Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Blaðsíða 4
38
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995
Bflar
Nýr Mazda 323
kominn til landsins
Odýrasta gerðin er þriggja hurða hlaðbakur sem er
mun sportlegri en eldri gerðin.
Mun meiri mýkt en áður einkennir útlit nýju Mazda
323-bílanna sem frumsýndir voru hjá Ræsi hf. um helg-
ina. Hér er stallbakurinn sem er töluvert mikið breyttur
frá fyrirrennaranum.
$ SUZUKI
v/4
Tegund Arg. EkinnStgnrcrð
Suzuki Swift GA. 3 d. ‘88 68 þ. 31 Oþ.
Suzuki Swift GL, 3 d. ‘88 116 þ. 310 þ.
Suzuki Sivift GL1300,5 d. ‘90 83 þ. 550 þ.
Suzuki Swiftsedan, GL. 4d. ‘90 76 þ. 590 þ.
Suzuki Swift sedan, 4 d„ ssk. ‘91 66 þ. 730 þ.
Suzuki Swift GLX1600,4d. ‘91 33 þ. 780 þ.
Suzuki Vitara JLX. 3 d. ‘89 87þ. 880 þ.
Suzuki Vitara JLX, 3 d. ssk. ‘90 80þ. 980 þ.
Suzuki Fox 410 langur ‘89 134 þ. 350 þ.
Suzuki Fox 413. blæju. ‘88 lOOþ. 430 þ.
Suzuki Fox 413, blæju, 33' dekk ‘88 91 þ. 470 þ.
Suzuki Fox 410.33" dekk. B20 vél ‘88 77 þ. 490 þ.
Suzuki Samurai 413 ‘89 91 h- 580 þ.
Suzuki Samurai 413 ‘91 66þ. 795 þ.
M.Benz, 230 E.ssk. ‘86 142 þ. 1.490 þ.
Ford Bronco XLT, ‘87 80 þ. 990 þ.
MMC Pajero, 3 d. ‘85 160 þ. 620 þ.
MMC Pajero. 3 d. ‘86 185 þ. 630 þ.
Volvo 240 GL, 4 d., ssk. ‘87 100 þ. 750 þ.
Subaru copué 1800, ssk., 4x4 ‘89 83 þ. 760 þ.
Subaru 1800 station ‘89 105 þ. 880 þ.
Subaru Justy, J12,3 d. ‘87 77 þ. 380 þ.
Subaru E-10,5 d. ‘86 117 þ. 240 þ.
Daihatsu Applause, 4 d.. ssk. ‘91 20 þ. 890 þ.
Daihatsu Feroza, El II króm '90 77þ. 990 þ.
Daihatsu Feroza DX, ‘89 98þ. 780 þ.
Daihatsu Charade TX, 3 d„ ssk. ‘88 48þ. 450 þ.
Citroe...n Bx, 1GTRX, 5d., ssk. ‘88 96 þ. 580 þ.
$ SUZUKI
—vm ---
SUZUKIBÍLAR HF.
Skeifunni 17 sími 568-5100
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
EÐA í ÁSKRIFT í
SÍMA 563 2700
Nýr Mazda 323 var frumsýndur hjá
Ræsi hf. nú um helgina. Nokkrir
mánuðir eru liðnir síðan þessi nýi
bíll sást fyrst á markaði í nokkrum
Evrópulöndum og hefur hann hlotið
mjög lofsamlega dóma í þeim erlendu
bílahlöðum sem rekið hafa á fjörur
okkar.
Að sögn Hallgríms Gunnarssonar,
forstjóra Ræsis, var ákveðið að
markaðssetja þennan nýja bíl í
nokkrum þrepum á Evrópumarkaði
og vegna þess að lengri tíma tók en
fyrirfram var ætlað að fá viðunandi
verð á þessa nýju bíla fylgjum viö
frændum okkar Svíum og markaðs-
setjum þennan nýja Mazda 323 nú.
Bíllinn kemur, líkt og fyrirrennar-
inn, í þremur megingerðum, þriggja
hurða hlaðbakur, fjögurra hurða
stallbakur og fimm hurða F-hlaðbak-
ur.
Sá Mazda 323 sem frumsýndur var
hjá Ræsi um helgina er alveg nýr
bíll frá grunni. Utlitið er nýtt og
gangverk að nokkru leyti líka. Hjól-
hafið er til dæmis 20 sm lengra en
áður.
Grunngerðin er áfram með 1,3 lítra,
75 hestafla vélinni og var í eldri gerð-
inni, en nú kemur 1,5 litra, 88 hest-
afla vél með tveimur knastásum til
viðbótar. Þá er boðið upp á 1,8 lítra,
115 hestafla vél og loks nýja tveggja
lítra, V6-vél, 24 ventla með tveimur
yfirhggjandi knastásum en sú vél er
145 hestöfl við 6.000 snúninga á mín-
útu.
Þessar nýju gerðir Mazda 323 eru
með mun mýkra útliti en fyrirrenn-
aramir og þá sérstaklega stallbakur-
inn sem eflaust á eftir að fá mesta
hljómgrunninn á markaðnum enda
eigulegur fjölskyldubíll. Hlaðbakur-
inn er með sportlegu yfirbragði og
F-gerðin er líkt og eldri bíllinn nokk-
uð sérstæð í útliti.
Þriggja hurða hlaðbakurinn er
ódýrastur, kostar frá kr. 1.429.000,
stallbakurinn er á verði frá kr.
1.444.000 og F-gerðin kostar frá kr.
1.767.000.
-JR
MERCEDES BENZ 300 E, 4-MATIC
árg. '88, ekinn 120 þús. km, fjórhjóladrifinn, sjáif-
skiptur, ABS-bremsur, læst drif, tvívirk topplúga,
bensínmiöstöð, rafdr. rúður, velúráklæði, 4 höfuð-
púðar, geislaspilari, rafmagnsloftnet, álfelgur, sumar-
og vetrardekk.
Upplýsingar í símum 626295 og 985-27774.
Áriö byrjaði vel hjá Jaguar
því i janúar seldust 2.925 bílar
sem er aukning um 30 af hundr-
aöi miðað við árið í fyrra. Vel-
gengnin er að þakka nýja XJ-
bílnum sem hefur fengið góöar
viðtökur á öllum mörkuðum. Á
Evrópumarkaði er söluaukning-
in 71 af hundraði og meira að
segja i Þýskalandi hefur salan
aukist um 83% sem er harla gott
þvi þar í landi horfa menn frekar
til eigin framleiðslu þegar slíkir
glæsivagnar eiga i hlut.
f Japan, þar sem menn leggja
mikið upp úr útlendum glæsi-
vögnum, seldust 147 Jaguar-bílar
í janúar á móti 74 i fyrra.
Hjá Jaguar er reiknað meö þvi
að salan á árinu 1995 fari upp í
38.000 bíla.
Peugeot aftur
á Bandaríkja-
markað?
Franski bílaframleiðandinn Peu-
geot, sem dró sig út af bandaríska
bílamarkaðnum á árinu 1991 eftir að
hafa verið þar viðloðandi í 34 ár,
kann að vera á leiðinni inn á markað-
inn þar aftur.
Að sögn erlendra fréttastofa er
Peugeot með hugmyndir um að koma
á fót bílasmiðju í Bandaríkjunum
sem framleitt gæti allt að 200.000 bfla
á ári.
Stjómandi Peugeot, Jacques Cal-
vet, segir að fyrirtækið gæti selt á
bilinu 60.000 til 80.000 bíla á ári á
Bandaríkjamarkaði ef framleiðslan
félli að markaðnum. Þetta þýðir að
hanna þarf viðkomandi bíl sérstak-
lega fyrir Bandaríkjamarkað. Með
því að smíða bílinn í Bandaríkjunum
komast menn hjá áhrifum af gengis-
sveiflum dollarans sem var megin-
ástæðan fyrir tapi á sölu Peugeot í
Bandaríkjunum á fyrri árum.
Peugeot seldi aðeins 3.600 bíla á
árinu 1991 á Bandaríkjamarkaði.
HÖFUM OPNAÐ AÐ F0SSHÁLSI 27
Oryggi -
glæsileg bílas;
* Löggild bílasala
* Ástandsskoðun
* Bón og þvottur
* Dekkjaþjónusta
* Tryggingasala
* Lánaumsýsla
* Öll þjónusta í einum sal.
Fosshálsi 27, sími 587 4x4 (5874444)
Lykillinn að hagstæðum
bílaviðskiptum
er i Bílasalnum!