Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1995, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995
23
Fréttir
Vestmannaeyjar:
Skipum og bátum
fækkar en hlut-
deild í af la eykst
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum;
Áriö 1984 voru 60 skip og bátar
gerðir út frá Vestmannaeyjum og
hélst sú tala lítiö breytt til 1987. Þá
fjölgaði þeim ört og voru orðnir 79
1990. Mest munaði um báta undir 12
tonnum. Þeim fjölgaði úr 9 árið 1984
í 20. Einnig fjölgaði stærri bátum og
skipum á tímabilinu. En í lok 1993
hafði þeim fækkað í 69 og er fækkun-
in mest á bátum undir 12 tonnum.
Þetta kemur fram í skýrslu
Byggðastofnunar um bolfiskkvóta,
vinnslu og skipastól Vestmannaey-
inga sem nær ekki lengra en til árs-
ins 1993. Var skýrslan unnin að
beiðni bæjarstjórnar Eyja.
Sé litið á tölur frá Útvegsbændafé-
lagi Vestmannaeyja Mtur dæmið tals-
vert öðruvísi út en í félaginu eru út-
gerðarmenn báta og skipa yfir 12
tonnum. 1985 voru 51 bátur og skip
innan félagsins og er sú tala htið
breytt til 1988. Þá fer þeim að fjölga.
1989 eru þeir 58 og mestur er íjöldinn
1990 þegar þeir voru 60.
Upp frá því fer þeim að fækka, voru
46 á síðasta ári en í dag eru þeir 39.
Hefur þeim fækkað um þriðjung á 4
árum. Á sama tíma hafa Eyjamenn
aukið hlutdeild sína í bolfiskkvóta
landsmanna, úr 8,5% árið 1985 í
10,3% á yfirstandandi fiskveiðiári.
Magnús Kristinsson, formaður Út-
vegsbændafélagsins, segir að skýrsl-
an hafi ekki komið á óvart og sé hún
í samræmi við tölur félagsins.
„Skipum hefur fækkað mikið en
það er þó huggun harmi gegn að við
höfum haldið hlutdeild okkar í afla-
heimildum og gott betur. Það er engu
að síður hryllilegt að horfa á eftir
öllum þessum bátum. Það er ansi
dapurt að flotinn skuli vera kominn
niður fyrir 40 skip í þessari stærstu
verstöð landsins og nú er svo komið
að héðan má ekki fara meiri kvóti
eða fleiri skip,“ sagði Magnús.
Akranes:
Rætt við ráðherra um
sýslumannsembættið
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi;
Gísli Gíslason bæjarstjóri og Gunn-
ar Sigurðsson, formaður bæjarráðs
Akraness, fóru á fund Þorsteins Páls-
sonar dómsmálaráðherra í síðustu
viku og ræddu við hann um málefni
sýslumannsembættisins. Gísli segir
að þeir hafi lagt á það þunga áherslu
við ráðherra að hann færi ástandið
á sýsluskrifstofunni til betri vegar.
„Við ræddum almennt við ráð-
herra um áhyggjur okkar af því að
svo viröist sem ekki sé starfsfriður
hjá embættinu vegna innanhúss-
deilna. Fréttir hafa birst af deilum
og kærum milh einstakra starfs-
manna. Það er alvarlegt mál þegar
æðstu embættismenn kæra hver
annan,“ segir Gísli.
Svör Þorsteins Pálssonar voru á
þá lund að verið væri að vinna í
máhnu en Gísli sagðist ekki eiga von
á niöurstööu í því á næstunni.
Keflavlkurflugvöllur:
Afmæli
Anna Sigríður
Bjömsdóttir
Anna Sigríöur Björnsdóttir, fisk-
vinnslukona og húsmóðir, Heiðar-
hrauni 48, Grindavík, varð fimmtug
ígær.
Starfsferill
Anna fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Seyðisfirði til tíu ára aldurs
og síðan í Hafnarfirði.
Er Anna giftist byrjuðu þau hjónin
búskap í Hafnarfirði og þar bjuggu
þau til 1980 er þau fluttu til Grinda-
víkur þar sem þau hafa búið síðan.
Anna starfar við fiskvinnslu hjá
Vísihf.íGrindavík.
Fjölskylda
Anna giftist 18.12.1965 Enok
Bjama Guðmundssyni, f. 23.10.1943,
stýrimanni. Hann er sonur Guð-
mundar Sveinbjörnssonar sjó-
manns og Eneku Hildar Enoksdótt-
ur húsmóður sem bæði eru látin.
Synir Önnu og Enoks era Sigurð-
ur Enoksson, f. 17.2.1965, bakari,
kvæntur Ásgerði H. Króknes og eru
böm hans Enok Steinar, f. 1.2.1992,
og Hrafnhildur Anna, f. 4.8.1994;
Ómar Enoksson, f. 22.2.1973, nemi.
Hálfsystkini Önnu, sammæðra,
eru Leifur, f. 27.6.1946, d. 3.1.1977;
Steinar.f. 26.11.1954,búsetturá
Þingeyri, kvæntur Sigríði Gunnars-
dóttur og á hann fimm börn og eitt
Anna Sigriður Björnsdóttir.
fósturbarn; Guðr.ý, f. 24.3.1952, bú-
sett í Hafnarfirði, gift Árna Þor-
steinssyni og á hún þrjú börn; Stein-
unn Lilja, f. 24.9.1959, búsett í Hafn-
arfirði, gift Kristni Kristinssyni og
áhún þrjúbörn.
Hálfsystir Önnu, samfeðra, er
Guðný Björnsdóttir, búsett á
Vopnafirði, og auk þess tvö systk-
ini, búsett í Bandaríkjunum.
Foreldrar Önnu: Björn Guð-
mundsson verkamaður og Katrín
Sigurðardóttir húsmóðir.
Fósturforeldrar Önnu: Sigurður
Dagnýsson og Helga Sveinsdóttir.
SNJOBILL TIL SOLU
Slökkviliðsmenn löggiltir fagmenn
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Þetta er meiriháttar viðurkenning
eftir áratuga baráttu starfsmanna fyrir
löggildingu. Þetta er í fyrsta skipti sem
slökkvihðsmenn okkar fá pappíra upp
á að þeir séu löggiltir fagmenn," sagði
Haraldur Stefánsson, slökkvihðsstjóri
Keflavíkurflugvallar.
Robert Blake, yfirmaður flotastöðv-
arinnar á KeflavíkurflugveUi, afhenti
slökkvihðsmönnum skírteini; löggild-
ingu frá bandariska ríkinu sem viður-
kennir í fyrsta skipti fagheitið slökkvil-
iðsmaður innan vamarmálastofnunar
USA. Hjá slökkvihðinu era 78 fastirr-
áðnir brunaveröir. Þá starfa 36 fastir
starfsmenn hjá flugþjónustudeild
slökkviliðsins sem jafnframt gegna
störfum sem brunaverðir og björgun-
armenn efdr þörfum, vel þjálfaðir sem
varalið í hópslysum og eldsvoðum.
Slökkvihðsmennimir eru alhr íslend-
ingar.
Haraldur Stefánsson slökkviliösstjóri óskar Línu Kjartansdóttur tii ham-
ingju. Hún er yfirmaður i brunaeftirliti.
Akranesbær kaupir
jörð á 20 milljónir
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Skrifað var undir samninga um
kaup Akranesbæjar á landi Innsta-
Vogs 27. janúar og er kaupverð 20
mihj. króna. Jörðin var í eigu Ás-
mundar hf„ eignarhaldsfélags sem
er í eigu barna Þórðar Ásmundsson-
ar.
Bærinn hefur lengi haft áhuga á
að kaupa jörðina en fyrirhugaö er
að þar verði útivistarsvæði bæj-
arbúa. Jörðin er yfir hundrað hekt-
arar að stæ.rð eða sem svarar um
helmingi Neðri-Skagans, að sögn
Gísla Gíslasonar bæjarstjóra.
Greiddar vora 10 mihjónir við und-
irritun samnings og aðrar 10 milljón-
ir eftir 2 mánuði. Kaupin veröa fjár-
mögnuð með lántöku.
KÁSSBOHRER FLEXMOBIL FM 23.150 K
Mjög öflugur 10 manna bíll.
Upplýsingar í síma 984-55155.
Á hvaða
tíma
S6ITI er! 99•56*70
I Aðeins 25 kr. mín. Sama verð fvrir alla landsmenn.
Áskrifendur DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
^ wwwv
AUGLYSINGAR
Þverholti 11 -105 Reykjavík
Simi 563 2700 - Bréfasími 563 2727
Græni siminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga ki. 9-22
Laugardaga kl. 9-14
Sunnudaga kl. 16-22
Athugib!
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.