Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 6
22 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 Hreyflmyndafélagið sýnir Boðorðin eftir Kieslowski Hreyfimyndafélagið mun á næstu dögum taka til sýninga kvikmynd- irnar Boðorðin (Dekalog) eftir pólska leikstjórann Krzysztof Kieslowski. Myndirnar eru tiu taisins, ein mynd eftir hveiju boðorði, og er þetta í fyrsta skipti sem þær eru sýndar í kvikmyndahúsi hérlendis. Boðorðin voru upphaflega gerð fyr- ir sjónvarp og voru meðal annars sýnd i Ríkissjónvarpinu fyrir fáum árum. Þau hafa einnig verið sýnd í kvikmyndahúsum og gengu fyrir fullu húsi i París í tvö ár samfleytt. Af tveimur myndanna um Boðorðin voru gerðar lengri útgáfur, Stutt mynd um morð og Stutt mynd um ást, og hafa báðar þeirra verið sýnd- ar á kvikmyndahátíð Listahátíðar. Kvikmyndirnar um Boðorðin komu Kieslowski í fremstu röð evr- ópskra kvikmyndagerðarmanna en í kjölfarið fylgdi kvikmyndin Tvöfalt líf Veróníku. Kieslowski segist vera hættur að gera kvikmyndir, þrátt fyrir að hann sé ennþá á besta aldri, og að þríleikurinn um frelsi, jafnrétti og bræðralag séu hans síðustu myndir. Þrír litir: Blár var sýnd hér á landi í vor, Þrír litir: Hvítur er sýnd núna í Háskólabíói og Þrír litir: Rauður verður frumsýnd um jólin. í fyrra sýndi Hreyfimyndafélagið myndina No End frá 1984 en við gerð þeirrar myndar naut Kieslowski í fyrsta skipti liðsinnis lögfræðingsins Krzysztofs Piesiewicz sem hafði ver- ið framarlega í baráttu_Samstöðu gegn stjórn kommúnista og varið marga liðsmenn hennar. Síðan hefur Piesiewicz verið meðhandritshöf- undur Kieslowskis að öllum mynd- um hans. Það var upphaflega hug- mynd Piesiewicz að gera myndirnar um Boðorðin. Kvikmyndirnar Boðorðin verða brátt sýndar hjá Hreyfimyndafélaginu. Stjömubíó: Gamanmyndin Threesome Stjömubíó hefur tekið til sýninga gamanmyndina Threesome sem íjallar um stúdínuna Alex og vini hennar. Hún lendir óvart 4 lista yfir karlmenn vegna nafnsins þegar hún sækir um skóla og lendir í að deila herbergi með tveimur karlmönnum sem hún hefur aldrei áður séð. Eddy og Stuart eru afar ólíkir en þeir eru orðnir bestu vinir á þeim stutta tíma sem þeir eru búnir að deila herbergjum. Strákamir eru aft- ur á móti í óvissu um hvernig þeir eiga að bregðast við innrás frá svo fallegri stúlku sem Alex er. Ekki líð- ur á löngu áður en góð vinátta tekst með þríeykinu en jafnframt hefst ástarþríhymingurinn frægi. Stuart er ástfanginn af Alex en hún sér ekki sólina fyrir Eddy. Hann aftur á móti er að reyna að átta sig á hverjar til- finningar hans gagnvart kynlífi séu og er langt á eftir henni. Lara Flynn Boyle, Stephen Bald- win og Josh Charles leika aðalhlut- Alex, Lara Flynn Boyle, er vonlaus um að ná ástum Eddys, Josh Char- les, í gamanmyndinni Threesome. verkin í gamanmyndinni. Eddy er sá gáfaði en Stuart er partíljón staðar- ins og áhugamál hans em kynlíf og víndrykkja. Leikstjóri og handrits- höfundur er Andrew Fleming. Að sögn Flemings er nógu erfitt fyrir ungt fólk að átta sig á eigin persónu þegar það er í framhaldsskóla þótt ofan á það bætist ekki heilabrot um ástina og kynlífið. Háskólabíó frum- sýnir Daens Háskólabíó frumsýnir kvik- myndina Daens í leikstjóm Stijn Coninx. Myndin var framlag Belga til óskarsverðlaunanna 1993. Ðaens er baráttusaga sem gerist í Belgíu á öndverðri nítjándu öldinni í skugga iðnbyltingarinnar. Myndin gerist í smábænum Aalst þar sem flestir íbúarnir vinna í spunaverk- smiðju. í græðgi sinni innleiðir eig- andi spunaverksmiðjuxmar nýjar og stórhættulegar vinnuaðferöír til að ná hámarksgróöa og verður vinnuálagiö til þess aö slysum og dauðsföllum fjölgar vemlega. A sama tíma eru í mótun stórkostleg- ar umbætur á kosningalöggjöfinni í Belgíu og fá allir karlmenn kosn- ingarétt, óháð stöðu og eignum. Stefna þær breytingar alræðisvaldi eignastéttarinnar í voða og verður það til þess að þess aö hún herðir tök sin á verkalýðnum. Daens var Iramlag Belga tii ósk- arsverðlaunanna 1993. Sambíóin sýna Sérfræðinginn Sharon Stone og Sylvester Stallone lelka aðalhlutverkin I kvikmyndinni Sérfræðingurinn. Sambíóin og Borgarbíó á Akureyri hafa tekið til sýninga spennumynd- ina The Specialist eða Sérfræðinginn eins og hún hefur verið nefnd á ís- lensku. Með aðalhlutverkin fara stjórstjömurnar Sylvester Stallone og Sharon Stone en með önnur hlut- verk fara meðal annars Eric Roberts, James Woods og Rod Steiger. Mynd þessi segir frá sprengjusér- fræðingnum Ray Quick, Stallone, sem hittir hina undurfögm May Munro, Stone, og heillast umsvifa- lust upp úr skónum. Hún sækist eftir hefnd á morðingjum foreldra sinna og hefur árum samari skipulagt and- svar sitt og.finnst nú vera kominn tími á aðgerðir. Henni tekst með klækjabrögðum að komast inn undir hjá hinni glæpsamlegu Leon-fjöl- skyldu, sem leidd er af Joe, Rod Stei- ger, hinum sama og fór fram á morð foreldra hennar. Hans hægri hönd er svo erfinginn Tomas, Eric Ro- berts. Hættan vex stöðugt og Ray þjálpar May að losa sig við morðingjana, einn og einn í einu. Hins vegar kom- ast þau í vandræði þegar leigumorð- inginn Ned Trent, James Woods, fyrrum félagi Rays, kemst að hinu sanna í málinu og hótar að koma upp um þau. Um leið og tíminn virðist vera á þrotum dregst Ray lengra og lengra inn í svikavef May og þrá- hyggju hennar. Spuraingin er bara sú, er hún að falla fyrir honum eða er hún að veiða hann í gildru? Leik- stjóri myndarinnar er Louis Llosa sem einnig hefur leikstýrt Sniper og Crime Zone. OiPJIil aísnfil estí 9 9*1 7 • 0 0 Verð aöeins 39,90 mín. 4 : afþreymg Dagskrá Sjónv. 21 Dagskrá St. 2 31 Dagskrá rásar 1 41 Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5| Myndbandagagnrýni 61 Isl. iistinn -topp 40 l7 1 Tónlistargagnrýni Sambíóin sýna Risaeðlumar Sambíóin hafa. tekið til sýninga bamamynd Spielbergs, We’re back! A Dinosaur’s Story eða Risaeðlum- ar. Sagan byrjar í nútímanum en flakkar aftur í tímann alla leið til þeirra tíma er risaeðlur voru upp á sitt besta. Louie og Ceciliu langar mest af öllu til þess að eignast ein- hverja vini. Dag einn koma vinalegar persónur í heimsókn til New York City og taka Louie og Ceciliu með sér í ævintýraferð. Þau bjuggust alls ekki við að þau ættu eftir að vingast við hóp af elskulegum og gáfuðum risaeðlum. Captain NewEyes býður fjórum risaeðlum að koma með sér tií fram- tíðarinnar í tímavélinni sinni og hitta mannabömin sem vom mjög spennt að hitta þær. Götustrákinn Louie langar mest af öllu tii þess að eignast vini. Ferðalangamir koma til nú- tímalegrar New York og hitta þar Louie sem lofar að hjálpa þeim til þess að finna Ameríska náttúm- Risaeðlurnar flakka til New York nútímans. fræðisafnið. Þar munu þeir hitta Dr. Bleeb sem mun vemda þá. Á leiðinni hitta þeir CecUiu sem er vel upp ahn stúUia en mjög einmana. Risaeðlum- ar lenda í mörgum ævintýrum og þar á meðal í þakkargjörðarteiti ásamt þúsundum hamingjusamra syngj- andi bama. Kvikmyndir BÍÓBORGIN Slmi 11384 I blíðu og stríðu ★* Afengisvandamál og upplausn fjöl- skyldu í dramatiskri kvikmynd sem ekki fer almennilega af staö fyrr en eftir meðferð. -hk Fæddir morðingjar ** Amerlskir fjölmiðlar og ofbeldisdýrkun ogOliverStoneáútopnu. -GB Speed ** Ógnarhraðskreið mynd um fifldjarfa löggu i baráttu við geðbilaðan sprengjufikil. Ágaet skemmtun. -GB Umbjóðandinn ★★* Góð spennumynd eftir skáldsögu Johns Grishams. Aldrei þessu vant er myndin betri en bókin. Susan Saran- don og Tommy Lee Jones sýna bæði stórleik. -hk BfÓHÖLLIN Sími 78900 Villtar stelpur ★ Grútmáttlaus „kvennavestri" um fjórar hórur á flótta undan karlpeningnum í leit að alvöru peningum og betra lifi. -GB Forrest Gump *** Einstaklega Ijúf og mannleg kvikmynd sem leetur engan ósnortin. Undraverð- ar tæknibrellur sem heilla og stórleikur Toms Hanks er það sem haest ber. Einnig sýnd i Háskólabíói -hk Sannar lygar ** A Risa-mynd frá Cameron og Co sem stenst ekki samanburð við fyrri myndir hans vegna ómerkilegrar sögu. Ágaetis skemmtun með mikilfenglegum hasar- atriðum og góðum húmor inn á milli. . -GE SAGA-BÍÓ Simi 78900 Skýjahöllin **'/2 Nýjasta islenska kvikmyndin er um ævintýri Emils og Skunda. Einföld og öll á hægum nótum en er hin besta skemmtun fyrír fjölskylduna, sérstak- legaþóbörnin. -HK HÁSKÓLABfÓ Simi 22140 Þrír litir: Hvítur **'/2 Gráglettinn annar hluti þrileiks Ki- eslowskis um einkunnarorð frönsku byltingarinnar. Hér það er jafnréttió. -GB Næturvörðurinn *** Framúrskarandi danskur gaeðahúð- artryllir um sevintýrí naeturvarðar í lík- húsi. -GB Bein ógnun irk'A Harrison Ford berst gegn óvínum am- erisks lýðræðis, utanlands og innan, í sannkallaðristónnynd. -GB Isabelle Eberhart * Óspennandi mynd um spennandi ævi franskrar kvenútgáfu af Arabiu-Lárusi. -GB Fjögur brúðkaup *** Breskur húmor eins og hann getur bestur orðið i bráðskemmtilegri kvik- mynd með rómatfsku yfirbragði. -HK LAUGARÁSBÍÓ Siml 32075 Grlman **★ Snilldarbrellur sem samlagast skemmtilegum tilburðum hjá Jim Car- ey gera Grimuna nánast að leikinni teiknimynd. Góð skemmtunfyriralla. Flóttinn frá Absolom 'Hí Slök framtiðarmynd um lif í leynilegri fanganýlendu og átök tveggja fanga- hópa. Einnig sýnd i Stjörnublói. -GB REGNBOGfNN Sími19000 Reyfari ** % Töff og smart Tarantino um undir- heímalýð í Los Angeles, fskalt en ekki nógu gott. -GB Lilli er týndur ** Fjörug mynd um hrakfarir þriggja bófa sem ræna niu mánaða gömium snáða. Teiknimynd með lifandi fólki. -GB Neyðarúrræði *'A Yfirdrifin uppfærsla á ástarsögu sem ekki á að taka alvarlega en er of klisju- kennd og ósannfærandi. -GE Allir heimsins morgnar ★★★ Heillandi, dramatlsk kvikmynd um sannan tónlístarmann, sorg hans, sköpunargleði og skapbresti sem láta engan ósnortinn, Mynd sem sameínar áhugaátónlistogkvikmyndum. -HK STJÖRNUBfó Stmi 16500 Það gæti hent þig ** Þægileg og átakalaus skemmtun um lottóvinningshafa sem gefur gengil- beinu helmingínn. Góðir leikarar kom-, astvelfráþunnrisögu. -hk Úlfur ** 'A Vel gerö og leikin mynd um forleggj- ara sem breytist í úlf en herslumuninn vantar. -GB Bíódagar *** Friðrik Þór hefur gert skemmtilega og mannlega kvikmynd um æskuár ungs drengs i Reykjavik og i sveit. Sviðs- mynd einstaklega vei heppnuð. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.