Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1994, Blaðsíða 8
V' 26 Hljómföng Ýmsirflytjendur: Smekkleysa í hálfa öld Á þessari plötu eru 17 lög sem kalla mætti óð bílskúrsins til lýðveldisins. Hér má heyra í hljómsveitum eins og Exemi, Funkstrasse, Yukatan, Kolrössu krókríðandi, Kala, Losi, 2001, Curver, Rúnari Júlíussyniog UnunogBjörk. Smekkleysa. Verð: 1.999 kr. Magnús Eiríksson 20 BESTU LÖGIN Magnús Eiríksson: 20 bestu lögin Upphaflegar útgáfur tuttugu bestu laga Magnúsar Eiríkssonar í flutn- ingi Pálma Gunarssonar, Ellenar Kristjánsdóttur, Ragnhildar Gísla- dóttur, hans sjálfs o.fl. Á plötunni má heyra lögin Braggablús, Garún, Sölvi Helgason, Ó þú, Reyndu aftur o.fl. Spor. Verð: 1.599 kr. Ýmsirflytjendur Innrás Þrettán hljómsveitir og söngvarar úr Keflavík láta gamminn geysa á þessari plötu sem ber undirtitilinn komflex og kanaúlpur. Meðal þeirra sem fram koma á plötunni eru Deep Jimi and the Zep Creams, Texas Jes- us, Kolrassa krókríðandi, Rúnar Júl- íusson, Guðmundur Þ. Guðmunds- son, Stulli og Hlynur ofl. Geimsteinn. Verð: 1.999 kr. Bama- og jólaplötur Haukur Morthens: Hátíð í bæ „Þessi hæggenga hljómplata frá Hljóðfæraverslun Sigríðar Helga- dóttur býður upp á 20 eldri og yngri jóla- og bamasöngva sem margir em í nýstárlegum búningi. Þeir em sungnir af hinum góðkunna og vin- sæla söngvara Hauki Morthens við undirleik hljómsveitar. Útsetningar gerði Ólafur Gaukur." Þessi orð má lesa innan í titilblaðijólaplötimnar Hátíð í bæ sem fyrst var gefin út fyr- ir 30 árum. Það rifjast sjálfsagt upp ljúfar minningar hjá mörgum sem reka augun í þessa plötu í rekkum plötuverslana fyrir jólin enda er upp- “-WIONO HÁTÍÍÍBÆ 20 JÓtA OG BARNASÖNGVAR HAUKUR MORTHENS UtiMMUMZÍUÍ i «nrxrv ss */»< m CQMðtW rftt i t.-M *tiu*!u?ss - ióusvnxo* t:*W !:U *T* • y*i> £* it-tVtí *f: Mt1 Jvl - :<ÚM mwiws **f SfSVA tnt*t MAHMA MW vát*.!avmtua - «** J&HXKS**.V( tíDitMKW >.ixM rs « íkv wa * m «*«* eaato *i>m Arn s» MH!< UMIiWAMT!:* S*«n VXKM VIH - ttm sr*» riríwiwin »:>.r ■ HtiMra VIK MtlVS IIV fc:H mnalegt umslag gömlu plötunnar látið halda sér, í breyttri stærð þó. Platan var tekin upp í mono eða „einóm“ og er það enn. Faxafón/Japis. Verð: 1.999 kr. Ýmsirflytjendur: Senn koma jólin Ný jólaplata með átta nýjum og þremur sígildum jólalögum. Flytj- endur ellefu jólalaga á þessari plötu eru: Andrea Gylfadóttir, Björgvin Halldórsson, Ellen Kristjánsdóttir, Helga Möller, Laddi, Margrét Eir, Sigríður Beinteinsdóttir og Stefán Hilmarsson. Um verkstjóm og út- setningar sá Þorvaldur B. Þorvalds- son nema Máni Svavarsson og Ari Einarsson í sínu laginu hvor. Hinrik Bjarnason samdi texta við sjö nýju laganna en hann hefur einna mesta reynslu í aö gera texta við erlend jólalög. Spor. Verð: CD 2.199 kr./snælda 1.599 kr. Guðmundur Ólafsson: Jólasögur Á þessari snældu les leikarinn Guð- mundur Ólafsson sígildar og nýjar jólasögur. Á A-hlið snældunnar era sögurnar Grýla gamla og jólasvein- amir eftir Kristján T. Jóhannsson og Jólasveinamir 13 eftir Jóhannes úr Kötlum. Á B-hlið em Jólagrautur- inn í þýðingu Þorsteins Jónssonar, Jólakötturinn bregður sér í bæinn eftir Iðunni Steinsdóttur og Jólin og tröllafjölskyldan sem einnig er eftir Iðunni. Sögutími er 90 mínútur. íslensk tónbönd. Verð: snælda 1.000 kr. Ýmsirflytjendur: Þegar ég verð stór Sjötta platan í Bamagæluflokknum. Hér er að fmna 20 sígild lög frá ýms- um tímum með jafnmörgum flytj- endum. Meðal laga em Sagan af Gutta, Smiðjukofmn, Krummavísa, Tóti tölvukall, Snati og Óli, Dýrin í Afríku o.fl. Meðal flytjenda em Laddi, Ríó tríó, Katla María og Pálmi, Svanhildur Jakobsdóttir, Haukur Morthens, Helena Eyjólfsdóttir, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 BessiBjamason, o.fl. Með plötunni fylgir 20 síðna textabók með teikningum. Spor. Verð: CD 1.599 kr./snælda 1.199 kr. BERÍMSICOBREK S o G U í< O G S O N C; U SÓGUMADUZ: GUDMUNÓUR ÓiAFSSON SOMGUr?: SíGRÚM fcVAÁRMANNSDÓn-R GUDRÚM GUNNARSDönIR HfctGA STCFrfcNSEM Ýmsirflytjendur: Bernskubrek, sögur og söngur Á þessari 45 mínútna löngu snældu er að finna sögur og söng fyrir böm. Söngurinn er í flutningi Sigrúnar Evu Armannsdóttur, Guðrúnar Gunnarsdóttur og Helgu Steffensen en sögumaöur er Guðmundur Ólafs- son. Meðal efnis er: Grísinn sem vildi þvosér. Litimir, Allireigaað. . ., Pálína, Ár barnsins og Litla stjarnan. íslensktónbönd Verð: snælda 1.200 kr. THORBJÖRN SONER Barnaleikrit: Verkstæði jólasveinanna Hér er á ferðinni barnaleikrit sem naut mikilla vinsælda á sínum tíma en hefur veriö ófáanlegt í mörg ár. Nú má fá þetta leikrit Thorbjöms Egners á geislaplötu með endurbætt- um hljómi. Leikstjóri er Baldvin Halldórsson en þýðandi verksins er Hulda Valtýsdóttir. Leikendur em: Helgi Skúlason, Brynja Benedikts- dóttir, Klemens Jónsson, Helga Val- týsdóttir, Indriði Waage, Þorgrímur Einarsson, Bessi Bjarnason og Ómar Ragnarsson. Spor. Verð: 1.599 kr. Pálmi Gunnarsson: Jólamyndir Pálmi Gunnarsson tekst hér á við mörg sígild jólalög sem yljað hafa mönnum um jólin í mörg ár auk þriggja nýrra laga. Jólamyndir era tileinkaðar minningu söngvarans Sigurðar Ólafssonar sem þótti stór- brotinn maður og söngvari af guðs náð. Með Pálma á plötunni leika margir af helstu tónlistarmönnum landsins. Sonur hans, Sigurður Helgi, syngur með Pálma í laginu Ljós í myrkri og í tveimur lögum nýtur hann aðstoðar dóttur sinnar, Ragnheiðar. Alls eru lögin 12, þar á meðal Litla vina (til Ninnu), Frost- rós, Óskalistinn, Bestajólagjöfin, Jólamyndir, Vinur, Ljós í myrkri og Nóttin var sú ágæt ein. PC&CO/Japis Verð: CD 1.999,- kr./snælda 1.499 kr. Ýmsirflytjendur: Börn og dagar Sígild plata fyrir böm á öllum aldri sem ekki hefur verið fáanleg í mörg ár en hún var fyrst gefin út 1978. Platan er í anda Vísnaplatnanna góð- kunnu. Flutt em ellefu lög Magnúsar Sigmundssonar við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk og má nefna lög eins og Smalastúlkuna, Ungamóður og Gömlu mylluna. Flytjendur em Ragnhildur Gísladóttir, Pálmi Gunn- arsson, Kór Öldutúnsskóla, Björgvin Halldórsson og Magnús Sigmunds- son.Textarfylgja. Skífan. Vérð: 1.699 kr. ---SÖNG- ÆYINTÝRIÐ Ýmsirflytjendur: Rauðhetta og Hans og Gréta Sígild ævintýri í söngleikja og sögu- formi eftir Gylfa Ægisson. Flytjend- ur eru Laddi, Páll Óskar Hjálmtýs- son, Áróra og Gylfi Ægisson. Gimsteinn. Verð: CD 1.490 kr./snælda 990 kr. Eva Ásrún Albertsdóttir: Þrjár sögusnældur Á þessum þremur sögusnældum les Eva Ásrún Albertsdóttir þrjú sígild ævintýri: Alfinn álfakóng, Dísu ljó- sálf og Dverginn Rauðgrana og brögð hans. Japis. Verð: 999 kr. hver snælda Þrjú á palli: Hátíð fer að höndum ein Hér er á ferðinni sérstök j ólaplata sem kom fyrst út 1971. Hugmyndin var að gera jólaplötu sem eingöngu byggðist á gömlum íslenskum þjóð- lögum sem fmna mátti í handritum eða vom varðveitt í þjóðlagadeild hljóðritasafns Ríkisútvarpsins. Nú er þessi í fyrsta skipti fáanleg á geislaplötu þar sem heyra má ævagömul jólalög, sálma, stemmur og þjóðlög í einstökum flutningi. Hljómurinn hefur verið endurbættur með hjálp nýjustu tækni. Þrjú á palli vom: Troels Bendtsen, gítar og söng- ur, Edda Þórarinsdóttir, söngur, og Halldór Kristinsson, gítar og söngur. Til aðstoðar voru Ríkharður Örn Pálsson, kontrabassi, og Claes HeO- mann, flauta. Spor. Verð: 1.599 kr. Snælda og snúðarnir: Komdu kisa mín Þessi barnaplata kom út á hljóm- plötu árið 1983 og varð þá þekkt meðal barna sem kisuplatan. Nú hef- ur hún verið endurútgefin á geisla- plötu. Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) syngur lög Jóhanns Helgasonar við ljóð ýmissa höfunda sem tekin em úr samnefndu kvæðakveri. Ragn- hildur Gísladóttir útsetti lögin og stjómaði upptökum auk þes að leika á slagverk og hljómborð. Textablað fylgir en á plötunni em eflefu lög. Hugverkaútgáfan/Japis. Verð: CD 1.999 kr./snælda 1.499 kr. Ýmsirflytjendur: 11 jólalög Jólaplatan 11 jólalög var fyrst gefln út 1978 en er nú í fyrsta skipti fáan- leg á geislaplötu. Platan naut mikiUa vinsælda, ekki síst lögin Lítið jólalag og Þorláksmessukvöld. Þá má einnig nefna Það á að gefa bömum brauð, Yfir fannhvíta jörð, Einmana á jóla- nótt og sígUdan flutning Pálma Gunnarssonar á Faðir vor. Söngvar- ar á þessari plötu em Ragnhildur Gísladóttir, Pálmi Gunnarsson, Laddi, Magnús Kjartansson og Diddú. Skífan. Verð: CD 1.699 kr./snælda 1.199 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.