Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1995, Síða 3
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995
29
Bílar
Heimsókn til Scania í Svíþjóð:
Framleiddu32 þúsund
vörubíla og hópbifreiðir
- ætla sér aukinn hlut í vaxandi markaði
Scania-umboðið á Islandi hefur haft
vistaskipti og er nú komið í hendur
Heklu hf. eins og áður hefur komið
fram á síðum DV-bíla. Scania-verk-
smiðjumar sænsku eru stórfyrir-
tæki með um 20.000 starfsmenn í
vinnu í 6 löndum.
Ef litið er til baka þá á Scania ræt-
ur að rekja til loka síðustu aldar og
var í raun tvö fyrirtæki í upphafi.
Vabis í Södertalje, skammt sunnan
Stokkhólms, var stofnaö árið 1891 og
framleiddi í upphafl lestarvagna.
Scania hóf starfsemi aldamótaárið í
Malmö og í upphafí var framleiðslan
einkum reiöhjól. Fljótlega upp úr
aldamótunum hófu bæði fyrirtækin
framleiðslu vörubíla og á árinu 1911
voru þau sameinuð undir heitinu
Scania-Vabis og undir því nafni
þekkja margir fyrirtækið. Á árinu
1969 var Scania-Vabis steypt saman
við Saab, sem framleiddi bæði fólks-
bíla og flugvélar, undir heitinu
Saab-Scania, en við kaup GM á Saab
var aftur skilið á milli fyrirtækjanna
og nú heita verksmiðjurnar einfald-
lega Scania.
Byggja á
þungaflutningum
„Við viljum vera leiöandi í gæðum
en horfum um leið mikið til um-
hverfisverndar," segir Per-Erik
Nordström, en hann, ásamt þeim Ulf
Ekström og Olov Larsson, fræddi
okkur íslensku blaðamennina sem
vorum í heimsókn í aðalstöðvum
Scania í Södertalje ásamt Sverri Sig-
fússyni, framkvæmdastjóra Heklu,
um starfsemina á dögunum.
Scania setti sér nýlega ný markmið
sem byggjast á gæðum, afköstum,
hagkvæmni og umhverfl. „Umhverf-
isvænn“ er í raun ekki til í okkar
orðabók, bætir Per-Erik við, því í
eðli sínu getur stór vörubíll ekki
flokkast sem slíkur, en á móti kæmi
að hjá verksmiðjunum væri lögð
mikil áhersla á að draga sem mest
úr skaðlegum áhrifum sem bæði
framleiðslan og notkun vörubílanna
ylli.
Ríflega 85 af hundraði framleiðslu
Scania í dag eru vörubílar, 16 tonn
eða stærri. Um ellefu af hundraði eru
hópflutningabílar og hðlega 3 pró-
sent eru vélar, einkum fyrir báta.
Aukin sala
Á síðasta ári framleiddi Scania um
32 þúsund vörubíla og hópferðabíla,
sem er veruleg aukning frá fyrra
ári, og að sögn Ulfs Ekströms, fjár-
málastjóra fyrirtækisins, var árið
1994 eitt það besta hjá Scania um
Auk framleiðslu í sex verksmiðjum í Svíþjóð fer framleiðsla á vörúbílum og hópbifreiðum fram i fimm löndum
og einnig er byggt yfir hópbifreiðir i nokkrum löndum til viðbótar.
Framleiðsla a vélum fyrir báta og vinnuvelar er stór Sænskt gæðastál hefur borið hróður sænskra iðnaðar-
þáttur í framleiðslu Scania.
langt árabil. Heildarsala vörubíla í
heiminum er nú á bilinu 400 til 500
þúsund bílar á ári og þar hefur hlut-
ur Scania farið vaxandi. Betri mark-
aðshlutdeild hefur náðst í Evrópu og
nýir markaðir hafa unnist í Suðaust-
ur-Asíu. Að mati Scania-manna mun
Evrópumarkaður vaxa úr 150.000 bíl-
um á árinu 1994 í 200.000 bíla árið
2010. Markaðurinn í Suður-Ameríku
tvöfaldist og sömuleiðis í Asíu. Þá
má reikna með verulegri aukningu,
bæði í Miðausturlöndum og eins í
Afríku.
Stærsti markaöur Scania fyrir hóp-
bifreiðir er í Suður-Ameríku en á síð-
asta ári voru smíðaðar meira en 3.100
slíkar bifreiðir og helmingur þeirra
í Suður-Ameríku.
Scania rekur verksmiðjur í mörg-
um heimsálfum og fer framleiðslan
fram í Argentínu, Brasilíu, Frakk-
manna víða um
landi og Hollandi, auk Svíþjóðar.
Auk þess eru samsetningarverk-
smiðjur fyrir bíla frá þeim í öðrum
löndum, bæði í Asíu og Afríku.
Vegna aukinnar eftirspumar í
Austur-Evrópu hefur veriö komiö á
fót verksmiðjum til yfirbygginga á
hópbifreiðum á því svæði og meðal
annars verið byggt yfir slíka bíla
bæði í Póllandi og Ungveijalandi.
Aukin framleiðsla
Stefna Scania í dag er einkum að
bæta framleiðsluna enn frekar frá
því sem nú er. Aukin framleiðsla
með færra fólki er eitt markmiðanna
sem stefnt er að og við uppbyggingu
nýrrar verksmiðju í Frakklandi hef-
ur þetta tekist mjög vel. Þar var
reiknað með hámarksframleiðslu
sem næmi um 30 bílum á dag en
heim.
raunin varð 34 bílar vegna aukin'nar
hagkvæmni.
Hvað varðar umhverfisvernd hef-
ur verið gripið til nýrra aðferða við
málningu bílanna. Notuö er vatns-
blönduð málning sem er sterkari en
sú sem áöur var notuð og þolir til
dæmis vel að hlutir séu sveigðir til
eftir málun án þess að yfirborð máln-
ingarinnar springi, sem er mikill
kostur við smíði grindarhluta, svo
dæmi sé tekið.
Það var auðsjáanlegt þegar gengið
var um verksmiðjur Scania í Söder-
talje að þar er hugur í mönnum og
þar horfa menn björtum augum fram
á veginn. Vegna aukinnar eftirspurn-
ar er reiknað meö því að bæta þurfi
við að minnsta kosti um 400 manns
í þeim sex verksmiðjum Scania sem
eruíSvíþjóð. -JR
Frumvaip um laekkun vörugjalds á bílum:
60-70 þúsund króna
lækkun á meðalstórum bíl
- og allt aö 300 þúsund á stórum dísiljeppa
Verð á meðalstórum fólksbíl sem Lækkun á dísilbílum verður enn aö lækka vörugjald af hópbifreið- lendrar ferðamannaþjónustu en
kostar um tvær milljónir króna raeiri, eða um 15%, og það þýðir um fyrir 10-17 farþega, en þó ekki eitt háværasta umkvörtunarefni
lækkar um 60 til 70 þúsund krónur aödísiljeppiístaírrikantinum,sem niðurfyrir20%, enídageráþeim erlendra ferðamanna sem sækja
þar sem írumvarp fiármálaráðherra kostar um 4 milljónir króna, lækk- 30% gjald. Þá er einnig lagt til að okkur heim er hátt verð á bílaleigu-
umlækkunvörugjaldsafökutækjum ar um allt að 300 þúsund krónur. heimilað verði að lækka vörugjald bílum sem lækkar þar sem frum-
var samþykkt á þinginu en frum- Fleiri breytingar eru í þessu afbiiumsemætlaðirerutilútleigu varpiö var samþykkt.
varpiö var lagt fram 1 síðustu viku. frumvarpi. Þar á meðal má nefna á bilaleigum en þó ekki niður fyrir -JR
Samkvæmt frumvarpinu lækkar að vörugjald afhópbifreiðum lækk- 30%.
vörugjald af bíl i öðrum gjaldflokki ar úr 15% i 5% og sömuleiðis að Þessar siðast töldu heimildir eru
úr 45% í 40% fiármálaráðherra fær heimild til ætlaöar til að jafha aöstöðu inn-
$ SUZUKI
•mv-
Tegund Árg. EkinnStgrverð
Suzuki Swift GLX, 5 d. '90 83 þ. 550 þ.
Suzuki Swift sedan, 4 d.. ssk. '91 66 þ. 730 þ.
Suzuki Swift sedan, 4 d.. ssk. '93 27 þ. 990 þ.
Suzuki Vitara JLX, 3 d. '91 82 þ. 1.150 þ.
SuzukiFox410.langur '86 134 þ. 350 þ.
Suzuki Fox 413. blæju '88 100 þ. 430 þ.
Suzuki Fox 413, blæju. 33" dekk '88 91 þ. 470 þ.
Suzuki Fox 410,33" dekk, 820 vél '88 77 þ. 490 þ.
Suzuki Samuiai 413. '92 46 þ. 900 þ.
Suzuki Samurai 413, '91 66 þ. 795 þ.
Subaru coupé 1808. ssk.. 4x4 '89 83 þ. 760 þ.
Ford Bronco XLT '87 80 þ. 990 þ.
Dodge Dakota pickup, ssk.. vsk. '90 34 þ. 1.450 þ.
Dalhatsu Charade TS. 3 d. '87 81 þ. 280 þ.
MMC Pajero. 3 d. '85 160 þ 620 þ.
Volvo 240 GL, 4 d.. ssk. '87 100 þ. 750 þ.
Subaru 1800station '89 105 þ. 880 þ.
Daihatsu Feroza ELII. króm '90 77 þ. 990 þ.
Nissan Cherry, 3 d.. ssk. '85 107 þ. 210 þ.
Citron... BX. 16TRX. 5d.. ssk. '88 96 þ. 580 þ.
Fíat Panda 4x4.3 d. '92 12þ. 590 þ.
MMC L 200 pickup. 4x4 '91 38 þ. 1.040 þ.
Toyota Camry GLi, 4 d. '88 99 þ. 790 þ.
MMC Pajero. 3 d. '86 185 þ. 630 þ.
Toyota Corolla, 3 d. '90 58 þ. 580 þ.
Toy. LandCruiser, 5 d„ disil, ssk. '88 172 þ, 1.750þ.
Lada Samara, 3 d. '89 85 þ. 180 þ.
$ SUZUKI
—*** ....
SUZUKI BÍLAfí HF.
Skeifunni 17 sími 568-5100
Munid eftir 6-36,
6 mánaða ábyrgð og
36 mánaða greiðslukjörum
eða Visa-Euro-greiðslum.
Sími 642610
Ford Escort CL 1,3 ’92, 5 gira, 3
dyra, hvítur, ekinn 25 þús. km.
Wagoneer Limited 2,8 ’86, ssk., 5
dyra, svartur, ekinn 130 þús. km.
Verð 1.050.000 kr.
Opið:
virka daga frá kl. 9.00-18.00,
laugardaga frá kl. 12.00-16.00
NOTADIRBlLAR
Skeljabrekka 4, Kópavogi