Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995
18
Tækni - Hljómtæki_________________________________________________________________dv
Það á að vera spenn-
andi og lærdómsríkt
að kaupa hljómtæki
Aö kaupa sér hljómtækjasamstæðu
í heilu lagi eða staka hluti í hljóm-
tækjasamstæðu, hátalara, magnara,
geislaspilara eða annað, svo að ekki
sé talað um að koma sér upp heima-
bíói, á að vera skemmtileg stund.
Sjálfsagt kannast flestir við smá-
kvíða sem stundum fylgir þessu,
kvíða sem er auðskiljanlegur; er ver-
ið að kaupa það eina rétta? var þaö
betra sem ég hlustaði á í gær? Shkar
hugsanir þjóta um huga margra sem
eru í þessum hugleiðingum enda er
til svo mikið úrval af hljómtækjum.
Fyrir þann sem ekki hefur reynslu
af að hlusta á misgóð tæki er oft erf-
itt að heyra hvað er góður hljómur
og hvað er slæmur og fyrir þann
sama er enginn munur á hljómi
hvort sem vöttin í magnaraTium eru
30 eða 40.
Það er óþarfi að taka allt það sem
stendur á blaði alvarlega þótt vafa-
laust sé allt rétt sem þar stendur,
best er að treysta á sjálfan sig. Og
kvíðinn er einnig óþarfur vegna þess
að þaö er varla mögulegt að gera af-
gerandi mistök. Gæði og peningar
fylgjast nefnilega að í þessum geira
sem og öðrum og ef á að kaupa til
að mynda mini-samstæðu fyrir sex-
tíu þúsund krónur er munurinn á
tegundum tilfallandi. Sjálfsagt er
samt að leita fyrir sér, reyna að gera
upp á milli og að endingu kaupa það
sem eyra og augu segja að sé best
þótt á einhveiju blaöi segi að annað
sé aðeins betra.
Aftur á móti hafa þeir sem eru að
leita að fuhkomnum tækjum oftast
nær lesiö sér til um þaö sem er á
markaðinum en eru margir hverjir
óákveðnir og þá er fyrir öhu að gefa
sér góðan tíma til að hlusta vel í
verslunum, jafnvel fá lánað heim
tæki til að prufa við það sem fyrir
er. Það er nefnilega ótrúlega mikiö
til af góðum geislaspilurum, góðum
mögnurum og góðum hátölurum.
Þegar kemur að því að velja einstak-
an hlut er hátalaravalið það vanda-
samasta en að lokum eru það eigin
eyru sem segja til um hvað er best
fyrir viðkomandi. Hér á eftir fara
nokkur algild ráð sem ágætt er fyrir
hinn almenna kaupanda, sem ekki
hefur aUt of mikla þekkingu á tækn-
inni, að fylgja og vonandi eiga þau
eftir -að auðvelda vaUð þótt einnig
megi segja áð þessi heillaráð veki upp
spumingar.
Undirbúningur
Það veit ekki á gott að fara alveg
óundirbúinn í verslun með það í
huga að kaupa tæki sem viðkomandi
getur verið ánægður með. Það er
sjálfsagt að undirbúa sig vel, til að
mynda að vera búinn að Uta á auglýs-
ingar með þaö í huga hve há peninga-
upphæðin er sem kaupa á fyrir. Ág-
ætt er að vera búinn að fletta sérrit-
um um hljómtæki en þau eru yfir-
leitt uppfull af prófunum og verö-
samanburðum og ber þá að hafa í
huga að taka aUs ekki aUt bókstaflega
sem þar stendur. Þegar lagt er af stað
er gott ráð að vera með geislaplötu
meðferðis, plötu sem hefur verið í
uppáhaldi og vitað er hvemig hljóm-
ar í gömlu tækjunum. Á þessu ágæta
ráði er þó einn gaUi. Yfirleitt er frek-
ar þröngt í hljómtækjaverslunum og
margir á ferU og aðstaða tíl sérstakr-
ar hlustunar kannski ekki fyrir
hendi. Það er því ágætt að reyna að
fara á þeim tíma þegar lítið er að
gera og gefa sér góöan tíma.
Hljómtækin
og tæknin
Flestir hafa tekið eftir að hljómtæki
geta verið stöðluð frá mörgum fram-
leiðendum og önnur mismunandi í
úthti. Þá er takkafjöldinn einnig mis-
mikill og eins gott að láta ekki blekkj-
ast af mörgum tökkum því oftast eru
þau tæki ofhlaðin. Það má tU dæmis
nefna fuUkomna gerð af mini-hljóm-
tækjum en hingað til hefur ekki
vantað takka á slíkar stæður. Þessir
takkar eru aldrei notaðir því öUu
sem er nauðsynlegt er komið fyrir á
fjarstýringu.
Sölumenn eru yflrleitt mjög fróðir
um það sem þeir eru að selja og tala
oft mál sem almenningur ekki skU-
ur. Það getur því verið best að tíl-
kynna vankunnáttu sína á tækninni
strax í upphafi og vera óhræddur að
segja áUt sitt á hveiju sem er. Það'
er gott að taka ábendingum sölu-
manna en fyrst og fremst er það eig-
in tilfinning sem á að segja tU um
hvað hentar og hvað hentar ekki.
Hvernig á að hlusta
Eftirfarandi er gott að hafa í huga
þegar hlustað er á hljómtæki sem
jafnvel á að fara að kaupa. Fyrst
þarf að finna út þann hávaða sem
notaður er í heimahúsum. Við kunn-
uglegan hávaða kemur yfirleitt í ljós
hvort hlustun veldur vefiíðan eða
hvort eitthvað er að. Þá er gott að
hyggja að textaflutningi en hann má
aldrei vera þannig aö óþægilegt sé
að hlusta á hann. Ódýrari samstæður
gefa oft ekki mikla möguleika á fyU-
ingu í hljómi en það getur verið per-
sónulegt hvernig textinn á að hljóma
þannig aö sum tæki passa sumum,
önnur ekki. Ef verið er að kaupa
hljómtæki í háum verðflokki er sjálf-
sagt að fara fram á að fá viðkomandi
tæki lánað til að prufa það í því
umhverfi sem ætlunin er að hafa það
í. Ef kaupandinn er jafn ánægður
með hljóminn og í versluninni þá
fyrst getur hann verið sáttur við
kaupin.
Saba T 7049 hefur nokkuð sérstaka hönnun.
Surround magnari sem gefur
mikinn og góðan umhveríishljóm
Bónus Radíó er verslun sem hef-
ur það að leiðarljósi að vera meö
góð tæki á góðu verði og meðal
annars til að halda birgðunum í
lágmarki er ekkert lagerpláss í
búðinni, öllu er stillt upp og það
sem er á gólfinu og í hillum er það
sem til er. Bónus Radíó er með
umboð fyrir Samsung og Saba en
selur auk þess vörur frá fleiri fram-
leiðendum. Verslunin býður upp á
margar gerðir af hljómtækjum. í
Bónus Radíói er hægt að fá aUt frá
smæstu rafhlöðum, snúrum og
tengjum upp í stærstu sjónvarps-
og hljómflutningstæki.
Meðal þess sem Bónus Radíó býð-
ur upp á þessa dagana er hið eigu-
lega sjónvarpstæki Saba T 7049,
sem er 28" sjónvarpstæki með Nic-
am Stereo, innbyggðum 2x20 vatta
surround magnara, sem gefur góð-
an umhverflshljóm, Black Matrix
skjá, aðgerðarstýringum á skjá,
möguleika á móttöku á 16:9 breið-
tjaldsmynd, tímarofa, vekjara,
tveimur Scart tengjum, hátalar-
tengjum fyrir flóra hátalara, S-
VHS-tengi, Pal, Secam og NTSC
vídeómóttöku. Þá er fjarstýringin,
sem fylgir tækinu, nokkuö sérstök
en hún er gerð með það fyrir aug-
um að hún falli vel að hendinni sem
heldur utan um hana. Verðið á
Saba T 7049 er 79.900 kr. ef stað-
greitt er. Allar nánari upplýsingar
er aö fá í Bónus-Radíói við Grensás-
veg.