Dagur - 01.06.1996, Síða 13

Dagur - 01.06.1996, Síða 13
POPP Laugardagur 31. maí 1995 - DAGUR - 13 MAGNÚS GEIR CUÐMUNDSSON Safnplatan Strump í fótinn Framtak sem alltaf á Fyrir nokkru var sagt frá því í stuttu máli hér á síðunni, að út væri að koma plata undir því nokkuð skemmtilega nafni, „Strump í fótinn“, sem innihéldi ein 19 lög með ungum íslenskum hljómsveitum af ýmsu tagi. Hefur þessi plata nú verið á boðstólum um hríð og er óhætt að mæla með henni fyrir þá tónlistarunnendur, sem kynnast vilja því sem „kraumar undir“ og vill komast upp á yfirborðið í íslensku rokk- lífi. Það er síðan aldrei að vita nema að einhverjar af þessum sveitum sem eiga lög á plötunni eigi eftir að láta meira að sér kveða, í þeirri mynd sem þær birt- ast á plötunni, eða annari breyttri. Menn hafa reyndar deilt um gildi þess að safna saman sveitum á svona plötur, misjöfnum að getu og gæðum, en fyrst alltaf annað slagið hefur reynst vilji hjá fólki með hugsjón til slíks, þá er bara ekkert nema gott um það að segja. Það hefur líka sýnt sig að slík frumraun getur reynst stökkpallur fyrir hljómsveitir. Dæmi um það í fljótu bragði munað, er t-world, „teknódúettinn“, sem fyrst átti lag á tvöföldu safnplötunni Núll & nix fyrir nokkrum árum og nældi síðan í framhaldinu í samning í Bretlandi. Pekktir sem óþekktir flytjendur Sem fyrr sagði eru það 19 lög sem prýða Strump í fótinn, með jafn- mörgum flytjendum, sem þó hvað einstaklinga varðar koma við sögu í fleiri en einu lagi og eru mis- reyndir og þekktir. Þama er t.d. engin önnur en Ragnheiður Vík- ingsdóttir, Heiða, sem nú er öllum þekkt sem söngkona í Unun. Á hún annars vegar eitt lag sjálf sem Heiða trúbador og hins vegar syng- ur hún með Sovkhoz, sem hún var í áður en hún gekk í Unun. Eru þetta bæði ágæt lög eins og með Glimmer, sem síðan hefur skipt um nafn eftir að lagið var hljóðrit- að og vann Fjörungakeppnina sem S.O.M.A. Maðurinn á bak við her- legheitin heitir Magnús Axelsson og á hann heiður skilinn eins og allir sem áður hafa farið út í slfkt framtak. Er hann ekki aðeins útgef- andi, heldur líka tónlistarmaður sjálfur og er með tveimur ef ekki þremur sveitanna á plötunni. Að- eins einn galli er á sem einhverju nemur. Er það varðandi nöfnin á lögunum og flytjendum þeirra, en þau eru prentuð ofan í mynd á bak- hliðinni, þannig að heldur erfitt er að lesa þau. Þetta er óþarfur siður, sem þó allt of algengur er orðinn, en annars er útlit Strump í fótinn skemmtilegt. lllþrif hjá Terrorvision Bresk tónlistarflóra er býsna fjöl- skrúðug um þessar mundir og margir straumar og stefnur í gangi þar í. landi, BritPop, Britrock, Techno, Triphop, Jungle og Drum & Base (það síðasttalda er eitt nýjasta fyrirbærið í danstónlist- inni) eru heiti á nokkrum þeirra stefna sem eru í gangi í Bretlandi og reyndar víðar og njóta allar meira og minna vinsælda. í Brit- rokkinu er til að mynda mikið líf og margar mjög frambærilegar hljómsveitir. Ein af þeim fremri og vinsælli er tvímælalaust fjögra manna fyrirbærið frá Bradford, Terrorvision, sem í mars sendi frá sér sína þriðju plötu, Regular Ur- ban Survivors. Upphaf Terrorvision nær allt aftur til 1984. Til að byrja með hét hún ýmsum öðrum nöfnum, en frá 1989 hefur nafnið verið Terror- vision. Fyrsta platan, Formula- style, leit dagsins ljós árið 1991 og vakti töluverða athygli og þá sérstaklega í nýbylgjugeiranum. Hún seldist hins vegar ekkert sér- staklega og liðu þrjú ár þangað til önnur platan, How To Make Fri- ends And Influence People, kom út. Ólíkt fyrstu plötunni náði hún til mun breiðari hóps og sló Terr- orvision í gegn með henni sem ein Terrorvision af frískustu bresku rokksveitunum árið 1994. Mun hún hafa selst í um 250.000 eintökum á Bret- landseyjum einum. Regular Urban Survivors virð- ist ætla að halda nafni Terror- vision áfram vel á lofti, því platan náði strax inn á topp tíu, í áttunda sæti, í fyrstu viku og smáskífulag- ið Perseverance náði alla leið í fimmta sæti yfir vinsælustu lögin í Bretlandi. Nýjasta smáskífan, Celebritty Hitlist, náði svo inn á topp 30 fyrir skömmu. Eru bæði þessi lög dæmi um mjög svo hressileg tilþrif Terrorvision á þessari nýju plötu og hafa gagn- rýnendur keppst við að lofa hana í hástert. Segja sumir þeirra að hér sé jafnvel nú þegar komin ein besta plata ársins. Dæmi um önn- ur lög sem hæglega gætu náð vin- sældum af þessari plötu, sem sett er upp eins og bíómyndaplata, eru hið ljúfa Bad Actress, fönkrapp- rokkarinn Conspiracy og hið létt- grípandi Enteralterego. Má taka undir með erlendum gagnrýnend- um að platan er með þeim betri af þessu tagi á árinu og staðfestir að Terrorvision er áfram á hraðri uppleið. Allt í plati Aðdáendur hinna ýmsu popp- stjarna mega oft á tíðum þola margt sem goðin þeirra taka upp á til að hrella þá. Stundum gera þau sér lítið fyrir og deyja öllum að óvörum, hætta, eða gera einhvem annan óskunda. En stundum vill þetta snúast við þ.e.a.s. poppgoðin sjálf verða fyrir hrekkjum, sem þó bitnar ekki síður á aðdáendum þeirra. Slíkt var einmitt upp á ten- ingnum fyrir skömmu á kostnað breska tríósins Supergrass og að- dáenda þeirra. Voru málavextir þeir að út um alla heintaborg Sup- ergrass, Oxford, voru hengd upp auglýsingaplaköt, þar sem aðdá- endum sveitarinnar var boðið að taka þátt í gerð myndbands, sem hún væri að taka upp á vissu svæði. Á umbeðnum tíma mættu um 300 manns til að bjóða sig fram, en þá var enginn á svæðinu að taka við skaranum. Þegar svo reynt var að grennslast fyrir hvað væri á ferðinni, kannaðist enginn við neitt, hvorki hljómsveitin sjálf né neinn aðstandenda hennar. Sem sagt allt í plati, en hver var á ferð- inni og hvers vegna er ekki vitað. Bubba Morthens Gin Á síðustu tveimur til þrentur ár- um hafa komið fram í Bandaríkj- unum hver gæðarokkhljómsveitin á fætur annarri, sem að mestu sækja sín áhrif í þjóðlaga og „kántríarf' þjóðarinnar auk rokksins nteð ýmsurn hætti. Ekki þar fyrir að slíkar sveilir hafi ekki verið fyrir hendi áður, síður en svo, en málið með þær sem hafa verið að koma fram nú í seinni tíð er hins vegar það að þær hafa verðskuldað náð gríðarlegum vinsældum hver í kjölfar annarr- ar. Hefur hér á síðunni áður verið drepið á þessu í umfjöllunum um a.m.k. tvær sveitir, Hootie & The Blowfish og Collective Soul, en þær, auk m.a. Live, Counting Crows og fleiri, falla innan þessa gæðaflokks. Eirí er sú hljómsveit til sem fellur vel inn í þennan hóp og ekki hvað síst er vert að gefa gaum. Er þar átt við Gin Bloss- oms, sem ekki alls fyrir löngu sendi frá sér sína aðra plötu á al- þjóðlegan markað, Congratulati- ons, I m Sorry. Gin Blossoms á Robin Wilson rætur a.m.k. tíu ár aftur í tímann, til Arizona að því best er vitað, og fer fremstur í flokki söngvar- inn Robin Wilson. Gáfu þeir fyrst út plötu sjálfir fyrir nokkrum ár- um, en 1994 voru þeir komnir á mála hjá A&M útgáfurisanum og sendu f'rá sér það ár plötuna, New Miserable Experience. Er skemmst frá því að segja að plat- an sló rækilega í gegn og seldist í um þremur milljónum eintaka. Voru sagðir margir gullmolar á plötunni, m.a. Hey Jelousy, sent náði miklum vinsældum. Virðist sagan svo að einhverjum hluta ætla að endurtaka sig með Congratulations... því smáskífu- lagið dágóða, Follow You Down, sem einmitt hel'ur notið vinsælda hérlendis í nokkrum rnæli, hefur gengið vel og platan almennt fengið góða dóma. Fleiri lög á borð við Not Only Numb, As Long As It Matters, Day Job og Til I Hear It From You, þykja staðfesta að Gin Blossoms sé tví- mælalust í hópi gæðarokkssveita Bandaríkjanna og eigi velgengni skilið. Nú þegar hin langþráða nýja plata Metallica er rétt handan við hom- ið, er líka komið á hreint hvert fyrsta smáskífulagið verður. Heitir það Until It Sleeps og kveður þar nokkuð við annan tón hjá ofur- sveitinni. Að vísu er enginn vafi á að Metallica er á ferð, en lagið hefur yfir sér dulúðlegan blæ, sem nokkuð sérstæður gítarhljómur undirstrikar. hjá Bubba Þó að margoft hafi verið tekið fram að afmælisfregnir eigi betur heima annars staðar en hér á síð- unni, gerist það samt æ oftar að sagt er frá slíkum tímamótum og þá auðvitað hjá hinum ýrnsu poppurum. Er þetta ljóta ástandið, en skal samt enn einum slíkum tíðindum nú bætt við þrátt fyrir það. I hlut á nefnilega „kóngurinn sjálfur“, Bubbi Morthens, sem fagnar stórafmæli í næstu viku. Verður blessaður drengurinn nán- ar tiltekið fertugur á fimmtudag- inn kemur, 6. júní, og óskurn við honum til hamingju með það.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.