Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
21
Mokka:
Jenny Holzer
Núna stendur yfir sýning á
verkum Jenny Holzer en hún er
einn af virtustu listamönnum
samtímans. Sýningin er hluti
sýningar sem haldin var í Bar-
bara Gladstone Gallery í New
York á nýliðnu sumri.
Sýndar eru 14 ljósmyndir af
skinni óg á það hefur Jenny
handritað texta. Sýningin nefnist
Lostamorð og íjallar um nauðg-
anir á konum í Bosníu.
Hafnarborg:
Gluggað
Margrét Þ. Jóelsdóttir opnar
myndlistarsýningu sína Gluggað
í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar á
laugardag kl. 14. Á sýningunni
eru olíumálverk, vatnslitamynd-
ir, pastelmyndir auk frístandandi
verka. Ekkert verkanna hefur
verið sýnt opinberlega.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 12-18 nema þriðjudaga.
Hafnarborg:
Söngtónleikar
Söngtónleikar verða haldnir í
Hafnarborg á sunnudag kl. 20.30.
Það eru Erna Guðmundsdóttir
sópran og Hólmfríður Sigurðar-
dóttir píanóleikari sem halda tón-
leikana. Erna Guðmundsdóttir
söng á unglingsárum í kór
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Hún lauk síðan tónmenntakenn-
araprófi frá Tónhstarskólanum í
Reykjavík en jafnframt stundaði
hún nám við söngdeild sama
skóla hjá Rut Magnússon og El-
ísabetu Erlingsdóttur.
Lúðrasveit
Reykjavikur
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur
starf sitt á þessu hausti með fjöl-
skyldutónleikum í Ráðhúsi
Reykjavíkur á sunnudag kl. 15.
Slíkir íjölskyldutónleikar verða
mánaðarlega í vetur. Efnisskrá
tónleikanna verður af léttara tag-
inu, þekkt dægurlög og djass-
sveifla ásamt klassískum verkum
úr söngleikjum og óperum.
íslensk grafík-
sýning í Svíþjóð
Á laugardag verður opnuð í
Stokkhólmi grafíksýning sjö ís-
lenskra hstamarma. Sýningin er
haldin í Galerie Plaisiren í Hass-
elbyhöll og er í boði norrænu
menningarmiðstöðvarinnar.
Kramhúsið:
Opiö hús
Á sunnudag kl. 17. verður opið
hús í Kramhúsinu við Bergstaða-
stræti. Starfsemi hússins verður
kynnt og kennarar Kramhússins
leika ókeypis fyrir almenning.
Flutt verða verkin Hillingar eftir
Önnu E. Borg og Ólöfu Ingólfs-
dóttur og Eitthvað ósagt sem er
einþáttungur eftir Tennessee
WiÚiams. Flytjendur eru Stein-
unn Ólafsdóttir leikari og Anna
E. Borg.
Iðnnemasambandið:
50 ára afmæli
Iðnnemasamband íslands verö-
ur 50 ára í dag. í tilefni þessara
merku tímamóta efnir stjórn
sambandsins til afmælisdag-
skrár. í dag er opið í húsnæði
Iðnnemasambandsins að Skóla-
vörðustíg 19. Þingmenn, sveitar-
stjórnarmenn og ráðherrar heim-
sækja iðnmenntaskóla allt í
kringum landið til aö skoða að-
stöðuna. Á laugardag verður há-
tíðarsamkoma í Borgarleikhús-
inu kl. 14. Að kvöldi laugardags-
ins verður afmælisfagnaður á
Ömmu Lú. Húsið verður opnað
kl. 19 en borðhald hefst kl. 20.
Borgardætur skemmta á Ömmu
Lú og Flosi Ólafsson flytur pistil
um íslenska iönaðarmenn.
Borgarleikhúsið:
Leynimelur 13
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í
gær hinn sprellfjöruga gamanleik
Leynimel 13. Höfundamir eru þrír
og kölluðu sig gjarna Þridrang en það
eru þeir Indriði Waage, Haraldur Á.
Sigurðsson og Emil Thoroddsen. Þeir
stóðu um árabil fyrir sýningum á
försum og gamanleikjum í Iðnó sem
þýðendur, höfundar, leikarar og leik-
stjórar.
„Leikritið var sýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur 1968. Ég hef komist að
því að Leynimelur 13 er nokkurs
konar mýta meö þjóðinni þar sem
svo mörg áhugaleikfélög hafa gert
leikritið vinsælt. Ég vona aö þetta
fólk gleðjist yfir því sem það sér hjá
okkur,“ segir Ásdís Skúladóttir leik-
stjóri.
Hugmyndin að verkinu er sótt í þá
staðreynd að á þessum árum var gíf-
urlegur húsnæöisskortur í Reykja-
vík og Alþingi setti lög þar sem með-
al annars var bannaö að taka íbúðar-
herbergi til annarra nota en íbúðar.
Sú saga komst á kreik að húsaleigu-
nefndir myndu fá heimild til að leigja
ónotuð herbergi í íbúðum fólks.
K.K. Madsen klæðskerameistari er
nýfluttur í villu sína að Leynimel 13
þegar Alþingi setur þessi neyðarlög,
húsið hans er tekið eignarnámi og
afhent skrfl af götunni. Áður en var-
ir er húsið fullt af vægast sagt skraut-
legum persónum.
I helstu hlutverkum eru Þröstur
Leó Gunnarsson, Guðlaug E. Ólafs-
dóttir, Guðmundur Ólafsson, Guð-
Sprellfjöruga gamanleikritið Leynimelur 13 verður sýnt föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld kl. 20.00.
rún Ásmundsdóttir, Hanna María Jón Hjartarson, Karl Guðmundsson,
Karlsdóttir, Jakob Þór Einarsson, Katrín Þorkelsdóttir og fleiri.
Leikfélag Akureyrar:
Karamellu-
kvömin
Leikfélag Akureyrar frumsýnir á laug-
ardag kl. 17 Karamellukvörnina eftir
Evert Lundström og Jan Moen, í leikstjórn
Þórunnar Magneu Magnúsdóttur.
Karamellukvörnin er gamanleikur meö
söngvum fyrir alla fjölskylduna. Þar segir
frá því þegar fólkiö, sem vinnur á bak við
tjöldin í leikhúsinu, tekur eftir því að sal-
urinn er fullur af börnum sem eru komin
tfl þess að sjá hið vinsæla leikrit Kara-
mellukvörnina. Það er bara einn hængur
á: Sýningin á ekki að vera fyrr en daginn
eftir og það er enginn leikari í húsinu.
Leiktjaldamálararnir, smiðurinn, skúr-
ingakonan, saumakonan og gjaldkerinn
eiga ekki annars úrkosti en að bjarga
málunum og þau leika Karamellukvörn-
ina hvert með sínu nefi.
Með helstu hlutverk fara Dofri Her-
mannsson, Aðalsteinn Bergdal, Sigurþór
Albert Heimisson, Rósa Guðný Þórsdóttir,
Þórhallur Gunnarsson og Bergljót Arn-
Leikfélag Akureyrar sýnir Karamellukvörnina. alds.
Ráðstefna
í Odda
í dag og laugardag verður haldin
ráðstefna í Odda á vegum félagsvís-
indadeildar og viðskipta- og hag-
fræðideildar. Ráðstefna þessi sam-
anstendur af stuttum erindum þar
sem nýjustu rannsóknir defldanna
eru kynntar. Ráðstefnan er ætluð
jafnt leikum sem lærðum og er leit-
ast við að koma niðurstöðum til skila
á einfóldu og skýru máli. Frá kl.
10-12 í dag verða kynntar rannsókn-
araðferðir í bókasafns- og upplýs-
ingafræði. Kl. 13-14 í dag verður far-
ið í rannsóknir í uppeldis- og mennt-
unarfræði. Frá kl. 14-15 er aðferða-
fræði á dagskrá og á milli kl. 15 og
17 eru kynntar rannsóknir í stjóm-
málafræði, hagfræði og þjóðfræði.
Ráðstefnan hefst síðan aftur kl. 10
á laugardagsmorgun en þá verða
kynntar rannsóknir í hagfræði og
félagsráðgjöf. Frá kl. 13-15 verður
sálfræði og mannfræði á dagskrá og
frá kl. 15-17 verður umræða um
stöðu rannsókna í félagsvísinda-
deild.
íslenski dansflokkurinn sýnir Danshöfundakvöld i Tjarnarbiói í kvöld og
laugardagskvöld kl. 20 og á sunnudag kl. 15.
Þjóðleikhúsið
Stóra sviðiö
Vald örlaganna
sunnudag kl. 20.00
Smiðaverkstæðið
Sannar sögur af sálarlífi systra
sunnudag kl. 20.00
Borgarleikhúsið
Stóra sviðíð:
Leynimolur13
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
Litla sviðið
Oskln
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
Hótel ísland
Grease
föstudag kl. 22.00
laugardag kl. 22.00
íslenska óperan
Hárið
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Tjarnarbíó
Danshöfundakvöld
föstudagkl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudagkl. 15.00
Leikfélag Akureyrar
Karamellukvörnin
laugardag kl. 17.00
sunnudagk. 14.00
Þorbjörg mótar mannslíkama i mis-
munandi stellingum.
Mótaðir
mannslíkamar
Sýning á verkum Þorbjargar Páls-
dóttur stendur yfir í Galleríi 1 1. Á
undanfórnum áratugum hafa verk
Þorbjargar verið auðþekkt: manns-
líkamar í mismunandi stellingum
mótaðir í hæsnanet sem ýmist eru
styrkt með polyester eða gipsbönd-
um. Á þessari sýningu gefur annars
vegar að líta fjóra nýja skúlptúra frá
þessu ári af mannslíkömum og hins
vegar verk frá upphafi listferils Þor-
bjargar sem hófst fyrir tæpum fimm-
tíu árum en frá þeim tíma sýnir hún
einkum teikningar og málað postul-
ín. Sýningin er opin alla daga frá kl.
14-18 og lýkur 29. september.
Furðuleikhúsið frumsýnir Hlina
kóngsson.
Furðuleikhúsið:
Hlini kóngsson
Furðuleikhúsið frumsýnir í
Tónabæ á sunnudag kl. 17 íslenska
ævintýrið Hlina kóngsson. Furðu-
leikhúsiö var stofnað síðasta sumar
þegar leikaramir Margrét Kr. Pét- j
ursdóttir, Ólöf Sverrisdóttir og Egg-
ert Kaaber voru ráðin af Reykjavík-
urborg til þess aö leika í Fjölskyldu-
og húsdýragaröinum.
Með þessari sýningu vilja leikar-
amir kynna galdur leikhússins fyrir\
bömum og þá möguleika sem þau
hafa til að skapa sínar eigin sýningar.