Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1995, Page 2
20 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995 Bflar Kynningarakstur á Scania 113M380: lipur 40 tonna dreki - með 18 metra tengivagni Scania R113 MA 380 - öflugur dráttarbíll með 18 metra tengivagni og 40 tonna hlassi er ekki árennilegur fyrir óvana í innanbæjarumferðina en kom þægilega á óvart í kynningarakstri úti í Svíþjóð á dögunurn, enda búinn nýrri tölvu- stýrðri sjálfskiptingu. Fullvaxinn dráttarbíll frá Scania, með 18 metra tengivagni sem vegur alls um 40 tonn með farmi, er kannski ekki óskabíllinn til að bregöa sér á í bæjarferð. í heimsókn til Scania í Svíþjóð á dögunum var okkur íslensku blaðamönnunum þó kynntur einn slíkur og vegna þess að undirritaður hefur meirapróf með öllu tilheyrandi þá var heimilt að fara í prufutúr. Nafni minn Tómas- son frá Morgunblaðinu, sem ekki státar af slíku ökuskírteini, kom hins vegar með sem farþegi og ekki síður til halds og trausts. Ekki var laust við að það færi um okkur þegar tilraunabílstjórinn sænski leiddi okkur út undir hús- vegg við verksmiðjurnar og sýndi okkur gripinn, Scania R113 MA 380, en síðasta talan stendur fyrir það að bíllinn er með 380 hestafla vél. Þrátt fyrir að undirritaður hefði aldrei snert viðlika stórt og öflugt ökutæki, og raunar aöeins einu sinni gripið í dráttarbíl með tengivagni, þá var ekki annað að gera en að snar- ast um borð og hlusta á leiðbeining- amar frá bílstjóranum sænska, sem kom sér fyrir í kojunni fyrir aftan okkur félagana, og hefja aksturinn undir hans leiðsögn. Mér varð hugsað til hans Kalla vin- ar mins sem kenndi mér á vörubílinn í meiraprófmu um árið þegar ég setti í gang og fyrir lá að bakka þessu fer- líki vel á annað hundrað metra eftir þröngu húsasundinu á milh verk- smiðjubygginganna. En kennslan hans Kalla og reynslan frá heyvögn- unum í sveitinni gerði sitt til að þetta gekk áfallalaust og hægt var að snúa sér að akstrinum. Tölvustýrö skipting Ástæðan til að við fengum þennan umrædda dráttarbíl til kynningar- aksturs var sú að hann er búinn al- veg nýrri gírskiptingu sem þeir hjá Scania kalla GRS 900 R, en R stendur fyrir „retarder" eða innbyggða mót- orbremsu. Þessi nýja skipting er nokkurs konar blanda af sjálfskipt- ingu og handskiptingu. Hún vinnur þannig að stíga þarf á kúplinguna þegar sett er í gír og ekið af stað en upp frá því sér tölvustýring um að skipta um gír eftir hraða og aðstæð- um, alveg þar til bíllinn er stöðvaður aftur. Byrjað er á því að „forrita" kassann áður en lagt er af stað en hægt er að velja ákveðinn gír sem upphafsgír og þá hærri gír ef bíllinn er til dæm- is tómur. Hér var sá sænski búinn að ákveða 4. gír sem upphafsgír þótt bíllinn væri fullhlaðinn og það var greinilegt að 380 hestafla vélin fór létt með það að koma þessu 40 tonna ferlíki áfram. Þessi nýi gírkassi, sem raunar er enn í þróun, kom verulega á óvart. Hann skiptir svo léttilega á milli hraðastiga að ef ekki væri lítill tölrit- aður gluggi í mælaborðinu sem sýndi í hvaða gír hann væri hverju sinni og snúningshraðamælir sem sýnir sveiílur í snúningshraða vélarinnar þá hefðu sumar gírskiptingarnar hreinlega farið fram hjá okkur í akstrinum. í þesssum kynningarakstri var ek- ið um verksmiðjusvæðið og síðan um nágrennið, ekki ósvipað svæði og Grafarvoginn hér í Reykjavík, þann- ig að ýmist var ekið upp eða niöur brekku og teknar þröngar beygjur í íbúðahverfi. Það var ótrúlega létt að aka þessum 40 tonna þun'ga bíl við þessar aðstæður og jafn átakalítið og aka venjulegum fólksbíl, ef frá er tahn sú staðreynd að taka varð tillit til langa tengivagnsins, sem var á þremur ásum, en fyrir einstakt glópalán fór aldrei eitt hjól upp á gangstéttarbrún þrátt fyrir þröngar beygjur, nokkuð sem segir sitt um það hversu hpur og hölegur bíhinn er í akstri. Stórir hhðarspeglarnir hjálpuðu líka til með að gefa góða yfirsýn um hvað væri að gerast þarna fyrir aftan. Góð loftfjöðrun Bilhnn sjálfur er með loftfjöðrun sem gerir allar hreyfingar í akstrin- um mun mýkri en á bíl með hefð- bundnar blaöfjaðrir. Þá er stýrishús- ið sjálft með loftfjöðrun sem gerir vinnuaðstöðu ökumanns enn betri en ella. Það kom vel fram hjá tilraunabíl- stjóranum sænska að vinnuum- hverfi vörubílstjóra hefði gjörbreyst á síðustu árum og að hann væri minna þreyttur eftir langferð í þess- um bíl en í góðum fólksbíl. Umhverfi ökumannsins er allt fullt af mælum og stjórntækjum sem gera aksturinn álíka iéttan og á venjulegum fólksbíi. Aðstaöa ökumannsins í þessum Scania var til fyrirmyndar. Öll stjórntæki eru innan seilingar, mælaborð stórt og greinilegt og tölvustýrða gírskiptingin með inn- byggðri mótorbremsu var punktur- inn yfir allt saman. Ekki tókst að fá uppgefið hvenær við getum vænst þess að fá þessa nýju gírskiptingu í vöruflutningabíla hér á landi, en hún er eins og klæð- skerasaumuð fyrir misjafnar akst- ursaðstæður og vegi hér á landi. Eft- ir prufutúrinn okkar var það næsta verkefni bhstjórans sænska að halda með bílinn til Norður-Svíþjóðar þar sem reyna átti bíl og búnað í þeim brunagaddi sem þar ríkir yfirleitt á þessum árstíma. -JR Þrír nýir frumsýndir á bílasýningunni í Chicago Toyota frumsýndi nýjan skúffubíl, Toyota Tacoma, á „Chicago Auto Show“ á dögunum. Þessi nýi skúffubill er með lengdu farþegahúsi, svipaö og Toyota extra cab, en mun stærri en þeir skúffubílar sem eru í umferðinni hér á landi i dag. Alex Trotman, stjórnarformaður Ford Motor Company, sýnir hér stoltur hinn nýja Mercury Sable Wagon sem frumsýndur var á sýningunni í Chicago. Simamynd Reuter Infinity frá Nissan er einn þeirra bíla sem við þekkjum bara af afspurn en á sýningunni í Chicago var frumsýnd ný gerð, Infinity 1-30, sem samkvæmt fréttum frá Reuter er lúxusbíll í millistærðarflokki. bílasala, Bíldshöfða 3, sími 670333 Vantar fólksbíla og jeppa, 1993 og yngri, á skrá og á staðinn. MMC Colt GLX ’89, hvítur, ssk., ek. 55 þús. km. V. 670.000 kr., sk. é ód. MMC L-200 double cab ’91, rauð- ur, disil, ek. 57 þ. km, upph., 33* dekk, spil, br. hjá Bílabúð Benna. V. 1.550.000 kr., sk. á ód./dý. Subaru Legacy 1,8 st. ’91, hvitur, ek. 78 þús. km, 5 gíra, upph. drkúla. V. 390.000 kr., sk. á ód. Toyota Corolia XL '91, hvitur, ek. 75 þús. km, 5 gira. V. 650.000 kr. Peugeot 505 GL station ’87, dísil, rauður, uppt. vél og sjálfskipting. Mikið endurnýjaður, 8 manna. V. 700.000 eða 550.000 stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.