Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Page 2
24
Bflar
i
\ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
Ný Skoda Felicia frumkyimt í Prag:
Teikning Bertones
snotruð til
Þótt kommúnismanum heföi veriö
hrundið og nýir tímar gengið í garö
hjá Skoda, eins og í Tékklandi al-
mennt, þótti ekki ástæöa til að hverfa
að öllu leyti frá grunnteikningu Ber-
tones. Ákveðið var að snotra hana
aðeins til og færa hana að kröfum
tímans, útlitslega og tæknilega. Nið-
urstaðan er Felicia, bíll sem er fjór-
úm sentímetrum lengri og 1,5 sentí-
metrum breiðari, nútímalegur bíll
sem þó minnir í útliti að mörgu leyti
á Favoritbílinn sem hann leysir af
hólmi.
Það fyrsta sem vakti athygli undir-
ritaðs á kynningunni austur í Prag
var hve fallegt handbragð er á þess-
um bíl. Öll bil, svo sem milli vélar-
hlífar og bretta og kringum hurðir,
eru jöfn og lagleg, eins og maður á
að venjast á bílum vestrænna fram-
leiðenda en austurevrópsku fram-
leiðendunum hefur ekki þótt svo
nauið síðustu áratugina. Lakkáferð-
in er áberandi góð. Felgurnar á þess-
um nýja Skoda eru býsna laglegar,
Skoda Automobiloya a.s. kynnti nú
um mánaðamótin nýjan bíl. Þessi nýi
bíll heitir Skoda Felicia og leysir af
hólmi Skoda FavoritForman-bílana
sem íslendingar þekkja.
Þó að kynningin væri stutt er óhætt
að fullyrða að með þessum nýja bíl
hafa Skodaverksmiðjumar tekiö
stökk inn í nútíðina og eru komnar
með bíl sem keppir á jafnréttisgrund-
velli við helstu merki í minni milli-
stærðarflokki. Þetta er ekki bara
Skoda, þetta er Volkswagen Skoda.
Sem varla er að undra: í desember
1991 eignaðist Volkswagen 31% hlut
í Skodaverksmiðjunum og bætti þar
með Skodamerkinu við þau þrjú sem
fyrir voru í Volkswagen-samsteyp-
unni, sem auk VW eru Audi og Seat.
Þetta var aðeins fyrsta skrefið; í
næstu tveimur skrefum auka
Volkswagenmenn hlutdeild sína upp
í 70% hlut í Skoda Automobilova en
tékkneska ríkisstjórnin 30%, og
þannig er meiningin að þetta verði
frá og með 1996.
Markmiðið: að kom-
ast í fremstu röð
Undirbúningur að Skoda Felicia
var kominn af stað þegar kaupin við
Skoda Felicia
nokkrartölur:
Vél: 4 strokka vatnskæid, þver-
stæð framan í. 1289 cc, 40/55
kw/hö eða 50/68 kw/hö, 94 Nra v.
3250 sn.mín. eða 100 Nra v. 3750
sn.mín. Rafeindastýrð einspíssa
innspýting, Bosch-Monomo-
tronic, tölvustýrö rafeinda-
kveikja. Minni vélin notar 92 okt-
ana bensín en sú stærri 95 okt-
ana. Meðaleyðsla samkvæmt
meginlandsstaðli 7,1 1 á 100 km
fyrir minni vélina, 6,9 fyrir stærri
vélina.
Fimm gíra kassi, handskiptur;
sjálfskipting væntanleg síðar.
Lengd-breidd-hæð: 3855-1635-
1415 mm.
Hjólhaf, milli fram- og afturása:
2450 mm.
Ytra beygjuþvermál: 10,5 m.
Eigin þyngd: 920/930 kg.
Farangursrými: 2721 með aftur-
sætin uppi, 967 1 með aftursæti
niðurlögö.
Umboð: Jöfur hf.
Gabriel höggdeyfar
fyrir fólksbila, jeppa og vörubíla
Ath. útvegum verkstæðispláss
Verslið hjá fagmönnum - hagstætt verð
QSvarahlutir
HAMARSHÖFÐA1 • 67 67 44
Skottið opnast vel, bæði upp og niður, og er auðvelt að athafna sig við það. Hlerinn er opnanlegur með lykli innan
frá eða með fjarstýringu við ökumannssæti.
Volkswagen voru gerð. Aður hafði
VW látið Skoda í té nokkra tækni-
þekkingu og lánað sérfróða menn til
ráðgjafar um nýja bílinn sem átti að
taka við af FavoritForman. Mark-
miðið var þá þegar skilgreint að
nokkru: að koma Skoda í fremstu röð
f? aÁtit IroLta
Lamui
uaxn !
OssEHOAR
V0LV0 850 GLE
í sínum flokki hvað snerti „customer
satisfaction" - ánægju viðskiptavina
með framleiðsluna. Nýi Skodinn átti
áfram að vera í minni millistærð,
fimm manna fjögurra hurða fjöl-
skyldubíll.
Favorit tók á sínum tíma við af
105, 120 og 130-bílunum frá Skoda,
bílum með vélina aftur í og aftur-
hjóladrifnum. Þannig byggingarlag
var orðið gamaldags; krafan var um
vélina frammi í og framhjóladrif.
Skodamenn gengu í smiðju til Berto-
nes hins ítalska sem teiknaði Skoda
Favorit fyrir þá. Tæknilega og stjóm-
unarlega voru Tékkar með sitt
kommúníska stjómskipunarkerfi þó
ekki ekki tilbúnir að fylgja snoturri
teikningu Bertones eftir með bfl sem
stæðist samkeppni við algengustu
tegundir vestantjaldslanda sem var
að hluta viðurkennt með verðlagn-
ingunni sem var mun lægri en á vest-
antjaldsbílum eða japönskum í sama
stærðarflokki. Favorit hafði marga
galla en var verulega endurbættur
þegar Volkswagen komst almenni-
lega með fingurna í spilið. Samt var
ástæða til að gera ennþá betur.
Hægt er að leggja niður aftursætið
40/60.
likar því sem nú gerist á Volkswagen
Golf. Bertone hlýtur að vera nokkuð
sáttur við lagfæringuna sem Tékk-
Til sölu Volvo 850 GLE, árg. 1993, ekiirn 28.000
km, 5 cyl., 20 ventla vél með beinni innspýtingu,
143 hestöfl, sjálfskiptur, 4 gíra með vetrar-, sport-
og spar-stillingu, vökva-, velti- og aðdráttarstýri,
leðuráklæði á sætum og stýri. Rafdrifnar rúður,
speglar og læsingar, framdrifinn með spólvörn,
ABS-hemlakerfi, iitnbyggður barnastóll í aftursæti,
útvarp og segulband með 8 hátölurum, dökkgrár
metallic, stunar- og ný vetrardekk.
Verð 2.450.000. - Með 6 mánaða ábyrgð.
Opið laugardaga frá kl. 10-16.
BRiMBORG
Faxafeni 8 - sími 91-68 58 70
ar/Þjóðverjar hafa gert á teikning-
unni hans.
Vélarhúsið lækkar mun meira
fram, framljósaklasarnir ganga út á
brettin, afturhlutinn er mýkri og
rennilegri. Mest munar ef til vill um
hliðarlínurnar, stansaða línu neðan
til á hurðum og frambretti með hlífð-
arlista og aðra íbjúga neðan við
glugga sem gefa bílnum mjúklega
bogadregið „mitti“. Grillið er næsta
lítið breytt frá Favorit og er kannski
sá partur endursköpunarinnar sem
lakast hefur tekist.
Allt nýtt að innan
Að innan er allt nýtt: ný formmót-
uð og bólstruð klæðning innan í
hurðum, nýtt mæiaborð og fram-
rúðusylla, ný sæti. Stýrishjólið er
nýtt, ný gírstöng og - þaö sem
kannski skiptir mestu máli - allt
önnur tilfinning en í Favoritbílnum.
Sætin virðast, af stuttum kynningar-
akstri, afbragðsgóð, og það er einnig
þægileg tflfmning að tylla sér í aftur-
sætið. Hurðirnar lokast meö nokkuð
þéttu hljóði, enda læsingamar frá
Volkswagen.
Vélar eru tvær í boði, 40 kw og 50
kw, eða 55 og 68 hestafla. Sá sem við
íslendingarnir fengum að fara
skreppitúrinn á var með stærri vél-
inni. Satt að segja var það sá þáttur
sem okkur fannst helst athugaverð-
ur, vinnslan fremur slöpp. Snúnings-
vægið er 100 Nm við 3750 sn. mín.,
og við þau gírhlutfóll sem Felicia
hefur er þetta slakasti punkturinn
við bflinn. Það þarf að gefa honum
ansi röskan snúning til að láta hann
svara sæmilega; samt er hann gefinn
upp með aðeins 14 sekúndur úr kyrr-
stöðu í 100. Mér fannst hann ekki
þurfa á fimmta gírnum að halda fyrr
en í 120 og hámarkshraði er gefinn
upp 150. Að vísu fór reynslubíllinn í
160 undan halla á stuttri hraðbraut
sem tækifæri gafst til að reyna hann
á.
Hljóólátur, með
góða fjöðrun
Gírkassinn er með sömu hlutföll-
um og kassinn í Favoritbílnum en
breyttur og bættur að ýmsu leyti,
meðal annars með styttri gírstöng.
Skiptingar eru auðveldar og þægileg-
ar og yfirleitt afar auðvelt og þægi-
legt að aka þessum bíl. Bremsur eru
fyrirtaks góðar en það finnst við
ákveðnar aðstæður aö aflstýrið vant-
ar. Þaö er þó væntanlegt á næsta ári
og ekki víst að hingað komi neinir
bílar án þess.
Það sem lyftir þessum bíl þó i nýjar
hæðir miðað við Skodabíla síðustu
áratuga er ekki síst tvennt: prýðileg
fjöðrun og þar með veggrip og hve
hljóðlátur hann er. Grunnplatan í
bílnum er að verulegu leyti gamla
Favorit-platan en þó með stórbreyttri
fiöðrun og bættri. Þar naut sín þekk-
ingin frá Volkswagen þegar grunn-
plötunni var breytt til þess að gefa
sem alla mest hjólhaf og traustasta
fiöðrun, gormafiöðrun með dempara
inni í á hverju hjóli, MacPherson að
framan en eltiarmur með vindikross-
örmum og jafnvægisstöng að aftan.
Þó að hraðbrautin fyrrnefnda væri
vægast sagt ósléttur og vondur vegur
vottaði aldrei fyrir því að bíllinn yrði
losaralegur eða veggripið slaknaði.
Þarna hefur vel tekist til.
Miðað við aðra bíla í sínum stærð-
arflokki virðist Skoda Felicia af þess-
ari stuttu viðkynningu einnig vera
ágætlega hljóðlátur. Vélar- og gír-
hijóð er mjög viðunandi í honum,
sömuleiðis vindhljóð, og veghljóö var
heldur ekki til vansa í þessum stutta
kynningarakstri. Þetta atriöi er þó
til endurskoðunar við ítarlegri
reynsluakstur og íslenskar aðstæður
þegar þar að kemur.