Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Side 6
22
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
Frumsýning í Háskólabíói:
Kiefer Sutherland og Woody Harrelson leika aðalhlutverkin í hinum bráð- Ernie Hudson leikur Sam Shaw, lögreglumann i New York, sem kynnrst
fyndnu Kúrekum sem neyðast til að fara til New York. Pepper.
Kúrekar í New York
Woody Harrelson og Kiefer Sut-
herland leika aðalhlutverkin í hasar-
og gamanmyndinni The Cowboy
Way eða Kúrekar í New York sem
Háskólabíó hefur tekið til sýningar.
Brian Grazer framleiðir myndina en
hann framleiddi einnig Parenthood
og Kindergarten Cop. Gregg Champi-
on leikstýrir.
Söguhetjurnar eru tveir kúrekar
viUta vestursins, Sonny og Pepper,
sem lenda stöðugt í ævintýrum og
klassískum skotbardögiun í New
Mexico. Ekki er of hlýtt á milli þeirra
í upphafi sögunnar. Þeir neyðast þó
til að láta af öllum væringum sín á
milli þegar aldavinur þeirra heggja,
Nacho, hverfur skyndilega í New
York. Sonny og Pepper ákveða að
söðla hesta sína og ríða til New York
til þess að leita félagans.
Að sögn Grazers gefur það mikla
möguleika á hraða, spennu og
skemmtun aö koma tveimur nútíma
kúrekum fyrir í stórborginni New
York. í ferðinni komast söguhetjurn-
ar að því að þeir verði að læra að
treysta hvor öðrum til þess að kom-
ast út úr kröggum New York borgar
lifandi.
Fyrir tökur myndarinnar lagði
Grazer mikið á sig með viðtölum við
nútíma kúreka ásamt því að rann-
saka líferni þeirra.
Dylan McDermott, sem lék félaga
Chnts Eastwood í In the Line of Fire,
leikur Stark, bófaforingjann sem ber
ábyrgð á hvarfi Nachos.
Stuttmyndin Ertu sannur? eftir Lýð Árnason og Jóakim Reynisson er í stutt-
myndasamkeppninni.
Háskólabíó:
Stuttmynda- og heim-
ildarmyndahátíð
Nordisk Panorama, norræna stutt-
mynda- og heimildarmyndahátíðin
stendur nú yfir í Háskólabíói. Helsti
viðburður hátíðarinnar er keppni
um bestu stuttmyndina 1994 og bestu
heimildarmyndina 1994. Alls eru 57
myndir í keppninni, þar af eru fjórar
frá íslandi, en til viðbótar eru um 30
myndir á ýmsum hliðarsýningum.
Samtals eru því nálægt 90 myndir
sýndar á hátíðinni.
Borgin gefur 25.000 kr. fyrir bestu
norrænu stuttmyndina og mennta-
málaráðuneytið sömu upphæð fyrir
bestu norrænu heimildarmyndina.
Þá verða veitt nokkur aukaverðlaun:
Ríkisútvarpið veitir áhorfendaverð-
laun og kaupir viðkomandi mynd til
sýningar og fleiri myndir fá heiðurs-
verðlaun. Verðlaunaafhending með
málsverði og skemmtiatriðum fer
fram á Hótel Sögu á laugardags-
kvöld.
í dag hefjast sýningar kl. 10.15 og
lýkur kl. 23. Sýningar hefjast síðan
aftur á laugardag kl. 11 og lýkur þeim
um kl. 19 á laugardagskvöldið.
Maðurinn í mánanum er dönsk mynd sem keppir til verðlauna á hátíðinni.
Frumsýning í Regnboganum:
Ástriðu-
fískurinn
í dag frumsýnir Regnboginn
bandarísku kvikmyndina Passion
Fish eða Ástríðufiskinn. Myndin
vakti verðskuldaða athygli þegar
hún kom út í Bandaríkjunum í árslok
1992 og var talið að aðalleikaramir,
þær Mary McDonnell og Alfre Wood-
ard, ættu mikla möguleika á að verða
tilnefndar til óskarsverðlauna.
Myndin fjallar á dramatískan en
nærfærinn og grátbroslegan hátt um
samband tveggja kvenna sem lífið
hefur leikið grátt á misjafnan máta.
Líf sápuóperustjömunnar May-
Alice tékur miklum breytingum þeg-
ar hún lamast fyrir neðan mitti í bíl-
slysi. Hún dregur sig út úr skarkal-
anum og leitar á æskuslóðimar í
fenjum Louisiana og lokar sig þar
inni með aðra höndina á fjarstýringu
sjónvarpsins en hina um flöskuháls-
inn. Hún nýtur umönnunar nokk-
urra hjúkrunarkvenna sem hún
hrekur frá sér með munnsöfnuði og
þrákelkni þangað til blökkustúlkan
Chantelle tekur starfið að sér. Fyrst
í stað virðist allt ætla að fara í sama
farið en smám saman styrkist sam-
band þessara ólíku kvenna. Þær
deila :neð sér sorgum og sigrum og
smám saman rennur upp fyrir May-
Alice að hún getur einnig látiö gott
af sér leiða.
Leikstjóri og höfundur handrits er
John Sayles sem vakið hefur athygli
fyrir myndir á borö við Retum of the
Secaucus Seven og Baby It’s You.
Ivan
grímrni
ÍMIR
Ballettinn Ivan grimmi, sem sfjórinn S. Eisenstein voru sam-
saminn var viö tónlistina í sam- starfsmenn um árabil og samdi þá
nefndri kvikmynd, veröur sýndur Prokofiev meöai annars tónlistina
í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á sunnu- við kvikmyndimar Alexander
dag kl. 16. Báöir hlutar myndar Névskífoglvangrimmilogn. Síð-
Sergeis Eisensteins vom sýndir hjá ari myndin var fullgerð á árunum
MÍR fyrr i mánuðinum. 1944 og 1945 en seinni hluti hennar
Rússamir Sergei Prokofiev, tón- var reyndar ekki sýndur opinber-
skáldið fræga og kvikmyndaieik- lega fyrr en 1958.
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Sími 11384
Speed ★★
Ógnarhraðskreiö mynd um fifldjarfa
löggu í baráttu við geðbilaðan sprengjuf-
íkil. Ágæt skemmtun.
-GB
Umbjóðandinn ★★★
Góð spennumynd eftir skáldsögu Johns
Grishams. aldrei þessu vant er myndin
betri en bókin. Susan Sarandon og
Tommy Lee Jones sýna bæði stórleik.
-HK
BÍÓHÖLLIN
Sími 78900
Sannar lygar ★★'/2
Risa-mynd frá Cameron og Co sem stenst
ekki samanburð við fyrri myndir hans
vegna ómerkilegrar sögu. Er samt ágætis
skemmtun með mikilfenglegum hasaratr-
iðum og góðum húmor inn á milli. Einnig
sýnd í Háskólabíói. -GE
Valtað yfir pabba ★!!
Of mikið byggt upp á barnastjörnunni
Macauley Culkin sem stendur sig alls
ekki nógu vel. Rétt sæmileg fjölskylduaf-
þreying. -HK
Maverick ★★★
Vestrar eru yfirleitt grafalvarlegar myndir
þar sem mönnum stekkur sjaldan bros.
Ekki hér. Gamanið er i fyrirrúmi og það í
stórum skömmtum. -GB
Steinaldarmennirnir ★l/2
Fred og Barney eru ekki svipur hjá sjón
í þessari misheppnuðu útfærslu á ævin-
týrum teiknimyndahetjanna. -GB
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
HÁSKÓLABÍÓ
Sími 22140
Blóraböggullinn ★★'/2
Skemmtileg dæmisaga frá Coen-bræðr-
um sem hafa séð mikið af gömlum mynd- >
um og vilja votta þeim virðingu sína. -GE
Kika ★★
Þrátt fyrir litríkar persónur og skemmtilega
spretti er nýjasta kvikmynd Almodovars
samanbarningur af hlutum sem hann
hefur gert áður og betur. Veronica Forque
er athyglisverð í titilhlutverkinu. -G E
Fjögur brúðkaup ★★★
Breskur húmor eins og hann getur bestur
orðið i bráðskemmtilegri kvikmynd með
rómatísku yfirbragði. Kvikmynd sem kem-
uröllum ígottskap. -HK
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Endurreisnarmaðurinn ★,/2
Einstaklega heimskuleg saga sem hefði
getaö gengið upp ef aðstandendur hefðu
ekki farið að taka hana alvarlega. Penny
Marshall og Danny de Vito hafa bæói
gertbetur. -HK
Apaspil ★★
Sniðug barnamynd um þjófóttan apa-
kött. Sagan er sáraeinföld en myndin er
gerðafáhugaogsæmilegumkrafti. -GE
Krákan ★★ '/2
Myrk myndasaga er orðin að hefðbundn-
ari formúluhasar en nógu dökk til að vera
töff og virkilega smart gerð. -GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Allir heimsins morgnar ★★★
Heillandi, dramatísk kvikmynd um sannan
tónlistarmann, sorg hans sköpunargleði
og skapbresti sem láta engan ósnortin.
Mynd sem sameinar áhuga á tónlist og
kvikmyndum. -HK
Flóttinn ★★'/2
Spennumynd frá áttunda áratugnum,
uppfærð á máta þess tíunda með góóum.
árangri. Gott dæmi um þá breytingu sem
orðið hefur í frásagnartækni kvikmynd-
anna. -GE
Gestirnir ★★★
Franskur tímaflakksfarsi af bestu gerð þar
sem fornir riddarar glíma við hversdags-
hluti ársins 1992.
-GB
Kryddlegin hjörtu ★★★
Heillandi frásagnarmáti í bragðmikilli og
dramatískri mynd þar sem ýkjukennd
sagnahefð nýtur sín vel. Athyglisverð og
vel leikin kvikmynd í háum gæðaflokki.
-HK
Píanó ★★★ '/2
Píanó er einstaklega vel heppnuð kvik-
mynd, falleg, heillandi og frumleg. Þrátt
fyrir að rauði þráðurinn sé erótík með öll-
um sínum öfgum er myndin aldrei yfir-
þyrfhandi dramatísk. -HK
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Ulfur ★★•/2
Vel gerð og leikin mynd um forleggjara
sem breytist í úlf en herslumuninn vantar.
-GB
Gullæðið ★'/,
Heldur bragðdauft framhald ævintýra
borgarabúanna úti I auðnum Ameríku i
leit að gulli, bæði ekta og í sjálfum sér.
-GB
Bíódagar ★★★
Friðrik Þór hefur gert skemmtilega og
mannlega kvikmynd um æskuár ungs
drengs í Reykjavík og í sveit. Sviðsmynd
einstaklegavel heppnuð. -HK