars 1994
EN ÞÚ HELDVR!
¥erð midaó við staógreióslu er 1,300 hrénur fyrsta birting og hver endurtehning 400 hrénur.
Hákon ÞH-250 kom með 993 tonn til Krossanesverksmiðjunnar á þriðjudagskvöldið. Mynd: Robyn
Enn eru óveidd 19% af loðnuheimildum:
Norðlenskar loðnuverksmiðjur
hafa fengið 23% af loðnuaflanum
Rauðá í Ljósavatnshreppi:
Vor í geitahúsi
- kiðlingarnir koma snemma í ár
Heildarloðnuaflinn á vetrarver-
tíðinni er nú orðinn 408 þúsund
tonn en aflinn hefur síðustu
daga eingöngu fengist vestur af
Jökli og suðvestur af Reykja-
nesi. I fyrrinótt og gær var þar
bræluskítur en þó voru nokkrir
bátar að fá þokkalegan afla en
aðrir aðeins slatta.
Til Hraðfrystistöóvar Þórshafn-
ar hafa borist 17.333 tonn; til SR-
mjöl á Raufarhöfn 23.956 tonn; til
Krossanesverksmiðjunnar á Akur-
eyri 11.176 tonn; til Hraófrysti-
húss Olafsfjarðar 1.991 tonn og til
SR-mjöl á Siglufirði 34.952 tonn
auk 4.914 tonna af hrognakreistri
loónu sem borist hefur þangað
með sanddæluskipi og grænlenska
skipinu Ammasat, eða alls 40.866
tonn. Alls cru þetta því 94.322
tonn sem borist hafa til norð-
lenskra hafna, eöa 23% af heildar-
aflanum. GG
Tíu kiðlingar skoppa um í geita-
húsinu að Rauðá í Ljósavatns-
hreppi, en um helmingur geit-
anna á bænum er borinn. Fyrsti
kiðlingurinn kom í hciminn 20.
feb. í ár, en það er óvenju
snemmt og stafar af ruglinu á
mæðrum þeirra sem stöðugt
sinna ástamálum sínum fyrr á
haustin.
Fyrstu kiðlingarnir eru á
skemmtilegum aldri. Þeir eru
frískir og allt viróist vera í lagi
með þá þótt þeir séu fyrr á ferð-
inni en venja er til, sagði Friðrik
Vilhjálmur Grímsson á Rauðá, en
félagsbúið þar annast geiturnar
fyrir Erling Vilhjálmsson.
Friðrik sagói aó geiturnar
gengju yfirleitt úti fram í fyrstu
snjóa. Þær héldu mikið til i helli í
árgili og auðveldast væri að koma
þeim í hús með því að gera slóð í
snjó fyrir þær. Ekki væri vinnandi
vegur að smala geitunum, þær
vildu fara sínar eigin leiðir, nema
hvað þær rynnu eftir sömu slóð-
inni. Hafurinn gengur með geita-
hópnum, sem er farinn að rugla
með fengitímann og færa hann
framar á haustin.
Friðrik sagði að Rauðárbúiö
hefói engar nytjar af geitunum. Til
hefði staðið að nýta ullina, en
minna orðið úr framkvæmdum. Af
hverri geit mætti kemba urn 300
grömm af mjög fínni ull sem
minnti á kasmírull og ætti að vera
verðmæt. Ríkið veitir geitaeigend-
um styrk til að halda um 200 gcit-
ur í landinu en skyldleikaræktun
skapar vandamál í svo fámennum
stofni. Þau mál eru þó í góðu lagi
hjá Rauðárgeitunum enn um
stundir, en það mun vera hafur úr
Þistilfirói sem freistar þeirra fyrr á
árinu en fyrirhugað er.
Góðviðrið í fyrrahaust veldur
nú nokkrum vandræðum hjá
bændum. Vatnsból hafa þornað og
lækkað í öðrum vegna lítillar úr-
komu sl. haust. A nokkrum bæjum
hefur þurft að leiða vatn eftir
óhefðbundnum leiðum með nokk-
urri fyrirhöfn, en hvergi hefur
komið til stórfelldra vandamála af
þessum sökum. IM
Sauðárkrókur:
Tilraun til
innbrots
Viðvörunarkerfið í Skagfirð-
ingabúð á Sauðárkróki sannaði
ágæti sitt snemma í gærmorgun
er reynt var að brjótast þar inn.
Aö sögn lögreglu fór kerfið í
gang um klukkan sex í gærmorg-
un og í ljós kom aó brotin hafði
verið rúða í Skagfirðingabúð.
Hinn væntanlegi innbrotsþjófur
hefur orðið hrelldur og forðað sér
í ofboði og þar af leiðandi var
engu stolið og engar skemmdir
unnar fyrir utan rúðubrotið.
Umferð gekk ágætlega í Skaga-
firói og Húnavatnssýslum í gær.
Nokkuð snjóaði en færð hélst
þokkaleg. SS
Vestur-Húnvetningar efna til
mikillar sumarhátíðar:
„Bjartarnætur“íjúní
Nýtt íþróttahús mun rísa sunnan sundlaugarinnar á Raufarhöfn á þcssu ári.
A myndinni má sjá þær framkvæmdir sem ráðist var í á sl. sumri. Mynd: GG
Raufarhöfn:
Nýtt íþróttahús
fokhelt fyrir haustið
Vestur-Húnvetningar ætla að
efna til átta daga sumarhátíðar í
júní nk. undir heitinu „Bjartar
nætur“. I»etta verður fjölbreytt
menningar- og fræðsluhátíð og
verður eitthvað um að vera há-
tíðardagana um alla sýsluna.
Að sögn Sigríðar Gróu Þórar-
insdóttur hjá Hagfélaginu hf. á
Hvammstanga, sem átti hugmynd-
ina að „Björtum nóttum“, mun
sumarhátíðin hefjast sunnudaginn
19. júní og stendur hún til sunnu-
dagsins 26. júní.
„Þessi hátíð er hugsuð fyrir alla
fjölskylduna,“ sagði Sigríður
Gróa. „Boðið verður upp á fjöl-
breytt mcnningar-, fræðslu- og
kynningarefni. Við leitumst við aó
dreifa dagskrárliðum um sýsluna
og þannig verða einn daginn
uppákomur í Miðfirði, annan í
Hrútafirði, þann þriója á Vatns-
O VEÐRIÐ
í nótt átti norðan garrinn aó
ganga nióur og í dag verður
austlæg eóa breytileg átt og
líklega einhver éljagangur á
Norðurlandi og frost 1-8
stig. Á morgun er útlit fyrir
norðan strekking og él á
Norðurlandi og 4-10 stiga
frost. Um helgina er von á
suðlægum vindum með
hlýnandi veðri.
nesi, fjórða daginn í Víðidal, þrjá
daga vcrða uppákontur á
Hvammstanga og áttunda daginn
verður efnt til vciðidags um alla
sýsluna. Þaó verður eitthvað um
að vera alla dagana. Eg nefni
myndlistar-, kvikmynda-, sögu-
og leiksýningar, tónleika, fjöl-
skylduleiki ýmiskonar, brennur og
margt fleira.“
Sigríður Gróa sagði að heima-
menn önnuðust alla dagskrárliði
sumarhátíðarinnar að einum und-
anskildum; hljómsveitin Þúsund
andlit meó Sigrúnu Evu Armanns-
dóttur í broddi fylkingar mun spila
á hátíðardansleik á Hvammstanga
laugardagskvöldið 25. júní.
Þegar hefur verið skipuö fram-
kvæntdanefnd fyrir „Bjartar næt-
ur“ og Karl Sigurgeirsson verður
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
„Það sent kom þessu af stað
var lýðveldisafmælið í sumar.
Hins vegar var hér á árum áður
haldin svokölluó Jósefínuhátíó og
það var rætt um þaö í fyrra að
endurvekja hana, enda átti hún þá
50 ára afmæli. Af því varö þó
ekki. Jósefinuhátíðin var alltaf
haldin síðustu helgina fyrir versl-
unarmannahelgi, sem að mörgu
leyti er óhentug tímasetning. Eg
hygg að þessi tími í júní sé hvað
hentugastur til þess að fá fólk til
starfa,“ sagði Sigríður Gróa Þórar-
insdóttir. óþh
Lokið verður við að steypa upp
sökkla, veggi og gólfplötu í nýtt
íþróttahús á Raufarhöfn á kom-
andi sumri og síðan verður reist
Iímtrésburðarvirki og á það
negld klæðning og húsinu lokað
fyrir nk. vetur. Húsið rís sunnan
sundlaugarbyggingarinnar og
verður byggð tengibygging milli
húsanna. Upphaflega var gert
ráð fyrir að allt verkið tæki
fimm ár og ef sú áætlun gcngur
eftir verður íþróttahúsið tekið í
notkun haustið 1995. Það fer þó
að sjálfsögðu eftir fjárhagsáætl-
un Raufarhafnarhrepps fyrir
það ár.
Ný lögreglustöð bíður tilbúin
til notkunar á Raufarhöfn, en hún
stendur á svokölluöu „Gunnars-
plani“, en björgunarsveitin er í
eystri enda hússins, sem er stál-
grindarhús. A þessum stað hafði
síldarspekúlantinn Gunnar Hall-
dórsson söltunarstöð á velmektar-
árum síldarsöltunar á Raufarhöfn.
Húsið hefur þó ekki veriö tekið í
notkun þar sem húsgögn og annar
búnaður er cnn ókominn.
Með notkun nýju stöðvarinnar
flyst lögreglan úr húsnæði sem
Vinnueftirlit ríkisins var búið aó
dæma óhæft sem vinnustað. í nýju
lögreglustöðinni eru tveir fanga-
klefar. GG
4.-20.
mars
* ■
FERMINGARTILBOÐ
PFAFF
SAUMAVÉL 6085
HEIMILISVÉL 20 SPOR
VERD KR. 39.995
3KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565