Dagur - 23.06.1994, Síða 12
Akureyri, fimmtudagur 23. júní 1994
cilfci
Siglufjörður:
Mestu byggingafram-
kvæmdir í mörg ár
- atvinnulausir teljandi á fingrum
annarrar handar
Miklar byggingafram-
kvæmdir standa yfir á
Siglufirði. Auk framkvæmda á
vegum bæjarins má nefna ný-
byggingar rækjuvinnslunnar
Ingimundar hf. og Rarik og Olís
bíður leyfis fyrir nýbyggingu
sem væntanlega fæst á næstu
dögum. Bæjartæknifræðingur
segir þetta mestu byggingar-
framkvæmdir í bænum til
margra ára.
Byggingafélagið Berg hf.
byggir nú 600 fermetra hús undir
frystiklefa fyrir Ingimund hf. Um
er að ræða framkvæmdir upp á um
30 milljónir kr. og á þeim að vera
lokið um mánaðamótin ágúst-
september. Sama fyrirtæki er
einnig byrjað á 2000 rúmmetra og
400 fermetra skrifstofu- og þjón-
ustuhúsi fyrir Rarik á innri höfn-
inni sem skila á fullbúnu í nóvem-
ber. Verksamningur hljóðar upp á
tæpar 26 milljónir. Olís bíður eftir
byggingarleyfi fyrir 300 fermetra
húsnæði undir skrifstofur og lager
og verður það boóió út strax og
leyfið fæst sem veróur væntanlega
á næstu dögum.
Embætti sóknarprests í Grenjaðarstaðarprestakalli:
Framtíðarskipan óljós
- starfandi sóknarprestur settur til loka júlímánaðar
Ekki er enn vitað um skipan
cmbættis sóknarprests í
Grenjaðarstaðarprestakalli til
frambúðar en skipaður sóknar-
prestur þar, séra Kristján Valur
Ingólfsson, hefur verið rektor
Skálholtsskóla síðan haustið
1992. Á Biskupsstofu fengust
þær upplýsingar að séra Þórir
Jökull Þorsteinsson væri settur
sóknarprestur í Grenjaðarstað-
arprcstakalli - til loka júlímán-
aðar - en að ekkert væri vitað
um framhaldið. „Ég er búinn að
segja bæði söfnuðinum og Þóri
Jökli að ég muni láta vita um
þetta áður en kemur fram á
sumarið til þess að menn viti að
hverju þeir ganga í haust,“
sagði Kristján Valur Ingólfsson
í samtali við Dag.
„Þaö er alveg óbreytt frá því
sem verið hefur; ég er í 2ja ára
Ieyfi sem rennur út 1. október,“
sagði Kristján Valur. „Eg ætla
mér að nota það leyfi; þaó eru al-
veg hreinar línur.“ Hann sagðist
ekki vita hver yrði framtíðarskip-
an í embætti sóknarprests í Gren-
jaóarstaðarprestakal 1 i.
Sagóist Kristján Valur hafa
fundað meó sóknarnefnd í lok maí
enda væri best fyrir alla aó það
væri klárt hvað yrði; „hins vegar
er það ekkert Ijóst,“ sagði hann
enda stæðu fyrir dyrurn ýmsar
breytingar í Skálholtsskóla. Krist-
ján Valur sagði að hann myndi
hitta biskup að nýju er biskup
kæmi úr utanför sinni í byrjun júlí.
„Það styttist í að þaö verði eitt-
hvað að frétta.“ GT
Verður þessi gœðastimpill á
nýju innréttingunum og
hurðunum þínum?
Trésmiójan Alfci • Óseyri lo • 603 flkureyri
Sími 96 12977 • Fax 96 12978
Af öðrum framkvæmdum má
nefna að verið er að klæða hús ís-
landsbanka að utan og skipta um
glugga. Þormóður rammi hefur
nýlega lokið við aö stækka rækju-
verksmiðjuna og unnið hefur ver-
ið að endurbyggingu Roalds-
brakka á vegum FÁUM, Félags
áhugamanna um minjasafn, en
brakkinn hýsir síldarminjasafn.
Þar er nú verið að byggja bryggju.
Töluverðar framkvæmdir
standa yfir á vegum bæjarins.
Verið er að byggja stoðveggi und-
ir gángstéttar auk þess sem haldið
verður áfram meó framkvæmdir
við gamla barnaskólahúsið.
Verkamannabústaður verður
klæddur aö utan og steypt rúmlega
1000 fermetra þekja á Ingvars-
bryggju svo eitthvað sé talið. Að
auki er unnið að jarðvegsskiptum í
götum bæjarins.
Sigurður Hlöðvesson, bæjar-
tæknifræðingur, segir aó þetta séu
mestu byggingaframkvæmdir í
bænum í mörg ár og eigi sinn þátt
í ágætu atvinnuástandi í bænum.
„Atvinnulausa hér má sjálfsagt
telja á fingrum annarrar handar,“
sagði Sigurður. JHB
Stefnt er að því að jarðvegsframkvæmdir á lóð Menntaskólans á Akureyri, vegna nýbyggingarinnar, hcfjist í dag. í
gær var verktakinn, SS Byggir, að koma fyrir vinnuhúsum sínum á byggingarstað. Til þess voru notuð öflug tæki,
enda er kaffistofan engin smásmíði og er stefnt að því að samnýta hana framkvæmdum við FSA. Mynd: KK
Nýbygging MA og legudeildarálma FSA:
Það lítur vel út með
verkefnastöðuna í sumar
- segir Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri SS Byggis,
sem átti lægsta tilboð í bæði verkin
Framkvæmdir við nýbygg-
ingu Menntaskólans á Ak-
ureyri eru að fara af stað. I dag
er fyrirhugað að hefja jarðvegs-
vinnu og í framhaldi af því hefst
smíðavinnan og uppsteypa.
Byggingarfyrirtækið SS Byggir
hf. átti lægsta tilboð í verkið,
sem lokið skal á þremur árum
og hljóðaði það upp á rúmar
180 milljónir króna. Kostnaðar-
áætlun hönnuða hljóðaði upp á
215 milljónir króna.
SS Byggir átti einnig lægsta til-
boðið í byggingu legudeildarálmu
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði
upp á rúmar 142 milljónir kr. en
kostnaðaráætlun upp á rúmar 160
milljónir kr. Ekki hefur verið
gengið frá verksamningi við SS
Byggi vegna FSA en Sigurður
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, átti ekki von á öðru
en það yrði gert fljótlega.
„Það lítur vel út með verkefna-
stöðuna í sumar en hins vegar
vantar okkur inniverkefni í vetur.
Við höfum dregið allar uppsagnir
starfsmanna til baka og þá reikna
ég meó að við bætum við einum
10 starfsmönnum þegar allt verður
komió í fullan gang. Að auki
veróur fjöldi undirverktaka að
störfum hjá okkur,“ sagði Sigurð-
ur.
Nýbygging MA er unt 2.400
ferm. að grunnfleti. Gert er ráð
fyrir að uppsteypu austurhluta
byggingarinnar verði lokió 31.
október nk., frágangi á fjórum
kennslustofum verði lokið 31.
ágúst 1995 og tveimur árum síðar
eru áætluð verklok.
„Það kom fram þegar fyrsta
skóflustungan var tekin á þjóðhá-
tíðardaginn, að heimamenn hafa
mikinn áhuga á því að ljúka verk-
inu á tveimur árum en ekki þrem-
ur og vió erum til ef hægt verður
að útvega það fjármagn sem þarf.“
Legudeildarálma FSA er 4.160
ferm. bygging á fjórum hæðum og
er stefnt að því að ljúka henni árið
1998. Fyrsti áfangi, barnadeild,
verður væntanlega tekinn í notkun
árió 1997. Sigurður sagðist reikna
með að jarðvegsframkvæmdir á
lóð FSA hæfust eftir um mánaóar-
tíma og smíóavinna hálfurn mán-
uði síðar. KK
(fm
- íslenskt
og gott
Mikið af mýi við Mývatn:
Góðar fréttir fyrir lífríkið
VEÐRiÐ
Veðurstofan spáir austan-
og suðaustangolu um allt
Noróurland í dag og heldur
á að létta til. Noróanáttin
virðist því vera að kveðja í
bili og um helgina er spáð
þokkalegasta veðri um allt
land, hægri breytilegri átt og
víóast léttskýjuóu, einkum á
Norðurlandi. Hiti verður á
bilinu 7-16 stig.
Arlegri talningu á vatnafugl-
um í Mývatnssveit, Laxár-
dal og á nærliggjandi vötnum,
er nýlokið. Það er Náttúrurann-
sóknarstöðin við Mývatn sem
sér um talninguna og er þetta
20. árið í röð sem hún fer fram.
Þá standa yfir rannsóknir á mýi
á svæðinu og þótt endanlegar
niðurstöður liggi ekki fyrir segir
Árni Einarsson, líffræðingur,
óhætt að fullyrða að algengustu
stofnarnir séu vel yfir meðallagi
í ár.
Rannsóknir síðustu 20 ára hafa
sýnt miklar sveiflur í mýinu, sem
er afar mikilvægt fyrir Iífríkið við
Mývatn og í nágrenni. Árni Ein-
arsson segir aó árin 1983 og 1989
hafi rykmýið nánast horfið og eftir
slíkt hrun taki nokkur ár að byggja
stofnana upp að nýju. „Þetta hefur
mikil áhrif á fuglinn og sem dænti
má nefna að 1983 fækkaöi skúf-
önd úr 6000 pörum í 3000, eða
um jafnmikið og henni hafði
fjölgað næstu 8 ár þar á undan. Nú
virðast mýstofnarnir hins vegar í
allgóðu lagi og mjög mikið virðist
vera af tveimur algengustu teg-
undunum," sagöi Ámi.
Síðan 1975 hafa verið taldir
vatnafuglar sem koma á svæðió til
að verpa. Taldar voru 17 andateg-
undir, 3 gæsategundir, álft, flór-
goði, lómur og himbrimi.
Helstu niðurstöður eru þær að
skúföndin er algengust en henni
hefur farið stöðugt fjölgandi síðan
1984. Talin voru um 5000 pör en
meðaltalið er um 3900. Duggönd-
in er næstalgengust þótt henni hafi
heldur fækkað á síðustu árum, nú
voru talin um 1700 pör en meðal-
talið er 1820. Húsönd fer einnig
fækkandi, nú sáust 490 pör en
meðaltal síðustu 20 ára er 611.
Straumönd hefur stöðugt fjölgað
sl. 20 ár, úr 50 í 280 í hittifyrra,
þegar mest var. Nú bregður hins
vegar svo við að henni snögg-
fækkar og sáust um 200 pör. Þá
voru talin 950 rauóhöfóapör en
meðaltalið er 1060. JHB
Byggðavegi 98
Opið til kl. 22.00 alla daga
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
0KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565