Dagur - 20.10.1995, Blaðsíða 11

Dagur - 20.10.1995, Blaðsíða 11
Föstudagur 20. október 1995 - DAGUR - 11 Valur Þór Hilmarsson hefur mikinn áhuga á hinni svonefndu grænu ferðamennsku. „Slík ferðamennska snýst fyrst og fremst um ábyrgð og raunar allt umhverfisstarf gerir það. Hér þarf að taka tillit til bæði menningar- og náttúru- legs umhverfis,“ segir hann meðal annars hér í samtalinu. Mynd: Sigurður Bogi. Valur Þór Hilmarsson er umhverfísfulltrúi hjá Ferðamálaráði á Akureyri: Umgengni við náttúru- perlur þjóðarmnar er betri en var Nú í vor tók Valur Þór Hilmars- son úr Ólafsfirði við starfi um- hverfisfulltrúa hjá skrifstofu Ferðamálaráðs á Akureyri. Starf þetta er býsna víðfeðmt, en Val- ur segir það helst lúta að tengsl- um við umsjónarmenn ferða- mannastaða víða um land þegar þörf sé úrbóta í umhverfismál- um. Einnig sé hans að efla svo- nefnda græna ferðamennsku sem nú ryður sér víða til rúms. „Þegar við erum að tala um umgengni á ferðamannastöðum þá er rusl á víðavangi ekki sama vandamál og var áður. Fólk um- gengst náttúruperlur þjóðarinnar af miklu meiri virðingu en var áð- ur. Hér hefur orðið mikil viðhorfs- breyting meðal almennings. Það sem helst skiptir máli í þessu sam- bandi er að stýra rétt álagi á ferða- mannastöðum. Að leggja afmark- aðar gönguleiðir og fleira í þeim dúr. Þá er síður hætta á náttúru- spjöllum,“ sagði Valur. Hann bætti því við, að í þessu sambandi veitti Ferðamálaráð styrki til úr- bóta á ferðamannastöðum - og væru þeir styrkir til margvíslegra verkefna. „Hér á Norðurlandi hefur að- gengi við Goðafoss verið bætt og við Námafjall í Mývatnssveit. Við fyrrnefnda staðinn hefur Eim- skipafélagið komið inn í dæmið og styrkt málefnið undir yfirskrift- inni Fossar í fóstur. Auk þess að styrkja betrumbætur við Goðafoss mun Eimskip í ár einnig styrkja samskonar verkefni við Skógafoss undir Eyjafjöllum. Þá verði Detti- foss og Fjallfoss í Dynjanda við Amarfjörð teknir fyrir á næsta ári. Við Dettifoss snýst þetta um að bæta aðgengi að fossinum," sagði Valur Hilmarsson. Að mati Vals hefur margt breyst til betri vegar í umhverfis- málum hér á landi. Hann segir að íslendinga skorti þó enn að til- einka sér í orði og verki hugtakið „landslagsvemd". Slæmt se hve íslendingar hafi til skamms tíma hugað að því að vemda landslagið og nefnir í því sambandi á margar malamámur vítt og breitt um land- ið. Þær séu víða eins og flakandi sár og til miklla lýta. A síðustu misserum hefur verið að ryðja sér til rúms, bæði hér heima og erlendis, það sem kallað er græn ferðamennska. „Slík ferðamennska snýst fyrst og fremst um ábyrgð og raunar allt umhverfisstarf gerir það. Hér þarf að taka tillit til bæði menningar- og náttúrulegs umhverfis,“ segir Valur. Nánari skilgreining á grænni ferðamennsku er; til dæmis að hótelhaldarar og veitingamenn skulu haga kaupum sínum á vör- um til þjónustu þannig, að velja frekar vörur sem innihalda ekki aukaefni, að kaupa inn í sem stærstum umbúðum og sneiða heldur frá einnota umbúðum. Farga skal sorpi samkvæmt ströngustu kröfum og á undan skal það vera flokkað og því komið í endurvinnslu sem hægt er. Uppá ferðamennina sjálfa stendur að fara hljóðlega um í náttúrunni og ónáða hvorki dýr né plöntur. Til að dreifa álagi á vin- sæla áningarstaði eru ferðamenn hvattir til að ferðast utan helsta sumarleyfistímans, að ferðast í litlum hópum til að dreifa álaginu og skilja ekki eftir rusl. Jafnframt þessu segir Valur að hvatt sé til í grænni ferðamennsku að versla í sem ríkustum mæli í heimabyggð. „Það fellur ekki inn í þennan ramma að súrar agúrkur frá Danmörku séu keyptar í Hveragerði," segir Valur. Þeir sem gerst þekkja til í ferðamálum hafa bent á að í þess- ari atvinnugrein sé sýnd veiði ekki alltaf gefin. Þó bein peningainn- tekt af þjónustu við ferðamenn sé mikil sé ekki þar með sagt að hún sé hreinn ágóði. Sveitarfélög þurfi oft að leggja út í mikinn kostnað til að þjónusta við ferðamenn verði sem mest og best. Sýna við- urkenndir útreikningar að marg- feldisáhrif í störfum af þessari at- vinnugrein eru minni en í mörgum öðrum. Því verði að taka öllu í þessu sambandi með nokkrum fyrirvara. Undir þetta tekur Valur Hilmarsson að nokkru leyti, en hann varar þó við hugsuninni um skyndigróða. Við honum sé tæpast hægt að búast í ferðaþjónustunni. -sbs. B E i ENCIN HÚS \ \ ÁNHITA 1 3BHBBBBH mi lllj 1 Ð f > ' - n Lu n niÉMði \ | •''■•• [ o. • Snjóbræðslurör, mótar og tengi Okkar verð er alltaf betra Verslib vi& fagmann. DRAUPNISGÖTU 2 • AKUREYRI SIMI 462 2360 Op/ð á laugardögum kl. 10-12. BSBBHHyBBBBBQBBByyBBBQBBByHBBQBa IfT Má lar I • • llllliilll Vinn ngstölur 18.10.1995 vinningar FJÖLDf UPPHÆÐ H 6 af 6 1 45.586.000 Ej 5 af 6 Lfl+bónus 0 1.579.520 RH 5 af 6 0 203.478 EI 4af6 200 1.610 | 3 af 6 635 210 Aðaltölur: s©@ 2l):(30)@ BÓNUSTÖLUR (16)(§)(34) Heildarupphæð þessa viku: 47.824.348 áísi.: 2.238.348 UPPLÝSjNGAH, SÍUSVAHI 91- 68 15 11 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 fjjl/inningur: fór til Danmerkur Söfnunardagar föstudag laugardag sunnudag Byggðavegi 98 Tilboð Nautagúllash 888 kr. kg Munið heimsendingar- þjónustuna kl. 11.00 og 14.00 VeriÖ velkomin! Tökum vel á móti ykkur Starfsfólk Byggðavegi 98

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.