Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994 DV í byrjun sumars bættist ný hljómsveit í raðir íslendinga. Hljóm- sveitin gerir út á ballmarkaðinn ög kallar sigNl+. Þráttfyrirnýjabrumið eru hljómsveitarmeðlimir allir í reyndari kantinum og má segja að hér sé komið samkrull úr Stjóminni og Sálinni hans Jóns míns. Um síð- ustu helgi lék hljómsveitin á Akur- eyri ásamt Alvörunni og segjast við- staddir sjaldan hafa upplifað aðra eins stemningu og þar myndaðist. í byrjun sumars komu út tvö lög á safnplötunni Já takk! frá Japis í nafhi hljómsveitarinnar og heita þau C ég þig og Frelsið. Lögin eru eftir aðallagahöfunda sveitarinnar, þá Guðmund Jónsson og Fririk Karls- son, og í lok sumars kemur út nýtt lag undir öðrum formerkjum. Nýtt útgáfufyrirtæki Fullskipuð telur hljómsveitin 5 Hljómsvertin N1+ hefur haft nóg að gera í spilamennskunni í sumar. Tilraunastarfsem Hljómsveitin N1+ á ferð um landið n sé laus segir nýtt hafi komið fram og á meðan þeir tveir drengir, sem ð hafa Jackson opinberlega fyrir áreitni, vilji ekki leggja fram sé ekkert hægt að gera frekar. Annar drengurinn var reyndai- búinn að kæra Jackson en dró merkilegt nokk kæruna til baka þegar stórstjarnan gaukaði að honum 26 milljónum dollara sem vináttuvotti. Ekki er vitað tO þess að hinn drengurinn hafi fengið viðlíka vinargjöf frá Jackson en engu að síður hafa forráðamenn hans neitað að leggja fram kæru þrátt fyrir mikinn þrýsting frá lögregluyfirvöldum. -SþS- meðlimi. Þetta eru þau Friðrik Karls- son (gítarleikari), Guðmundur Jóns- son (gítarleikari), Þórður Guðmunds- son (bassaleikari), Halli Gulli (trommuleikari) og Sigríður Bein- teinsdóttir (söngkona). Nýja lagið heitir Siðan þá (lag: Friðrik Karlsson, texti: Guðmundur Jónsson) og er væntanlegt á safhplötunni Heyrðu 5 frá Skífunni. En hvers vegna skipti hljómsveitin um útgáfufyrirtæki? „Japis var ekki með frekari safn- plötuútgáfu á hreinu og við vorum hreint ekki tilbúin í gerð stórrar plötu,“ segir Friðrik. Stefnan er að gefa út nokkur lög á safhplötum sem verður síðan safnað saman á eina stóra plötu næsta sumar og ef allir verða ánægðir verður ráðist í gerð stórrar plötu fyrir þar næstu jól. „Við erum nú þegar komin með fram- haldandi plötusamning við Skífuna en það kemur allt í ljós næsta sumar hvað úr verður,“ segir Friðrik. En hvemig tónlist spilar Nl+? Evróvisjónæfingar? „Enn hefur engin ákveðin stefna verið mótuð innan sveitarinnar en melódískt gítarpopprokk virðist ætla að verða ofan á. Þetta gengur meira og minna út á tilraunastarfsemi," segir Friðrik. Á síðan að senda lag í Evróvisjón næsta ár? „Nei, þaö verða engar fleiri Evróvisjónæfmgar í bili. Annars var það meira samstarf milli mín og Siggu og lagið Nætur þar af leiðandi ekki týpískt fyrir þessa hljómsveit," Samstarfið hefur annars gengið mjög vel og hljómsveitin haft nóg að gera i spilamennskunni um allt land í sumar og að þeirra sögn hefur þeim verið vel tekið. Fyrir þá sem vilja berja hljómsveitina augum á næst- unni má geta þess að hún spilar á Selfossi 12. ágúst og í Ólafsvík þann 13. en um næstu helgi verður hún í fríi; smástund milli stríða enda nóg að gera um síðustu helgi eins og Akureyringar tóku eftir. Gott starfslið Friðrik vildi sérstaklega taka það fram að án hjálparhellna sinna hefði hljómsveitin vart lifað af lang- ferðirnar og spilamennskuna. Sér- stakar þakkir fá því Magnús Rögn- valdsson (sem er rótari hljóm- sveitarinnar) og Ingvar Jónsson (hljóðmaöur). „Það vill oft gleymast að þessir menn gegna lykilhlut- verkum í rekstri hljómsveita á borð við þessa.“ Þau Friðrik, Gummi, Halli, Sigga og Þórður geta því vel við unað og má líklegt telja að Nl+ verði með stóra plötu á markaðnum um jólin 1995. Hver veit nema maður finni eina slíka í jólapakkanum. GBG Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannigfram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar spum- ingar um tónlist. Fimm vinnings- hafar, sem svara öllum spurningum rétt, hljóta svo geisladisk að launum frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni eru verðlaunin diskurinn Sleepless In Seattle úr samnefndri kvikmynd. Hér koma svo spumingarnar: 1. Hvað heitir nýjasta platan með David Byme? 2. í hvaða hljómsveit var David Byme? 3. Hvenær er David Byrne væntanlegur til landsins til tónleikahalds? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum Nýjasta plata Kolling Stones hertir Woodoo Lounge. 11. ágúst og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 18. ágúst. Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 21. júli: 1. Woodoo Lounge. 2. Mick Jagger. 3. Keith Richards eða Ron Wood.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.