Dagur - 08.09.1995, Blaðsíða 15
Föstudagur 8. september 1995 - DAGUR - 15
IÞROTTIR
FROSTI EIÐSSON
Knattspyrna - Islandsmót
Langur sjúkralisti hjá Leiftri
- sem mætir Breiðabliki í Ólafsfirði. Síðasti heimaleikur Þórs gegn Víði
Leiftur leikur gegn Breiðabliki á
morgun klukkan 16 og skiptir
leikurinn miklu fyrir Ólafsíjarð-
arliðið, sem enn á góða mögu-
leika á 4. sæti 1. deildarinnar og
þar með sæti í Toto-keppninni.
Þó er ljóst að margir af lykil-
mönnum liðsins verða frá.
Eins og sagt hefur verið frá eru
þeir Gunnar Már Másson og Ne-
bojsa Zoravic í leikbanni en ofan
á það bætist að Pétur Bjöm Jóns-
son meiddist í Eyjaleiknum og
ekki er víst hvort hann getur leikið
með. Sömu sögu er að segja af
Matthíasi Sigvaldasyni og þá er
Steinn Viðar Gunnarsson erlendis.
Þessi forföll bætast ofan á meiðsl
þeirra Baldurs Bragasonar og Slo-
bodan Milisevic, sem báðir hafa
verið frá í síðustu leikjum og
munu að öllum líkindum ekki vera
meira með á tímabilinu.
„Þetta er vissulega erfitt fyrir
okkur en við gerum okkur samt
góðar vonir um að okkur takist að
reka af okkur slyðruorðið eftir tvo
tapleiki í röð. Við vorum á hælun-
unr í Valsleiknunr en framan af
leiknum í Eyjum vorum við síst
lakari aðilinn," segir Óskar Ingi-
mundarson, þjálfari liðsins.
Gunnlaugur Sigurfinnsson sem
verið hefur á sjó á síðasta ári en er
í sumarfríi verður á bekknum og
sama er að segja um Kristinn
Bjömsson, sem öllu þekktari er
fyrir skíðaiðkun. Þá munu piltar
úr öðrum og þriðja flokki verða á
bekknum, tilbúnir til taks ef frek-
ari meiðsl verða á leikmönnum.
Breiðabliksliðið getur heldur ekki
stillt upp sínu sterkasta liði. Tveir
Blikar þurfa að taka út leikbann,
markakóngur liðsins í sumar, Rad-
islav Lazorik og varnarmaðurinn
Gústaf Ómarsson.
Síðasti heimaleikur Pórs
Þórsarar leika sinn síðasta heima-
leik í 2. deildinni í sumar á Akur-
eyrarvellinum á sunnudaginn.
Liðið mætir Víði sem berst fyrir
áframhaldandi veru í deildinni.
Þórssigur í leiknum er nánast
dauðadómur fyrir Suðumesjaliðið
sem þá er fallið í 3. deild. Nói
Bjömsson, þjálfari Þórs, sagði allt
gott að frétta úr herbúðum Þórs-
ara. Öm Viðar Amarson, þarf
reyndar að taka út bann en að öðru
leyti eru allir sterkustu menn liðs-
ins klárir í slaginn. Leikur liðanna
hefst klukkan 13:30.
KA leikur í Borgamesi gegn
Skallagn'mi og hefst leikur lið-
anna klukkan 14.
A sama tíma fer fram Norður-
landsslagur í 3. deildinni, þegar
nýkrýndir deildarmeistarar Völs-
ungs leika gegn Dalvík á heima-
velli síðamefnda liðsins.
- segir Örn Ingólfsson, ökuþór, sem tekur þátt í GSM rallýinu
á Trabantinum sínum
„Ég hef alltaf verið með hálf-
gerða bfladellu og fór í það nán-
ast á barnsaldri að læra bifvéla-
virkjun.Það má kannski segja að
vinningsmöguleikar mínir séu
engir en ég fæ það sama út úr
keppninni og þeir sem eru á
kraftmeiri bflunum,“ segir Örn
Ingólfsson, 58 ára rallökumaður
frá Sauðárkróki, sem verður á
meðal keppenda á GSM-rallýinu
sem hefst í dag.
Örn tók þátt í sínu fyrsta rallýi
árið 1977 og segist hafa skemmt
sér svo vel þá að rallýaksturinn hafi
verið árátta hjá sér síðan þá. Hann
hefur því mesta reynsluna af þeim
ökumönnum á Sauðárkóki sem
hafa skráð sig til leiks og er nokkuð
viss um að vera aldursforseti móts-
ins. Sigurmöguleikamir eru þó ak-
kúrat engir því bifreið hans, Tra-
bant, er mun aflminni heldur en
aðrir bílar sem skráðir em til leiks.
„Ég er oft spurður að því hvað
ég sé að gera á þessum bfl, ég geti
ekki orðið annað en síðastur. Hins
vegar er svo margt í kringum
þetta, ég fæ alveg sama út úr
þessu og þeir á kraftmeiri bílun-
um. Mín spenna stendur um það
hvort ég klári og svo er ég oft ekki
síðastur,“ segir Örn og rifjar upp
þegar hann náði ellefta sæti á einu
alþjóðlegu ralli sem haldið var hér
á landi. Arangur Amar vakti svo
mikla athygli að þáverandi um-
boðsaðili Trabant, Ingvar Helga-
son, sendi skeyti út til Austur-
Þýskalands til að tilkynna um ár-
angurinn. Það bar síðan þann
ávöxt að Þjóðverjarnir sendu hon-
um viðurkenningarskjal og kraft-
meiri vél í bflinn.
Vélin sem Örn notast við er þó
venjuleg Trabant vél, 595 og hálf-
ur rúmsentimetri og það dugir lítið
gegn aflmeiri bflium. Hann á þó
ágæta möguleika á einni sérleið-
inni, en það er Öskjuhlíðin. Þar er
brautin hlykkjótt og liggur öll nið-
ur í móti og það hentar Trabantin-
um ágætlega.
Örn Ingólfsson, reyndur rallökumaður, hugar að keppnisbíl sínum fyrir
GSM-rallið sem hefst í dag.
Hcrmann Halldórsson við bíl sinn, sem er af gerðinni Lada Samara.
Glæsileg verð-
laun á golfmóti
Kristal-Flugleiðir golfmótið
verður haldið á Jaðarsvelli á
laugardaginn. Tveir eru í liði
og gildir betra skor á hverri
holu. Forgjöf er 7/8 og vinn-
ingar í boði fyrir tíu efstu sætin
í mótinu. I fyrsta vinning eru
utanlandsferðir að eigin vali á
einhvern af áfangastöðum
Flugleiða og þá verða jafn-
framt verðlaun fyrir að vera
næstur holu á par þrjú braut-
um. Dreginn verður út ein
utanlandsferð í mótslok en
þátttökugjald er krónur 3.000
fyrir hvert tveggja manna lið.
Frjálsíþróttir:
Sunna með
tvö silfur á NM
Sunna Gestsdóttir úr USAH
náði lengst íslensku keppend-
anna á Norðurlandamóti
unglinga 20 ára og yngri sem
fram fór í Finnlandi um síð-
ustu helgi.
Sunna hreppti tvenn silfur-
verðlaun, í 100 m hlaupi og í
langstökki. Sunna hljóp sprett-
inn á 12,0 sekúndum og stökk
5,85 metra, sem er hennar besti
árangur 1 langstökki. Sunna
varð síðan fjórða t' 200 m
hlaupi á 25,0 sekúndum, að-
eins 13 sekúndubrotum frá
fyrsta sætinu.
Óntar Kristinsson, frá
UMSE hljóp 200 metrana á
22,65 sekúndum og fékk tím-
ann 48,89 í 400 m lilaupi.
Fjórar áhafnir frá Sauðárkróki
Buist viö spennandi keppni
í alþjóðarallinu
Alls verða fjórar áhafnir frá
Sauðárkróki með í GSM-rallý-
inu sem fram fer um helgina.
Rallýið hefst í dag og munu
fimm erlendar áhafnir taka þátt
í mótinu, þar af þrjár á vegum
breska hersins, sem allar eru á
Land Rover bifreiðum. Philip
Walker frá Skotlandi keyrir
Ijórhjóladrifna Mözdu að gerð-
inni 323 turbo og David Nann,
þekktur breskur rallari á Toyota
Celica GT4.
Alls eru því 23 íslenskar áhafn-
ir í þessu rallýi, þar af fjórar frá
Sauðárkróki.
Hermann Halldórsson og Sig-
fríður Halldórsdóttir, sem eru syst-
kini, eru á Lada Samara, Vilhjálm-
ur Viðarsson og Rúnar Gíslason á
Datsun Nissan 510 og Ægir Amar-
son og Elías Kristjánsson á Ford
Escort XR3. Faðir Ægis, Öm Ing-
ólfsson, mætir síðan á Trabantin-
um sínum en aðstoðarökumaður
hans er Þorgils Sigurðsson.
Öm sagði að erfitt væri að spá
um sigurvegara. Enginn „ofurbfll“
væri með að þessu sinni eins og
svo oft áður þannig að keppnin
gæti orðið spennandi. Hann sagð-
ist telja að Vilhjálmur væri líkleg-
astur til að standa sig best af
áhöfnunum frá Sauðárkróki.
Ræst er út í dag klukkan 13:30
frá Perlunni og áætlað er að rallý-
inu Ijúki við Austurvöll um klukk-
an 21 á sunnudagskvöldið. Rall-
ökumenn þurfa því að leggja á sig
900 kílómetra leið á hinum ýms-
um vegum á Suðurlandi, þar af
291 kflómetra á sérleiðum.
■□DDDoBaDDDQ
Munið ódýru
morgun-
tímana
frá kl. 9-14
Aðeins kr. 270,-
Sólstofan Hamri
Sími 4612080
„Fæ það sama út úr þessu
og þeir á kraftmeiri bílunum“