Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994
25
► A
Spænski söngvarinn Julio Iglesias:
tónli0t:
Heimsmeistari í plötusölu
Það gerist með ýmsum hætti að
tónlistarmenn velja lög á plötur
sínar. Spænski söngvarinn Julio
Iglesias var til dæmis einhveiju sinni
að horfa á viðtalsþátt Larrys Kings á
fréttasjónvarpsrásinni CNN. For-
setakosningabaráttan í
Bandaríkjunum var í algleymingi og
einn frambjóöandinn, Ross Perot,
dansaði við dóttur sína við lagið
Crazy sem Patsy Cline söng.
„Ég varð gagntekinn af þessu lagi,“
sagði Julio Iglesias þegar hann kom
fram hjá Larry King til að kynna
nýjustu plötuna sína. „Ég hef
sjáífsagt oft og mörgum sinnum heyrt
lagið áður en allt í einu fór ég að
hlusta og ákvað með sjálfum mér að
þetta lag skyldi ég hafa á næstu plötu
minni. I sömu mund gerði ég mér allt
í einu grein fyrir að Patsy Cline hefur
sennilega verið ein albesta dægur-
lagasöngkona Ameríku.“
Svo mikið var dálæti Iglesias á
laginu Crazy að hárin nefndi nýju
plötuna sína eftir því. „Ég átti í
stökustu erfiðleikum meö að syngja
það i hljóðverinu,“ segir hann. „Mér
finnst textinn vera þannig að það
þurfi að leggja tilfmningu í hvert orð.
Það má eiginlega segja að lagið hafi
verið tekið upp orð fyr ir orð. Svo mjög
var mér í mun að túíkunin væri rétt.“
Á plötunni Crazy eru tíu lög. Julio
Iglesias valdi þau ekki öll með sömu
gaumgæfni og titillagið. Eitt þeirra,
gamla Everly Brothers-lagið Let It Be
Me, er hann til dæmis búinn að hafa
á bak við eyrað í mörg ár og bíða eftir
rétta tækifærinu til að setja það á
plötu. Skyndilega fannst honum það
smellpassa við það hugarástand sem
hann var í þegar hann vann við Crazy
og inn fór það með dyggri aðstoð
söngvarans Arts Garfunkels. Fleiri
heimskunnir gestir eru á plötunni, til
dæmis Sting, Dolly Parton og ítalski
Julio Iglesias: Eg held áfram að syngja þar til ég dey. Að syngja fyrir fólk er eins og að njóta ásta án þess að þurfa að borga fyrir það.
songvarmn
Lucio Dalla.
og lagahöfundurinn
n
Qílí1 • i
Maður með meinloku
I heimsmetabók
Guinness
Crazy er ijórða plata Julios Iglesias
með enskum textum. Hann er hins
vegar duglegur við að hljóðrita á
öðrum tungumálum og syngur
raunar á sex tungumálum. Alls hafa
plötur hans selst í himdrað og sextíu
milljónum eintaka um allan heim.
Útgefandinn hirðir ekki einu sinni
um að geta allra litlu platnanna sem
selst hafa með söngvaranum en
honum hafa hlotnast 960 gullplötur
og 350 platínuplötur fyrir árang-
urinn. Áð auki er Julio Iglesias
kominn í heimsmetabók Guinness
fyrir að hafa selt fleiri plötur á fleiri
tungumálum en nokkur annar
listamaður.
Fjögur ár eru liðin siðan Iglesias
sendi síðast frá sér plötu fyrir
enskumælandi hluta heimsins. Frá
því að hún kom út og þar til vinna
hófst við Crazy sat hann ekki auðum
höndum. Hann fór í hljómleikaferð
um gjörvallan heiminn til að fylgja
plötunni eftir og dundaði sér jafn-
framt við aö syngja lögin inn á
spænsku fyrir spænskumælandi
hluta heimsins, frönsku fyrir hinn
frönskumælandi og svo framvegis.
Allur tíminn fer í tónlist. Julio
Iglesias, sem er orðinn rúmlega
fimmtugur, segist einfaldlega ætla að
halda áfram að syngja þar til hann
deyr. Hann er kominn á þann aldur,
að eigin sögn, að hann treystir sér
ekki til að dreifa kröftunum við
fyrirtækjarekstur eða annað slíkt. Þá
óttast hann að glata einbeitingunni
við að tjá sig í söng.
Gamall markvörður
Julio Iglesias ætlaði reyndar aldrei
að verða söngvari eða tónlistar-
maður. Hann er sonur efhaffæðings
og ætlaði sér stóra hluti í spænsku
utanríkisþjónustunni. Strákur var
hins vegar liðtÁkur knattspyrnu-
maður og var farinn að verja markið
hjá Real Madrid þegar hann lenti í
alvarlegu umferðarslysi nítján ára
gamall. Hann lamaðist upp að hálsi
og þurfti aö vera tvö ár í hjólastól
meðan hann var að ná sér.
Batinn kom hægt og sígandi með
þrotlausum sjúkraæfingum. Til aö
Julio Iglesias gæti liðkað á sér
finguma gaf einn aðstoðarlæknirinn
á sjúkrahúsinu honum gitar.
„Ég var ekkert að hugsa um að
leggja fyrir mig tónlist á þessum
tíma,“ segir söngvarinn. „Mig lang-
aði bara til að drepa tímann á ein-
hvem hátt og þaðvar alveg eins gott
að gutla á gítarinn og að gera eitthvað
annað. En allt i einu varð ég heltekinn
af tónlistinni - hún gjörbreytti öllu
fyrir mér. Ég veit satt að segja ekki
hvaö hefði orðið um mig ef tónlistin
hefði ekki komið inn í líf mitt. Mér
er ómögulegt að ímynda mérsjálfan
mig öðm vísi en syngjandi. Ég ætla
aö halda áfram að syngja þar til ég
dey. Mér dettur ekki i hug að setjast
i helgan stein þegar fram líða stundir.
Ég verð að halda áfram. Til dæmis
nærist ég á því að koma fram og
syngja fyrir fólk. - Það er eins og að
njóta ásta án þess að þurfa að borga
fyrir það!“
Madonnahefuraðund-
anförnu mátt búa við
þær hremmingar að
maóur nokkur, Todd
Lawrence, hefur ítrek-
að komið heim til henn-
ar, hringt dyrabjöllu og
hrópað:„Hæelskan,ég
erkominnheim!"þegar
opnað er. Todd þessi er
haldinn þeirri meinlegu
meinloku að hann sé
eiginmaður Madonnu
og honum sé því full-
heimilt að gera þetta.
Hann segist ekkert
skilja í því að öryggis-
verðir Madonnu séu
sífellt að handtaka sig þegar hann sé einfaldlega að koma heim
til elskunnarsinnar. Bæði Madonna og öryggisverðirnireru orðin
ákaflega þreytt á þessum uppákomum og nú hefur stjarnan
fengið úrskurð dómara þess efnis að Todd kallinum sé óheimilt
aðkomanærheimilihennarogöðrumvistarverumensemnemur
100 metrum. Jafnframt hefur Todd verió ákærður fyrir að rjúfa
friðhelgi heimilis Madonnu.
-SþS-
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem
allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar
þrjár léttar spumingar um tónlist. Fimm vinnings-
hafar, sem svara öllum spm’ningum rétt, hljóta svo
geisladisk að launum frá fyrirtækinu Japis. Að þessu
sinni eru verðlaunin diskurinn Ham lengi lifi með
samnefndri hljómsveit.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvers konar dagar eru út þennan mánuð í Japis?
2. Hvað gerist á hundadögum í Japis?
3. Hvaða dýr sjást í hundadagaauglýsingu Japis?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 18. ágúst og rétt svör
verða birt í tónlistarblaðinu 25. ágúst.
Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 28. júlí:
1. Ham lengi lifi.
2. Funkstrasse, Olympia, Daisy Hill, Drulla.
3. Jú/Nei.
Að þessu sinni er það diskurinn Ham lengi lifi með samnefndri
hljómsveit sem er í verðlaun.