Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1994, Blaðsíða 9
I
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
OlgaGuðrún:
Babbidí-bú
Fyrir tuttugu árum söng Olga Guö-
rún á plötunni Eniga meniga sem
vakti gífurlega lukku. Nú syngur
Olga Guðrún á plötunni Babbidí-bú
sem hefur að geyma 14 frumsamin
lög og texta eftir hana sjálfa. Söng-
hópur bama aðstoðar í nokkrum lög-
um. Um útsetningar sá Margrét Örn-
ólfsdóttir en hljóðfæraleikur er í
höndum hennar, Gunnars Þórðar-
sonar, Péturs Grétarssonar, Edw-
ards Frederiksen, Einars Kristjáns
Einarssonar, Kjartans Valdimars-
sonar, Kristins Svavarssonar, Péturs
Hjaltested, Sigurðar Rúnars Jóns-
sonar og Örnólfs Kristjánssonar.
Ofurmús/Japis.
Verð: CD 1.999/snælda 1.499 kr.
Svanbildur og Anna Mjöll:
Litlu börnin leika
sér
Mæðgurnar Svanhildur Jakobsdótt-
ir og Anna Mjöll Ólafsdóttir syngja
hér 19 sígild og ný barnalög og eina
lagasyrpu. Titill plötunnar er sóttur
í íslenskt þjóðlag og þjóðvísu, Litlu
börnin leika sér. Um útsetningar og
gítarleik sá Ólafur Gaukur en hann
samdi tvö laganna. Með honum leika
Pétur Hjaltested, forritun, hljómborð
oghljóðgerflar, ogBlásarakvintett
Reykjavíkur; Bernharður Wilkin-
son, flauta, Daði Kolbeinsson, óbó,
Einar Jóhannesson, klarínett, Jósef
Ognibene, horn, ogHafsteinn Guð-
mundsson, fagott.
Tónaljón/Japis
Verð: CD 1.999/snælda 1.499 kr.
Leikrit:
Kardemommu-
bærinn
Hið sígilda barnaleikrit Thorbjörns
Egners fæst nú í fyrsta sinn á geisla-
plötu. Á plötunni er 20 mínútna við-
bótarefni sem ekki var aö finna á
upphaflegu útgáfunni. Textar og
fjöldi litmynda fylgir í 24 síðna bækl-
ingi. Leikstjórn er í höndum Klem-
ensar Jónssonar. Hulda Vaitýsdóttir
þýddi leiktextann en Kristján frá
Djúpalæk ljóðin.
Spor
Verð: CD 1.599/snælda 1.199 kr.
Strumparnir:
Bjóða gleðileg jól
Teiknimyndafígúrurnar strumpam-
ir hafa notið mikilla vinsælda hjá
börnum. En þeir kunna hka að
syngja og það gera þeir á þessari
plötu með aðstoð vinar síns, Ladda,
sem hefur kennt þeim að tala ís-
lensku. Hér syngja strumparnir 15
jólalög til að stytta sér stundir fram
að jólunum. Platan er endurútgefm
en hún kom fyrst út fyrir 9 árum.
Einu lagi hefur reyndar verið bætt
við. Textarnir fylgja í textariti sem
inniheldur jólamyndir af strumpun-
um.
Spor.
Verð: CD 1.599 kr./snælda 999 kr.
Leikrit:
Dýrin í Hálsaskógi
Eitt þriggja sígildra barnaleikrita eft-
ir Thorbörn Egner sem Spor endur-
útgefur fyrir þessi jól. Á plötunni er
20 mínútna viðbótarefni sem ekki er
að finna á upprunalegu útgáfunni.
Textar ogfjöldi htmynda fylgir í 20
blaðsíðna textariti. Leikstjórn er í
höndum Klemensar Jónssonar.
Hulda Valtýsdóttir þýddi leiktextann
en Kristján frá Djúpalæk ljóðin. Með
helstu hlutverk fara Árni Tryggva-
son, Bessi Bjarnason, Baldvin HaU-
dórsson, Emilía Jónasdóttir og Ævar
Kvaran.
Spor.
Verð: CD 1.599 kr./snælda 1.199 kr.
HörðurTorfa:
Barnagaman
Leikarinn og laga- og ljóðahöfundur-
inn Hörður Torfa hefur sentfrá sér
snældu sem kaUast barnagaman. Á
snældunni er að fmna 9 lög og ljóð
en þannig er um hnútana búið að á
A-hlið snældunnar eru lögin sungin
en á B-hliðinni er aðeins undirleikur
svo að allir geti sungið með. Öll lögin
eiga það sameiginlegt að vera samin
í leikhúsi og flutt þar af bömum og
unghngum undir stjóm Harðar.
Textarfylgja.
Ofar/Skífan.
Verð: snælda 1.399 kr.
Ýmsirflytjendur:
Ævintýri
gljúfrabúanna
Bamaplata með ævintýrinu um
gljúfrabúana. Sögumaður er Bene-
dikt Árnason. Meðal leikenda eru
Flosi Ólafsson, Edda Heiðrún Bac-
hmann, Sigríður Hannesdóttir, Ben-
óný Jónsson og Lúfa, sem er höfund-
ur ævintýrisins ásamt Benóný Jóns-
syni.
Lúfa/Rauði dregilhnn.
Verð: CD 1.999 kr./snælda 1.499 kr.
Djass ogblús
Tríó Ólafs Stephensen:
Píanó, bassi og
tromma
Ólafur Stephensen leikur hér á
píanó, Guðmundur R. Einarsson á
slagverk og Tómas R. Einarsson á
bassa 18 djasslög, fimmtán eftir er-
lenda höfunda, tvö eftir Ólaf Steph-
ensen og síðan kvæðið um fuglana
eftir Atla Heimi Sveinsson. Meðal
erlendu laganna eru I Hear Music,
No Blues, Don’t Get Around Much
Anymore og I’m Tru’ With Love. Öll
lögin eru útsett af Ólafi Stepensen.
Tríóið hefur leikið saman af og til í
tvö ár og er af gamla skólanum þar
sem það mætir stundvíslega og leik-
ur af fmgrum fram. Þeir félagar segja
lögin sérstaklega valin fyrir þá sem
telja sig ekki hafa ánægju af djass-
tónlist.
Skífan.
Verð: 1.999 kr.
J.J. Soul Band:
Hungry for News
Höfundar efnis á þessari plötu eru
Ingvi Þór Kormáksson hljómborðs-
leikari og J.J. Soul sem syngur og
leikur á ásláttarhljóðfæri. J. J. Soul
er breskur að ætt og uppruna en
hefur verið búsettur hér á landi um
skeið. Tónhstin á diskinum er íjöl-
breytt en blúsinn oftast nálægur. í
hljómsveitinni eru einnig Stefán Ing-
ólfsson bassaleikari og Trausti Ing-
ólfsson trommuleikari. Gestaspilar-
ar eru Þórður Árnason, Eövarð Lár-
usson, Vilhjálmur Guðjónsson, Ari
Einarsson, Stefán S. Stefánsson og
Reynir Sigurðsson.
Hrynjandi/Japis.
Verð: CD 1.999 kr./snælda 1.499 kr.
Guðmundur Ingólfsson
Guðmundur
Ingólfsson
Guðmundur er einn frægasti djass-
leikari landsins fyrr og síðar. Hér er
arfleiíðar hans minnst á tveimur
geislaplötum sem spanna langan og
htríkan feril. Þegar ákveðið var að
gefa út plötu með hljóðritunum Guð-
mundar óraði engan fyrir hve mikið
vár til með Guðmundi og eru vísast
ýmsar hljóðritanir enn ófundnar.
Ákveðið var að velja aðeins upptökur
frá árunum 1977-1991 á plöturnar og
í huga haft að gefa sem gleggsta
mynd af Guðmundi eins og aðdáend-
ur hans muna hann best. Lögin eru
ahs 26 og lengdin vel yfir tvær
klukkustundir. Velflestir djassleik-
arar íslendinga koma við sögu á plöt-
unum. Vandaöur upplýsingabækl-
ingurfylgir.
Jazzís/Japis.
Verð: 2.499 kr.
Reykjavík Jazz Quartet:
Hot house
Kvartettinn skipa nokkrir af helstu
spámönnum djassins hér á landi: Sig-
urður Flosason, Tómas R. Einarsson,
Eyþór Gunnarsson og Einar Sche-
ving. Með þeim á þessari plötu blæs
trompetleikarinn Guy Barker. Upp-
tökur voru gerðar í djassklúbbnum
Ronnie Scotts’ Club í London í febrú-
ar á þessu ári. Á plötunni eru leikin
bæði frumsamin lög og standardar í
djassi.
R.S. Jazz House/Japis.
Verð: 1.799 kr.
Tómas R. Einarsson:
Landsýn
Kontrabassaleikarinn Tómas R. Ein-
arsson hefur hér samið lög við ljóð
margra íslenskra skálda og fær ýmsa
listamenn til að syngja þau, þar á
meðal Ragnhildi Gísladóttur, Berg-
þór Pálsson, Björgvin Hahdórsson,
Pálma Gunnarsson og Einar Öm
Benediktsson. Meöal flytjenda tón-
hstarinnar era Frank Lacy, Eyþór
Gunnarsson og Pétur Östlund.
Jazzís/Japis
Verð: CD 1.999 kr./snælda 1.499 kr.
27
Hljómföng
Sígild tónlist
Auöur Hafsteinsdóttir og
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir:
Nocturne
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó-
leikari leika hér 20 lítil verk eftír
ýmis tónskáld; Beethoven, Schum-
ann, Fauré og Shostakovich. Auður
hefur komið víða fram sem einleik-
ari og í kammermúsík á alþjóðlegum
vettvangi. Hún er einn af stofnend-
um Trio Nordica og leikur einnig
með Caput kammerhópnum. Stein-
unn Bima starfaði um tíma á Spáni
þar sem hún kom fram á ýmsum
tónhstarhátiðum sem einleikari og
flytjandi kammertónlistar. Hún hef-
ur haldið tónleika víða um heim.
Japis.
Verð: 1.999 kr.
Sinfóníuhljómsveit
íslands:
Alfvén
Sinfóníuhljómsveit íslands var hrós-
að í hástert af breskum gagnrýnend-
um fyrir þessa geisaplötu sem hefur
að geyma verk eftir sænska tón-
skáldið Hugo Alfvén; Sænska
rapsódíu No 1, Op. 19 - Miðsumar-
vöku, sænska rapsódíu No. 2, Op. 24
- Uppsalarapsódíu, sænska rapsódíu
No. 3, Op. 47 - Dalarapsódíu, Sögur
úr skerjagarðinum, Op. 20 og harm-
kvæði úr Gústaf Adolf konungi II,
Op. 49. Stjómandi hljómsveitarinnar
erPetriSakari.
Chandos/Japis.
Verð: 1.490 kr.
ALFVEN
SwecfUte
í.cgend <*i Ihr
f.k-gy #
6«*tfev Adolf II SuU«
' iœiiuw SVMPHONÍ OKUO.STIIA
PBTRI SAKAHI
Gunnar Kvaran og Haukur
Guölaugsson:
J.S. Bach
Gunnar Kvaran sellóleikari leikur
hér tvær svítur eftír J.S. Bach, Svítu
í G-dúr og Svítu í d-moh, og fimm
önnur verk eftir Bach ásamt Hauki
Guðlaugssyni sem leikur á orgel.
Saman leika þeir meðal annars Slá
þú hjartans hörpustrengi og Ave
Maria. Gunnar er marglofaður og
verðlaunaöur sehóleikari sem oft-
1 sinnis hefur leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Hann er félagi í
TríóiReykjavíkur.
Japis.
Verð: 1.999 kr.