Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 12
Vinir á vordegi.
Mynd: Robyn
Silfurstjarnan í Öxarfirði:
Malarvegirnir
dýrir og þreytandi
- segir Björn Benediktsson
að er keyrt með 29,5 tonn af
fiski frá Silfurstjörnunni í
Öxarfirði til Reykjavíkur í
hverri viku. „Við erum að senda
vöru á heimsmarkað og getum
hreinlega ekki bætt við okkur
kostnaði vegna þungatakmark-
ana á vegunum,“ segir Björn
Benediktsson, en forsvarsmenn
Silfurstjörnunnar eru afar
óhressir með ástand vega í
Norðursýslunni og sérstaklega á
Tjörnesi.
Bjöm segir að mikill akstur á
malarvegum fylgi starfrækslu Silf-
urstjömunnar, og ekki aðeins akst-
ur flutningabílanna með fiskinn úr
Öxarfirói til Húsavíkur, en þar
koma þeir á bundið slitlag. Bjöm
segist hafa tekið það saman að
starfsmenn Silfurstjömunnar keyri
4300 km á viku á malarvegum
vegna vinnu sinnar. Þá miðar
hann við að fiski sé slátrað fjóra
daga í viku, um 20 starfsmcnn
vinni vió stöðina og nokkrir þeirra
sameinist um bíl. 1M
Kerling sigruð
á vélsleöa
Sauðburður langt kominn
- mikil frjósemi í Ljósavatnsskarði
Sauðburður er víðast hvar að
verða langt kominn í sveit-
um og gott hljóð er í bændum.
Þó er snjór víða til baga, sérstak-
lega er snjóþungt í Fljótunum,
og hafa menn neyðst til að halda
kindum að mestu inni.
Að sögn Hermanns Herberts-
Flotkví Akureyrar-
hafnar á heimleið
- dráttarbáturinn iagði af stað í gær
Um klukkan fjórtán í gær að
íslenskum tíma, lagði þýski
dráttarbáturinn Fair Play XIV,
af stað frá Keipeda í Litháen
áleiðis til íslands, með fiotkví
Akureyrarhafnar í togi.
„Það er góð veðurspá fyrir
næstu fimm daga og skipstjóri
dráttarbátsins áætlaði að hann yrði
ekki ncma 12 daga til Akureyrar,
ef veðrió yrói gott,“ sagði Einar
Sveinn Ólafsson, formaður hafn-
arstjórnar, í samtali viö Dag.
Dráttarbáturinn fer í fyrstu at-
rennu til Skagcn í Danmörku,
þaðan til Stavanger í Noregi, þá til
Hjaltlandseyja og loks Færeyja.
Frá Færeyjum verður haldið að
austurströnd Islands og þaðan
áfram til Akureyrar. Fimm rnenn
eru um borð í flotkvínni á leiðinni
en heildarvegalengdin sem farin
er, cr rúmar 1700 sjómílur.
Framkvæmdir vió flotkvíar-
stæðið við Slippstöðina-Odda,
ganga samkvæmt áætlun og reikn-
aði Einar Sveinn með að dælu-
skipió lyki sínu verki þar í vik-
unni. KK
sonar á Sigríðarstöðum í Ljósa-
vatnsskarði eru einungis um 30 ær
af 239 óbornar. Hann segist ekki
geta kvartað undan ófrjósemi.
„Það kom ein fimmlembd um
daginn og það hefur ekki áður
gerst á þessum bæ. Síðan eru átta
fjórlembdar, 28 þrílembdar, 147
tvílembdar og 24 einlembdar.“
Aðspurður hvort ekki væri erfitt
að koma fénu fyrir sagðist Hcr-
mann vera svo lánsamur að hafa
nóg pláss, hægt væri aó setja féð í
hlöðuna og gömul fjárhús. „Mað-
ur reynir að setja eitthvað út á
daginn, en það er alveg vonlaust
að hafa kindur með lömb úti yfir
nóttina. Eg hef þó ekki orðið var
við að bændur í kringum mig
hefðu fé úti.“ Tún í Ljósavatns-
skarói eru töluvert undir snjó enn,
en ekkert frost er í jöróu. Her-
mann er því vongóður um að
spretta geti oróið góð í sumar ef
hlýnar fljótlega í veðri.
„Sauðburðurinn gengur vel og
honum verður mikið til lokið um
mánaðamót,“ sagði Ríkharður
Jónsson, bóndi á Brúnastöðum í
Fljótum. Af 300 ám eru um 230
bomar. Mikill snjór háir bændum
í Fljótum og tún eru lítið sem ekk-
ert farin að koma undan snjó.
„Við mokuðum með vélum í
kringum húsin og getum núna að-
eins stungið ánum út fyrir, en ann-
ars er ekkert autt hér nema vegur-
inn.“ Lítið hefur misfarist af
lömbum og frjósemin verið ágæt,
u.þ.b. tvö lömb á kind.
sr
Hið glæsilega Qall, Kerling í
Eyjafirði, lítur ekki þannig
út að fýsilegt sé að klífa það með
öðrum hætti en á tveimur jafn-
fljótum. Jóhannes Rcykjalín frá
Akri í Eyjafjarðarsveit var hins
vegar annarrar skoðunar og á
dögunum komst hann alla leið á
toppinn á vélsleða. Er það fyrsta
farartækið sem þangað kemst,
fyrir utan þau sem fljúga um
loftin blá, en m.a. hefur verið
lent á lítilli flugvél á Qallinu.
Kerling er í 1535 m hæð yfir
sjávarmáli og vélsleðamenn hafa
nokkuð reynt að komast á toppinn
en jafnan þurft frá að hverfa. Jó-
hannes fór hins vegar leið sem fá-
um hefur dottið í hug til þessa, cn
hann fór á fjallið að austanverðu
og komst upp í annarri tilraun. Lét
hann vel af ferðinni og taldi frá-
leitt að um hættuspil hafi verið að
ræða. Allar brekkur væru renni-
sléttar og nóg pláss til að athafna
sig, bæði í brekkunum og upp á
toppnum. Færið var mjög stíft
enda taldi Jóhannes leiðina tæp-
lega færa að öðrum kosti. HA
Hlutur Norölendinga i mottoku a rækju
minnkaði um 10,4% á árunum 1992 til 1994
- jókst þrátt fyrir það um 6.819 tonn á sama tíma
árunum 1992 til 1994 jókst
. móttaka á rækju á Norð-
austurlandi úr 12.414 tonnum í
14.693 tonn, en vegna aukningar
á heildarmagni minnkaði hlut-
deild af heildarmagni úr 29,9%
árið 1992 í 23,1% árið 1994 en
var 26,8% árið 1993.
VEÐRIÐ
Ekki er búist við miklum breyt-
ingum á veðrinu í dag sam-
kvæmt spá Veðurstofunnar.
Spáð er austan og norðaustan
átt og smáskúrum til landsins,
hitinn verður 0-5 stig. Á morg-
un og föstudag er einnig spáð
norðaustan golu og súld, hitinn
verður 2r7 stig um norðanvert
landið. Á laugardag er síðan
spáó hlýnandi og hægri breyti-
legri átt.
Sýslumannsembættið á Akureyri:
Lokunaraðgerðir vegna
vanskila hafnar
Vanskil vegna vangoldins
virðisaukaskatts og stað-
greiðslu skatta hjá sýslumannns-
embættinu á Akureyri nema um
99 milljónum króna og eru lok-
unaraðgerðir vegna vanskilanna
hafnar og í gær var innsiglað hjá
tveimur fyrirtækjum og áfram
verður haldið ef ekki vcrður
samið um greiðslur eða skuldir
greiddar.
Sum þessara
vegna gjaldþrota
vanskila eru
fyrirtækja og
ekki líkur á að takist að innheimta
þær upphæðir. Stærsta einstaka
upphæðin er sjö milljónir króna á
byggingafyrirtækið Híbýli hf. á
Akureyri, sem varð gjaldþrota fyr-
ir alllöngu síðan. Fjöldi fyrirtækja
sem eru í vanskilum er svipaður
og verið hefur undanfama mánuði
og ár. GG
Á árinu 1992 var tekið á móti
41.461 tonni á landinu öllu.
Magnið jókst í 48.482 tonn á árinu
1993 en tók síðan vcrulega sprctt
á árinu 1994, fór í 63.733 tonn.
Mjög góó veiði hefur verið það
sem af er þessu ári og í fyrsta
skipti í langan tíma eru líkur á aó
útgefinn rækjukvóti fyrir fisk-
veiðiárið 1994/1995, alls 63 þús-
und tonn, veiðist allur auk þess
magns sem fært var milli ára.
A Norðvesturlandi var tekið á
móti 12.778 tonnum árið 1992,
eða 30,8% af heildarmagni, það
jókst í 13.537 tonn, eða 27,9% ár-
ið 1993 og í 17.318 tonn eöa
27,2% á árinu 1994. Aðrir lands-
hlutar hafa heldur aukið við sig á
milli áranna 1992 og 1994, Aust-
urland úr 5,5% í 5,9%; Reykjanes
úr 1,5% í 4,6%; Vesturland úr
4,6% í 9,6% og Vestfirðir úr
27,7% í 29,7%. Móttaka rækju var
því mest á Vestfjörðum á árunum
1993 og 1994 en var þar áður
mest á Norðurlandi vestra. GG
Innanhúss-
málning
10 lítrar
kr. 4.640,-
0
KAUPLAND
Kaupangi ■ Simi 23565