Dagur - 23.06.1994, Blaðsíða 3
I
FRÉTTIR
Jörundur Þórarinsson ásamt móður sinni, Steinþóru Guðmundsdóttur á Sjúkrahúsinu á Húsavík. Mynd: Þorgeir
Man lítið hvað gerðist
- segir Jörundur Þórarinsson, sem slasaðist á Húsavíkurfjalli
„Ég man nú lítið hvað gerðist og
hef örugglega rotast mjög
fljótt,“ sagði Jörundur Þórarins-
son, í samtali við Dag. Hann
slasaðist á Húsavíkurfjalli á
þriðjudag, eins og kom fram í
Degi í gær og liggur á sjúkra-
húsinu á Húsavík.
Jörundur handleggsbrotnaði og
marðist nokkuð illa og jafnvel er
talið að sprunga sé í hnénu. Til
stóð að hann færi heim af sjúkra-
húsinu í gær en því var frestað.
Hann var ásamt fleiri ungling-
um á ferð á Húsavíkurfjalli þegar
óhappið varð. „Við vorum að
ganga í hlíóinni og það var svo
bratt að ég fór að hlaupa undan og
það endaði með því að ég fór á
hausinn og veltist eina 30 metra i
urö og grjóti. Það var svarta þoka
þama uppi og við vissum ekki ná-
kvæmlega hvar við vorum.“
Félagi Jörundar sem einnig valt
í hlíðinni, slasaðist mun minna og
fór heim strax að lokinni skoðun.
KK
Hálendið opnað í byrjun júlí
Tími ferða um hálendið er ekki
enn genginn í garð, en helstu
Qallvegir verða líklega opnaðir
um svipað Ieyti og í fyrra eða í
byrjun júlí að sögn Ólafs Torfa-
sonar, hjá Vegagerð ríkisins.
Sagði Ólafur töluvert mikinn
snjó vera sunnanvert á hálend-
inu, sérstaklega á milli Land-
mannalauga og Eldgjár og væru
því aðkeyrslur að Landmanna-
laugum enn lokaðar. Minna væri
aftur á móti um snjó norðar á
Sprengisandi, eftir því sem séð
væri úr lofti.
„Búið er að moka Kjalveg fyrir
norðan til Hveravalla en þaó var
ekki búið að hleypa umferð bang-
að í gær vegna bleytu. Sprengi-
sandsleið er ekki farið að huga
• neitt að ennþá, en vegurinn verður
skoðaður bráðlega. Leiðin í
Herðubreiðarlindir er greiðfær, en
lokað er inneftir í Öskju enn sem
komið er,“ sagði Ólafur
Aðspurður um ástand fjallvega
nú miðað viö i fyrra sagói Ólafur
það vera nokkuð misjafnt eftir
staðsetningu, en t.d. hefði opnun-
ardagur í fyrra á Fjallabaksleið
nyrðri verið 11. júlí, en áætlaóur
opnunardagur í sumar er 7. júlí.
Að sama skapi stendur til að opna
leiðina Landmannalaugar - Eldgjá
5 dögum fyrr í ár en meðalopnun-
artími segir til um eða 10. júlí í
stað 15. þess mánaðar.
Undirbúningur vertíðar við
Herðubreiðarlindir
Við Herðubreiðarlindir var Asta
Olsen, ráðskona vinnuflokks á
I staðnum, fyrir svörum þegar
rJ blaðamaður Dags ynnti hana eftir
ástandinu þar.
Sagði Asta að hitinn á þrióju-
dagskvöldið hefði ekki verið nema
2 stig enda væri Herðubreið enn
hvít nióur að stalli. Líklega yrði
opnað um helgina í Öskju ef veður
leyfði, en það hefði að öllum lík-
indum snjóað þar þegar rigndi hjá
þeim á dögunum.
Asta sagði mikla vinnu fólgna í
opnun svæóisins, „við erum að
mála skálann sem tekur 40-50
manns og er unnið frá því snemma
á morgnana og fram að miðnætti.
Einnig fer mikil vinna í þaö að
setja allt vatnið í samband, því hér
eru vatnsklósett og sturtur".
Hvað varðaói komur feróa-
manna síóustu daga, sagði Asta
þau hafa séð einn göngumann og
einn Þjóðverja á bíl en von væri á
stórum hópum. Hún sagðist ekki
vita til annars en vel væri bókað í
sumar af ferðaskrifstofum líkt og
undanfarin sumur. ÞÞ
Mannfjöldatölur Hagstofu íslands:
Þrettán hreppar á
Noröurlandi með
innan við 100 ibúa
- þann 1. desember síðastliðinn
Samkvæmt endanlegum
mannfjöldatölum frá Hagstofu
íslands frá 1. desember sl., kem-
ur í ljós að á Norðurlandi vestra
eru átta hreppar með innan við
100 íbúa og fimm á Norðurlandi
eystra.
Fámennasti hreppurinn á Norð-
urlandi þann 1. desember sl., var
Fjallahreppur í N- Þingeyjarsýslu,
með 7 íbúa, 2 karla og 5 konur.
Fjallahreppur sameinaðist hins
vegar Öxarfjarðarhreppi þann 1.
janúar sl. og í sameiginlegu sveit-
arfélaginu búa nú um 390 manns.
Skefilsstaðahreppur var fá-
mennasti hreppurinn á Norður-
landi vesta þann 1. des. sl. með 46
íbúa og í Vindhælishreppi voru
íbúamir 47. I Skagahreppi voru
íbúarnir 58, í Fremri Torfustaða-
hreppi 67, í Engihlíðarhreppi 76, í
Viðvíkurhreppi 79, í Ashreppi 93
og í Rípurhreppi 94.
Á Noróurlandi eystra var sem
fyrr segir Fjallahreppur fámenn-
astur þann 1. des. sl. í Sauðanes-
hreppi voru íbúarnir 50, í Öxna-
dalshreppi 53, í Tjömeshreppi 86
og í Skriðuhreppi 98. KK
Skútustaðahreppur:
Sigurður Rúnar
áfram
sveitarstjóri
Á hreppsnefndarfundi í Skútu-
staðahreppi í fyrradag var
ákveðið að ráða Sigurð Rúnar
Ragnarsson sveitarstjóra til
næstu íjögurra ára.
Sigurður Rúnar gegndi starfinu
einnig á síðasta kjörtímabili. Eins
og blaðið hefur áður skýrt frá er
Leifur Hallgrímsson, sem skipaði
efsta sætið á E-lista í kosningun-
um, oddviti hreppsins. JHB
Fimmtudagur 23. júní 1994 - DAGUR - 3
Jóhann Pétur Sveinsson, endurkjörinn
formaöur Sjálfsbjargar:
Aðgengis- og ferlimál
í brennidepli
Jóhann Pétur Sveinsson, var
endurkjörinn formaður Sjálfs-
bjargar, landssambands fatl-
aðra, á 27. þingi sambandsins
nýlega. Þingið var að þessu sinni
haldið undir kjörorðinu; „þjóð-
félag án þröskulda“ og mættu
47 fúlltrúar til leiks, frá félags-
deildum Sjálfsbjargar víðs vegar
um landið.
Aðrir í stjórn Sjálfsbjargar eru
Guðríður Ólafsdóttir, varaformað-
ur og gjaldkeri Sigurður Björns-
son en þau ásamt Jóhanni Pétri,
tilheyra Sjálfsbjörg Reykjavík og
nágrennis, ritari Birna Frímanns-
dóttir, Sjálfsbjörg Ámessýslu og
meðstjórnandi Baldur Bragason,
Sjálfsbjörg Akureyri og nágrenn-
is.
Aðalmál þingsins var umfjöll-
un um aðgengis- og ferlimál. í
ályktun þingsins er fagnað yfirlýs-
ingu umhverfisráðherra um end-
urskoðun byggingar- og skipu-
lagslaga og þátttöku fulltrúa
Sjálfsbjargar í þeirri endurskoðun.
Þingið skorar á félagsmálaráð-
herra aö ferlinefnd ráðuneytisins
fái starfsmann í fullt starf, auk
þess hálfa starfs sem fyrir er. Án
þess er vonlaust að nefndin komi í
framkvæmd því hlutverki sem fé-
lagsmálaráðuneytið hefur ætlað
henni.
Jafnframt skorar þingið á um-
hverfisráðherra að hafa í sinni
þjónustu starfsmann sem hafi eft-
irlit með hönnum umhverfis með
það aó leiðarljósi að það verði að-
gengilegt fyrir alla.
Þá er því beint til Ferðamála-
ráðs og samgönguráðuneytisins,
hvort hugað hafi verið aó ferða-
möguleikum hreyfihamlaðra nú
þegar sérstakt ferðaátak innan-
lands er á döfinni. Getur hreyfi-
hamlað fólk, m.a. fólk í hjólastól-
um ferðast í langferðabifreiðum
innanlands? Hvar eru almennings-
salemi sem allir geta notað? Hvar
er hægt að mæla með gisti- og
veitingaaðstöðu sem uppfyllir
skilyrði fyrir alla? Hvar eru úti-
vistarsvæði sem aðgengileg eru
öllum?
Þá er því beint til Náttúru-
verndarráðs og Skógræktar ríkis-
ins að útivistarsvæói á þeirra veg-
um séu aðgengileg öllum og hefur
það fyrst og fremst í huga að
gang- og akstursbrautir séu lagðar
bundnu slitlagi. Ennfremur verði
komið fyrir hvíldarbekkjum með-
fram gangbrautum. Nauðsynlegt
er að hjólastólar séu til afnota þar
sem umferð bifreiða er ekki leyfð,
eins og scgir m.a. í ályktun þings
Sjálfsbjargar. KK
Ferðafélag
Akureyrar
Næstu ferðir á vegum félagsins eru:
Jónsmessuferð út í buskann, föstudag 24. júní, fjöl-
skylduferð, grillaó og farið í leiki.
25.-26. júní: Svartárkot-Mývatnssveit um Grænpolla-
mýri, tveggja daga gönguferð. Hestar verða hafðir meö
undir trúss. Leiðsögumaður: Arngrímur Geirsson.
25.-26. júní: Svartárkot-Suðurárbotnar, bílferó í
tengslum við gönguferðina.
2. júlí: Norðurárdalur-Seldalur-Hjaltadalur, eins dags
gönguferð.
2. júlí: Kvöldferð. Gengió á Stórhæö og um Hesjuvalla-
brúnir.
8.-10. júlí: Öskjuvegur, öku- og gönguferö.
8. -10. júlí: Herðubreiðarlindir-Askja, ökuferð.
9. -15. júlí. Sumarleyfisferð um Vestur- og Suður-
land. Farið verður um Borgarfjörð, Kaldadal, Suður-
land, Vestmannaeyjar og Reykjavík. Þeir sem hafa
áhuga á sumarleyfisferðinni hafi samband við skrifstofu
félagsins sem fyrst.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu félagsins Strandgötu 23.
Skrifstofan er opin kl. 16.00-19.00 alla virka daga, sími 22720.
Ath. í ferðaáætlun félagsins er röng GPS staðsetning á Dreka,
skála félagsins við Drekagil í Dyngjufjöllum, rétt staðsetning er:
GPS 65 02,52 N- 16 35,72 V.
&
Auglýsendur!
Skilafrestur auglýsinga í helgarblaöiö okkar er
til kl. 14.00 á fimmtudögum,
- já 14.00 á fimmtudögum.
□agur auglýsingadeild, sími 24222.
Opiö frá kl. 8.00-17.00.