Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Miðvikudagur 24. maí1995 - DAGUR - 3 Hinir sívinsælu 'ióalda menn frá Siglufirbi í hörkustubi laugardagskvöld Borbapantanir fyrir matargesti í síma 22200 Miðaverb á dansleik kr. 700,- Kjarasamninga - heimild til verkfallsboðunar endurnýjuð á næstu dögum Félagar í Sambandi ísl. banka- manna (SIB) felldu í allsherjarat- kvæðagreiðslu kjarasamninga sem undirritaðir voru þann 5. maí sl. Atkvæði féllu þannig að 67% þcirra sem atkvæði greiddu voru á móti samningunum en 33% með. Kosningaþátttaka var liðlega 90%. Samningaumleitanir höfðu staðið yfir með hléum frá áramót- um, þar til samningar voru undir- ritaðir í maí og lagðir undir dóm félagsmanna í allsherjaratkvæða- greiðslu. Mat stjórnar og samn- inganefndar SIB er aó þrjú atriði hafi einkum ráðið því að samning- ar voru felldir. I fyrsta lagi telja bankamenn að sá mikli sparnaður og hagræðing sem náðst hefur fram í bankakerfinu með upp- sögnum og meira álagi á starfsfólk hafi ekki skilað sér í samningun- um. I öðru lagi er útbreidd skoöun félagsmanna að launakerfið þarfn- ist róttækra endurbóta og í þriðja lagi telur samninganefnd sig hafa ofmetið vilja félagsmanna til að slaka á orlofsrétti gegn lokun banka á aófangadag. Stjórn og samninganefnd SIB hefur ákveðið að cndurnýja heim- ild til verkfallsboðunnar. Hámarks aðdragandi verkfalls bankamanna er 30 dagar. HA MA-ingar dimittera Fjórðubekkingar í Menntaskólanum á Akureyri brugðu á leik sl. töstudag í tilcfni þess að kennslu er lokið og prófin taka við. Klæddi hver bekkjardciíd sig upp með sínum hætti, síðan ók allur hópurinn um bæinn í dráttarvcla- vögnum og leit við hjá lærifeðrunum, sem fengu góðar gjafir að venju. Mynd: KK Gríptu tækifærið Ótrúlegt úrval jakkafötum Öðruvísi efni og öðruvísi snið m HERRADEILD 'X. Gránufélagsgötu 4 N' Akureyri • Sími 23599 Háskóli Islands: Akvorðun um fjarhæð skra- setningargjalds ekki byggt á lögmætum sjónarmiðum - aö mati umboðsmanns Alþingis Umboðsmaöur Alþingis hefur sent frá sér álit, þar sem hann telur ljóst að ákvörðun um fjárhæð skrásetningargjalds í Háskóla Is- lands, fyrir námsárió 1992-1993 hafi ekki verið byggt á lögmætum sjónarmiðum. Gísli Tryggvason, laganemi, kvartaði yfir innheimtu skrásetningargjalda við Háskóla íslands fyrir skólaárið 1992-1993 en honum var gert að greiða kr. 25.700. Beindist kvörtun hans að þeirri ákvöróun háskólaráðs frá 27. maí 1993, að synja kröfu hans um endurgreiðslu skrásetningar- gjaldsins og aukagjalds fyrir nefnt skólaár. Umboðsmaður segir það ekki liggja fyrir hversu hátt umrætt skrásetningargjald mátti vera fyrir námsárið 1992-1993 og því verði ekki fullyrt hvort það var ákveðió of hátt og ef svo var, hversu mikið oftekið var. Hann hins vegar bein- ir þeim tilmælum til Háskólans að fjárhæð skrásetningargjaldsins verði reiknuð út í samræmi við þau sjónarmið sem fyrir liggja. Reynist gjaldið hafa verið ákvarð- að of hátt, beri aö endurgreiða Gísla Tryggvasyni það sem oftek- iö hefur verið. „Hérna er það komið í ljós með áliti umboðsmanns, að Alþingi þarf að taka ákvörðun um, að taka upp skólagjöld. Það er ekki hægt að gera með ákvörðun háskóla eða ráðherra. Ríkisstjórnin og Alþingi hafa sett Háskólann í mjög óþægi- lega stöðu, enda hefur háskólaráö ítrekað lýst andstöðu við þessa leið, að neyðast til þess að taka upp skólagjöldf sagði Gísli Tryggvason, í samtali við Dag. I kvörtun Gísla kemur fram aó hann telur að í innheimtu fyrr- nefnds skrásetningargjalds við Háskólann felist skattheimta, sem ekki eigi sér stoð í viðhlítandi skattlagningarheimild. Ennfremur kemur fram í kvörtun hans, aö verði ekki fallist á að hér sé um skattheimtu að ræða, heldur þjón- ustugjöld, þá styðjist slík gjald- taka ekki við nægilega lagastoð. Loks taldi Gísli að Háskólanum hafi ekki verið heimilt að leggja 15% álag á skrásetningargjöld, sem greidd voru eftir 5. júlí 1992. Háskólaráð samþykkti í mars Bankamenn fella 1992 að skrásetningargjald skóla- ársins 1992-1993 skyldi vera kr. 22.350,- og skiptast þannig að kr. 17.000,- skyldu renna til háskól- ans. kr. 3.200.- til Félagsstofnunar stúdenta og kr. 2.150,- til stúd- entaráðs. Veittur var greiðslufrest- ur til 5. júlí 1992 en eftir þaö skyldi gjaldið greitt með 15% álagi. Menntamálaráöherra stað- festi Ijárhæó skrásetningargjalds- ins meö bréfi til rektors í júní. Gísli greiddi gjaldið með álagi, með fyrirvara um lögmæti gjalds- ins og álagsins um miðjan ágúst 1992. Leitaði hann síðan eftir end- urgreiðslu gjaldsins aó öllu leyti eða hluta, þar sem hann taldi að gjaldtakan hefði ekki næga laga- stoð en háskólaráð hafnaði því. Umboðsmaður telur heimilt aö standa undir kostnaði sem hlýst af starfsemi sem er í nánum og efnis- legum tengslum við skrásetningu nemenda með heimtu skrásetning- argjalda en óheimilt sé að hækka gjaldið vegna annars kostnaðar við rekstur Háskólans, svo sem al- menns rekstrarkostnaðar við yfir- stjórn skólans, sem ekki tengist skrásetningu við skólann. Þá telur umboðsmaöur lagaheimild skorta til þess að ráðstafa skrásetningar- gjöldum til stúdentaráðs og því sé sú ráóstöfun óheimil. KK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.