Dagur - 10.05.1994, Blaðsíða 1

Dagur - 10.05.1994, Blaðsíða 1
Akureyri, þriðjudagur 10. maí 1994 87. tölublað LEÐUR- JAKKAR Verð frá kr. 8.900 HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sfmi 23599 Strýta hf.: Aðalsteinn, Rnnbogi og Samherji kaupa hluti Landsbankans og KEA Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Strýtu hf., og Finnbogi Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur hf., eru þessa dagana að kaupa hluti Kaupfélags Ey- firðinga og Landsbanka Islands í Strýtu hf. Rekstur fyrirtækisins gengur vel um þessar mundir, félagið velti 800 milljónum á fyrstu 12 mánuðunum og skilaði reksturinn hagnaði. Ætlunin er að eftir breytingar á eignarhaldi í fyrirtækinu verði samvinna um ýmis mál varðandi rekstur Strýtu hf. og Söltunarfélags Dal- víkur hf. Fyrir rúmi ári var matvælaiójan Strýta hf. stofnuó eftir að K. Jóns- son & Co hf. varö gjaldþrota. Landsbanki Islands átti frum- kvæói aó stofnun félagsins og leit- aði eftir samstarfi vió fyrirtæki á Akureyri. Samherji hf. og Kaupfé- lag Eyfirðinga gengu til liðs við bankann en tilgangurinn meö stofnun félagsins var aö verja verömæti sem fólgin voru í birgð- um, vélum og byggingum og varóveita þekkingu starfsmanna. Jafnframt skyldi með þessu reynt að tryggja rekstrinum framtíð á Akureyri. Rekstur Strýtu hefur gengió vel og félagið skilaó hagnaöi. Hjá Strýtu starfa nú um 100 manns. Nú hafa KEA og Landsbankinn ákveðið aö draga sig út úr rekstrinum og sclja Aðalsteini Helgasyni og Finnboga Baldvins- syni, ásamt Samherja hf., hluti sína í félaginu. Aðalsteinn og Finnbogi munu eiga helminginn í fyrirtækinu á móti Samherja. Eins og áóur segir veróa þær breytingar á rekstri Strýtu hf. að félagið verður rekið í samvinnu við Söltunarfélag Dalvíkur á sviði stjórnunar, sölu og framleiðslu. „Þetta er spurning um að hag- ræða og vera markvissari. Þessi fyrirtæki vinna úr 7- 8000 tonnum af rækju á ári þannig að þetta er stór eining. Við teljum líka að það styrki svæðið í heild að hafa sam- vinnu og hún er til bóta,“ sagði Heildarvelta Kaupfélags Þingeyinga var 1.429 millj- ónir króna á síðasta ári, sem er samdráttur um 353 milljónir frá árinu áður. Afkoma félagsins færðist einnig nokkuð til verri vegar og er tap ársins 1993 liðlega 53 milljónir króna á móti átta milljóna króna tapi árið 1992. Eigið fé félagsins var í lok ársins 1993 um 212 milljónir, sem er 19,5% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Þá má geta þess að 21,4 milljóna króna hagnaður varð af rekstri félags- ins fyrir fjármagnsliði en vaxta- gjöld að frádregnum vaxta- tekjum voru rúmar 44,7 milljón- ir króna. Þetta kom fram á að- alfundi félagsins, sem haldinn Aóalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Strýtu hf., í samtali við Dag. Lögð er áhersla á að tilgangur- inn mcð breytingunum sé að efla markaðs- og sölustarf fyrirtækj- anna. Samstarfið styrki líka sam- keppnisstöðu þeirra jafnt innan- lands sem erlendis. Aðalsteinn sagði að ljóst hafi verió strax við stofnun Strýtu hf. var síðastliðinn laugardag. Þorgeir Hlöðversson, kaupfé- lagsstjóri, sagði á fundinum aö ástæður verri afkomu væru að miklu leyti ytri áföll, sem félagið varó fyrir vegna niðurfærslu á eignahlutum og afskrifuðum vió- skiptakröfum er meðal annars tengjast áföllum Sambands ís- Ienskra samvinnufélaga og tengdra fyrirtækja eða alls rúmar 27 milljónir króna samkvæmt árs- reikningi. Afkoma sé einnig lakari í innri rekstri lélagsins en á árinu 1992, einkum í rekstri sláturhúss þess í kjölfar óheillaþróunar á kjötmarkaði með tilheyrandi verö- falli kjötafurða og breyttrar verð- myndunar á mjólkur- og kjötaf- urðum eftir aó niðurgreiðslum til að Landsbankinn yrði ekki eignar- aðili til frambúðar og því séu þessar breytingar eólilegt fram- hald. Hann sagði ljóst að Lands- bankinn hafi gert gott verk í fyrir- tækinu og sá þáttur ráði miklu um að fyrirtækió sé að koma undir sig fótum. Ekki kemur til uppsagna hjá Strýtu vegna þessara breytinga. JÓH afurðastöðva var hætt. Þá sé af- koma verslunarreksturs félagsins einnig lakari en á árinu á undan er einkum stafi af harónandi sam- keppni í verslunarrekstri á Norð- austurlandi. Þorgeir Hlöðversson tók við starfi kaupfélagsstjóra þann 25. janúar síóastliðinn og kvaðst hafa haft aóalumsjón nteð uppgjöri lið- ins árs og tilheyrandi skýrslugerð í góðu samstarfi vió Hreióar Karls- son, fyrrverandi kaupfélagsstjóra, en þeir staöfesta báðir ársreikning félagsins. Þá má geta þess að á seinnihluta síðastliðins árs hófst heildarendurskoðun á rekstri Kaupfélags Þingeyinga í samstarfi við ráógjafafyrirtækið Stuóul hf. ÞI Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga: Samdráttur í afurðasölu og verslun á liðnu ári - félagið tapaði liðlega 5,3 milljónum Vorsýning Fimleikaráðs Akureyrar Árleg vorsýning Fimleikaráðs Akureyrar fór fram í íþróttahúsi Glerárskóla sl. sunnudag. Mikið var um dýrðir að venju og sýndu jal'nt yngri senr eldri fimleikastjörnur hvað í þeim býr. Fjöldi áhorfenda fylgdist meö og hér cru æfingar á tvíslá í fullum gangi. Nánar veróur sagt frá sýningunni síðar. Mynd: Robyn. Ingimar Skjóldal, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, sagói að tvær aðrar líkamsmeiðingar hefðu komió til kasta lögrcglunnar að- faranótt sunnudags. I öðru tilfell- inu var maður slcginn í andlitiö fyrir utan Sjallann og var taliö að hann hefði kinnbeinsbrotnað. Ekki vildi Ingimar meina að helgin hefði verið sérstaklega ófriðsöm, en hann tiltók að nrargt aðkomufólk hefói verið í bænum Næturlífið á Akureyri um helgina: Maður sleginn með flösku í höfuðið - annar kinnbeinsbrotinn í átökum og bæjarbúar hefðu líka verið duglegir að stunda næturlífið í góða veðrinu. Margir voru á fiandri í mióbænum fram undir morgun og því bar nokkuð á ölv- un, en Ingimar sagði að ekkert hefði verið um rúðubrot eða við- líka skcmmdarverk og ólæti ekki teljandi. SS Laust fyrir klukkan 23 á laug- ardagskvöldið var maður sleginn með flösku í höfuðið í miðbæ Akureyrar og hlaut hann allmikla áverka. Hann var flutt- ur á slysadeild FSA þar sem gert var að sárum hans. Árásarmað- urinn komst undan en var hand- tekinn seinna um nóttina. Sauöákrókur: Ölvun og skemmdarverk Lögreglan á Sauðárkróki átti frekar annasama helgi. Margir voru úti á líf- inu, veðríð gott og ölvun tals- verð, en hjá sumum snerist gleðskapurinn upp í skemmdarfýsn. Að sögn lögreglu voru brotnar rúður í Gagnfræóaskól- anum svo og í húsi sem verið er aó byggja. Einnig var grind- verk skemmt og eitthvaó var um ólæti. Tveir ökumenn voru gripnir vegna gruns um meinta ölvun vió akstur en umferðin gekk vel fyrir sig um helgina. SS Kísilgúrsjóður styrkir Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga: 1,5 milljónir til ráðningar ferða- málafulltrúa CJtjórn Kísilgúrsjóðs sam- KJþykkti á fundi sínum á dögunum að leggja fram 1,5 milljónir króna til Atvinnu- þróunarfélags Þingeyinga til ráðningar ferðamálafulltrúa. Sjóðurinn Ieggur félaginu til í þcssu skyni 500 þúsund krónur á ári næstu þrjú árin. Þorkell Helgason, formaður stjórnar Kísilgúrsjóós, segir að samþykkt sjóðsstjómar sé cin- ungis skilyrt því að Atvinnu- þröunarfélagið fjármagni það sem upp á vantar til þess að unnt sé að ráða ferðamálafull- trúa. Kísilgúrsjóður var stofnaóur í tengslum við cndumýjun námaleyfis Kísiliðjunnar í Mý- vatni á sl. ári. Tekjur sj'óðsins eru 20% af námaleyfisgjaldi Ktsiliðjunnar. Stjómina skipa auk Þorkcls Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri Skútustaóahrepps, Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoóarmaður landbúnaðarráóherra, Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar, Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, og Jón Gunnar Ottósson, fullU-úi um- hverfisráðuneytisins. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.