Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1994, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1994
Bestu fréttaljósmyndir ársins 1994 eru sýndar í Kringlunni.
Kringlan:
Fréttaljósmyndasýning '94
Sýningar
Ásmundarsafn
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir Ásmund
Sveinsson og Kristin E. Hrafnsson sem ber yfir-
skriftina „Hér getur allt gerst". Sýningin er opin
alla daga frá 10-4 og mun standa til áramóta.
Café Mílanó
FaxafeniH
Nú stendur yfir samsýning listkvenna frá Stúdíó
Höfða. Sýningin er opin kl. 9-19 mánudaga,
9- 23.30 þriðjud., miðvikud. og fimmtud., kl. 9-1
föstud., laugard. og sunnud. kl. 9-23.30.
Eden
Hveragerði
Þar stendur yfir sýning Sigmars V. Vilhelmssonar
á vatnslitamyndum og pennateikningum. Einnig
sýnir Bragi Einarsson pennateikningar, vatnslita-
myndir og kolateikningar af ýmsu þekktu fólki og
Hvergerðingum.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Vesturíslenska listakonan Móa Romig Boylessýn-
ir verk sín dagana 17. september til 2. október.
Verk Móu eru mjög óvenjuleg og vinnur hún úr
ýmsum efnum, t.d. tuskum, leir, pappa, tré o.fl.
Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 12-18
en frá 14-18 um helgar.
Gallerí Ásmundarsal
Freyjugötu 41
Laugardaginn 1. okt. opnar Árni Rúnar Sverrisson
málverkasýningu. Á sýningunni eru stór olíumál-
verk sem öll eru máluð á striga. Sýningin er opin
alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí Birgis Andréssonar
Kristján Steingrímur Jónsson sýnir verk sín í Gall-
eríi Birgis Andréssonar. Sýninguna kallar Kristján
Steingrímur „Horfur". Sýning þessi er innsetn-
ing/installation þar sem allt rými sýningarsalarins
er nýtt sem ein heild. Sýningin er opin á fimmtu-
dögum frá kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. Gall-
erí Birgis er til húsa á Vesturgötu 20, á horni Vest-
urgötu og Norðurstigs.
Gallerí Borg
Um helgina verður sýning á málverkum sem verða
á uppboði 6. október. Sýningarsalurinn er opinn
frá kl. 12-18.
Gallerí einn einn
Skóla vöröustíg 4a
Laugardaginn 1. október kl. 16 opnar Gunnar
M. Andrésson sýningu sem ber yfirskriftina
„Gegnumlýsingar" og samanstendur af mynda-
röðum sem unnar eru á röntgenfilmur. Sýningin
verður opin daglega frá kl. 14-18 en henni lýkur
fimmtudaginn 13. október.
Gallerí Fold
Laugavegi118d
Laugardaginn 1. október opnar Ásgeir Smári Ein-
arsson sýningu á olíumyndum. Sýninguna nefnir
Ásgeir Smári „Danska daga". Á sama tíma er
kynning á myndum Kristínar Arngrímsdóttur í
kynningarhorni gallerísins. Opið daglega frá kl.
10- 18 nema sunnudaga frá kl. 14-18. Sýning-
unni lýkur 16. október.
Gallerí Greip
Hverfisgötu 82
Laugardaginn 1. október kl. 16 veröur opnuð
myndlistarsýningin „Salon 1994". Markmið sýn-
ingarinnar er að skapa raunverulegt andrúmsioft
á einfaldan hátt úr línum og litum en prúðbúnir
sýningargestir munu slðan bæta sínu við og bera
það út í haustið. Listamennirnir og -konurnar eru
Birgir Andrésson, Húbert Nói Jóhannesson, Krist-
inn E. Hrafnsson, Kristján Steingrímur Jónsson,
Bjarni H. Þórarinsson, Jónas Sen, Georg Guðni
.Hauksson, Haraldur Jónsson, Daníel Þ. Magnús-
son, Hallgrímur Helgason, Helgi Þorgils Friðjóns-
son, Daöi Guöbjörnsson, Jón Óskar Hafsteinsson,
Hulda Hákon, Sigurður Árni Sigurðsson, Tumi
Magnússon, Steingrlmur Eyfjörð Kristmundsson,
Rúrí, Svava Björnsdóttir, Loftur Atli Eiríksson,
Halldór Ásgeirsson, Kristján Guðmundsson,
Hannes Lárusson og Anna Valsdóttir. Sýningin
stendur frá 1. til 19. október og er opin daglega
frákl. 14-18.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema laugar-
daga kl. 11-14.
Gallerí Regnbogans
I Regnboganum er nú sýning á málverkum Egils
Eðvarðssonar. Á sýningunni mun Egill sýna olíu-
málverk úr myndröðinni Árstíðirnar. Galleríið verð-
ur ávallt opið þegar kvikmyndasýningar standa
yfir.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstíg 1
Þar stendur yfir 9. einkasýning Guðrúnar Gunnars-
dóttur. Á sýningunni eru Þráðarverk, unnin úr vír
og gúmmíi. Sýningin stendur til 5. október. Gallerí-
ið er opið þriðjud.-laugard. kl. 13-18 og sunnud.
kl. 14-18. Lokað mánudaga.
Galterí Sólon íslandus
Þar stendur yfir myndlistarsýning Thors Vilhjálms-
sonar rithöfundar. Þar sýnir hann myndir, unnar
með blandaðri tækni (vatnslitamyndir, krítarteikn-
ingar og gvass) sem hann hefur unnið áð undanf-
arin ár jafnframt ritstörfum. Sýningin stendur til
3. október og er opin alla daga frá kl. 11-18.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Eggert Pétursson sýnir í Galleríi Sævars Karls til
6. okt. Verkin á sýningunni eru máluð meö mörg-
um lögum lita og olíu á striga. Þau eru unnin á
undanförnum þremur árum. Sýningin er opin á
verslunartímum á virkum dögum frá kl. 10-18.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Þar stendur yfir myndlistarsýning Margrétar Þ.
Jóelsdóttur sem kallast „Gluggað". Á sýningunni
eru ollumálverk, vatnslitamyndir og pastelmyndir,
auk frístandandi mynda en ekkert verkanna hefur
áður verið sýnt opinberlega. Sýningin stendur til
10. október og er opin alla daga nema þriðjudaga
frá kl. 12-18. i Sverrissal er sýning á vatnslita-
myndum eftir Jóhannes Kjan/al. i kaffistofunni
standa Dröfn Guömundsdóttir og Margrét Guð-
mundsdóttir fyrir sýningu sem ber nafniö „Gler
og grafik". Dröfn sýnir glerskúlptúra en Margrét
grafíkmyndir. Margrét sýnir einnig videomynd sem
er 15 mín. löng og valin hefur verið á ýmsar norr-
ænar hátíðar. Myndin verður sýnd á sunnudögum
kl. 16 meðan á sýningunni „Gler og grafík" stend-
ur yfir. Kaffistofan er opin alla daga frá kl. 10-18.
Kjarvalsstaðir
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum Magnúsar
Pálssonar. Magnús hefur um langt árabil verið í
fremstu röö íslenskra framúrstefnulistamanna og
einkum unnið skúlptúra, umhverfisverk og per-
formansa. Sýningin er opin daglega og stendur
til 23. október frá kl. 10—18. Kaffistofa Kjan/als-
staða verður opin á sama tíma.
I dag verður opnuð í Kringlunni
ljósmyndasýningin World Press
Photo ’94 sem er þekktasta sam-
keppni í heiminum á sviði fréttaljós-
myndunar. Sýningin, sem er bæði á
1. og 2. hæð Kringlunnar, stendur til
15. október.
Níu manna dómnefnd velur verð-
launamyndirnar og í ár verður sýn-
ing á verðlaunamyndunum sett upp
í um 70 borgum og 30 löndum. Veitt
eru verðlaun fyrir þrjár bestu mynd-
Akureyri:
Feðgar fagna 40 ára
sýningarafmæli
Feðgarnir Kristinn G. Jóhannsson
og Gunnar Kristinsson opna sýningu
á nýjum verkum sínum í Listhúsinu
Þingi á Akureyri á morgun.
Fjörutíu ár eru síðan Kristinn
sýndi fyrst málverk að Hótel Varð-
borg á Akureyri og er sýningin nú
m.a. sett upp af því tilefni. Gunnar
stundar nám í Þýskalandi og er að
sýna verk sín í fyrsta skipti. Á sýn-
ingunni í Þingi sýnir hann þrjár ljós-
myndaraðir en Kristinn sýnir olíu-
málverk. Sýning þeirra feðga verður
opin daglega kl. 16-19 en kl. 14-19 um
helgar til sunnudagsins 16. október.
Sænskir listamenn
hjá Ófeigi
Sýning sænsku listamannanna
Irisar og Ulfs Liljeblad verður opnuð
í dag kl. 17 í Listmunahúsi Ófeigs að
Skólavörðustíg 5. Iris, sem er á tíræð-
isaldri, er fyrrverandi tollfulltrúi.
Á sýningunni verða einnig verk
Ulfs, skúlptúrar úr tré og bronsi, svo
og vatnslitamyndir, grafíkverk og
teikningar. Sýningin verður opin alla
virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga
kl. 11-16 til 26. október.
Hafsteinn Austmann
í Norræna húsinu
Núnastenduryfirsýningáverl1 m
Hafsteins Austmanns í Norræna
húsinu. Þar gefur að líta myndir
unnar í olíu og vatnsliti og spanna
þær 10 ára tímabil á hstferli lista-
mannsins. Hafsteinn hefur haft
myndlistina að aðalstarfi frá unga
aldri og hefur haldið fjölmargar sýn-
ingar heima og erlendis. Hann hefur
verið kennari við Myndlista- og
handíðaskólann um langt árabil.
Þessi sýning, sem er sett upp í tilefni
af sextugsafmæli Hafsteins, ætti að
gefa glögga mynd af ferh hans þenn-
an tíma. Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 14-19 og henni lýkur 9.
október.
irnar í hverjum flokki, bæði fyrir
myndaraðir og einstakar myndir.
Sýningin er flokkuð í fréttaskot, fólk
í fréttum, vísindi og tækni, daglegt
líf, íþróttir, listir, náttúru og um-
hverfi og almennar fréttir. Alls eru
um 190 myndir.
Fréttaljósmynd ársins var valin
mynd sem kanadíski ljósmyndarinn
Larry Toweh tók af drengjum á
Gazasvæðinu með trébyssur á lofti.
Sýningin er opin á afgreiöslutíma
Á laugardag kl. 14 verður opnuð
sýning á verkum Árna Rúnars
Sverrissonar í Gallerí Ásmundarsal,
Freyjugötu 41. Á sýningunni eru stór
olíumálverk sem öll eru máluð á
striga.
Magnús Theodór Magnússon,
Teddi, opnar sýningu í Ráðhúsi
ReyKjavíkur á laugardag kl. 16. Sýn-
ingunni lýkur 10. október.
„Ég sýndi fyrst árið 1984 á slökkvi-
stöðinni því ég er gamall brunavörð-
ur og hef haldið átta sýningar. Við
opnunina verður harmóníkuleikur
og léttar veitingar," segir Teddi í
samtali við DV.
Tré er sá efniviður sem Teddi vinn-
ur með. Sumt er innflutt með skipum,
Kringlunnar sem er frá kl. 10-18.30
mánudaga til fimmtudaga, til kl. 19
á fóstudögum og til kl. 16 á laugar-
dögum. Vakin er athygli á því að í
vetur er verið að gera tilraun með
að hafa opið í Kringlunni fyrsta
sunnudag hvers mánaðar og nú um
helgina er Kringluhelgi en þá er opiö
í verslunum og veitingastöðum
verslunarmiðstöðvarinnar frá kl.
13-17 á sunnudag.
Sýningin ber yfirskriftina Hamráð
sem merkir óvissa, vafri, innri bar-
átta en það eru viðfangsefni Árna
Rúnars. Sýningin er opin aha daga
frá kl. 14-18.
annað hefur flutt sig sjálft á öldum
hafsins og loks rekið hér á land. Stoð-
ir gömlu hafnarinnar í Reykjavík
hafa einnig endað í vinnustofu Tedda
og breytt þar um ásýnd. Teddi er víð-
förull maður og á ferðum sínum um
heiminn hefur hann gjaman tekið
margs konar efnivið með sér heim.
„Þetta eru verk úr stoöum gömlu
hafnarinnar í Reykjavík. Ég hegg og
saga í þær og bý til form,“ segir
Teddi.
Sýningar
Kringlan
30. september verður opnuð Ijósmyndasýningin
World Press Photo '94 sem er þekktasta sam-
keppni í heiminum á sviði fréttaljósmyndunar.
Sýningin er bæði á 1. og 2. hæð og er opin á
afgreiðslutíma Kringlunnar sem er frá 10-18.30
mánudaga til fimmtudaga, til kl. 19 á föstudögum
og til kl. 16 á laugardögum. Sýningin stendur til
15. október.
Listgallerí
Listhúsinu í Laugardal
Þar stendur yfir útgáfusýning bókarinnar, „Lækna-
bókin, heilsugæsla heimilanna". Listgalleriið er
opið 10-18 virka daga, og 10-16 á laugardögum.
Listasafn Akureyrar
Laugardaginn 1. október kl. 16 opnar Sigurður
Ámi Sigurósson sýningu á verkum sinum í öllum
3 sölum Listasafsins á Akureyri. Þar verða til sýn-
is málverk, teikningar og módel af görðum. Sýn-
ingin stendur til 2. nóvember. Safnið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 14—18.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi
Laugardaginn 1. október kl. 15 opnar Valgerður
Hafstað sýningu sína. Sýningin mun standa yfir
í tvær vikur. Opið daglega kl. 14-19 nema mið-
vikudaga.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16.
Lokað í desember og janúar. Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Inngangur frá Freyjugötu.
Listasafn íslands
i tilefni 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins stend-
ur nú yfir sýningin i deiglunni 1930-1944, Frá
alþingishátíð til lýðveldisstofnunar - islenskt
menningarlíf á árunum 1930-1944. Sýningin mun
standa yfir fram í október. Safnið er opið alla daga
nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs-
Geröarsafn
Hamraborg 4, Kópavogi, sími 44501
Kristin Þorkelsdóttir opnar sýningu á vatnslita-
myndum laugardaginn 1. október kl. 14. Sýning-
una nefnir Kristín Fjalladans. Kristín ferðast um
landið í sumarbirtunni og málar landslagsmyndir
sínar utandyra. Sýningin, sem er sölusýning, er
opin alla daga frá kl* 12-18. Lokað mánudaga.
Kaffistofan opin á sama tíma. Sýningunni lýkur
16. október.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
íslandsmerki og súlur Sigurjóns Ólafssonar heitir
sýningin sem nú stendur yfir. Hér er um að ræða
hátíðarsýningu í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldis-
ins. Sýningin mun standa til áramóta. Safnið er
opið laugard.-sunnud. kl. 14-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum
í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Geröuberg 3-5, Reykjavik
Þar stendur yfir sýning Ingu Svölu Þórsdóttur. Á
sýningunni eru skúlptúrar og tilheyrandi textar,
video, Ijósmyndir og teikningar. Sýningin er opin
frá kl. 10—21 mánudag til fimmtudag og frá kl.
13- 17 föstudag til sunnudags. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 2. október. Sunnudaginn 2. október
kl. 14 verður opnuð í Menningamiðstöðinni
Gerðubergi yfirlitssýning sem ber yfirskriftina is-
lenska einsöngslagið. Ásýningunni verða um 200
Ijósmyndir af tónskáldum og flytjendum islenskra
einsöngslaga með skýringartextum. Einnig verða
sýndar söngskrár, nótnahandrit, veggspjöld og
aðrir munir sem segja sögu sönglífs á islandi frá
því um miðja síðustu öld. Á sunnud. í okt. og
nóv. verða íslenska einsöngslaginu gerð skil með
fyrirlestrum, Ijóðasöng og hljóðfæraleik. Einnig sér
Sverrir Guðjónsson söngvari um leiðsögn um sýn-
inguna. Sýningin stendur til 1. desember.
Mokkakaffi
v/Skólavöröustig
Þar stendur yfir sýning á verkum Jenny Holzer
en hún er einn af virlustu listamönnum sam-
tímans. Hluti sá sem er til sýnis á Mokka saman-
stendur af 14 Ijósmyndum af skinni og á það
hefur Jenny Holzer handritað texta en texti hefur
verið aðalviðfangsefni hennar til þessa. Sýningin
nefnist „Lostamorð" og fjallar um nauðganir á
konum í Bosníu. Tilvitnanir sem ritaðar eru á hör-
undið eru tilvitnanir í fórnarlömb, gerendur og
áhorfendur/syrgjendur. Textann vann Jenny
Holzer upp úr vitnisburðum og fréttum, skrifaði á
skinn sem síðan var Ijósmyndað. Sýningin stendur
yfir í mánuð. Opið er frá kl. 9.30-23.30 alla daga
nema sunnudaga frá kl. 14-23.30.
Messtofusafn
Neströó, Seltjarnarnesi
Sérsafn á sviði lækningaminja. i safninu eru sýnd-
ar minjar sem tengjast sögu heilbrigðismála á is-
landi frá miðri 18. öld og fram til okkar daga. Á
tímabilinu 15. september 1994 til 14. mai 1995
verður ekki opið á neinum tilteknum tíma en safn-
ið einungis opið samkvæmt umtali. Er þeim sem
hafa áhuga á að skoða safnið bent á að hafa sam-
band við skrifstofu þess í síma 611016.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstig
Þar stendur yfir sýning á verkum Ólafs Lárussonar
myndlistamanns. i neðri sal vinnur hann innsetn-
ingu og I efri sölum verða sýnd verk unnin í bland-
aða tækni. Gestur í setustofu að þessu sinni er
Arnfinnur R. Einarsson. Hann sýnir úrval mynd-
banda og tölvuverk. Safnið er opið daglega frá
14- 18. Sýningarnar standa til 9. október.
Norræna húsið
Stendur yfir sýning Hafsteins Austmanns á olíu-
málverkum og vatnslitamyndum. Til sýnis eru verk
sem unnin voru á timabilinu frá 1984 til 1994.
Sýningin er opin daglega frá kl. 14-19 og lýkur
9. október. i andyri Norræna hússins stendur yfir
sýning á auglýsingaveggspjöldum af norrænum
kvikmyndum. Veggspjöldin spanna 30 ára timabil
norrænna kvikmyndaauglýsinga.
Leiðin til lýðveldis
Viðamikil samsýning Þjóðminjasafns og Þjóð-
skjalasafns á munum, Ijósmyndum, skjölum, bún-
ingum, vaxmyndum og mörgu öðru, sem tengist
sögu sjálfstæðisbaráttunnar, frá dögum Fjölnis-
manna 1830 til lýðveldishátíðar 1944, hefur veriö
opnuö í Aðalstræti 6 - gamla Morgunblaðshús-
inu. Sýningin mun standa til 1. desember. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Sýningarsal-
ur Þjóðminjasafnsins v/Suðurgötu verður lokaður
til 1. október.
Málverkin á sýningunni kveikja hugsanir um tengsl okkar við skaparann
og stöðu okkar í sköpuninni.
Hamráð í Gallerí
Ásmundarsal
Ráöhúsið:
Trélistaverk Tedda