Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1995, Blaðsíða 32
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gastt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIDSLA OG
ÁSKRiFT ER OPIN;
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
PCL 6-8 LAUGARDAGS. OG MÁNUOAGSMORGNA
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1995.
Formaður Alþýðuflokks:
Sama hegðunog
hjáJóhönnu
„Þetta mál er ákveðið í ríkisstjórn
sem liður í sparnaðaraðgerðum við
fjárlagaafgreiðslu og lagt fyrir í þing-
—Öokkum. Það er hver einasti þing-
maður stjórnarliða skuldbundinn af
þessu. Athugasemdir, andstaða, aör-
ar tillögur hefðu átt að koma fram
fyrir löngu. Þetta er eins og Jóhanna
Sigurðardóttir hegðaði sér gjarnan
sem ég hélt að allir væru búnir að
fá nóg af,“ segir Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðuflokksins,
um gagnrýni Guðmundar Árna Stef-
ánssonar á áform Sighvats Björg-
vinssonar heilbrigðisráðherra að
taka upp tilvísanakerfl í heilbrigðis-
þjónustunni.
„Viö ræddum þetta mál á þing-
flokksfundi í vikunni og mér kom
auðvitað ekki í hug að það mundi
leiða til þess að varaformaður flokks-
___jns færi gegn heilbrigðisráðherra í
erfiðum deilum hans við sérfræðinga
í fjölmiölum. Það er hvorki á réttum
stað né tíma. Þetta mál er afgreitt af
hálfu ríkisstjórnar, samstarfsflokka
og þingflokka beggja. Einn maður
segir allt í einu eftir dúk og disk að
hann sé ekki með. Ég vona að þetta
sé einfaldlega á misskilningi byggt,"
segir Jón Baldvin.
Fylgi Þjóð-
vaka hrynur
Minni hætta
„Það er ágætisveður hérna og 10
stiga frost. Almannavarnanefnd
mun koma saman í dag, eftir að
snjóalög hafa verið könnuð, til að
ákveða framhaldið," segir Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður á
ísafirði.
Hættuástandi hefur veriö aflýst á
Patreksfirði og er búist við að það
sama verði upp á teningnum á Flat-
eyri, Súðavík, ísafirði og Hnífsdal.
Veðurhorfur eru góðar á svæðinu í
bih. -rt
LOKI
Þá virðast langir „starfsdag-
ar" kennara vera framundan!
Kennarar sam
þykktu að boða
verkfall 17. febrúar
um5.
Talningu atkvæða um hvort boða
eigi til verkfalls hjá Kennarasam-
bandi íslands og Hinu islenska
kennarafélagi lauk i gærkvöldi.
Niðurstöðutölur úr talningunni á
að birta um hádegi í dag.
Samkvæmt heimildum DV var
samþykkt að boða til verkfalls 17.
febrúar næstkomnandi hjá báðum
félögunum. Verkfallsboðunin var
samþykkt með miklum meirihluta
atkvæða.
Þar með er Ijóst að ef kjarasamn-
ingar fakast ekki fyrir 17. febrúar
kemur til verkfalls um 5.500 kenn-
ara í grunnskólum og framhalds-
skólum landsins. Ef til verkfalls
kemur má reikna meö að það
standi það lengi að vorönn skaðist
umtalsvert eða jafnvel sé fyrir bí í
öllum skólum landsins. Fræðslu-
stjórar, sem DV innti álits fyrir
nokkru á afleiðingum kennara-
verkfalls, ef til þess kemur, voru
sammála um aö vorönn færi úr
skoröum.
Þeir talsmenn kennarasamtak-
anna, sem DV hefur rætt við, eru
mjög svartsýnir á að samningar
takist fyrir 17. febrúar. Þeir segja
að alls ekkert hafi rniðað í samning-
um að undanfómu.
Kennarasambandiö hefur ekki
áður boðað tii verkfahs eftir að það
öðlaðist rétt til verkfallsboðunar.
Það á mjög digran verkfahssjóð eða
um 400 milljónir króna og er búist
við að félagar í Kennarasamband-
inu fái greiddar yfir 50 þúsund
krónur á mánuði ef til verkfalls
kemur. Verkfallssjóður Hins is-
lenska kennarafélags er mun veik-
ari enda ekki langt síðan félagiö fór
í verkfall.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
ÍM-Gallups hefur fylgi Þjóövaka
hmnið. í síðustu könnun í desember
mældist fylgi Þjóðvaka 25,8% en er
núna 11,2%. Allir aðrir fiokkar bæta
við fylgi sitt frá síðustu könnun nema
Kvennalistinn. Könnunin var gerð
24.-29. janúar sl.
Alþýðuflokkur er með 9,7% fylgi
samkvæmt könnun Gallups, Fram-
sóknarflokkur með 22,1%, Sjálfstæð-
isflokkur 38,2%, Alþýðubandalag
12,2% og Kvennahsti 5,2%. Úrtakið
var 1.150 manns af öllu landinu nema
Vestfjörðum. Svarhlutfalhð var
71,4% en hlutfall óákveðinna eða
"peirra sem neituðu aö svara var 18%.
össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra, Jón Bragi Bjarnason formaður stórslysanefndar og Árni Þór Sigurös-
son frá hafnarstjórn skoða flotgirðingar í nýju húsnæði fyrir mengunarvarnabúnað sem tekið var í notkun í Faxa-
skála við Reykjavíkurhöfn í gær. DV-mynd GVA
Veðriö á morgun:
Hvassviðri
um mest-
allt land
A morgun verður suðaustan
hvassviðri um mestaht land.
Norðanlands verður að mestu
úrkomulaust en slydda eða snjó-
koma í öðrum landshlutum.
Veðrið í dag er á bls. 28
BaráttanumÚA:
Ákvörðun vísað
tilstjórnar?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hnúturinn sem bæjarfulltrúar á
Akureyri þurfa að leysa til að fá botn
í afurðasölumál Útgerðarfélags Ak-
ureyringa hertist enn frekar í gær-
kvöldi þegar þrjú flokksfélög í bæn-
um funduðu um máliö. Svo virðist
að máhð aht sé komið í slíka sjálf-
heldu að menn geti engan veginn séð
hverjar lyktir þess verða. Meiri-
hlutasamstarf Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks riðar á barmi falls og
í Álþýðubandalaginu sem er í lykil-
aðstöðu í málinu er djúpstæður
ágreiningur sem ekki er séð hvemig
verður leystur. Það nýjasta er að til
tals hefur komiö að láta stjórn ÚA
skera á hnútinn og taka ákvörðun í
máhnu.
- sjá bls. 4
HelgiÁgústsson:
Ræði ekki um
þessa skýrslu
„Ég ætla ekki að ræða þessa
skýrslu. Hún hefur verið yfirfarin
af Ríkisendurskoðun," sagði Helgi
Ágústsson, sendiherra íslands í Lon-
don, aðspurður um gagnrýni Ríkis-
endurskoðunar á hans þátt í máli
Jakob Frímanns Magnússonar
menningarfulltrúa í skýrslu um bók-
hald og íjárreiður sendiráðsins.
Þar kemur meðal annars fram að
telja verði óviðunandi að forstöðu-
menn geti vikist undan ábyrgð og
starfsskyldum gagnvart undirmönn-
um eða samstarfsmönnum, en þar
er átt viö Jakob Frímann, „þó svo
að þeir hafi ekki verið sáttir við ráðn-
ingu viðkomandi og áherslur í því
sambandi". -Ótt
Tilraun til
íkveikju á
Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Tilraun var gerð til íkveikju í húsi
við Byggðaveg á Akureyri í gær-
kvöldi en húsráðanda tókst aö koma
í veg fyrir að eldur yröi laus.
Húsráðandi fann reykjarlykt í hús-
inu og kom hún frá bakdyrum en þar
leyndist glóð í hurðarkarmi. Glóðin
var slökkt með snjó áður en tjón
hlaust af en ekki er vitað um hver
þarna hefur verið að verki.
lANDSSAMBAM)
ÍSI.. KAKVKRK I AKA
4
f
$
4
4
LOTT*
alltaf á
Miðvikudögnm