Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1994, Side 4
26 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 KDnlist >-T •* DV Dos Pilas með aðra plötuna sína á sama árinu: Höfðum til fólks á aldr- inum tíu til þrjátíu ára Rokkhljómsveitin Dos Pilas er enn ekki oröin tveggja ára i þeirri mynd sem hún starfar nú. Eigi aö síður hefur hún sent frá sér tvær plötur á ferlinum. Sú fyrri kom út í vor og var ætlað aö kynda undir sumarstarfi hljómsveitarinnar. Hin kemur út í dag, heitir My Own Wings og hefur aö geyma tiu lög sem ekki veröa melt viö fyrstu og jafnvel ekki aðra hlustun. „Viö vitum aö platan er þung og tormelt en hún er það þó ekki í neikvæðri merkingu oröanna," segja Dos Pilas-menn. „Þetta ei pælinga- músík sem maður þarf aö gefa sér góöan tíma til að hlusta á.“ Þeir sem vilja flýta fyrir sér með því aö hlusta á Újómsveitina flytja tónlist sína á tónleikum ættu að mæta á útgáfu- tónleikana í Tunglinu í kvöld ef þeir hafa færi á. Þar ætla fimmmenn- ingamir að leika öll lög plötunnar og einnig lögin á plötunni sem gefin var út í vor. Síðan verður hljómsveitin á ferö í skólum og félagsmiðstöövum á næstu vikum til að ná sem best til þeirra sem helst kaupa plötur með rokktónlist. „Við teljum reyndar að við höföum til rokkaðdáenda á aldrinum tíu til þrjátíu ára. Fólk á aldrinum fjórtán ára til tvítugs er hins vegar stærsti kaupendahópurinn og því verðum við að reyna að ná til hans með því að þræða félagsmiðstöðvar og skóla,“ segir Jón Símonarson, söngvari Dos Pilas. Félagar hans samsinna þessu og segja að ein og sama hljómsveitin geti í raun og veru ekki haldið nema ferna til fimm hljómleika á vínveitingastöðum í Reykjavík. Þá sé hún búin að metta markaðinn. Megas: Löngu orðið tímabært að gefa elstu plötur hans út á geisla- diskum. Elstu plötur Megasar á geisla Fyrstu tvær plöturnar eru væntanlegar í þessum mánuði og önnur raunar þegar komin út. Það er platan Megas sem kom upphaflega út árið 1972 en hefur verið endurútgefin tvívegis síðan á plasti. Önnur plata meistarans er síðan væntanleg áður en langt um líður. Sú heitir Millilending og kom fyrst út árið 1975. Á henni leikur hljómsveitin Júdas undir hjá Megasi. Síðan er ætlunin að hinir titlamir komi út á næstu árum: Fram og aftur blind- götuna, Á bleikum náttkjólum, Nú er ég klæddur og kominn á ról, Drög að sjálfsmorði og jafnvel fleiri. þungir gat hinn fulli íslendingur samt skemmt sér með okkur,“ segja fimmmenningarnir. Þeir leituðu reyndar til þaulvans sveitaballa- manns þegar kom að því að finna upptökustjóra fyrir nýju plötuna. Sá er Guðmundur Jónsson, gítarleikari Nl+. Hann kom Dos Pilas þægilega á óvart. „Guðmundur er rokkari inn við beinið og hann á stóran þátt í því að platan heppnaðist vel,“ segja þeir. „Hann gaf okkur lausan tauminn að ýmsu leyti en tók okkur síðan í gegn að öðru leyti. Ætli við höfum ekki fengiö okkar skammt af fullkomn- unaráráttu upptökustjórans af vinn- unni með Guömundi. Reyndar var það eins og besti skóli í stúdíóvinnu að vinna að plötunni með honum og Nick Cathcart Jones sem tók hana upp.“ Jón Símonarson og samstarfs- menn hans, Davíð Þór Hlinason, Sigurður Gíslason, Ingimundur Þorkelsson og Heiðar Kristinsson, segjast vera ánægðir með útkomu plötunnar My Own Wings. Hún hafi raunar hljómað betur en þeir hefðu talið fyrirfram. Þeir eru jafnframt ánægðir með það tækifæri sem þeir hafa fengið til að hljóðrita tiltölulega dýra plötu miðað við það sem íslenskar rokkplötur eru alla jafna. „Okkar hljómsveit er ein af fáum sem hafa fengið tækifæri til að sýna hvað í þeim býr,“ segja þeir. „Við vildum einungis gefa út eitthvað sem við værum fyllilega sáttir við og það tókst.“ Neil Young var með þeim en meginvandi sveitarinnar hefur aila tíð verið erfitt samstarf. Þannig má seyja að hún hafi verið meira og minna sundur og saman öli þessi ár. Young hefur aðeins starfað af og til með þessum gömlu félögum sínum, síðast 1988, en hinir hafa haft meira samstarf. Það hefúr gengið á ýmsu í þessu samstarfi, meðal annars lenti Crosby illa í eiturlyfjasukki og rugli og lenti um skeið bak við lás og slá en er nú kominn á réttan kjöl að nýju. Árin hafa samt greinílega tekið sinn toll hjá þeim öllum og þessi plata er bara skugginn af því besta sem þeir buðu upp á á árum áður. Tónhstin er enn sem fyrr rokk í mýkri kantinum en lögin eru hálf- meinleysilegar melódíur og ekki laust við að þreytublær svífi yfir vötnun- um. Það sem heldur þeim uppi sem endranær er söngurinn en allir eru þeir Crosby, Stills og Nash afbragðs- góðir söngvarar og sérfræðingar í raddútsetningum. Það hlýtur bæði að vera gleðilegt og sárt fyrir þessar gömlu kempur að horfa upp á fyrrum félaga sinn, Neil Young, senda frá sér hvert meistaraverkiö á fætur öðru á meðan þeirra bíður ekkert nema minningin um foma frægð. Sigurður Þór Salvarsson fyrri. Fyrir sanna rokkunnendur er hún hins vegar ekki tormelt eins og Jón Símonarson (söngvari) hefur látið frá sér fara. Á plötunni eru tíu ný lög sem öll hafa mikiö til síns ágætis. Aðallagahöfundur plötunnar (Davíð Þór Hlinason) á mikið hrós skilið. Lögin innihalda flest kraft- mikla gítarfrasa, auk þess sem söng- melódíur koma vel í gegn, en þaö vill oft gleymast þegar menn eru að setja sig á háan hest sem rokkarar. Útsetn- ingar em nokkuð frumlegar og þó Dos Pilas - My Own Wings ★ ★ ★ i. r BRAVO! Aðdáendur erlendra sveita eins og Alice in Chains og Soundgarden hafa lengi beðið eftir íslenskri plötu sem hefur eitthvað sér til ágætis í rokk- geiranum. Nú er hún komin. Dos Pilas gefur nú út aðra plötu sína á þessu ári sem verður að teljast stór- virki út af fyrir sig miðað við smæð markaðarins. Platan ber nafnið My Own Wings og fyrsta hrósið fær útlitshönnuður en myndin á framhlið er frumleg að öllu leyti og kemur vel út. Nýja platan er mun þyngri en sú Dos Pilas: Komust að því í sumar að hinn fulli Islendingur getur vel skemmt sér með þeim. DV-mynd ÞÖK Sveitaböll Dos Pilas fór hins vegar í nokkuð aðra átt en hingað til þegar hún æfði upp sérstakt dansleikjaprógramm í vor og lagði í samkeppni um hylli gesta á sveitaböllum landsins. „Viö lærðum heilmikið af þessari spila- mennsku og þéttumst til muna við hana. Til að skemmta fólki tókum við ýmiss konar tónlist eftir aðra og útsettum hana eftir okkar höfði. Við komumst að því að þótt við séum :pltitugagnrýni áhrifavaldar nái að skína í gegn ger- ast strákamir aldrei sekir um þjófn- að. Hljómurinn á plötunni er með því besta sem heyrist hér á landi enda mikil vinna lögð í hann. Guðmundur Jónsson sá um upptökustjóm og verður að teljast hafa komið sinu óaðfmnanlega til skila. Bestu lög plötunnar eru að mínu mati Wonder- land, Depression, Preachers og Schizophrenic. Það vantar ekki mikið upp á að drengimir í Dos Pilas teljist vel samkeppnishæfir á sístækkandi erlendum markaði. Bravó! Guðjón Bergmann Joe Cocker - Have a Little Faith ★ ★ Á Ræturnar gleymdar og grafnar Joe Cocker hefur haft nokkur tileftfi til að draga tappa úr flösku á þessu ári. Hann varð fimmtugur í mai og í sumar var liðinn aldarijórð- ungur síðan hann sló í gegn á alþjóða mælikvarða. (Fyrsti plötusamningur- inn átti þrítugsafinæli í fyrra en hann var nú ekkert til að hrópa húrra yfir.) Have a Little Faith er því eins konar afmælisútgáfa hjá Cocker. Því miður er hún hins vegar engin tímamótaútgáfa. Lagavalið er afskap- lega svipað og á síöustu plötum karls- ins og virðist sérsniðið að þörfum bandarískra útvarpsstöðva sem sérhæfa sig í tónhst miðaldra hlust- enda. Engin ævintýramennska er leyfð. Ekkert sem minnir á fyrstu áhrifm sem Joe Cocker varð fyrir heima í Sheffield þegar hann upp- götvaði Muddy Waters, John Lee Hooker, Lightnin’ Hopkins og slíka karla. Það er búið að moka yfir ræt- umar og malbika þar ofan á. Þó skal viðurkennt að nokkur lög á Have a Little Faith fá mann til að hlusta oftar en einu sinni. Let the Healing Begin er ósköp viðfelldið, sömuleiðis The Simple Things og kannski tvö til þrjú til viðbótar. En Joe Cocker er á rangri leið í tónlistinni rétt eins og Tina Tumer á síðustu ámm. Enda kannski engin tilviljun að bæði lúta þau stjóm sama mannsins, Ástralans Rogers Davies. Ásgeir Tómasson Crosby, Stills and Nash - Afterthe Storm ★ ★ Minning um menn Sú var tíðin að þeir höfðingjar David Crosby, Steven Stills og Graham Nash vora stórveldi í poppinu og fyrirmynd margra minni spámanna. Sér í lagi var þeim hampað á árunum upp úr 1970 þegar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.