Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1994, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1994, Síða 2
20 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 Hljómföng Hljómsveitir HAM: Lengi lifi Átján lög frá lokatónleikum HAM sem haldnir voru í Tunglinu í Reykjavík 4. júní sl. Þó HAM sé hætt skilur hún eftir sig minjar fyrir aödá- endur sína og fleiri. HÁM voru: Arn- ar Geir Ómarsson, trommur, Jóhann Jóhannsson, gítar og hljómborð, Ótt- arr Proppé, söngur, S. Björn Blöndal bassi og Siguijón Kjartansson, söng- ur og gítar. Smekkleysa Verð: 1.999 kr. V i >i I í <1!> i tl I 9 111 /E D I Vinir vors og blóma: Æði Fyrsta plata einnar mestu gleði- og stuðhljómsveitar landsins um þessar mundir. Á plötunni er kraftmikið og hressilegt popprokk en meðal laga eru Frjáls, Læt mig dreyma og Gott í kroppinn. Vinir vors og blóma eru: Þorsteinn G. Ólafsson, söngur, slag- verk, raddir; Njál Þórðarson, hljóm- borð, píanó, Hammond orgel, raddir; Gunnar Þór Eggertsson, gítar, kassa- gítar; Birgir Nielsen, trommur, slag- verk, raddir, og Siggeir Pétursson, bassiograddir. Skífan Verð: CD 1.999 kr./snælda 1.499 kr. Birthmark: Unfinished Novels Fyrsta plata Birthmarks sem er dú- ett skipaður þeim Svani Kristbergs- syni og Valgeiri Sigurðssyni. Hljóm- sveitin hefur starfað í fimm ár en hét Orange Empire þar til fyrir stuttu. Á þessari plötu koma fram um 200 hljóðfæraleikarar, allt frá jassleikur- um til strengja- og blásturssveita úr Caput-hópriúm. Tónlistinni verður best lýst sem popptónlist með marg- víslegum frávikum.. Birthmark fengu sér til aðstoðar Bretann Ric- hard Evans sem starfað hefur með Peter Gabriel, Nigel Kennedy o.fl. listamönnum á vegum Reald World útgáfunnar. Var platan tekin upp í Real World hljóðveri Gabriels. Nest/Japis Verö: 1.999 kr. Jet Black Joe: Fuzz Þriðja plata Jet Black Joe sem tekin var upp í þeirra heimabæ, Hafnar- firði. Hljómsveitin hefur verið að kynna efni plötunnar hér á landi og í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu. Fuzz þykir sýna rökrétt framhald þeirrar þróunar sem hljómsveitin hefur verið í. Ólafur Halldórsson stýrði að mestu hljóðritun ásamt hlj óms veitar meðlimum. Spor Verð: 2.199 ker. The More Things Change the More They Stay the Same Þessi plata Quicksand Jesus er gefin út af þeim sjálfum en þeir hafa kom- ið út á tveimur safnplötum Skífunn- ar, Heyrðu 3 og Heyrðu 4. Þessi plata er öll tekin upp „hve“ á þremur sól- arhringum og flokkast tónlistin und- ir ögrandi hipphopp-rokk. Hljóm- sveitarmeðlimir segja nafn plötunn- ar fengið úr vangaveltum um að á meðan allt breytist í kringum okkur; allur heimurinn verður flóknari og fótin breytast þá erum við ennþá í sömu vandræðum með einfalda hluti eins og reiði milh fólks. Quicksand Jesus er tæplega eins árs gömul hljómsveit sem í eru Finni, söngur, Arnar, bassi, Franz, gítar og Dabbi, trommur. Q.J./Skífan Verð: 1.999,- Þursaflokkurinn Áhljómleikum Hinn íslenski Þursaflokkur var all- sérstæöur tónlistarflokkur sem sótti efni aftur til fortíðar, nálgaðist ís- lensk þjóðlög og þjóðlegar stemmur út frá nýjum forsendum á fyrstu hljómplötu sinni sem vakti mikla athygh 1978. Þursunum þótti jafnan takast best upp á hljómleikum en þessi plata er einmitt með hljóöritun frá hljómleikum sem haldnir voru í Þjóöleikhúsinu í maí 1980. Komust færri aö en vildu. Meðhmir Þurs- anna brugðu á leik og sýndu á sér ýmsar tónlistarhliðar á þessum tón- leikum eins og heyra má á þessari endurútgáfu á geislaplötu sem hefur að geyma nokkur lög sem ekki hafa komið út á öðrum plötum Þursa- flokksins. Spor Verð: 1.599 kr. DV Unun: Æ Þegar gleðimenn eins og Þór Eldon, gitar, og Dr. Gunni, bassi, gítar, rödd, byrja samstarf má eiga von á ein- hveiju óvæntu. Hér er plata sem þykir með þeim frumlegri og sumir vilja flokka í beinu framhaldi af Sumri á Sýrlandi, Life’s too Good og Goði. Söngkonan Heiða kemur ný fram á sjónarsviðiö, kröftug söng- kona sem á eftir að vekja frekari at- hygli. Arnar G. Ómarsson og Sig- tryggur Baldursson sjá um trommu- slátt. Smekkleysa/Japis Verð: 1.999 kr. f p-^ / * 8 v ■ n ' * - \ f • /'á ‘y- > Á \ V' |\ ; ■ » * / V v Strigaskór nr. 42: Blót Kópavogur hefur ahð af sér margar af athyglisverðustu hljómsveitum landsins eins og Fræbbblana og S.H. Draum. Hlynur Aöils leiöir nýjan fulltrúa þessa bæjarfélags. Það þykir víst grunnhyggni að kalla tónlist þessarar hljómsveitar dauöarokk þó einhvern tíma hafi sú tónlist verið ahsráöandi hjá hljómsveitinni. Hér sprengir sveitin af sér hlekki „ódýrra tónlistarlegra útgönguleiða" eins og segiríkynningu. Japis Verð: 1.999 kr. Bong: Release Fyrsta plata Bong sem þau Eyþór Árnalds og Móeiður Júníusdóttir skipa. Lag Bongs, Do you remember, hefur getið þeim gott orð víða í Evr- ópu þar sem það hefur komið út á htihi geislaplötu og á safnplötum sem innihalda vinsæl danslög. Á Release er aö fma 12 lög, þar af þrjú sem komiö hafa út á safnplötum á árinu. Með Eyþóri og Móeiöi kemur fram hópur tónhstarfólks; Andrzej Kleina, Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Haha Gylfadóttir, Guðmundur Krist- mundsson, Helga Þórarinsdóttir, Hilmar Jensson, Szymon Kuran og Zbigniew Dubik, sem öll eru úr strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar íslands. Þar að auki spila á plötunni Eiöur Ámason, Guðmundur Jóns- son, Jakob Magnússon, Gunnlaugur Briem, Sigtryggur Baldursson, Veig- ar Margeirsson, Óskar Guöjónsson og Kór Kársnesskóla. Spor Verð: 2.199 kr. Kol: Klæðskeri keisarans Hljómsveitin Kol hefur starfað í tvö ár en Klæðskeri keisarans er fyrsta plata sveitarinnar. Flestir textar á plötunni eru eftir Guðjón Björgvins- son og lögin eftir Sváfni Sigurðarson og Hlyn Guðjónsson. Hljóðupptaka og hljóðblöndun var í höndum Tóm- asar Tómassonar en upptökur fóru fram í Fílabeinskjaharanum. Kol skipa annars Arnar Halldórsson, bassi, Benedikt Sigurðsson, rafgítar, Ragnar Ragnarsson, trommur, Hlyn- ur Guðjónsson, rafgítar og Sváfnir Sigurðarson, kassagítar. Kol/Japis Verð: 1.999 kr. Urmull: Ull á víðavangi Ung hljómsveit frá ísafirði með plötu fyrir hörðustu rokkunnendur. Tón- listin er keyrð áfram af fullum krafti en þess á milli er gripið í kassagítar- inn og sphaðar fahegar rokkballöö- ur. Talað er um Urmul sem arftaka Grafíkur sem fulltrúi ísfirsks rokks á landsvísu. Á plötunni eru 11 lög en Urmul skipa: Jón Geir, trommur, Símon, bassi, Hlati, söngur, Kusi, git- ar, og Stefán, gítar. Japis Verð: 1.999 kr. SSSÓL: Blóð Ný plata frá einni vinsælustu rokk- sveit landsins. Helgi Björns og félag- ar eru hér með 11 ný lög með sérstök- um textun í anda SSSÓL. í hljóm- sveitinni eru nú Ath Örvarsson, Björn Ámason, Eyjólfur Jóhansson, Hafþór Guðmundsson og Helgi Björnsson. SSSÓL og Ian Morrow sáu um útsetningar en sá síðamefndi um upptökustjórn í Hljóðhamri og Sýrlandi. Th aðstoöar á plötunni eru Ásgeir Óskarsson, slagverk, Kristján Kristjánsson, munnharpa, Eva Ásr- ún Albertsdóttir, rödd, og Jón Ólafs- son, hljómborð. Skífan. Verð: CD 2.199 kr./snælda 1.599 kr. Change: Change Endurútgáfa á plötu sem kom út 1974. Magnús Jóhannsson og Jóhann Helgason stofnuðu Change eftir að hafa spilað saman og gefið út plötu sem dúett. Með stofnun Change var stefnan sett á alþjóðamarkað. Héldu þeir félagar th Englands ásamt harð- asta kjarna íslenskra poppara þess tíma og reyndu fyrir sér í grimmum poppheimi Bretlands. Eftir stendur dægurtónlist sem margir telja að eigi fuht erindi á jólahlaðborð íslenska poppsinsídag. Change/Japis. Verð: 1.999 kr. TMSswwláirex fíimtWtíMiM Skárren ekkerí Skárren ekkert: Tónlistúr Kirsuberjagarðin- um Tríóið Skárren ekkert flytur hér 10 lög úr leikritinu Kirsuberjagarður- inn eftir Anton Tsjekhov sem leik- húsiö Frú Emilía sviðsetti í Héðins- húsinu við góðar undirtektir. Á plöt- unni em 10 lög en Skárren ekkert skipa: Eiríkur Þórleifsson, sem sphar á kontrabassa, Frank Þ. Hall, sem sphar á gítar, og Guðmundur Stein- grímsson, sem sphar á harmoníku. Auk þeirra syngja Harpa Arnardótt- ir, Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir og kór leikara úr Kirsu- berjagarðinum með á plötunni. Þá spilar Valgeir Skagjfórð á píanó í einu lagi. Tónlistin er samin af Skárren ekkert utan eitt lag og píanó- leikur Valgeirs. Frú Emiha. Verð:899kr. Bít: Tweety Frumburður hljómsveitar þeirra Andreu Gylfadóttur og Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar. Upptökur Tweety hófust upp úr síðustu ára- mótum og var þá meiningin að taka upp lag og lag th útgáfu erlendis. Þau áform breyttust síðastliðiö sumar en þá var stefnan tekin á að fullgera plötu th útgáfu hér á landi. Tónhst Tweety flokkast helst undir popp- danstónlist en erfitt er að hengja sér- staka merkimiða á hana. Sthlinn byggir þó mjög á því sem Andrea og Þorvaldur geröu með Todmobhe. A Bít eru 10 lög. Átta eru sungin á ís- lensku en tvö á ensku. Öh lögin eru eftir þau Andreu og Þorvald. Eiður Arnarsson, Ólafúr Hólm og Máni Svavarsson eru í hópi tónlistar- mannaáBít. Spor Verð: 2.199 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.