Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Side 4
20
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
Sýningar
Ásmundarsafn
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir Ásmund
Sveinsson og Kristin E. Hrafnsson sem ber yfir-
skriftina „Hér getur ailt gerst". Sýningin er opin
alla daga frá 10-4 og mun standa til áramóta.
Café Mílanó
Faxafeni 11
Nú stendur yfir samsýning listkvenna frá Stúdíó
Höfða. Sýningin er opin kl. 9-19 mánudaga,
9- 23.30 þriðjud., miðvikud. og fimmtud., kl. 9-1
föstud., laugard. og sunnud. kl. 9-23.30.
Eden
Hveragerði
Þar stendur yfir sýning Sigmars V. Vilhelmssonar
á vatnslitamyndum og pennateikningum. Einnig
sýnir Bragi Einarsson pennateikningar, vatnslita-
myndir og kolateikningar af ýmsu þekktu fólki og
Hvergerðingum.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Vesturíslenska listakonan Móa Romig Boylessýn-
ir verk sín dagana 17. september til 2. október.
Verk Móu eru mjög óvenjuleg og vinnur hún úr
ýmsum efnum, t.d. tuskum, leir, pappa, tré o.fl.
Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 12-18
en frá 14-18 um helgar.
Gallerí Birgis Andréssonar
Kristján Steingrímur Jónsson sýnir verk sín í Gall-
eríi Birgis Andréssonar. Sýninguna kallar Kristján
Steingrímur „Horfur". Sýning þessi er innsetn-
ing/installation þar sem allt rými sýningarsalarins
er nýtt sem ein heild. Sýningin er opin á fimmtu-
dögum frá kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. Gall-
erí Birgis er til húsa á Vesturgötu 20, á horni Vest-
urgötu og Norðurstígs.
Gallerí Borg
Pétur Gautur Svavarsson sýnir um tuttugu og
fimm ný olíumálverk sem öll eru tjl sölu. Sýningar-
salurinn er opinn alla virka daga kl. 12-18 og
14-18 laugardaga og sunnudaga. Sýningin mun
standa til 25. september.
Galleri einn einn
Skólavöröustíg 4a
Laugardaginn 17. september var opnuð sýning
Þorbjargar Pálsdóttur og stendur hún til 29. sept-
ember. Þorbjörg sýnir nýja skúlptúra og eldri verk.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí Fold
Laugavegi118d
Laugardaginn 10. september kl. 15 var opnuð í
baksal Gallerí Foldar, Laugavegi 118d (gengið inn
frá Rauðarárstíg), sýning á verkum Eggerts Magn-
ússonar listmálara. i kynningarhorni gallerísins
sýnir Kristín Geirsdóttir pastelmyndir. Opið dag-
lega frá kl. 10-18 nema sunnudaga frá kl. 14-18.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 25. september.
Allar myndirnar eru til sölu.
Galleri Greip
Hverfisgötu 82
Snæfríð Þorsteins sýnir verk í grafískri hönnun
og iðnhönnun sem hún vann á frjálslegan hátt
með þemað um ritlistina að leiöarljósi. Sýningin
er opin alla daga vikunnar að mánudögum undan-
skildum fré kl. 14-18 en henni lýkur 28. septemb-
er.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema laugar-
daga kl. 11-14.
Gallerí Regnbogans
I Regnboganum er nú sýning á málverkum Egils
Eðvarðssonar. Á sýningunni mun Egill sýna olíu-
málverk úr myndröðinni Árstíðirnar. Galleríið verð-
ur ávallt opið þegar kvikmyndasýningar standa
yfir.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstíg 1
Þar stendur yfir 9. einkasýning Guðrúnar Gunnars-
dóttur. Á sýningunni eru Þráðarverk unnin úr vír
og gúmmíi. Sýningin stendur til 5. október. Gallerí-
ið er opið þriðjud.-laugard. kl. 13-18 og sunnud.
kl. 14-18. Lokað mánudaga.
Galieri Sólon islandus
Laugardaginn 17. september opnaði Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur myndlistarsýningu. Þar
sýnir hann myndir unnar með blandaðri tækni
(vatnslitamyndir, krítarteikningar og gvass) sem
hann hefur unnið að undanfarin ár jafnframt rit-
störfum. Sýningin stendur til 3. október og er
opin alla daga frá kl. 11-18.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Eggert Pétursson sýnir í Galleríi Sævars Karls 16.
sept. til 6. okt. Verkin á sýningunni eru máluð
með mörgum lögum lita og olíu á striga. Þau eru
unnin á undanförnum þremur árum. Sýningin er
opin á verslunartímum á virkum dögum frá kl.
10- 18.
Gerðuberg
Núna stendur yfir sýning á verkum Ingu Svölu
Þórsdóttir í Menningamiðstööinni Gerðubergi. Á
sýningunni eru skúlptúrar og tilheyrandi textar,
video, Ijósmyndir og teikningar. Sýningunni er
ætlað að kynna þjónustu sem Inga Svala býður
upp á og nefnir Thór's daughter's pulverization
service. Sýningin er opin frá kl. 10—21 mánudag
til fimmtudag og frá kl. 13-17 föstudaga til sunnu-
daga. Sýningunni lýkur 2. október.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Margrét Þ. Jóelsdóttir opnar myndlistarsýningu
sína „Gluggað" laugardaginn 24. september kl.
14. Á sýningunni eru olíumálverk, vatnslitamyndir
og pastelmyndir, auk frístandandi mynda, en ekk-
ert verkanna hefur áður verið sýnt opinberlega.
Sýningin stendur til 10. október og er opin alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. i Sverrissal
er sýning á vatnslitamyndum eftir Jóhannes Kjar-
val. Laugardaginn 24. september opna Dröfn
Guðmundsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir
sýningu sína. Sýningin ber nafnið „Gler og graf-
ík". Dröfn sýnir glerskúlptúra en Margrét grafík-
myndir. Kaffistofan er opin frá kl. 10-18 virka
daga og frá kl. 12-18 um helgar.
Hótel Holidaylnn
Edda María Guöbjörnsdóttir opnar málverkasýn-
ingu laugardaginn 24. september kl. 14 á tæplega
30 olíumálverkum. Sýningin er opin frá kl. 10-22
alla daga vikunnar.
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 24. september kl. 16 verður form-
lega opnuð að Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á
verkum Magnúsar Pálssonar. Magnús hefur um
langt árabil verið í fremstu röð íslenskra framúr-
stefnulistamanna og einkum unniö skúlptúra,
umhverfisverk og performansa. Sýningin verður
opin daglega frá 24. september til 23. október frá
kl. 10-18. Kaffistofa Kjarvalsstaða verður opin á
sama tíma.
Sýningar
Listgallerí
Listhúsinu i Laugardal
Þar stendur yfir útgáfusýning bókarinnar, „Lækna-
bókin, heilsugæsla heimilanna". Listgalleríið er
opið 10-18 virka daga, 10-16 á laugardögum og
14-16 á sunnudögum.
Listahornið
Skólabraut 31, Akranesi
Hólmfríður Valdimarsdóttir sýnir vatnslitamyndir.
Sýningin stendur til 31. september.
Listasafn Akureyrar
Laugard. 3. sept. voru opnaðar 2 myndlistarsýn-
ingar. Helgi Vilberg sýnir verk sem eru upplifanir
og hughrif frá náttúrunni, færð í nær óhlutlægan
búning. i vestursal sýnir Jón Sigurpálsson gólf-
og veggmyndir sem allar eru frá þessu ári. Safnið
er opið alla daga nema mánudaga kl. 14-18.
Sýningarnar standa til 28. sept.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi
Þar stendur yfir sýning Þórdísar Rögnvaldsdóttur
á olíumálverkum og mun sýningin standa til 25.
september. Opið daglega kl. 14-19 nema miðviku-
daga.
Listasafn Einars Jónssonar
Niarðargötu, simi 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16.
Lokað desember og janúar. Höggmyndagarðurinn
er opinn alla daga. Inngangur frá Freyjugötu.
Listasafn ísiands
i tilefni 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins stend-
ur nú yfir sýningin i deiglunni 1930-1944, Frá
alþingishátíð til lýðveldisstofnunar - islenskt
menningarlíf á árunum 1930-1944. Sýningin mun
standa yfir fram í október. Safnið er opið alla daga
nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs-
Geröarsafn
Hamraborg 4, Kópavogi, simi 44501
i Gerðarsafni stendur yfir sýning á verkum í eigu
safnsins. Sýningin stendur til 25. september. Safn-
ið er opið frá 12-18 alla virka daga nema mánu-
daga. Kaffistofan opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
islandsmerki og súlur Sigurjóns Ólafssonar heitir
sýningin sem nú stendur yfir. Hér er um að ræða
hátíðarsýningu í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldis-
ins. Sýningin mun standa til áramóta. Safnið er
opið laugard.-sunnud. kl. 14-17.
Listasafn Háskóla Íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum
í eigu safnsins. Opið er daglega kI. 14-18. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustig
Þar stendur yfir sýning á verkum Jenny Holzer
en hún er einn af virtustu listamönnum sam-
tímans. Hluti sá sem er til sýnis á Mokka saman-
stendur af 14 Ijósmyndum af skinni og á það
hefur Jenny Holzer handritað texta en texti hefur
verið aðalviðfangsefni hennar til þessa. Sýningin
nefnist „Lostamorð" og fjallar um nauðganir á
konum í Bosníu. Tilvitnanir sem ritaðar eru á hör-
undið eru tilvitnanir í fórnarlömb, gerendur og
áhorfendur/syrgjendur. Textann vann Jenny
Holzer upp úr vitnisburðum og fréttum, skrifaði á
skinn sem síðan var Ijósmyndað. Sýningin stendur
yfir í mánuð. Opið er frá kl. 9.30-23.30 alla daga
nema sunnudaga frá kl. 14-23.30.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Sérsafn á sviði lækningaminja. i safninu eru sýnd-
ar minjar sem tengjast sögu heilbrigðismála á Ís-
landi frá miðri 18. öld og fram til okkar daga. Á
tímabilinu 15. september 1994 til 14. mai 1995
verður enginn tiltekinn opnunartími en safnið ein-
ungis opið samkvæmt umtali. Er þeim sem hafa
áhuga á að skoða safnið bent á að hafa samband
við skrifstofu’þess í síma 611016.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstig
Laugardaginn 24. september kl. 17 opnar Ólafur
Lárusson myndlistarmaður sýningu. I neðri sal
vinnur hann innsetningu og í efri sölum verða
sýnd verk unnin i blandaða tækni. Gestur í Setu-
stofu að þessu sinni er Arnfinnur R. Einarsson.
Hann sýnir úrval myndbanda og tölvuverk. Safnið
er opið daglega frá 14-18. Sýningarnar standa til
9. október.
Norræna húsið
Laugardaginn 24. september kl. 14 opnar Haf-
steinn Austmann sýningu á oliumálverkum og
vatnslitamyndum. Til sýnis eru verk sem unnin
voru á timabilinu frá 1984 til 1994. Sýningin er
opin daglega frá kl. 14-19 og lýkur 9. október. í
andyri Norræna hússins stendur yfir sýning á áug-
lýsingaveggspjöldum af norrænum kvikmyndum.
Veggspjöldin spanna 30 ára tímabil norrænna
kvikmyndaauglýsinga.
Leiðin til lýðveldis
Viðamikil samsýning Þjóðminjasafns og Þjóð-
skjalasafns á munum, Ijósmyndum, skjölum, bún-
ingum, vaxmyndum og mörgu öðru, sem tengist
sögu sjálfstæðisbaráttunnar frá dögum Fjölnis-
manna 1830 til lýðveldishátíðar 1944, hefur verið
opnuð í Aðalstræti 6 - gamla Morgunblaðshús-
inu. Sýningin mun standa til 1. desember. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Sýningarsal-
ur Þjóðminjasafnsins v/Suðurgötu verður lokaður
til 1. október.
Ófeigur listmunahús
Skólavöröustig 5
Fimmtudagin 22. september opnaði Inga Elín
Kristinsdóttir gler- og leirlistarkona sýningu á verk-
um sínum. Um leið opnar hún í sama húsi list-
munaverslun þar sem úrval listmuna hennar verð-
ur til sölu, svo sem glermyndir, bæði í glugga og
á veggi, diskar og bollar úr postulini, glerskálar,
lampar, Ijósker og kertastjakar, glerlampar og Ijós,
nælur vasar og margt fleira. Sýningin stendur í
eina viku en listmunahús Ingu Elínar verður ppiö
framvegis virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl.
11-14.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarfirói, simi 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 1 &-18.
Safn Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, simi 13644
Nú stendur yfir sýning á myndum sem Ásgrímur
málaði á Þingvöllum. Sýningin mun standa fram
í nóvember. Safnið er opið laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 13.30-16.
Sjóminjasafn islands
Vesturgötu 8, Hafnarfiröi, s. 654242
Sjóminjasafnið er opið alla daga kl. 13-17.
Edda María Guðbjörnsdóttir sýnir
tæplega 30 olíumálverk á Holiday
Inn.
Málverkasýning
á Holiday Inn
Sýning verður opnuð á á verkum
Eddu Maríu Guðbjörnsdóttur á
Holiday Inn á laugardag kl. 14. Sýnd
verða tæplega 30 olíumálverk. Þetta
er fimmta einkasýning Eddu en hún
hefur m. a. sýnt í Hafnarborg, Mál-
araglugganum, á Vopnafirði og Hótel
Norðurljósum á Raufarhöfn. Verkin
eru unnin á tveimur síðustu árum.
Síðasta sýningarhelgi:
Olíuverk í Fold
Á sunnudag lýkur sýningu á olíu-
verkum Eggerts Magnússonar og
kynningu á pastelmyndum Kristínar
Geirsdóttur sem undanfarið hefur
staðið yfir í Gallerí Fold, Laugavegi
118. Opið er í Gallerí Fold daglega frá
kl. 10-18 nema sunnudag frá kl.
14-18. Allar myndimar eru til sölu.
Skúlptúrar í Gerðubergi
Núna stendur yfir sýning Ingu
Svölu Þórsdóttur í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Á sýningunni
em skúlptúrar og tilheyrandi textar,
video, ljósmyndir og teikningar. Sýn-
ingunni er ætlað að kynna þjónustu
sém Inga Svala býður upp á og nefn-
ir Thór’s Daughter’s Pulverization
Service. Sýningin er opin frá kl. 10-21
mánudaga til fimmtudaga og frá
13-17 fóstudag til sunnudags. Sýning-
unni lýkur 2. október.
Innblástur til
plantna
í gær var opnuð sýning á verkum
Ingu Elínar Kristinsdóttur, gler- og
leirhstarkonu, í Listmunahúsinu
Ófeigi á Skólavörðustíg 5. Um leið
opnar hún í sama húsi listmuna-
verslun þar sem úrval listmuna
hennar verður til sölu, svo sem gler-
myndir, bæði í glugga og á veggi,
diskar og bollar úr postulíni, gler-
skálar, lampar, ljósker og kertastjak-
ar. Allar innréttingar verslunarinn-
ar eru hannaðar af Ingu Elínu og
unnar af fóður hennar. Sýningin
stendur í eina viku og er opið virka
daga frá kl. 11-18 og laugardag frá
kl. 11-14.
Núna stendur yfir sýning á verkum
Eggerts Péturssonar í Gallerí Sævars
Karls. Eggert hefur tekiö þátt í fjöl-
mörgum samsýningum og haldið
íjölda einkasýninga bæði hérlendis
og erlendis. Hann hefur frá barn-
æsku verið heillaður af íslenskum
plöntum. Hann safnaði þeim, læröi
að þekkja nöfn þeirra og skoðaði liti
þeirra og áferð. Á síðastliðnum sjö
árum hefur hann einbeitt sér að gerð
málverka þar sem hann sækir inn-
blástur sinn til íslenskra plantna. Við
vinnslu verkanna leggur hann mikla
áherslu á að ná sem mestum smáat-
riðuih svo oft jaðrar við þráhyggju.
Sýningin stendur til 6. október og er
opin á verslunartíma alla virka daga
frá kl. 10-18.
Opnuð verður yfirlitssýning á verkum Magnúsar Pálssonar.
Ófeigur listmunahús:
Gler og leirlist
Kjarvalsstaðir:
Yfirlitssýning
Magnúsar Pálssonar
Á laugardag kl. 16 verður formlega
opnuð að Kjarvalsstöðum yfirlits-
sýning á verkum Magnúsar Pálsson-
ar. Magnús var einn aðalþátttakand-
inn í umbreytingum í íslensku lista-
lífi á 7. áratugnum. Þá settu fram-
sæknir listamenn til hhðar hefð-
bundin efni og aðferðir við hstsköp-
unina og tóku að vinna út frá listhug-
myndum tengdum Fluxushreyfing-
unni, Arte Povera og Concepthst-
inni. Allar götur síðan hefur Magnús
kunnað að þróa á persónulegan hátt
hugmyndalega hstsköpun jafnframt
því sem hann hefur lagt stóran skerf
th kennslu íslenskra myndlistar-
manna á síðastliðnum áratugum.
Magnús hefur um langt árabil ver-
ið í fremstu röð íslenskra framúr-
stefnulistamanna og einkum unniö
skúlptúra, umhverfisverk og per-
formansa. Hann hefur sýnt verk sín
sjálfstætt eða með öðrum á um það
bil 50 sýningum hér heima og erlend-
is.
Myndverk Magnúsar Pálssonar
eiga það yfirleitt sameiginlegt að
vera á mörkum þess sem við erum
vön að kalla myndhst í daglegu tali.
Það er ekki hægt að skilgreina þau
með einfóldum hætti sem málverk,
höggmynd, grafík eða teikningu. Á
seinni tímum hafa þau nálgast það
að verða bókmenntir, hljóðverk eða
tónverk eða jafnvel leikhst, án þess
að tengshn við myndlistarhugtakið
séu að fullu rofin.