Dagur - 20.07.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 20. júlí 1994
FRÉTTIR
Menntasmiðja kvenna á Akureyri:
Skóli fyrir konur án launaðrar atvinnu
Kynningarfundur Mennta-
smiðju kvenna á Akureyri var
haldinn sl. mánudag. Á fundin-
um voru Valgerður Bjarnadótt-
ir, jafnréttisfulltrúi Akureyrar-
bæjar, Guðrún Pálína Guð-
mundsdóttir, verkefnafreyja
skólans og tveir kennarar og
meðstjórnendur við skólann,
þær María Ólafsdóttir Grenó og
Hallfríður Benediktsdóttir. Um
15 konur voru mættar á fund-
inn, en skólinn mun taka inn
allt að 20 konur á fyrstu önn.
Margar fyrirspurnir beindust til
Guðrúnar og Valgerðar og áhugi
kvennanna Ieyndi sér ckki. Að
sögn Guðrúnar Pálínu hafa
margar konur hringt og spurst
fyrir um skólann og umsóknir
eru farnar að berast, en frestur-
inn rennur út 25. júlí nk.
Valgerður útskýrói m.a. fyrir
viðstöddum þær hugmyndir scm
skólinn byggir á, en hugntynda-
fræöi Mcnntasmiðjunnar byggir á
reynslu frá lýðháskólum og
kvennadagháskólum á Noröur-
löndurn og námskeiðunt scm þró-
uð hafa verið fyrir konur hér á
landi. Valgerður sagði einnig frá
þeirri framkvæmd sem liggur að
baki stofnun skólans.
Guðrún Pálína kynnti síðan þá
námsþætti sem veróa aðaluppi-
staðan í náminu, en námsefnið
verður tengt saman í eina hcild og
aðlagað að þörfum hverrar og
einnar konu annars vegar og hóps-
ins hins vegar. Markmið skólans
eru tvenns konar, annars vegar að
auka þekkingu og hins vegar að
auka sjálfstraust nemenda og gera
þá hæfari til að takast á við lífið,
hvort sem það verður án atvinnu
eða með. Námið er konum án
launaðrar atvinnu að kostnaðar-
lausu og konur sem hafa atvinnu-
leysisbætur halda bótum sínum
meðan á náminu stendur. Reynt
verður að bjóóa upp á leikskóla
eóa vistun hjá dagmóður fyrir
börn þátttakenda ef þörf krefur.
Það kom fram í umræðum
kvennanna eftir framsögu Guó-
rúnar og Valgerðar að margar
konur sem hafa verið heimavinn-
andi til margra ára eiga erfitt með
að fóta sig á vinnumarkaðinum og
vantar stuðning þar aó lútandi.
Menntasmiðjan gæti verió leið
fyrir þær konur til aó öðlast sjálfs-
traust.
Reiknað er með að nemcndur
sæki skólann frá kl. 9 á morgnana
til 15 á daginn. Fyrir hádegi vcróa
hagnýtu fræðin kennd, s.s. ís-
lenska, erlend tungumál, samfé-
lagsfræði, ritvinnsla, bókhald,
skattamál ofl. en eftir hádegi verð-
ur boðió upp á listsköpun af ýms-
um toga og sjálfsstyrkingu.
Kennsludeginum mun síðan ljúka
með slökun, jóga eða teygjuæfing-
um. Þær námsgreinar sem í boói
verða í listgreinum munu þó mik-
Ó.K. hugbúnaður á Akureyri
hefur sett á markað veiðiforritið
Ugga. í forritinu er að finna
gagnlegar upplýsingar um ýmis-
legt tengt stangveiði.
Ó.K. hugbúnaður er nýlegt
hugbúnaðarfyrirtæki á Akureyri í
eigu Kristjáns Ö. Hjálmarssonar
og Óla Tryggvasonar. Uggi er
fyrsta stórvcrkefni fyrirtækisins
en það cr sniðið að þörfurn ís-
lenskra veiðimanna í íslenskum
ám og vötnum. Auk þess sem
Uggi er uppfullur af upplýsingum
af ýmsu tagi er hann einnig
gagnabanki sem veiðimenn geta
bætt í eigin upplýsingum að vild.
Þcir geta t.d. skráð nafn og lýs-
ingu veiðistaðar, helstu tökustaði,
hvað ber aó varast, hvaða agn er
best o.s.frv. Þá er hægt aó skrá inn
flugur og hvaða efni eru notuð í
þær.
í Ugga eru upplýsingar um á
fjórða hundrað veióiár og vötn.
Þar kemur fram heiti ár eða vatns,
í hvaóa sýslu það cr og nánari
staósetning. Einnig koma l'ram al-
mennar upplýsingar s.s. stærö
vatns eða lengd ár, laxagengd,
tegund fiskjar, veiðileyfi, leyfilegt
ið til fara eftir áhuga nemendanna
sjálfra, en sagðist Guðrún vonast
til þess að áhugi verði fyrir sem
flestu. Gestakennarar verða síðan
fengnir til skólans eftir því sem
þurfa þykir.
Aætlað er að skólinn hefjist 22.
ágúst og honum Ijúki 16. desem-
ber, með fríi frá 14. október til 24.
agn, lengd veiðitímabils, aðkomu
o.fi.
Forritið er einfalt í notkun og
allar upplýsingar er hægt að
prenta út. Nú þegar er unnið aó
Magnús Gísla-
son, veitinga-
maður í Stað-
arskála í
Hrútafirði,
Iést á Landa-
kotsspítala í
Reykjavík að-
fararnótt laug-
ardagsins 16. júlí sl., á 58. ald-
ursári.
Magnús fæddist á Staó í
Hrútafirði 16. mars 1937, sonur
hjónanna Gísla Eiríkssonar,
bónda og Magncu Torfhildar
Magnúsdóttur. Hann starfaöi um
langt árabil sem bifreiðastjóri en
október. Aðspurð sagði Valgerður
þaó gert m.a. vegna þess að ein-
hverjar gætu dottió út á fyrrihluta
annarinnar, t.d. fengið vinnu og þá
væri möguleiki að taka nýjar inn í
staðinn eftir fríió. Eins gæfist
möguleiki á endurskipulagningu
námsefnisins ef svo bæri undir.
viðbótum vió forritió og í næstu
útgáfu má vænta mynda af veiði-
stöngum, fullbúnum og hálfklár-
uðum flugum o.fl. JHB
stofnaði veitingaskálann Staðar-
skála, ásamt bróður sínum Ei-
ríki, árið 1960 og hafa þeir rckiö
hann síðan.
Magnús var frcttaritari Morg-
unblaðsins frá því um 1970 og
til dauðadags. Hann átti sæti í
hreppsnefnd Staðarhrepps sam-
fellt frá 1984 og sat í margvís-
legurn nefndum í tengslum viö
veitingarekstur og ferðaþjón-
ustu.
Eftirlifandi cignkona Magn-
úsar er Bára Guómundsdóttir og
áttu þau sjö börn sem öll lifa
föður sinn.
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Félagsmálastjóri lagði fram
fyrirspum á fundi félagsmála-
ráðs nýlega, um afstöóu ráðs-
ins til þcss að leiksvæði leik-
skólans Krógabóls verði á
næsta vetri einnig nýtt fyrir
tvær scx ára bekkjardeildir
Síóuskóla, sem verða munu í
skólastofum Glcrárkirkju. Á
næsta fundi á el'tir voru lagðar
fram greinargerðir uni kosti og
galla þessa fyrirkomulags. Fé-
lagsmálaráó hefur falið leik-
skólastjóra Krógabóls aö taka
upp viðræður við skólastjóra
Síóuskóla í því skyni aó leita
sameiginlegrar lausnar og
leggja niðurstöðuna fyrir næsta
fund ráðsins.
■ Á fundi félagsmálaráðs ný-
lcga var lögð fram umsókn
Guðnýjar Önnu Annasdóttur,
um rekstrarleyfi vegna leik-
skóla fyrir 30 böm, 6 mánaða
til 6 ára í Hamri vió Skarðs-
hlíð, frá og með 1. ágúst nk.
Félagsmálaráð hafnar umsókn-
inni m.a. þar sem húsnæðió í
Hamri uppfyllir ekki þær kröf-
ur sem gera veróur til leik-
skólahúsnæóis fyrir böm á
þeini aldri sem hér unt ræðir.
■ Félagsmálaráði hefur borist
erindi frá heilbrigðisráóuneyt-
inu, þar sem fram kemur aó
ráðuneytið mun ekki greiða
hjúkrunardcildinni að Hlíð
hallagjöld vegna rekstrarhalla
fyrir árið 1993. Félagsmálaráó
vísaði crindinu til end-
urskoðunar fjárhagsáætlunar.
■ Atvinnumálanefnd hefur
borist styrkbeiðni frá SP- de-
sign, til hönnunar og smíði á
sýningareintökum á stálrörstól.
Nefndin samþykkti að veita kr.
350.000.- í styrk, að þvi til-
skyldu að takist að fjármagna
þetta verkefni aó öðru leyti og
að framleiðslurétturinn verði á
Akurcyri.
■ Atvinnumálaefnd hefur sam-
þykkt að Akureyrarbær leigi
einn kynningarbás á Vest-Nor-
den feróakaupstefnunni sem
haldin verður í Hafnarfirói í
haust.
■ Á fundi húsnæóisnefndar
nýlega kom m.a. fram aó
óseldar eru 22 eignir í endur-
sölu og 14 nýjar eignir, sem til-
búnar verða til afhendingar á
þessu og næsta ári. Jafnframt
var rætt um að úthlutun þurfi
að lara fram fijótlega.
■ Jafnréttisfulltrúi lagói fram
samantekt um kynjaskiptingu í
nýkjömum nefndum og ráðum
Akurcyrarbæjar (og samstarfs-
nefndum), á fundi jafnréttis-
ráðs nýlega. Þar kemur l'ram aó
í 13 nefndum/nefndarhlutum
eru aóalfulltrúar eingöngu af
öóru kyninu. 10 „karlanefndir"
og 3 „kvennancfndir". Einnig
kom fram að 35% aóalfulltrúa
eru konur en 65% karlar. Hins
vegar er skiptingin jöfn í 9
nefndum. Jafnréttisnefnd lýsir
yfir vonbrigðum með þessa
ójöfnu skiptingu og bcndir í
því sambandi á grein 1.4. í
jafnréttisáætlun.
FRÁ HÚSNÆÐISNEFND AKUREYRARBÆJAR
ALMENNAR
KAUPLEIGUÍBÚÐIR
Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar auglýsir til umsóknar
4 herbergja raðhúsaíbúó í Tröllagili og 3 og 4 her-
bergja íbúðir í fjölbýlishúsinu Helgamagrastræti 53.
Hámarks lánshlutfall er 90%, 20% til 25 ára og 70% til
43 ára með 4.9% vöxtum.
Greióslubyrði af einni milljón króna á mánuði er kr.
4.700 af 70% láninu og kr. 5.800 af 20% láninu.
Réttur til kaupa á almennri kaupleiguíbúð er ekki
bundinn skilyrðum um tekju- og eignamörk.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar fást á
Húsnæðisskrifstofunni, Skipagötu 12, 3. hæð, sími 96-
25311.
Opnunartími skrifstofunnar er mánudaga til föstudaga
kl. 10-12 og 13-16.
Umsóknarfrestur rennur út þann 2. ágúst.
ÞÞ
Guðrún Pálína, María Grenó, Hallfríður og Valgerður, forsvarskonur Mcnntasmiðjunnar, spjalla við konur á nýaf-
stöðnum kynningarfundi.
Veiðiforritið Uggi á markað
Kristján Ö. Hjálmarsson og Óli Tryggvason, höfundar Ugga, nýja tölvufor-
ritsins fyrir stangvciðimenn. Mynd: jhb
Magnús Gíslason I
Staðarskála látinn