Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1995, Blaðsíða 11
 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995 Sviðsljós Æft fyrir íslandssmótið í 5. flokki. DV-myndir Hafdís Bogadóttir, Djúpavogi Andrés umsjónarmaður í anddyri hussins ásamt Halli Kristjáni, Árnýju, Jóni og Hjálmari. 11 Blórn fyrir. „bóndann“ á bóndadaginn Blómaverslanir Blómaframleidendur íslandsmót á Djúpavogi Það rættist langþráður draumur hjá Djúpavogsbúum þegar glæsilegt íþróttahús var tekið í notkun í byrjun október sl. Aðsókn hefur veriö mjög góð að sögn Andrésar Skúlasonar umsjónarmanns, einnig í ljósabekk og saunabað. Mót hafa verið haldin í knattspyrnu og badminton og mættu þar keppendur víða að af Austfjörðum. Þá var Austurlands- riðill íslandsmótsins í innanhúss- knattspyrnu í 5. aldursflokki haldinn þar. Reglulegir fundir mmmmm—mm—m Borgarstjórnar Reykjavíkur eru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar kl. 17:00. Fundirnir eru opnir almenningi og er þeim jafnframt útvarpað á AÐALSTÖÐINNI FM 90.9. Það var margt til skemmtunar á Djúpavogi fyrstu daga nýja ársins og meðal þess var að börnin á leikskólanum Bakkatúni fóru með fóstrum sinum og þágu Ijúffengar veitingar i hlýlegum sal Hótel Framtíðar. Nutu þau þar gestrisni gestgjafanna, mæðginanna Ágústu og Arnórs. DV-mynd Hafdís Bogadóttir, Djúpavogi _______________Menning Góð dægradvöl Menningarfélag Bessastaðahrepps, „Dægradvöl", stóð fyrir tónleikum í íþróttahúsi hreppsins á mánu- daginn var. Þetta voru einleikstónleikar, þar sem ung- verski píanóleikarinn Miklós Dalmay lék verk eftir þá Beethoven, Chopin og Liszt. Dægradvöl er nýstofnað menningarfélag og hefur það staðið að tveimur uppákomum áður, en þetta voru fyrstu einleikstónleikarnir. Salur íþróttahússins er mjög þurr í hljómi og hljóðfærið sem Dalmay lék á var aðeins „baby-grand" flygill, en mjór er mikils vís- ir og vonandi á félaginu eftir að vaxa fiskur um hrygg. Tónleikarnir hófust á Þrem bagatellum op. 33 eftir Beethoven. Dalmay lék þær af miklu öryggi og smekk- vísi og áberandi var sparleg notkun pedals þannig að aflt heyrðist skýrt, en tækni hans er slík aö þoldi það vel. Þetta átti enn frekar við um næsta verk tónleik- anna, Pathétique-sónötu Beethovens, op. 13 í c-moll. Allt var hér kristalklárt og mótað af ákveðni og ör- yggi. Undirritaður saknaði örlítið meiri andstæðna í túlkun Dalmays á síðasta þættinum, en verkið var eigi að síður mjög vel leikið. Ballaða í f-moll eftir Chopin var næst á efnis- skránni. Þetta er mjög lauslega kompónerað verk, en erfitt í flutningi. Dalmay lék verkið tæknilega mjög Tónlist Áskell Másson örugglega, en tæplega af nægilega skáldlegri innsýn. Pedalnotkun hans var nú mun meiri og átti það vel við. Þrír Mazúrkar eftir Chopin fylgdu í kjölfarið og nú lék Dalmay af meiri „elastík" og skáldlegar. Tónleikunum lauk með Ungverskri rapsódíu nr. 13 eftir Franz Liszt. Hér lék Dalmay við hvern sinn fing- ur í bókstaflegri merkingu, því allt var til staðar sem maður getur óskað eftir í flutningi þessa verks; spenna í hryn, miklar andstæður í tóni, svellandi kraftur og frábær tækni. Miklós Dalmay hefur komið fram á fjölda tónleika í mörgum löndum, unnið til verölauna í keppnum og leikið á geislaplötu. Hann er nú búsettur á Blönduósi og kennir við Tónlistarskólann þar. Þetta voru „deb- ut“-tónleikar Dalmays hér á landi. Menningarfélaginu „Dægradvöl" er þakkað fyrir að hafa staðið að kynn- ingu á þessum frábæra unga listamanni. Skrifstofa borgarstjóra ■f':; -iö-; \ - ■/;: ' /. tc'ú'Cú-' :......... (J> a> CO (0 c o> xO < MYNDBANOAGETRAUN BONUSVIDEO 9 9*17*50 Myndbandagetraun Bónusvídeós er skemmtilegur leikur þar sem þátttakendur eiga þess kost aö vinna gjafakort meö úttekt á þrem myndbandsspólum frá nýrri og stórglæsilegri myndbandaleigu Bónusvídeós aö Nýbýlavegi 16. Þaö eina sem þarf aö gera er aö hringja í síma 99-1750 og svara fimm laufléttum spurningum um myndbönd. Svörin viö spurningunum er aö finna í blaöauka DV um dagskrá, myndbönd og kvikmyndir sem fylgir DV á fimmtudögum. Dregið daglega úr pottinum! Daglega frá fimmtudegi til miövikudags veröa nöfn þriggja heppinna þátttakenda dregin úr pottinum og hreppa þeir hinir sömu gjafakort frá Bónusvídeói. Allir sem svara öllum fimm spurningunum rétt komast í pottinn. Munið aö svörin viö spurningunum er að finna í myndbandaumfjöllun DV á fimmtudögum. Nöfn vinningshafa veröa birt I blaðauka DV um dagskrá, myndbönd og kvikmyndir í vikunni á eftir. BONUSVIDEO Nýbýlavegi 16. Síml 5644733 Opiö virka daga frá 10 - 23.30. Laugard. og sunnud. frá 12 • 23.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.