Dagur - 27.07.1995, Síða 5
Fimmtudagur 27. júlí 1995 - DAGUR - 5
Hjörleifur Vaisson og Urania Menelau á tónleikaferð sinni á Húsavík. Mynd: IM
Tónleikaferd Hjör-
leifs og Uraniu
- Dalvíkurkirkju í kvöld og
Akureyri föstudagskvöld
Hér á landi eru stödd þau Hjörleif-
ur Valsson fiðluleikari og Urania
Menelau píanóleikari og munu þau
halda tónleika á nokkrum stöðum á
norðurlandi og vestfjörðum nú í
vikunni.
Fyrstu tónleikamir voru haldnir
í Safnahúsinu á Húsavík á þriðju-
dagskvöld. í kvöld, fimmtudag
spila þau í Dalvíkurkirkju. Föstu-
daginn 28. júlí verða tónleikar í sal
Tónlistarskólans á Akureyri en síð-
an liggur leiðin til ísafjarðar og þar
munu þau leika í sal grunnskólans,
sunnudaginn 30. júlí. A efnis-
skránni verða verk eftir W.A. Moz-
art, G. Fauré og tékknesku tón-
skáldin B. Smetana og L. Janácek.
Allir tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Urania Menelau er fædd 1973 í
Nicosiu, höfuðborg Kýpur, og hóf
ung nám á hin ýmsu hljóðfæri við
tónlistarskóla Nicosiuborgar, sem
rekinn er og stjómað af foreldrum
hennar. Sautján ára að aldri hlaut
hún styrk frá tekkneska ríkinu til
tónlistamáms við Prag Konserva-
tóríið og lýkur hún námi að ari
liðnu. Hún hefur víða komið fram í
Tékklandi og Kýpur og vakið at-
hygli fyrir flutning stofutónlistar.
Hjörleifur Valsson fæddist á
Húsavík 1970 og hóf þar fiðlunám.
Hann var tíu ára er hann fluttist
ásamt fjölskyldu sinni til Isafjarðar
og varð fyrir miklum áhrifum af
einstökum tónlistarskóla Ragnars
H. Ragnar. 18 ára hóf hann sitt nám
í fiðluleik í Osló, og eftir útskrift
vorið 1993 frá Oslóartónlistarkon-
servatóríinu hlaut hann tékkneskan
ríkisstyrk og hefur numið síðastlið-
in tvö ár í Prag.
Valsson/Menelau tvíeykið hefur
leikið saman í tæp tvö ár og komið
fram víða í Prag, og meðal annars
kynnt íslenska tónlist fyrir tékk-
neskum menningarvitum á all-
mörgum samkomum tengdum
norðurlöndunum. Vorið ’94 léku
þau fyrir Vaclav Havel forseta
Tékklands og Vigdísi Finnboga-
dóttur við opnun málverkasýningar
Errós í Prag. (fréltatilkynning)
/-----------------; \
Vegleg veisluborð
Borðin svigna undan krásum og
góðgœti hvert föstudagskvöld
frá kl. 19.00-22.00.
Borðapantanir í síina 463 1400.
Yegleg veisluborð - Verið velkomin
Hrafnagili
Sími 463 1400
LJÓSMYNDASAMKEPPNI
•Ásklllim er réttur
tll að nota
verölaunamynclirnar
í auglýslngum.
Þú færð upplýsingar og
þátttökuseðil í næstu búð.
SkilaJTestur er til 31. ágúst 1995.
hófst í morgun
Opiö laugardaga kl. 10-12
Gránufélagsgötu 4
Akureyri, sími 462 3599