Dagur - 25.04.1995, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 25. apríl 1995
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
Þolfimi:
„Eiga eftir að verða miklu betri en ég“
- segir Magnús Scheving, eftir skemmtilegt bikarmót á Akureyri
Glæsilegir taktar. Guðrún Gísiadóttir frá Akureyri sýndi frábær tilþrif í einstaklingskeppni kvcnna og varð í öðru
sæti, á eftir íslandsmeistaranum, Önnu Sigurðardóttir. Myndir: sh
„Þetta er með best skipulögðu
mótum sem ég hef verið á og
nánast það besta. Það gekk ótrú-
lega hratt og vel fyrir sig,“ sagði
Magnús Scheving, nýkrýndur
bikarmeistari í þolfimi en glæsi-
legt bikarmót í þolfimi var hald-
ið í íþróttahöllinni á Akureyri á
laugardag. Tilþrifin voru mikil
og áhorfendur vel með á nótun-
um. Tæplega þúsund manns
mættu í Höllina og greinilegt að
þetta er ört vaxandi íþrótt jafnt
hjá iðkendum sem áhorfendum.
Magnús sigraði í einstaklings-
keppni karla en hann var sjálfur
hrifnastur af unglingakeppninni
þar sem voru hátt á fjórða tug
keppenda. „Þessir krakkar eiga
eftir að verða miklu betri en nokk-
urn tíma ég, það er engin spurn-
ing. Þarna eru stákar eins og t.d.
Hafþór Gestsson sem framkvæmir
æfingar sem ég hef ekki séó mikið
af íslenskum íþróttamönnum geta.
Hann er mjög ungur, aðeins 14
ára, og hann á eftir að verða mjög
sterkur. Þetta er alveg nýtt keppn-
isform fyrir unglinga. Þetta er val-
möguleiki fyrir þá sem vilja
lingskcppni karla, var stigahæstur
alira á mótinu og því krýndur bik-
armeistari.
Handknattieikur:
Sex marka tap
Islendingar töpuðu fyrsta
leik sínum á fjögurra landa
móti í handknattleik t Dan-
mörku, fyrir Svíum, 25:19, í
gær.
Svíar höfðu yfir í hálfieik
12:7 en Islendingar veittu
meiri mótsspymu í síðari hálf-
leik og vantaói herslumuninn
undir lokin. Tvcggja marka
munur var á Iiðunum þegar
fjórar mínútur voru eftir,
21:19, en Svíar skomðu fjögur
síðustu mörkin. íslcndingar
kcppa vió Dani í dag.
kannski ekki vera í boltanum og
mér finnst þeir hafa staðið sig
mjög vel. Ég vonast til að fim-
leikasambandió og aðrir standi
saman í að byggja þetta upp þann-
ig að þessir krakkar geti nýtt sér
bakgrunn úr fimleikum eða dansi
eða slíku þannig að allir sameinist
um að þarna geti orðið fín íþrótta-
grein,“ sagði Magnús.
Magnús fékk verðuga keppni í
karlafiokki og sérstaklega frá
Gunnari Má Sigfússyni frá Akur-
eyri sem sýndi glæsilegar æfingar
og var ekki langt á eftir Magnúsi
að mati dómara. „Strákamir eru
alltaf aö koma nær og nær manni.
Heimamaðurinn Gunnar er mjög
sterkur. Hann vantar keppnis-
reynsluna en þaó kemur,“ sagði
Magnús. Þá sýndu Haraldur Jóns-
son og Halldór Jóhannsson einnig
glæsilega takta en þess ber að geta
að Haraldur var illa meiddur en
framkvæmdi æfingar sínar mjög
vel.
Anna fékk mikla keppni
Anna Sigurðardóttir, Islandsmeist-
ari, sigraði í kvennaflokki en fékk
harða keppni frá Guðrúnu Gísla-
dóttur frá Akureyri. Varla mátti á
milli sjá hvor væri sterkari og að
mati dómara munaði aðeins rúmu
einu stigi á þeim. „Þetta var æðis-
lega gaman og stemmningin í
kringum mótið var rosalega góð.
Það var svo mikið af keppendum
og allir tóku þessu vel. Keppnis-
andinn var rosalega góður og allir
miðuðu aó því að koma sem best
fram og hjálpa hver öðrum,“ sagói
Anna eftir mótið og henni fannst
keppnin „hörku erfió. Þaö var æð-
islega gaman að keppa á móti
þessum stelpum og virkilega mikil
keppni, þetta er ekkert sem maður
fær gefins,“ sagói Anna.
Glæsileg unglingakeppni
Unglingaflokkurinn gekk mjög
vel og þar er rosalega rnikil fram-
för. Æfingamar sem unglingamir
eru að sýna eru stórkostlegar og
þarna er á ferðinni afreksfólk
næstu ára. Keppt var í hópakeppni
og tvenndarkeppni unglinga auk
einstaklingskeppninnar. í
stúlknaflokki sigraði María Björk
Hermannsdóttir með glæsibrag og
hjá strákunum var það Hafþór
Gestsson sem hafði nokkuð ör-
uggan sigur. Æfingar Maríu hefðu
dugað henni í þriðja sætió í
kvennaflokki og Hafþór hefói náð
fjóróa í karlaflokki.
I hópakeppninni voru María og
Hafþór saman í hóp ásamt Þóru
Helgadóttur og sigruðu þau ör-
ugglega. I tvenndarkeppni ung-
linga sigruóu Linda B. Unnars-
dóttir og Steinunn Jónsdóttir en
einnig var keppt í tvenndarkeppni
fullorðinna og þar voru aðeins
tveir keppendur. Það voru þær
Hulda Guðmundsdóttir og Sandra
Halldórsdóttir frá Akureyri og
framkvæmdu þær æfingar sínar
mjög vel. Þær em nýkomnar upp í
fullorðinsflokk og æfingar þeirra
hefðu fært þeim öruggan sigur í
unglingaflokknum.
I fullorðinsflokki var einnig
keppt í pallakeppni, sem er ný-
mæli hér á landi. Þar eru þrjú
saman í hóp og tveir hópar sem
kepptu. Þar sigruðu Anna Sigurð-
ardóttir, Agúst Hallvarðsson og
Kristín Hafsteinsdóttir eftir mjög
skemmtiliega keppni frá yngri
keppendum.
Vel heppnað mót
Mótið tókst í alla staði mjög vel
og framkvæmdin var til fyrir-
myndar hjá Sigurði Gestssyni og
félögum í Vaxtaræktinni á Akur-
eyri. Það sem skiptir miklu máli
er að ná að halda taktinum og
dampi þannig að fólk þreytist ekki
á að horfa á og það tókst svo
sannarlega. Unglingaflokkurinn
tókst mjög vel og sum atriðin al-
veg fantagóð. Þama eru mikil efni
sem eru að koma upp og ekki er
annað að sjá en þessi íþrótt eigi
mjög bjarta framtíó. Eftirfarandi
eru úrslit í öllum flokkum:
Einstakiingskcppni karia:
1. Magnús Scheving R 40,05
2. Gunnar Már Sigfússon A 35,60
3. Haraldur Jónssson R 33,80
4. Halldór Jóhannsson R 29,10
Eistaklingskeppni kvenna:
1. Anna Sigurðardóttir R 36,05
2. Guðrún Gísladóttir A 34,55
3. Unnur Pálmadóttir R 31,15
Tvenndarkeppni kvcnna:
1. Hulda Guðmundsdóttir og Sandra Hall-
dórsdóttir A 29,35
Pallakeppni í fullorðinsflokki:
1. Anna, Agúst og Kristín 34,6
2. Fríða Guðjón og Haraldur 33,7
Einstaklingskeppni stúlkna:
1. María Björk Hermannsdóttir 31,65
2. Anna Berglind Pálmadóttir A 29,50
3. Svanhildur Snæbjömsdóttir R 29,10
3. Sara Sturludóttir 29,10
Einstaklingskeppni piita:
1. Hafþór Gestsson R 32,45
2. Ólafur Pálsson R 26,15
3. Jóhannes Helgi Gíslason A 25,00
Hópakeppni unglinga:
1. María B. Hermannsd., Þóra Helgad. og
Hafþór Gestss. 25,00
2. Linda B. Unnarsd., Steinunn Jónsd.,
Katla Kristjánsd., Alda Ægisdóttir 22,70
3. Sigurður K. Magnúss., Svanhildur Snæ-
bjömsd., Svava B. Sigbcrtsd., Ragna Eng-
ilbertsd. og Magga L. Kristjánsd. 21,60
Tvenndarkeppni unglinga:
1. Linda B. Unnarsdóttir og Steinunn
Jónsdóttir 27,60
2. Katla Kristjánsd. og Alda Ægisd. 24,40
3. Svanhildur Snæbjömsd. og Svava B.
Sigbertsd. 22,10
Halldór Jóhannsson er mjög efnilegur og má búast við að þolfimiunnendur
fái að heyra mikið af honum í framtíðinni.
Sigurhópurinn í pallakeppninni var skipaður þaulvönu liði. Lengst til
vinstri er Kristin Hafsteinsdóttir, þá Ágúst Hallvarðsson og Anna Sigurðar-
dóttir, sem sigraði i cinstaklingskcppni kvenna.
Gunnar Már Sigfússon gefúr Magnúsi Scheving ekkert eftir í æfingum sín-
um og meistarinn mátti hafa mikið fyrir sigrinum.