Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1994, Blaðsíða 3
S'IMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1994
25
tónllBt i
Steinarnir velta á ný
- hljómleikaferð Rolling Stones um Norður-Ameríku hefst eftir helgi
Risastórir íþróttaleikvangamir í
Bandaríkjunum sem troðfylltust í
sumar, þegar heimsmeistarakeppnin
í knattspymu fór fram vestra, fyllast
nú senn á ný. En nú verða það ekki
Roberto Baggio, Romario, Michel
Preud’homme eða kókaíntröllið
Diego Armando Maradona sem trylla
áhorfendur heldur Mick Jagger,
Keith Richards, Charlie Watts og Ron
Wood ásamt miðvallar- og bakvörð-
um sínum. Og nú heitir íþróttin ekki
knattspyma heldur rokk.
Fylgja eftir
nýrri plötu
The Rolling Stones em að fara í
hljómleikaferð til að fylgja eftir sinni
nýjustu plötu, Voodoo Lounge, sem
kom út tólfta júh. Ferðin hefst með
hljómleikum á Robert F. Kennedy-
leikvanginum í Washington, höfuð-
borg Bandaríkjanna, og fram til jóla
verður spilað í Bandarikjunum og
Kanada. Ekkert hefur verið látið uppi
opinberlega um veturinn og næsta
sumar. Ef ferðaáætlunin er eitthvað
svipuð því sem var þegar plötunni
Steel Wheels var fylgt eftir má búast
við að hljómsveitin ferðist um Asíu
og Eyjaálfu í vetur og komi síðan til
Evrópu næsta sumar.
Liðsmenn Rolling Stones hafa
verið í æfingabúðum skammt frá
Toronto í Kanada síðan 20. júní. Mick
Jagger skýrði frá því í viðtali nýlega
að það væri talsverður höfuðverkur
fyrir hljómsveitina að ákveða hvaða
lög ætti að flytja í Voodoo Lounge-
ferðinni. Hann lét því útbúa lista með
öllum lögum sem hafa komið út með
hljómsveitinni á rúmlega þrjátíu ára
ferli og raða þeim upp í stafrófsröð.
Endanleg ákvörðun kemur ekki í
ljós fyrr en 1. ágúst en heimild-
armenn Virgin-útgáfunnar, sem hafa
fengið að líta inn á æflngar, segja að
hljómsveitin hafi verið að fást við
Satisfaction (nema hvað), Wild
Horses, Start Me up (einu sinni enn),
Angie og She’s so Cold, eitt eftir-
minnilegasta lagið af Emotional
Rescue-plötunni.
Rolling Stones: Hljómsveitin spilar á leikvöngunum þar sem heimsmeistaramótið í knattspymu fór fram fyrr í sumar.
Mikil að umfangi
Hljómleikaferð Rolling Stones 1989
og 1990 var talin ein sú mesta að
umfangi sem farin hafði verið til þess
tíma. Nokkur eins tónleikasvið voru
í gangi og voru þau flutt á milli landa
eftir ákveðnu kerfi þannig að
hljómsveitin gat komið fram kvöld
'eftir kvöld án þess að tæknimenn
nafn
vÍKunnar
hennar þyrftu að vinna allan
sólarhringinn.
Síðan þá hefúr U2 bætt um betur
með Zoo TV-ferðinni sinni og
útbúnaður hljómsveitarinnar Pink
Floyd í yfirstandandi hljómleikaferð
hennar þykir með því mesta sem sést
hefur. Ljóst er að Stones þurfa að
tjalda öllum tiltækum útbúnaði og
draga helst fram úr erminni
einhveijar nýjar brellur ef þeir ætla
að skáka U2 og Pink Floyd. Michael
Cohl, yfirfararstjóri Voodoo Lounge-
hljómleikaferðarinnar, er ekki í vafa
um að það takist: „Við ætlum að
bjóða upp á stórkostlegustu leik-
vangakonserta sem sést hafa hingað
tU,“ segir hann kotroskinn.
Langur
aðdragandi
Ferðin sem nú er að hefjast á sér
að sjálfsögðu langan aðdraganda.
Raunar má segja að hann nái allt
aftur tU tuttugasta aprU í fyrra þegar
Mick Jagger og Keith Richards
hittust á Barbados tU að semja lög
fyrir nýju plötuna. Charlie Watts
bættist svo í hópinn tlu dögum síðar.
Síðsumars æfði hljómsveitin síöan á
heimUi Rons Woods á írlandi og hóf
síðan upptökur í Dyflinni annan
nóvember. Don Was upptökustjóri
var kallaður til samstarfs við
hljómsveitina og hafa fjórmenn-
ingamir i Stones keppst við að bera
á hann lof fyrir góða frammistöðu.
Það tók Don Was hins vegar langan
tíma að átta sig á því þegar hann
vaknaði á morgnana að hann væri í
raun og veru að fara út í hljóðver tU
að vinna með The RoUing Stones og
ræða við þessa frægu ijórmenninga á
jafnréttisgrundveUi.
Á útmánuðum var platan hljóð-
blönduð í Los Angeles og í maí var
aUt tilbúið. Þá var efnt til blaða-
mannafundar um borð í skútunni
Honey Fitz sem eitt sinn hafði verið
í eigu Kennedys Bandaríkjaforseta.
Þar var platan kynnt blaðamönnum
og kunngert um hljómleikaferðina
1994/95. Sumarið hefur síðan farið í
stanslausar æfingar, að viðbættum
löngum viðtölum við fjölmiðla víðs
vegar úr heiminum.
Risasamningur
RoUing Stones hafa þar tU nú verið
á plötusamningi hjá CBS-
fyrirtækinu. Síðla árs 1991 gerði
hljómsveitin hins vegar risasamning
við Virgin og er Voodoo Lounge
fyrsta nýja platan sem út kemur hjá
því fyrirtæki. Eftir að fiór-
menningamir brenndu sig á hörðum
samningamönnum plötufyrirtækja í
gamla daga og urðu fyrir vikið nær
gjaldþrota á fyrstu árum áttunda
áratugarins hafa þeir gætt þess að
hafa aUt sitt á þurru. Þar af leiðandi
eiga þeir útgáfurétt allra sinna laga
aUt frá því að þeir sögðu skUið við
fyrirtækið Decca árið 1970.
Með í samningnum við Virgin
fylgir því endurútgáfuréttur á öUum
plötum Stones frá og með Sticky
Fingers og tU þessa dags. í fyrradag
endurútgaf fyrirtækið eUefu eldri
plötur á geisladiskum, það er að segja
Sticky Fingers, ExUe on Main Street,
Goat’s Head Soup, It’s only
Rock’n’RoU, Black and Blue, Some
Girls, Emotional Rescue, Tattoo You
og Undercover, Steel Wheels og StiU
Life.
Siðastliðið vor komu átta
fyrstnefndu plötumar út i sérstakri
safnaraútgáfu og þar var almenni-
legur rennUás tU dæmis hafður á
umbúðunum um Sticky Fingers.
Nokkur eintök þefrrar útgáfu bámst
hingað tU lands. Að sögn gagn-
rýnenda er vel vandað tU þessarar
endurútgáfu hjá Virgin og er búið að
laga upptökumar þannig tU aö þær
hljóma vel á geislaplötum. Mick
Jagger hafði sjálfur yfirumsjón með
því verki.
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem aUir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverr i
viku em birtar þrjár léttar spum-
ingar um tónlist. Fimm vinnings-
hafar, sem svara öUum spumingum
rétt, hljóta svo geisladisk að launum
fráfyrirtækinuJapis. Aðþessusinni
eru verðlaunin diskurinn Ham _
Lengi lifi, frá Japis.
Hér koma svo spumingarnar:
1. Hvað heitir nýja platan með
Ham?
2. Nefnið tvær hljómsveitir sem
Ham-meðlimir hafa starfað í.
3. Var ekki Ham langbesta
rokksveit landsins?
Að þessu sinni eru verðlaunin diskurinn
Ham - Lengi lifi frá Japis.
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
4. ágúst og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 11. ágúst.
Hér eru svörin úr getrauniimi sem
birtist 14. júlí:
1. Bjöm Friðbjömsson eða Daníel
Ágúst Haraldsson eða Guðlaugur
Kristinn Óttarsson eða Kristbjörg
K. Sölmundardóttir eða Margrét
Sigurðardóttir eða Stefán Hjör-
leifsson.
2. Leonard Cohen, Live in Concert.
3. Purple.