Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1994, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
25
Bílar
Hátækni á bak við glerið
Enn ny tækni 1 billjosum fra Hella:
„Margur er knár þótt hann sé smár“ er nokkuð sem segja má með
sanni um nýjustu aukaljósin frá Hella sem nýlega komu fram á sjónar-
sviðið. Ljósið er ekki nema 12 sentimetra breitt og sex og hálfur sentí-
metri á dýpt. í stað þess að vera með gler sem sér um að stýra því
hvert Ijósið kastast er það tölvuteiknaður Ijósbotninn sem sér um að
kasta Ijósinu fram á veginn þannig að það nýtist sem best.
Enn á ný kemur þýski ökuljósa-
framleiðandinn Hella fram á sjón-
arsviðið með nýja gerð aukaljósa.
Hella varð fyrstur framleiðenda til
að koma fram með svokallað FF-
ljós, sem stendur fyrir „free-form“,
en með þvi er átt við sérstaka hönn-
un ljósbotnsins sjálfs.
„Micro FF“, en svo kallast þetta
nýja ljósker, er fyrsta aukaljósið
frá Hella sem er þannig hannað að
glerið framan á ljósinu stjórnar því
ekki hvernig ljósgeishnn kastast
fram á veginn. Það er sem sagt ljós-
botninn, eða öllu heldur form hans,
sem sér um að kasta ljósinu rétt
fram á veginn. Glerið sér aðeins
um að vemda og loka ljósinu.
Hella notaði þennan tölvuteikn-
aða ljósbotn fyrst árið 1988 í fjölda-
framleidd ökuljós en ári síðar
komu fyrstu aukaljósin fram á
sjónarsviöið. Meginhönnun ljóss-
ins byggist á því að sérhver hluti
ljósbotnsins sér um að kasta ljós-
inu rétt fram á veginn fyrir fram-
an. Þetta þýðir að tölvuteiknaður
ljósbotninn nýtir ljósið frá perunni
til fulls og stýrir því nákvæmlega
fram á veginn.
í kjölfar þessara nýju ljósa komu
svokölluð „fiskaugu" fram á sjón-
arsviðið en það er ný gerð auka-
ljósa, einkum þokuljósa, sem bygg-
ist á sterkri linsu fyrir framan ljós-
gjafann. Slík ljós hafa rutt sér mjög
til rúms á undanfórnum árum
vegna þess hve vel þau henta í rign-
ingu og skafrenningi. Auk ljósanna
frá Hella eru það shk ljós frá IPF,
sem Bílabúð Benna selur, og PLAA,
frá Heklu, sem hafa náð vinsældum
á markaðnum hér.
Þessi nýja tækni hefur það í för
með sér að hægt er að minnka ljós-
in mikið án þess að ljósmagnið frá
þeim rýrist.
Micro FF-ljósið er með um 80
gráðu ljósgeisla og nær að lýsa upp
miðju vegarins ásamt vegköntun-
um. Ökumenn njóta kostanna helst
við akstur í þoku. Blár hlífðar-
skjöldur fyrir framan peruna sér
um að „klippa" ljósgeislann í sund-
ur og koma í veg fyrir að ökumaður
fái glýju í augun.
Sjáíft ljósopið er aðeins 92 sinn-
um 61 millímetri. Ljósið í heild er
120 mm breitt, 65 mm djúpt og 112
mm hátt og það vegur aðeins um
400 grömm. Auðvelt er að festa það
með einni skrúfu úr miðjum fætin-
um eða með sérstökum festibún-
aði, sem einkum er ætlaður plastst-
uðurum á mörgum nýju bílunum.
Hægt er að setja Micro FF á aha
bíla, jafnt upprétt og „á hvolfi“.
Hér sést stærðin á Ijósinu vel en
þaö vegur aðeins um 400 grömm.
Búið er að gefa því viðurkenningu,
bæði innan ECE-staðla Evrópu-
bandalagsins og SAE í Bandaríkj-
unum.
Að sögn Gunnars Jóhannssonar
hjá Jóhanni Ólafssyni og Co, um-
boðsaðila Hella á íslandi, er stutt 1
það að þessi htlu en aflmiklu Ijós
komi á markað hér á landi og má
reikna með því að parið komi til
með að kosta um tíu þúsund krón-
ur.
Á myndinni er Erna Sigurðardóttir, sölumaður hjá Toyota, að afhenda Oddi og Þóru nýja bílinn.
Toyota-umboðið:
Rúmlega 13 prósent sölu-
aukning frá fyrra ári
- eitt þúsundasti bíllinn á árinu afhentur nýlega
Nú brunarhreinsiefnabættShell-
bensín um landið í Renault bíl-
um. Hér standa þeir kampakátir
við frönsku gæðingana, Heiðar
Sveinsson, sölustjóri hjá Bila-
umboðinu hf„ og Þórir Haralds-
son, framkvæmdastjóri rekstrar-
sviðs hjá Skeljungi hf.
Mynd: DV-bílar ÞÖK
Shell
kaupir
Renault
Sú var tíðin að samasemmerki
var sett mihi tegundarheitisins
Renault og ódýrra smábíla. Re-
nault framleiðir enn hagkvæma
smábíla en er jafnframt einn
stærsti vörubílaframleiðandi
heims. Þetta eru útgerðarmenn
íslenskra vörubíla famir að skiija
og æ algengara verður að sjá Re-
nault vörubíla á íslenskum veg-
um.
Nýlega keypti olíufélagið Skelj-
ungur tvo fýrstu vörubílana af
Renault gerð. Þetta eru öflugir
bílar og vel búnir, með 300 lítra
ohutank með læstu loki. Af stað-
albúnaöi má nefna hækil (undi-
rakstursvörn á kansellímáli), lóð-
rétt púströr, verkfærasett, tjakk
og útvarp, svo að nokkuð sé
nefnt. Vélarnar eru 226 hestöfl,
850 Nm. v. 1300 sn. mín., 6 gírar.
Burður á öxlum er 7.500 kg að
framan, 13.000 kg að aftan, nið-
urgírun i hiólnöfum og driflás.
Fjöðrun er parabólufjaörir með
dempurum og jafnvægisstöng
aftan og framan.
Nýlega fengu hjónin Oddur Þ. Her-
mannson og Þóra Þórarinsdóttir af-
hentan nýjan Corolla Liftback. Það
sem var merkilegt við afhendingu
þessa bíls var að þetta er eitt þúsund-
asti nýi bíhinn sem Toyota-umboðið
afhendir á þessu ári. Salan hefur
gengið mjög vel það sem af er árinu
og er Toyota með rúmlega 13% aukn-
ingu á milh ára þrátt fyrir að heildar-
sala á bílum hafi á sama tíma dregist
saman um tæp 10%.
Markaðsforysta Toyota hefur verið
afgerandi og eru nú seldir tæplega
400 fleiri Toyotabílar en af nokkurri
annarritegund. „Nýafstaðinrýming-
arsala á nýjum bílum af ’94 árgerð
mæltist vel fyrir hjá viðskiptavinum
okkar,“ segir Loftur Ágústsson, aug-
lýsingastjóri Toyota, „og nú er svo
komið að aðeins fáa bíla á eftir að
afhenda viðskiptavinum og minnir
lagerstaðan einna helst á þegar sala
á bílum var með mesta móti ’86 og '87.
Við erum bjartsýnir á að haustið
verði gott í sölu og höfum undirbúið
okkur samkvæmt því en við munum
kynna árgerðir 1995 fyrri partinn í
september. Um leið verðum við með
forsýningu á nýjum bíl frá Toyota
sem farið hefur sigurför um heiminn
undanfama mánuði og verður að öh-
um hkindum tilnefndur sem þátttak-
andi í keppninni um „bíl ársins“.
$ SUZUKI
-MV ....
Tegund Arg. EklnnStgrverð
Suzuki SwHtGL 1300,4 d. '90 36 þ. 670 þ.
Suzukl Swift GL1300,4 d. '91 58 þ. 690 þ.
Suzuki SwHt GL, 3 d., sjálfsk. '91 19 þ. 715 þ.
Suzuki SwiftGL, 3d. '89 78 þ. 430 þ.
Suzuki Swifi GL, S d. '89 55 þ. 490 þ.
Suzuki Swifl GL, 3 d., sjáHsk. '91 30 þ. 690 þ.
Suzuki Vitara JLX, 3 d. '91 80 þ. 1.180 þ.
Suzuki Vilara JLX, 5 d. '92 52 þ. 1.750 þ.
Suzuki Samurai 413 '88 90 þ. 570 þ.
SuzukiSamural413 '91 35 þ. 830 þ.
SuzuklSamura!413 '91 66 þ. 795 þ.
SuzuklSamurai413 '93 9þ. 1.150 þ.
Subaru coupé 1800, ssk., 4x4 '89 83 þ. 760 þ.
Econoilne E-350 4x4,36" dekk '85 92 þ. 1.590 þ.
FordBroncoXLT '87 80 þ. 990 þ.
LadaSport '90 51 þ. 400 þ.
Nissan king cab dísil '91 36 þ. 1.380 þ.
Mazda323LX,3d. '88 118 þ. 450 þ.
Subaru1800,4d. '86 105 þ. 540 þ.
Dodge Dakota pickup, ssk., vsk. '90 34 þ. 1.450 þ.
Dalhatsu Applause XL1600, '91 30 þ. 970 þ.
ssk.
MMC Colt, 3 d., sjálfsk. '88 88 þ. 530 þ.
DalhatsuCharade,3d. '88 102 þ. 340 þ.
MMC Colt GL, 3 d. '91 86 þ. 650 þ.
Ral Horino sendibill '92 15 þ. 690 þ.
Peugeot205|unior,5d. '91 65 þ. 450 þ.
Skoda Favorit '89 79 þ. 150 þ.
Daihatsu Charade CX, 5 d., ssk. '86 91 þ. 250 þ.
RatUno45,3d. '88 103 þ. 180 þ.
Daihatsu Charade TS, 3 d. '87 81 þ. 280 þ.
ToyotaCorolla1300,4d. '87 102 þ. 420 þ.
$ SUZUKI
■ðW ■ ....... ■
SUZUKI BÍLAfí HF.
SKEIFUNNI 17 ■ SlMI 685100
Munid eftir 6-36,
6 mánaða ábyrgð og
36 mánaða greiðslukjörum
eða Visa-Euro-greiðslum.
Sími 642610
MMC Lancer GLX 1500 ’90, 5 gíra,
4 dyra, rauður, ekinn 80 þús. km.
Verð 850.000 kr.
Peugeot 405 GR 1900 '92, sjálfsk.,
4 dyra, Ijósdrapp., ekinn 52 þús. km.
Verð 1.170.000 kr.
OPIÐ:
virka daga frá kl. 9.00-18.00,
laugardaga frá kl. 12.00-16.00.
NOTAD/R B/IAR
Skeljabrekka 4, Kópavogi