Dagur - 08.09.1995, Blaðsíða 16

Dagur - 08.09.1995, Blaðsíða 16
plllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllillllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllll^ VETRARTILBOÐ BAUTANS IIEIMILISMATUR í HÁDEGINU ALLA VIRKA DAGA Mánudagur IX. sept. Soðnir kálbögglar m/bræddu smjöri, kakósúpa kr. 590,- Þriðjudagur 12. sept. Pönnusteiktur l'iskur með pasta, appelsína kr. 590,- Miðvikudagur 13. sept. Frankfurterpylsitr með kartöflúSaláti, bláberjasúpa kr. 590,- | Fimmtudagur 14. sept. Hamborgarhryggur með rauðvínssósu, sveppasúpa kr. 790,- | Föstudagur 15. sept. Gratineraður plokkfiskur, skyrsúpa m/banönum kr. 590,- HAMBORGARATILBOÐ ALLA DAGA iilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllillllltlllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllillilllllllllllllllllllllllr: Tjaldstæði í Þingeyjarsýslum: Um 10-20% færri gisti nætur en í fyrra Gistinætur á tjaldstæðum í Ásbyrgi og í Reykjahlíð í Mývatnssveit voru færri en síð- asta sumar og er þar helst um að kenna að sumarið fór seint af stað. í Vaglaskógi var sumarið þó svipað og í meðalári en þar Hóianes hf. á Skagaströnd: Framkvæmda- stjórinn segir starfi sínu lausu - starfið ekki auglýst að sinni Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hólaness hf. á Skagaströnd, hefur sagt starfí sínu lausu og átti upp- sögnin að koma til framkvæmda 1. október nk. en Lárus Ægir hefur fallist á að starfa áfram hjá Hólanesi hf. til áramóta. Hvorki hefur starfið verið aug- lýst laust til umsóknar né í það ráðið og verður ekki svo a.m.k. al- veg á næstunni. Lárus Ægir segir uppsögnina í fullri sátt við stjórn fyrirtækisins en hann hafi hug á að breyta um starfsvettvang. Hvort hann finni sér nýjan starfs- vettvang á Skagaströnd eða ekki verði tfminn að leiða í ljós. Eftir greiðslustöðvun og nauðasamn- inga Hólaness hf. á sl. ári eignað- ist Landsbankinn 58% hlut í fyrir- tækinu og er stærsti einstaki hlut- hafinn. Stjómarformaður er Helgi Þórðarson í Hafnarfirði. GG - meðalsumar í Vaglaskógi hafa sveiflurnar milli ára gjarn- an verið meiri því nær eingöngu íslendingar gista þar og því fer fjöldinn meira eftir veðri en á hinum tjaldstæðunum. í Ásbyrgi voru gistinætur á tímabilinu 1. júní til 1. september 10% færri en í fyrra, eða 14.700 á móti tæplegá 16.500 gistinóttum í fyrrasumar. Stella Jóhannsdóttir, þjóðgarðsvörður, var þó þokka- lega ánægð með sumarið og bend- ir á að sumarið í fyrra hafi verið metsumar. Sumarið kom seint og hal'ði það mikið að segja. Stella segir að Islendingar hafí verið í meirihluta í Ásbyrgi í sumar, um 65% gestanna voru Islendingar en 35% útlendingar. Á tjaldstæðinu í Reykjahlíð var svipaða sögu að segja og frá Ás- byrgi. Það hafði gistinóttum fækk- að enn meira milli ára, voru 16.000 í sumar en 20.000 síðasta sumar. Björn Böðvarsson, tjald- vörður, segir aðalskýringuna vera hve sumarið fór seint af stað. „Þetta byrjaði ekki fyrr en í júlí, júní var alveg dauður," segir Bjöm en tekur einnig fram að enn sé eitthvað af fólki á tjaldstæðinu þó komið sé fram f september. „Undanfarin ár hefur þetta lognast út í lok ágúst en það virðist sem tímabilið sé aðeins að lengjast." Fólk farið að umgangast skóginn betur Sigurður Skúlason, skógarvörður á Norðurlandi, segir að sumarið r Vaglaskógi hafi verið meðalsum- ar. Ekki sé búið að taka saman endanlegar tölur yfir gistinætur en þær séu á bilinu 10.000-12.000 sem sé gott miðað við hvað sum- arið var stutt. „Sveiflan hjá okkur hefur verið frá tæplega 6.000 upp í 15.000. Sumarið 93 voru þetta ekki nema 5.700 gistinætur, en 91 var rigning fyrir sunnan allt sumarið og þá voru þær 15.000, þannig að þetta fer mikið eftir veðri.“ Sigurður segir að mikið sé um fjölskyldufólk sem tjaldi í skógin- um og mjög fáir útlendingar. „En þetta var óskaplega gott sumar að því leyti að það voru engin veru- leg læti þannig að þyrfti að kalla út eitthvað lið. Við höfum líka tekið þetta fastari tökum bæði í fyrra og í sumar og erum með næturvaktir um helgar þegar er margt fólk. Mér finnst líka fólk vera farið að umgangast Vagla- skóg á annan hátt en það gerði. Nú kemur það ekki bara til að drekka brennivín, eins og sagt var áður fyrr, heldur kemur það til að njóta kyrrðarinnar.“ AI Brugöiö á leik Skólarnir byrjuðu í vikunni og því líf og fjör á skólalóðunum þessa dagana. Þessir piltar úr Síðuskóla notuðu tækifærið í frímínútum til að Ieika sér í körfubolta. Mynd: BG Bændahöllin of dýr fyrir Bændasamtök íslands? Akureyri, Hvanneyri eða Selfoss Siglufjörður: Nýtt hættumat Síðar í þessum mánuði er von á nýju hættumati fyrir Siglu- Qörð, en eftir síðasta vetur, sem var erfíður og snjóþungur á Siglufírði, var óskað eftir endur- skoðuðu hættumati fyrir kaup- staðinn. Bjöm Valdimarsson, bæjar- stjóri, segir að nýja hættumatið muni taka til annars vegar byggð- arinnar á Siglufirði og hins vegar skíðasvæðisins í Siglufjarðar- skarði. Björn segir að úr því sem komið er verði ekki unnt að gera sérstakar ráðstafanir, ef það reyn- ist nauðsynlegt samkvæmt nýja hættumatinu, en það verði kynnt rækilega fyrir hlutaðeigandi aðil- um á Siglufirði. óþh @ VEÐRIÐ Áfram verður austan- og norðaustanátt á landinu en vindur fremur hægur, sér- staklega í innsveitum á Norðurlandi. Kaldi gæti orð- ið á annesjum á Norður- landi í dag. Reiknað er með skýjuðu veðri á morgun og á stöku stað gætu fallið regndropar en í heildina er óhætt að kalla þetta að- gerðalítið haustveður. Bændasamtök íslands hafa nú til skoðunar texta og fleira sem tengist endurskoðun á búvörusamningnum og segir Ari Teitsson, formaður samtakanna, að málið þokist áfram en fjár- málahliðin sé enn að mestu órædd. Málið hefur þó þokast allnokkuð áfram eftir aðalfund Landssamtaka sauðfjárbænda á - líklegustu staðirnir Jökuldal í síðustu viku. Ari segir það mjög slæmt að end- urskoðunin skuli dragast svona á langinn, en unnið sé að fram- gangi málsins, bæði af hálfu Bændasamtakanna og samn- inganefndar ríkisins. Nefndirnar hittast síðan og skiptast á skoðunum og pappírum en eng- in formlegur samningafundur Akureyri: 40 ára ferming- arbörn hittast - koma saman í fyrsta skipti síðan á fermingardaginn 1955 Um helgina hittist á Akur- eyri hópur fólks sem fermdist í Akureyrarkirkju vorið 1955 og fagnar því í ár 40 ára fermingarafmæli. Þetta er í fyrsta skipti síðan á fermingar- daginn að hópurinn kemur saman. Rafn Sveinsson, einn af und- irbúningsnefndarmönnum, segir að hópurinn hafi á sínum tíma talið um 100 böm en ekki er ljóst hversu margir koma til bæj- arins af þessu tilefni. Reiknað er þó með að það geti orðið a.m.k, 60-70 manns. Rafn segir að sumir leggi mikið á sig, til að mynda séu dæmi þess að fólk kom erlendis frá gagngert til að gleðjast með fermingarsystkin- um sínum. Hópurinn ætlar að hittast í safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju á laugardag, verður á Hótel KEA á laugardagskvöld og á sunnudagsmorgun er ætlun- in að verða við messu í Akureyr- arkirkju. JÓH ef til flutnings kemur hefur verið boðaður. „Stjóm Bændasamtakanna er að skoða þann möguleika að flytja starfsemina út á land en við erum hér í Bændahöllinni í Reykjavík í vönduðu og jafnframt dýru hús- næði. Ég geri ráð fyrir að stjórnin komist að einhverri niðurstöðu fyrir jól, og ef komist verður að þeirri niðurstöðu að flytja frá Reykjavík kemst málið á veruleg- an rekspöl á næsta ári. Það er mik- ill áhugi á því nú að sameina frek- ar en sundra starfsemi bænda en þetta er býsna mikil starfsemi og það fylgja því ákveðin vandamál að flytja hana um set, m.a. að leysa húsnæðis- og starfsmanna- mál. Það er ekki ómögulegt að starfsemin tengist annarri starf- semi sem þegar er á landsbyggð- inni, eins og t.d. Skógræktinni sem er austur á landi eða Land- græðslunni á Suðurlandi. Það eru dæmi þess að stór fyrirtæki eða stofnanir hafi flutt sig um set út á land en algengara að þau hafi gugnað á því. Það hefur verið rætt um það í nokkur ár hvort flytja ætti starf- semina austur á Selfoss en það sveitarfélag hefur hvorki boðið okkur gull né græna skóga. Það er þó sterklega inn í myndinni vegna nálægðar við stórt landbúnaðar- hérað. Eins hefur Akureyri verið nefnd af sömu ástæðu, þ.e. ná- lægðar við öflugt landbúnaðar- svæði, og þar eru þegar starfrækt- ar ýmsar landbúnaðarstofnanir. Svo hefur Hvanneyri í Borgarfirði borið á góma en margir vilja að þar rísi landbúnaðarmiðstöð. Það er ekkert húsnæði til á Selfossi né Hvanneyri sem gæti hýst þessa starfsemi en möguleikamir em nriklu meiri á Akureyri. Mér þykir Akureyri vera senni- legasti kosturinn að óathuguðu máli en tek skýrt fram að ég hef ekkert skoðað það,“ sagði Ari Teitsson formaður Bændasamtaka íslands. GG Allt fyrir garðinn í Perlunni við □ KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.