Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Side 4
20
FÖSTUDAGUR 21. OKTÖBER 1994
Sýningar
Asmundarsafn
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir Ásmund
Sveinsson og Kristin E. Hrafnsson sem ber
yfirskriftina „Hér getur allt gerst". Sýningin
er opin alla daga kl. 10-4 og mun standa til
áramóta.
Café Mílanó
Faxafeni11
Þar stendur yfir samsýning listakvenna frá
Stúdíói Höfða. Sýningin stendurtil 29. októb-
er og er opin kl. 9-19 mánudaga, 9-23.30
þriðjud., miðvikud. og fimmtud., kl. 9-1
föstud. og laugard. og.kl. 9-23.30 sunnud.
Eden
Hveragerði
Sigurður Jónsson frá Einarsstöðum sýnir
málverk unnin í olíu og akrýl sem hann hefur
málað síðustu ár. Um er að ræða marg kyns
verk, t.d. landsllagsmyndir, portrettmyndir og
götumyndir. Allar myndirnar eru til sölu. Sýn-
ingin stendur til 31. október.
Gallerí Álafoss
Mosfellsbæ
í gamla Álafoss-húsinu stendur yfir málverka-
sýning Tolla. Sýningin mun standa til 29.
október og er opin kl. 13-18.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvik
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu Axels-
dóttur, Helgu Ármannsdóttur, Elínborgar
Guðmundsdóttur, Sigrúnar Gunnarsdótturog
Margrétar Salome. Galleríið er opið alla virka
daga kl. 12-18.
Gallerí Borg
Gunnar Örn sýnir í Galleríi Borg. Verkin eru
öll til sölu. Sýningin er opin virka daga kl.
12-18 og 14-18 um helgar en henni lýkur
30. október.
Gallerí einn einn
Skóla vörðustig 4a
Þar stendur yfir grafíksýning Grétu Mjallar
Bjarnadóttur. Sýningin er opin daglega kl.
14-18 og stendur til 27. október.
Gallerí Fold
Laugavegi118d
Á morgun verður opnuð málverkasýning
Hrings Jóhannessonar í Galleríi Fold. Þar
verða sýndar 25 pastelmyndir. Opið daglega
kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Greip
Hverfisgötu 82
Á morgun kl. 17 opnar Bjarni Hinriksson
myndlistarsýningu. Sýningin ber yfirskriftina
Myndasögur og maurakallar. Til sýnis verður
myndasagan Vafamál og nokkrar yngri og
eldri maurakallateikningar. Sýningin stendur
til 9. nóvember og er opin alla daga nema
mánudaga kl. 14-18.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema
laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Regnbogans
Þar stendur yfir sýning á málverkum Egils
Eðvarðssonar. Egill sýnir olíumálverk úr mynd-
röðinni Árstíðirnar. Galleríið er ávallt opið
þegar kvikmyndasýningar standa yfir.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstíg 1
Þar stendur yfir sýning Magdalenu Margrétar
Kjartansdóttur á einþrykkjum. Sýningin stend-
ur til 26. október. Galleríið er opið þriðjud-
laugard. kl. 13-18 og sunnud. kl. 14-18. Lok-
að mánudaga.
Gallerí Sólon íslandus
Þar stendur yfir sýning Önnu Jóhannsdóttur
á olíumálverkum. Sýningin stendur til 24.
október og er opin alla daga kl. 11-18.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Lind Völundardóttir er með sýningu á uppi-
standandi myndverki. Sýningin stendur til 27.
október og er opin á verslunartímum á virkum
dögum kl. 10-18.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Þar stendur yfir myndverkasýning Gísla Sig-
urðssonar. Sýningin stendur til 31. október. i
Sverrissal stendur yfir sýning Sæmundar
Valdimarssonar sem ber yfirskriftina Skógar-
menn. Sýningin stendur til 31. okt. Sýningar-
salir eru opnir kl. 12-18 alla daga nema þriðju-
daga. Kaffistofan er opin kl. 11-18 virka daga
og 12-18 um helgar.
Kaffibarinn Ari í Ögri
Ingólfsstræti
Þar stendur nú yfir sýning Carls-Heinz Opol-
ony á vatnslitamyndum. Myndirnar verða til
sýnis næstu vikur og eru til sölu.
Kjarvalsstaðir
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum Magn-
úsar Pálssonar. Sýningin er opin daglega kl.
10-18 og stendur til 23. október. Kaffistofa
Kjarvalsstaða er opin á sama tíma.
Listahúsið Þingi
Hólabraut 13, Akureyri
Á morgun kl. 16 verður opnuð sýning á verk-
um Birgis Snæbjarnar Birgissonar. Á sýning-
unni verða málverk auk bókverka. Sýning
Birgis stendur til 30. október og er opin dag-
lega kl. 14-18.
Listgallerí
Listhúsinu i Laugardai
Þar stendur yfir útgáfusýning bókarinnar
Læknabókin, heilsugæsla heimilanna. List-
galleríið er opið 10-18 virka daga og 10-16
á laugardögum.
Listasafn Akureyrar
Sigurður Árni Sigurösson sýnir verk sín í öllum
3 sölum Listasafsins á Ákureyri. Sýningin
stendur til 2. nóvember. Safnið er opið alla
daga nema mánudaga kl. 14-18.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi
Á morgun kl. 14 opnar Hringur Jóhannesson
málverkasýningu. Þar verða sýnd 30 olíumál-
verk. Sýningin er opin daglega kl. 14-19.
Lokað miðvikudaga, síðasti sýningardagur er
6. nóvember.
Listasafn Einars Jónssonar
Njaröargötu, sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16.
Lokað í desember og janúar. Höggmynda-
garðurinn er opinn alla daga. Inngangur frá
Freyjugötu.
Sæmundur Valdimarsson sýnir i Sverrissal í Hafnarborg.
DV-mynd GVA
Tvær sýningar í Hafnarborg:
Skógarmenn og Tíminn
og hverfulleikinn
Núna stendur yflr sýningin Skóg-
armenn í Sverrissal í Hafnarborg. Á
sýningunni eru 32 verk Sæmundar
Valdimarssonar sem unnin eru í
rekavið. Fyrir um fimmtán árum fór
Sæmundur að setja saman myndir
úr steinum og rekaviði. Þessi verk
hans voru fyrst sýnd í Gallerí SÚM
árið 1974, á sýningu á alþýðulist sem
þar var haldin. Um svipað leyti hóf
hann að vinna stærri skúlptúra úr
rekaviöi. Sæmundur hélt sína fyrstu
einkasýningu áriö 1983 en sýning
hans í Hafnarborg nú er sú tólfta í
röðinni, þar af ein í Ósló. Sæmundur
hefur einnig tekið þátt í samsýning-
um hér heima og í Hollandi.
Sæmundur er fæddur árið 1918 á
Krossi á Barðaströnd. Hann var bú-
settur þar til fullorðinsára og stund-
aði ýmis störf til sjós og lands sam-
hliða bústörfum.
í Hafnarborg stendur einnig yfir
sýning á verkum Gísla Sigurðssonar.
Sýnd eru 30 verk unnin með bland-
aðri tækni en yfirskrift sýningarinn-
ar er Tíminn og hverfulleikinn. Um
það yrkisefni fjalla öll verkin á einn
eða annan hátt og þau eru unnin á
síðustu fjórum árum.
Flestar myndannna eru unnar með
olíulit á léreft en einnig notar Gísli
blaðgull svo og samklippur úr papp-
ír. Hann fylgir sýningunni úr hlaði
með pisth í sýningarskrá þar sem
hann útskýrir muninn á innhverfri
og úthverfri myndhst. Sýningarsahr
eru opnir frá kl. 12-18 alla daga nema
þriðjudaga.
Alda Armanna Sveinsdóttir sýnir
verk sín í Garðabæ.
AldaÁr-
mannaí
Garðabæ
Núna stendur yfir málverkasýning
í Sparisjóðnum í Garðabæ á verkum
Öldu Ármönnu Sveinsdóttur. Á sýn-
ingunni sýnir Alda ohuverk, meðal
annars hluta af sýningunni Gyðjur í
íslensku samfélagi og myndir sem
eru unnar í framhaldi af því, mynd-
unum fylgja ljóðrænir textar sem
tengjast efni myndanna.
Alda hefur haldið fjölda einkasýn-
inga hérlendis og erlendis, auk þess
að taka þátt í fjölda samsýninga. Hún
var með sýningu á Nordisk Forum í
Finnlandi í haust, Gyðjur í íslensku
samfélagi. Hún var einnig þátttak-
andi fyrir íslands hönd í Kollektiv
Intemational Maleri í Finnlandi 1.-6.
ágúst síðastliðinn.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
Sparisjóðsins frá kl. 8.30-16 alla virka
daga til 30. nóvember.
Gallerí Greip:
Myndasögurog
maurakallar
Bjarni Hinriksson opnar myndhst-
arsýningu í Galleríi Greip að Hverf-
isgötu 82 á laugardag kl. 17. Þetta er
fyrsta einkasýning Bjarna en hann
hefur tekið þátt í samsýningum bæði
hérlendis og erlendis. Sýningin ber
yfirskriftina Myndasögur og maura-
kallar. Til sýnis verður myndasagan
Vafamál og nokkrar yngri og eldri
maurakahateikningar. Vafamál er
unnin eftir sögu Jóns Karls Helga-
sonar sem aftur byggir á Vafþrúðnis-
málum úr Eddukvæðum. Hinn forni
texti er látinn halda sér og íléttaður
inn í vilhgöngur tveggja drengja sem
um leið eru sögumenn.
Hringur Jóhannesson sýnir á tveim-
ur stöðum um helgina.
Hringur í ASÍ
Hringur Jóhannesson opnar mál-
verkasýningu í Listasafni ÁSÍ á laug-
ardag kl. 14 en þar verða sýnd rúm-
lega 30 olíumálverk. Sýningin er opin
daglega frá kl. 14-19, lokað miðviku-
daga. Sýningunni lýkur 6. nóvember.
Einnig opnar hann. sýningu í Gallerí
Fold á laugardag kl. 14.30. Sýningin
er opin frá kl. 10-18 nema sunnudaga
frá kl. 14-18.
Drengur með veiðistöng, eitt verka
Birgis.
Þing:
Málverk og
bókverk
Sýning á málverkum og bókverk-
um verður öpnuð í Listhúsinu Þingi,
Hólabraut 13, Akureyri, á laugardag
kl. 16 á verkum Birgis Snæbjarnar
Birgissonar. Hann stundaði nám við
Myndhstarskólann á Akureyri,
Myndhsta- og handíöaskóla íslands,
auk náms í Strasbourg í Frakklandi.
Þetta er þriðja einkasýning Birgis en
hann hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og erlendis.
Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18
og lýkur 30. október.
Ólöf Nordal í
Gerðubergi
Núna stendur yfir sýning á verkum
Ólafar Nordal í Menningarmiðstöð-
inni í Gerðubergi. Á sýningunni, sem
ber nafnið Sjálfsmyndir, eru skúlp-
túrar og teikningar. Sýningin er opin
frá kl. 10-21 mánudaga th fimmtu-
daga og 13-17 föstudaga til sunnu-
daga. Sýningunni lýkur6. nóvember.
Sýningar
Listasafn íslands
Síðasta sýningarhelgi sýningarinnar i deigl-
unni 1930-1944, frá alþingishátíð til lýðveld-
isstofnunar - íslenskt menningarlíf á árunum
1930-1944. Safnið er opið alla daga nema
mánud. kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs-
Gerðarsafn
Hamraborg 4, Kópavogi, sími 44501
Á morgun kl. 14 opnar Ragnhildur Stefáns-
dóttir sýningu á skúlptúrum. Sýningin er opin
alla daga kl. 12-18 nema mánudaga og henni
lýkur sunnudaginn 6. nóvember. Kaffistofan
er opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Islandsmerki og súlur Sigurjóns Ólafssonar
heitir sýningin sem nú stendur yfir. Hér er um
að ræða hátíðarsýningu í tilefni af 50 ára af-
mæli lýðveldisins. Sýningin mun standa til
áramóta. Safnið er opið laugard.-sunnud. kl.
14-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl.
14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Gerðubergi 3-5, Reykjavík
Þar stendur yfir myndlistarsýning Ólafar Nord-
al. Á sýningunni, sem ber nafnið Sjálfsmynd-
ir, eru skúlptúrar og teikningar. Sýningin er
opin kl. 10-21 mánudaga-fimmtudaga og kl.
13-17 föstudaga-sunnudaga. Sýningunni
lýkur 6. nóvember. Þar stendur einnig yfir yfir-
litssýning sem ber yfirskriftina islenska ein-
söngslagið. Á sunnud. í okt. og nóv. verða
íslenska einsöngslaginu gerð skil með fyrir-
lestrum, Ijóðasöng og hljóðfæraleik. Sýningin
stendur til 1. desember.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Laugavegi26
Á morgun kl. 15 opnar Ástríður H. Andersen
málverkasýningu í sýningarsal Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna. Sýningin verður
opin kl. 13-17 daglega og stendur til 5. nóv-
ember.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustig
Þar stendur yfir sýning á verkum Jenny Holz-
er en hún er einn af virtustu listamönnum
samtímans. Hluti sá sem er til sýnis á Mokka
samanstendur af 14 Ijósmyndum af skinni og
á það hefur Jenny Holzer handritað texta en
texti hefur verið aðalviðfangsefni hennar til
þessa. Sýningin nefnist Lostamorð og fjallar
um nauðganir á konum í Bosníu. Sýningin
stendur yfir út október. Opið er kl. 9.30-23.30
alla daga nema sunnudaga kl. 14-23.30.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Sérsafn á sviði lækningaminja. i safninu eru
sýndar minjar sem tengjast sögu heilbrigðis-
mála á islandi frá miðri 18. öld og fram til
okkar daga. Á tímabilinu 15. september 1994
til 14. maí 1995 verður ekki opið á neinum
tilteknum tíma en safnið einungis opið sam-
kvæmt umtali. Er þeim sem hafa áhuga á að
skoða safnið bent á að hafa samband við
skrifstofu þess í síma 611016.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstig 3b
Þar standa yfir 4 sýningar. Gerður Leifsdóttir
sýnir í Setustofu Ijósmyndir og verk úr kros-
sviði. Hreinn Friðfinnsson sýnir 1 verk, glerhill-
ur með álímdum formum úr silfurpappír sem
varpa frá sér Ijósi og skuggum. Ingileif
Thorlacius sýnir 5 skúlptúra úr fatnaði og
ýmsum búsáhöldum. Níels Hafstein og Har-
aldur Níelsson sýna verk sem unnin eru und-
ir áhrifum stríðsleikja, 10 metra langan út-
saumaðan refil og samhangandi teikningar.
Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-18.
Þeim lýkur sunnudaginn 30. október.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning á vefjarlist eftir dönsku
listakonuna Ruth Malinowski. Á sýningunni
eru veggteppi sem listakonan hefur unnið á
þessu og síðastliðnu ári. Sýningin er opin
daglega kl. 14-19 og henni lýkur 6. nóvember.
Leiðin til lýðveldis
Viðamikil samsýning Þjóðminjasafns og Þjóð-
skjalasafns á munum, Ijósmyndum, skjölum,
búningum, vaxmyndum og mörgu öðru, sem
tengist sögu sjálfstæðisbaráttunnar frá dögum
Fjölnismanna 1830 til lýðveldishátíðar 1944,
er í Aðalstræti 6 - gamla Morgunblaðshúsinu.
Sýningin mun standa til 1. desember. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Sýning-
arsalur Þjóðminjasafnsins v/Suðurgötu verður
lokaður til 1. október.
Portið
Strandgötu 50, Hafnarfirði
Á morgun lýkur sýningunni Stefnumót trúar
og listar. Þar sýna 27 listamenn 30 verk sem
unnin hafa verið sérstaklega af þessu tilefni.
Sýningin er opin kl. 14-18.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarfirði, simi 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18.
Safn Ásgríms Jónssonar
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Nú stendur yfir sýning á myndum sem Ás-
grímur málaði á Þingvöllum. Sýningin mun
standa fram í nóvember. Safnið er opið laugar-
daga og sunnudaga kl. 13.30-16.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 654242
Sjóminjasafnið er opið alla daga kl. 13-17.
Sparisjóðurinn í Garðabæ
Garðatorgi 1
Þar stendur yfir sýning Öldu Ármönnu Sveins-
dóttur myndlistarkonu. Myndirnar eru til sölu.
Sýningin er opin á afgreiðslutima Sparisjóðs-
ins kl. 8.30-16 alla virka daga til 30. nóvemb-
er.
Stöðlakot
Við Bókhlöðustíg 6
Síðasta sýningarhelgi á listvefnaði eftir Ólöfu
Einarsdóttur. Sýningin er opin alla daga vik-
unnar kl. 14-18. Henni lýkur 23. október.
Upplýsingamiðstöð
ferðamála
Akranesi
Þar stendur yfir sýning Péturs Stefánssonar á
teikningum. Sýningin stendurtil 3. nóvember.