Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1994, Síða 2
16
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
Opið laugardag 10-13
Bflar
Givarahlutir
HAMARSHÖFÐA1 • 67 67 44
Kynningarakstur Honda Accord Aerodeck 2,2i ES:
Aflmikill, lipur og
sérlega vel búinn
Honda Accord Aerodeck er rennilegur langbakur sem sameinar vel kosti fólksbíls og stationbíls án þess að glata
sportlegu útliti og góðum aksturseiginleikum. DV-myndir ÞÖK
Góður aðgangur er að rúmgóðu farmrýminu sem er sérlega vel bólstrað.
Hægt er að auka nýtingu þess mikið með því að leggja fram bak aftursætis
að hluta eða alveg.
Það fer vel um ökumann við stýrið, öll stjórntæki eru innan seilingar og
frágangur er til fyrirmyndar.
KONI
HÖGGDEYFAR
Þegar veggrip, /l
öruggur akstur / t
og sparnaður /
skipta máli /
' / ... þá er
/ KONI rétta svariö!
/mmm sp
Bildshöfða 14 - sími 672900
OPIÐ
laugardaga
10-13,
virka daga 8-19.
Varahlutir í alla bíla.
Gott verð.
BÍLAHORNIÐ
Varahlutaverslun Hafnarfjarðar
Reykjavíkurvegi 50
símar 51019, 52219
ÚRVAL BÍLA
Tegund Árg. Ek. Verð
Mazda323GLXi '92 40 þ. 1.090 þ.
Saab900i '85 130 þ. 550 þ.
Subaru1800DL '90 72 þ. 890 þ.
Volvo740GLE '84 155 þ. 480 þ.
JaguarXJ6 '85 150 þ. 1.950 þ.
DaihatsuApplause '91 60 þ. 880 þ.
BMW318Í '87 85 þ. 850 þ.
ToyotaCarinaE '93 32 þ. 1.670 þ.
DoOgeCaravan '85 101 þ. 750 þ.
ToyotaTercel '87 89 þ. 630 þ.
Renault19RT '93 21 þ. 1.270 þ.
Chev.MonteCarlo '87 77 þ. 970 þ.
HondaCivicDX '89 69 þ. 600 þ.
SubaruJustyJ-12 '91 75 þ. 690 þ.
NissanVanette,8 '91 33 þ. 1.050 þ.
manna,
Ford Econoline dísil '91 89 þ. 1.890 þ.
Erum með kaupendur aö MMC
Pajero ’91-’92, Nissan Sunny 4x4
’91-’93, Toyota touring 4x4
’90-’93.
Mikið fjör í
bílaviðskiptum
Toppþjónusta
Opið: mánudag til föstudags
kl. 9.30 «11 19.00.
Laugardaga kl. 10.00
tll 17.00.
(b) í bím briii hf.
Borgartúni 26
Símar 617510 og 617511
STÖÐVUM BÍLINN
ef við þurfum aö
tala í farsímann!
Fimmta kynslóð Honda Accord var
kynnt hér á landi á síðasta vori og
þá var fjallað um þennan nýja bíl
eftir stuttan kynningarakstur hér á
síðum DV-bíla. Þá var fjallað um
hefðbundna fólksbílsgerð þessa nýja
bíls en á dögunum bættist station-
gerð Accord í hópinn. Eru þaö verk-
smiðjur Honda í Bandaríkjunum
sem annast framleiðslu á þessari
gerð bílsins og hafa raunar gert allt
frá árinu 1990.
Accord Aerodeck kalla þeir hjá
Honda skutbílsgerö Accord en í útbti
fer þessi stationgerð ekki alveg hefð-
bundnar leiðir í útliti því straum-
línulag afturendans, sem nánast hef-
ur verið skeytt við fólksbílinn á lipr-
an hátt, gefur bílnum mun sportlegra
útbt en margir heföbundnir station-
bílar hafa. Þetta er svipuð leið og
Toyota kaus að gera við stationgerð
Carina E sem þykir líka vel heppnað-
ur bfll.
Vegna þess aö við erum í raun að
fjalla að mestu um sama bíl og var
ekið fyrr á þessu ári þá er rétt að
grípa niður í brot úr þeirri umfjöllun:
„Ef horft er til japanskra bíla í
millistærðarflokki þá kemur það
eflaust mörgum nokkuð á óvart að
það er ekki bíll frá Toyota, Mitsu-
bishi eða Nissan sem hefur átt hvað
mestum vinsældum aö fagna á er-
lendum bílamarkaði heldur er það
Honda Accord. Það er einkum á
Bandaríkjamarkaði sem bílbnn hef-
ur slegiö í gegn á þeim tíma sem lið-
inn er frá því að hann sá fyrst dags-
ins ljós á árinu 1976. Á Uðnu hausti
frumsýndu Honda-verksmiðjurnar
fimmtu kynslóðina af þessum vinæla
bíl sem hefur ahs selst í yfir sjö og
hálfri milljón eintaka frá upphafi og
meirihluti þeirrar sölu hefur verið á
Bandaríkjamarkaði.
Þessi nýi Honda Accord sló svo
sannarlega í gegn um leiö og hann
birtist á liðnu hausti þar vestra og
var til dæmis í vetur valinn „Import
Car of the Year“ af bandaríska bíla-
blaðinu Motor Trend.
Sumir þeirra sem skrifað hafa um
þennan nýja Accord í erlend bílablöð
hafa tekið svo djúpt í árinni að segja
Accord vera einn besta bílinn sem
er í boði í dag.
Það hefur líka þurft nokkuð til að
endurbæta bíl sem var efstur á sölu-
bsta í Bandaríkjunum á árunum 1989
til 1991.“
Góðir aksturs-
eiginleikar
„Það er gaman að aka þessum nýja
Accord því aksturseiginleikar eru
stórgóðir. Fyrstu viðbrögð við bíln-
um eru hve vel hann Uggur á vegi.
Veggrip er mjög gott og þrátt fyrir
yfirdriflð afl verður þess lítt vart aö
hann losi veggripið þótt hressilega
sé gefið inn.“ Þetta var niðurstaðan
eftir akstur fólksbílsins í vor og þessi
niðurstaða stendur fylhlega enn. Að
visu er aflið meira því 2,2 lítra, 150
hestaíla vélin skilar bílnum svo
sannarlega vel áfram.
„Stýrið virkar í fyrstu nokkuð
þungt en strax eftir nokkurra metra
akstur er þetta kostur sem ekki er
hægt að horfa fram hjá því þetta á
án efa sinn þátt í að skapa stöðug-
leikatilfinningu í akstri.
Fjöðrun er nokkuð slagstutt og
virkar stíf þegar ekið er á „vondum”
vegi en nú, þegar bundið slitlag þek-
ur æ meira af yfirborði íslenskra
vega, er þessi tegund flöðrunar til
bóta.
Það var aðeins þegar ekið var hratt
eftir þjóðvegi með ósléttri olíumöl að
flöörunin virkaði of stíf. í öhum
venjulegum innanbæjarakstri er
hún góð.“ Við þetta er því að bæta
að ef eitthvað er þá eru aksturseigin-
leikar Aerodeck enn betri en fólks-
bílsins og munar þá eflaust um þá
tíu sentímetra sem þessi bíh er lengri
en sá sem við vorum að flaha um hér
á síðunum í vor.
Fullmikið veghljóð
Eitt af því örfáa sem hægt var að
finna að þessum nýja Accord í akstr-
inum í maí var að veghljóð er fuh-
mikið í venjulegum akstri. Ef eitt-
hvað er þá er veghljóð eihtið meira
í þessum bíl enda bætist farmrýmið
við og gefur því möguleika á meiri
hljóðmyndun. Hins vegar stendur
enn að bíllinn er alveg laus við vind-
gnauð og þegar ekið er eftir alveg
nýju malbiki þá líður hann nánast
hljóðlaust áfram.
Rúmgóður
Honda Accord Aerodeck er rúm-
góður bíll og býður upp á Qölhæfni
í notagildi. Einkum nýtist farmrýmið
vel hjá þeim sem þurfa að flytja ehít-
ið meiri farangur en í hefðbundnum
fólksbíl.
Það kemur að vísu nokkuð á óvart
hve lágt er til lofts í bílnum, sem er
með sóllúgu, þegar horft er til þess
hve miklum vinsældum hann hefur
átt að fagna í Bandaríkjunum. Það
þarf ekki sérlega hávaxna menn til
að þeir strjúkist við loft þegar setið
er í framsæti og sömuleiðis leyfir
ekki af hæöinni til lofts þegar setið
er í aftursæti.
Á hinn bóginn er fótarými yfirdrif-
ið og einnig fer vel um fullvaxna
karlmenn hvað axlarrými varðar
bæði í aftursæti og framsæti.
Lipur og aflmikill
Góðir aksturseiginleikar voru und-
irstrikaðir hér að framan og góö vísa
er aldrei of oft kveðin. Það fer vel
um ökumann í akstri, stýrið fellur
vel að hendi og stjórntæki eru greini-
leg og innan sehingar.
Afhð er yfirdrifið. Þetta er sú ein-
falda staðreynd sem mætir manni
við akstur þessa bíls. Vélin, sem er
tæpir 2,2 lítrar að rúmtaki, gefur 150
hestöfl sem er yfirdrifið við hvaða
aðstæður sem er og stórgóð og Upur
sjálfskiptingin sér um að flytja aflið
létt og liðlega. Skiptingin er með tvo
valkosti, D3 til nota innanbæjar þeg-
ar ekki er þörf á því að hún skipti
sér í yfirgír og svo D4, en þá leitast
hún við að skipta í efsta þrepið, yfir-
gírinn, hvenær sem aksturslagið
leyfir.
Sérlega vel búinn
en nokkuð dýr
Hvar sem á þennan bíl er litið er
þetta sérlega vel búinn bíll. Það er
nánast ekkert sem venjulegur öku-
maður getur óskað sér í viðbót hvað
varðar hefðbundinn búnað því nán-
ast allt sem í mörgum tilfellum verð-
ur að panta sem aukabúnað í öðrum
bílum er hér staðalbúnaður.
En allt þetta kostar líka sitt og þessi
bíll er ekki með þeim ódýrari því
hann kostar 2.990.000 krónur en á
móti kemur aö hér fæst hka mikið
fyrir peningana. Vilji menn fá sér-
lega sportlegan fólksbíl með góða
flutningsgetu, án þess að tapa akst-
urseiginleikunum, þá er Honda Acc-
ord Aerodeck góður kostur.
Hugsanlega
líka ódýrari
Vestur í Ameríku er Aerodeck líka
í boði með 2,0 lítra vél, bæöi hand-
skiptur og sjálfskiptur. Gylfi Gunn-
arsson hjá Hondaumboðinu sagði þá
vera að vinna í því að fá slíka bíla
líka hingað en augljóst væri að 2,0i-
bílbnn myndi koma verulega hag-
stæðar út í verði vegna betri flokkun-
ar í tolli, auk þess sem bíllinn væri
ódýrari. Hann sagðist ekki vita um
verð á slíkum bíl en vel mætti ætla
að það gæti farið niður fyrir tvær og
hálfa mhljón króna sem væri þá orð-
ið gott verð fyrir mjög vel búinn bíl
því þótt véhn sé minni er búnaður
bílsins nánast sá sami.
-JR