Dagur - 21.06.1995, Page 5
Miðvikudagur 21. júní 1995 - DAGUR - 5
Akureyrskur stórsöngvari í tónleikaferð:
er bara ég
Páll Jóhannesson er Akureyr-
ingur í húð og hár, en hefur ekki
búið hér síðan 1989 er hann
fluttist til Svíþjóðar. Hann bjó í
bernsku á Stíflu í Glerárhverfí,
sem þá var rétt fyrir utan bæinn.
ísiendingar höfðu litla vitneskju
um þennan stórsöngvara þar til
fyrir skömmu er hann birtist á
skjánum fyrir leik íslcndinga og
Svía, þar sem hann söng þjóð-
sönginn okkar fyrir um 30 þús-
und manns á leikvanginum, og
ótalda sjónvarpsáhorfendur.
Páll er staddur hér á landi í tón-
leikaferð ásamt Lenu Tivelind
messósópran, en þau munu syngja
í Glerárkirkju á Akureyri annað
kvöld klukkan 20.30 og í Safna-
húsi Dalvíkur á sama tíma á föstu-
dagskvöld. Aður en þau komu til
Islands héldu þau tónleika í Nor-
egi og Svíþjóð vió góðar undir-
tektir, og hafa nú þegar haldið
eina tónleika í Reykjavík.
Páll segist hafa lagt ýmislegt
fyrir sig annað en sönglistina. „Eg
útskrifaðist frá Bændaskólanum á
Hvanneyri 1971 og fór þá að
vinna hjá Vegagerð ríkisins. Þar
var ég í eitt ár, en hóf síðan nám í
bátasmíði við Slippstöðina. A
sama tíma og ég var í bátasmíð-
inni fór ég að læra söng hjá Sig-
uröi Demetz, og svo fór að ég
ákvað að einbeita mér alfarið að
söngnum. Með það fyrir augum
flutti ég suður 1976 og hóf nám
við Söngskólann í Reykjavík
sama ár, hjá Magnúsi Jónssyni.“
Arið 1981 var svo kominn tími til
að fara til útlanda til frekara náms
og tók Páll stefnuna á Italíu eins
og flestir óperusöngvarar. Þar
Hlíðabólskrakkarnir albúnir til skrúðgöngu.
Vináttutengsl þriggja
leikskóla á Akureyri
Síðastliðinn föstudag, 16. júní,
tóku þrír leikskólar á Akureyri,
Hlíðaból, Holtakot og Klappir,
með formlegum hætti upp vin-
áttutcngsl.
Þctta var gert á formlegan og
skemmtilegan hátt. Krakkarnir á
leikskólunum fóru í skrúðgöngu
frá túninu við Undirhlíð yfir í
dvaldi hann til 1986, er hann kom
aftur heim til Islands. A árunum
1986-1989 bjó Páll á Akureyri og
kenndi söng við Tónlistarskólann,
en þá greip útþráin hann aftur og
nú var það Svíþjóð sem var fyrir-
heitna landið.
„Fyrsta árió söng ég í kór Stora
Teatren í Stokkhólmi, en árið
1990 bauðst mér eitt aðalhlutverk-
anna í óperettunni Vínarblóð. Ég
tók því og reyndin varð sú að
óperettan var sýnd 176 sinnum á
sjö mánuðum. Það var mjög
skemmtilegt, en líka erfitt; óper-
ettur reyna sérstaklega á raddbeit-
inguna og slíta röddinni mjög
mikið út, það er erfiðast af öllu að
syngja óperettu, þar blandast sam-
an talað oró og sungið.“ Haustið
1990 fékk Páll síðan fastráðningu
hjá Konunglegu óperunni í Stokk-
hólmi, og hefur síðan þá sungið í
fjölmörgum hlutverkum.
Páll segir að hann sé nú farinn
að hugsa sér til hreyfings. „Ég er
búinn að vera þama í fjögur ár og
þaö skeður ekki neitt. Maður fær
enga möguleika á að ná miklum
starfsframa hjá óperunni. Ég hef
alls ekki staðnað í söngnum sjálf-
unt, þetta hefur verið ágæt þjálfun
að því leyti, en ég finn að ég fæ
ckki þá möguleika sem mér finnst
ég þurfa og það er ekki upplífg-
andi. Innan Konunglegu óperunn-
ar er mjög erfitt að komast lengra
án þess hreinlega að segja upp,
sanna sig annars staðar, og koma
Páll Jóhanncsson tcnór og Lcna Tivelind halda tónlcika í Glcrárkirkju ann-
að kvöld kl. 20.30 og í Safnahúsi Dalvíkur á sania tíma á föstudagskvöld.
síóan aftur til baka. Þcss vegna
fannst mér tilboð forráðamanna
óperuhússins í Basel, um að
syngja þar, mjög freistandi."
Menn frá óperunni í Basel heyrðu
í Páli í vetur og urðu mjög hrifnir
af söng hans og í framhaldi af því
buðu þeir honum að syngja eitt
aðalhlutverkanna í Operudraugn-
um. „Ég hef ekki cnn fengið
samninginn í hcndur en ég vona
það besta. Operuhefðin er mjög
stcrk í þýskumælandi löndum og
þess vegna væri mjög gaman að fá
tækifæri til að syngja þar.“
Einhverjir hafa viljað líkja hon-
um við Kristján Jóhannsson en
Páli frnnst engin ástæða til þess,
heldur segir aö hver söngvari hafi
sín sérkcnni: „Kristján syngur eins
og Kristján, cn ég er bara ég og
verð að standa fyrir því sem ég
geri og syng. Þó við syngjum
sömu rödd, eru raddir tveggja ten-
óra aldrei eins.“
Aðspurður segist Páll ánægður
með að koma heim og syngja fyrir
Islendinga. „Við Lena fengum
góóar móttökur á tónleikunum í
Reykjavík og við vonum að þær
verði það cinnig hérna norðan
heiða. Ég cr spenntur aö syngja
fyrir Norðlendinga. Það er alltaf
mest spcnnandi að syngja fyrir sitt
heimafólk, því þar er aö finna
hörðustu gagnrýnenduma.“ shv
J.lijíl í jíffij TiljJJíJ •lj,jJJjrl
HjJiJ'j£>i JyjJtu
f v-! <
kvenfélagslundinn við Áshlíð. Þar
voru teknar myndir, farið í lciki
og afhent skjöl.
í þessum formlegu vináttu-
tengslum leikskólanna felast með-
al annars samstarf bamanna,
starfsfólks og foreldra barnanna,
en einnig taka þau til samnýtingar
á búnaði og kcnnslutækjum. óþh
jJJU úJíJu
Midvikudagstilbod
Skinkufars kr, 299,- kg.
❖
Krakkarnir á Holtakoti í fullum skrúða.
Myndir: Robyn.
Fimmtudagstilbod
Nýreykt kindabjúgu
frá KEA í metravís
^^Hrísalundi
Afgreiðslutími:
Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30
laugard.kl. 10.00-18.00