Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1994, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1994 23 Myndbönd n Tombstone I Aðalhlutverk: KurtRussel, Val Kilmer I Þeir voru fjórir saraan: Wyatt Earp, bræð- ur hans Morgan og Virgil og síðast en ektó síst Doc Holliday. Deilur þeirra við Clanton og McClaury-bræður leiddu að lokura til hins raarg- fræga bardaga sem kenndur er við O.K. Vorrail. Þrír menn fóilu en í stað þess að Ijúka deilunum varð bardaginn upphaflð að blóðugustu smástyrj- öld sera átti sér stað í viilta vestrinu. Earp var ekki upphafsmaður stytjaldai'innar og vildi allt gera tii að koraa í veg fyrír hana. En þegar það mistókst þurfti hann að beita allri sinni kænsku til að sigra í henni. §Lævís leikur (Malice) Aðalhlutverk: Alec Baldwin, Nicole Kid- man og Bill Pullman Allt virðist ganga í haginn fyrir Andy og Tracy. Bæði eru þau í góðri vinnu, hjónabandiö er ham- ingjusamt og þau eru nýflutt i draumahúsið. En því miður veikist Tracy og veröur að fara í skurð- aðgerð. Lækninum, Jed Hiil, sem er aldavinur Andys, tekst að bjarga Iffi hennar, en vegna mís- taka bindur aðgerðín enda á ftögurra vikna með- göngu hennar og gerir hana ófrjóa. Þegar Tracy kemst að því hvaða mistök áttu sér stað fer hún í mál við lækninn og sjúkrahúsið en það kemur í ljós að málíð er ekki svona einfalt. AnotherStakeout Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss, Emilio Esteve/, og Rosie O'Donnel Richard Dreyfuss og Emilio Estevez eru fengn- ir til að hafa upp á týndu vítni sem hugsanlega er á leið til Seattle en í þetta skiptið fá þeir til liðs við sig aðstoðarsaksóknara til að stjórna aögerðum. Vandamálið er hins vegar aö aðstoð- arsaksóknarinn er kona og skapstór að auki. Þau gætu hugsanlega afrekað að hafa upp á hinu týnda vitni ef þau gengju ekki hvort frá öðru áður. 4House of the Spírits Aðalhlutverk: Jererriy lrons, Meryl Streep, Glenn Close, Winona Ryderog Antonio Banderas Myndin hefst í Chile rétt áður en herforingja- stjómin kemst til valda og segir sögu yíirstéttar- fjölskyldu einnar. fjölskyldufaðirinn, Esteban, efnaðist vel sem ungur maður viö gullgröft. Heit- kona hans lést stuttu áður en hann sneri til baka og giftist hann þá systur hennar. Auði fýlgja völd og aðstoðar hann við valdatöku hersins. Þegar dóttir hans vex úr grasi verður hún ást- fangin af almúgamanninum Pedro og mikill and- stæðingur skoðana föður síns. GuiityasSin | Aðalhiutverk: Rebecca DeMornay, Don * Johnsonog JackWarden horn að taka og örugg með síg. En hún hittir jafnoka sinn í David Greenhill sem er veraldar- vanur og tungulipur glaumgosi sem ákærður er fyrir morð á konu sinni. Hún laðast að honum vegna persónutöffa hans en eftir því sem kynnin verða nánari þvd meira efast hún um sakleysi hans. Skyndilega rennur upp fyrir henni aö David hefur í raun leitt hana í gildru og hefur ógnvænleg áform í huga. Væntanlegar kvikmyndir á myndbandi: Grín gert að þekktum sakamálamyndum Fjórir félagar, sem leiknir eru af Emilio Estevez, Cuba Gooding jr., Jer- emy Piven og Stephen Dorff, hætta sér á hættuliegt svæði í Judge- ment Night. Nokkrar kvikmyndir eru vænt- anlegar á myndbandi á næstu dög- um og kennir þar margra grasa. Warner-myndir sendir frá sér gam- anmyndina Fatal Instinct. Þetta er kunnuglegt nafn enda er skeytt saman nöfnum úr kvikmyndunum Fatal Atraction og Basic Instinct. Aðalpersónan er lögfræðingurinn Ned Ravine. Eiginkona hans hefur á pijónunum ráðagerð um að láta myrða hann, einkaritari hans vill ólm fá að sofa hjá honum og dular- full kona og skjólstræðingur Ravi- nes vill bæði sofa hjá honum og drepa hann. Aðalhlutverkin leika Armand Assante, Kate Nelhgan, Sean Young og Sherilyn Fenn. Judgement Night er mynd sem ClC-myndbönd gefur út í næstu viku. Fjallar myndin um íjóra fé- laga sem ákveða aö fara að skemmta sér en í stað þess að skemmta sér yfir boxkeppni lenda þeir í átökum við hóp sem vill þá feiga. Skökk beyja út af hraðbraut- inni færir þá inn í framandi hverfi þar sem allir utanaðkomandi eru óvinir í augum skuggalegra íbúa. Aðalhlutverkin leika Emilio Estevez, Cuba Cooding jr. og Denis Leary. Labour of Love er sönn saga sem fjallar um móður sem býr í Suður- Dakóta. Þegar hún fékk að vita að dóttir hennar gæti ekki eignast barn ákvað hún að ganga með egg frá dóttur sinni sem gert yrði frjótt með sæði úr tengdasyninum. Ákvörðun þessi olli miklum titr- ingi meðal margra í Bandaríkjun- um. Aðaihlutverkin leika Ann Jill- ian og Bill Smitrovich. Frá Sam- myndböndum kemur einnig út Irr- estable Force með leikaranum kunna, Stacy Keach, í aðalhlut- verki. Leikur hann rannsóknarlög- reglumanninn Harry Stone sem hefur það eitt í huga að komast óskaddaður á eftirlaun. En þegar hann fær nýjan félaga snúast hlut- irnir við þar sem félaginn, sem er ung kona, er ekki á þeim buxunum að taka lífinu með ró. Myndform sendir frá sér tvær myndir í næstu viku. Wild Justice er gerð eftir skáldsögu hins þekkta spennusagnahöfundar Wilbur Smith. Roy Scheider leikur mann sem hefur verið rekinn frá CLA og hefur störf hjá iðnjöfri sem fram- leiðir hátæknifcúnaö til nota í hem- aði. Hryðjuverkasamtök ásælast búnað þennan og beita öllum til- tækum ráöum til að komast yfir hann. Leikstjóri er Tony Wharmby. Hin þekkta sjónvarps- leikkona Jacklyn Smith leikur aö- alhlutverkiö í Love Can Be Nurder. Leikur hún lögfræðing sem allt gengur í haginn fyrir en samt finnst henni vanta einhvern tilgang í lífið. Dag einn ákveöur hún að láta draum rætast, fer til Los Ange- les og gerist einkaspæjari og eftir það fara hlutimar að gerast hratt í lífi hennar. Franska stórmyndin Germinal er byggð á skáldsögu eins af frægustu rithöfundum heims, Emile Zola. Er þetta dýrasta kvikmynd sem Frakkar hafa gert og gerist myndin skömmu fyrir síðustu aldamót og íjallar um réttindabaráttu hins franska verkalýðs ásamt því að varpa ljósi á líf þessa fólks. Aðal- hlutverkið leikur stórleikarinn Gerard Depardieu. Skífan gefur einnig út Age of Treason sem íjall- ar um Falco, seinheppinn einka- spæjara sem stundar starfa sinn í Róm 69 f. Kr. Hann og félagi hans taka að sér að hafa uppi á horfnum syni alþekkts þingmanns. Þeir eru fljótir að flækjast í svikavef og ráðabmgg sem gæti skipt sköpum um framtíð keisaradæmisins. Aö- alhlutverkin leika Bryan Brown, Matthias Hues og Amanda Pays.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.