Dagur - 16.03.1995, Page 12
Smíöum allargerðir innréttinga
oginnihurða
Trésmiðjan fllfo • Óscyri la • 603 Akureyri
Sími 96 12977 • Fax 96 12978
Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar:
Á þriðju milljón
til heitavatnsbor-
unar í Hólsgerði
Sveitarstjórn Eyjaíjarðarsveit-
ar samþykkti fyrir skömmu
íjárhagsáætlun fyrir yfir-
standandi ár. Samkvæmt henni
verða skatttekjur sveitarfélags-
ins rúmar 100 milljónir króna en
rekstrargjöld að frádregnum
tekjum málaflokka eru 77,2
milljónir. Til afborgana lána
sveitarfélagins renna 6,5 millj-
ónir króna, í gjaldfærða íjárfest-
ingu fara 13 milljónir og í eign-
færða fjárfestingu 4,1 milljón
króna.
Framkvæmdaliðir eru margir
og fáir stórir. Stærstir þeirra eru
viðhald og endurbætur á bama-
skólahúsinu við Hrafnagil upp á
3,3 milljónir króna og borun eftir
heitu vatni í Hólsgerði á komandi
sumri. Þar er ætlunin að bora
djúpa rannsóknarholu og verja til
þess 2,5 milljónum króna. Fyrir
liggur lánsloforð upp á 1,5 millj-
ónr króna frá Orkusjóði vegna
þessarar framkvæmdar. Auk þessa
renna tvær milljónir til endurbóta
á fjallskilaréttum í sveitarfélaginu,
fyrst og fremst á Borgarrétt og
Þverárrétt.
Gerð aóalskipulags fyrir sveit-
arfélagió veröur lokið á árinu. Að
sögn Péturs Þórs Jónassonar sveit-
arstjóra styttist í að það verði lagt
fram til kynningar og því næst
verður gefinn frestur til aó skila
inn athugasemdum. Reikna má
meó, að sögn Péturs, að sveitar-
stjóm afgreiði nýtt aóalskipulag
eftir mitt ár.
Rekstur málaflokka er hærra
hlutfall af skatttekjunum en í fyrra
og segir Pétur Þór að þar komi
fyrst og fremst tvennt til. I fyrsta
lagi sé sveitarfélagið aö greiða
hluta sinn í uppsöfnuðum halla á
Tónlistarskóla Eyjafjarðar og í
öðru lagi falli nú á sveitarfélagið
að greiða heitavatnskostnað í
Laugalandsskóla. Uppgreiðslu
hallans á tónlistarskólanum verður
lokið á árinu þannig aö rekstur
málaflokka ætti að haldast nálægt
70% markinu. JÓH
Frá kynningu Evrópsku ferða- og umhverflsverðlaunanna. Frá vistri. Sigurður Á Þráinsson, deiidarstjóri í umhverf-
isráðuneytinu, Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, Halldór Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráðhcrra, og Davíð
Stefánsson frá samgönguráðuneytinu. Mynd: Halldór.
Evrópsku ferða- og umhverfisverðlaunin kynnt á Akureyri:
Ferðaþjónusta og umhverfis-
mál verða ekki aðskilin
Norðlenskir dagar hefjast í dag:
Innkaupakeppni
frambjóðenda
- meðal þess sem í boði er á opnunarhátíð
, í Hrísalundi kl 17.00
Idag hefjast svokallaðir Norð-
lenskir dagar í matvöruversl-
unum KEA á öllu Eyjafjarðar-
svæðinu og standa yfir til 2. apr-
fl. Er þetta í þriðja skipti sem
Norðlenskir dagar eru haldnir
með þessum hætti og er tilgang-
urinn sem fyrr að koma á fram-
færi norðlenskum framleiðslu-
fyrirtækjum og stuðla að upp-
byggingu þeirra. Opnunarhátíð
verður í KEA Hrísalundi kl.
17.00 ídag.
Meðal þess sem er á dagskrá er
innkaupakeppni fulltrúa fram-
boðslistanna í kjördæminu sem án
efa veróur fróólegt að sjá. Þá
verður leikin tónlist og boðió
verður upp á kaffí og kökur.
Flesta daga meðan Norðlenskir
dagar standa yfir verður eitthvað
að gerast í matvöruverslunum
KEA. Auk margvíslegra kynninga
og tilboða má nefna Iistviðburði
og handverksfólk kynnir sína
starfsemi. Þá er komið út sérstakt
blað, þar sem meðal annars verða
afsláttarmiðar sem gilda í verslun-
VEÐRIÐ
Spá Veðurstofunnar fyrir
næstu sólarhringa er ekki
beint glæsileg. í dag er spáð
hvorki meira né minna en
norðaustan hvassviðri eða
stormi um norðanvert landið
og snjókomu, norðlenskri
stórhríö. Á morgun, laugardag
og sunnudag er einnig norð-
anátt í veðurspá Veðurstof-
unnar, einkanlega er slæm
spá fyrir morgundaginn.
um.
Að sögn Vöku Jónsdóttur hjá
söluskrifstofu KEA er góð þátt-
taka á Norðlenskum dögum frá
fyrirtækjum af öllu Norðurlandi.
„Þó menn séu vissulega nokkuð
fjötraðir vegna ófærðar og veðurs
þá er almennur áhugi hjá fram-
leiðendum að vera með,“ sagði
Vaka. HA
Igær boðaði Halldór Blöndal
samgönguráðherra til blaða-
mannafundar á skrifstofu
Ferðamálaráðs á Akureyri til að
kynna verðlaunasamkeppni inn-
an Evrópska efnahagssvæðisins
um Evrópsku ferða- og um-
hverfisverðlaunin. Þau verða
veitt í fyrsta skipti á þessu ári.
Markmiðið er að efla ábyrgðar-
kennd stjórnvalda og aðila í
ferðaþjónustu gagnvart um-
hverfinu við skipulag ferðamála
og framkvæmd ferðaþjónustu.
Er verkefnið eitt af fleiri verk-
efnum sem fyrirhuguð eru á
vegum Evrópusambandsins á
sviði ferðaþjónustu.
Oskað er eftir umsóknum frá
áfangastöðum ferðamanna, sem
þykja til fyrirmyndar vegna að-
gerða til aó tryggja þróun sjálf-
bærrar ferðaþjónustu í sátt við sitt
umhverfi. Hugtakiö sjálfbær
ferðaþjónusta á við stefnu og
langtímaáætlun sem miðar að því
aó tryggja áframhaldandi efna-
hags- og félagsþróun, sem virðir
umhverfið og gengur ekki á nátt-
úruauðlindir. Þannig verði mögu-
leikar komandi kynslóöa ekki
skertir á neinn hátt. Halldór Blön-
dal sagði það sína skoðun að
ferðaþjónusta verói hvergi rekin
nema umhverfisþátturinn sé hluti
af hinu daglegu starfi. Þetta tvennt
verði ekki aðskilið.
Skilyrði eru afar ströng og
Magnús Oddsson ferðamálstjóri
sagði varla við því að búast að ís-
lenskur aðili ætti möguleika í
fyrstu tilraun. Mesti árangurinn af
verðlaununum felist kannski í því
að vekja aðila til umhugsunar um
þessi mál því greinilega megi ým-
islegt betur fara. Markmiðið sé
hins vegar að ná verðlaununum til
íslands innan ekki mjög langs
Loðnuaflinn 310 þúsund tonn:
Þórshöfn hæst norðlenskra hafna
Loðnuaflinn á vetrarvertíð er
kominn i tæp 310 þúsund
tonn og alls 520 þúsund tonn á
vertíðinni allri. Loðnukvótinn er
838 þúsund tonn og eru eftir-
stöðvar loðnukvótans því 318
þúsund tonn og því vandséð að
takist að veiða allan kvótann.
Mestu magni á vetrarvertíð
hafði í gær verið landað í Vest-
Alls hafa rúm 8.300 tonn af loðnu borist til Akureyrar.
Mynd: Robyn
mannaeyjum, tæplega 60 þúsund
tonnum, en á Norðurlandi hafði
mest magn borist til Þórshafnar
10.371 tonn, síðan 10.348 tonn til
Siglufjarðar, 8.383 tonn til
Krossanesverkmiójunnar á Akur-
eyri og 6.816 tonn til Raufarhafn-
ar. Engin loðna hefur borist til Ol-
afsfjarðar. GG
Akureyrarbær:
Tíu buðu sorppoka
Igær voru opnuð tilboð í 350
þúsund sorppoka fyrir Akur-
eyrarbæ.
Samkvæmt upplýsingum frá
bæjarskrifstofunum bárust tilboð
frá 10 aðilum en ekki fékkst upp-
gefið verð eða um hverja væri að
ræða. Verður það væntanlega upp-
lýst að loknum bæjarráðsfundi í
dag. HA
tíma. Ætli íslendingar að standa
sig á alþjóðlegum ferðamanna-
markaði verði þeir að vera a.m.k.
jafn góðir og helst betri en aðrir á
þessu sviði.
Búast má við að það verði
einkum sveitarfélög eða hérað-
nefndir sem sækja muni um um-
hverfisverðlaunin, þó einnig sé
möguleiki á umsóknum frá ein-
stökum ferðamannastöðum. „Þessi
verólaun ýta undir þaó að minni
hyggju hversu mikilvægt það er
að héruðin sæki um, því auðvitað
eiga umhverfis- og náttúruvemd-
armál að vera í höndum hérað-
anna. Þjóðgaróar á Norðurlandi
eiga að vera í höndum Norðlend-
inga sjálfra,“ sagði Halldór Blön-
dal meðal annars.
Þaó er dómnefnd í viðkomandi
ríki sem metur umsóknir og velur
3-5 í lokasamkeppnina og um-
sóknum skal skila fyrir 30. júní
nk. Verðlaunin verða veitt á þeim
stað sem sigrar í hvert skipti og
þangað boðið 300 fréttamönnum
auk annarra gesta. Sá staður sem
fyrir valinu verður dettur því svo
sannarlega í lukkupottinn því
hann fær gífurlega kynningu og
væntanlega fleiri ferðamenn. HA
Innanhúss-
Ining
10 lítrar
lcr. 4.640.-
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 23565